Morgunblaðið - 21.07.1987, Síða 46
46
VSór Itfll IS HflfrA/tHÍrtftM tliit í itíWtiwnvr
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987
ffclk í
fréttum
Eiginmaður Joan Collins
illa svikinn
Bandaríska leikkonan Joan Coll-
ins er nú á ferðalagi í Evrópu
og hyggst ekki snúa aftur til síns
heima fyrr en lögfræðingur hennar
hefur séð til þess að fyrrum eigin-
maður hennar, Peter Holm, flytji
út af heimili þeirra í Beverly Hills.
Holm hefur borið sig heldur illa
eftir skilnaðinn, en þau Joan voru
gift í 13 mánuði. Hann krefst þess
að fá sem svarar rúmum 3 miljónum
króna í lífeyri á mánuði þar til end-
anlega hefur verið gengið frá
skilnaðinum.
Holm, sem er fertugur Svíi, hefur
komið sér fyrir með mótmælaspjöld
fyrir utan heimili þeirra hjóna til
að vekja athygli á málstað sínum.
Meðal þess em hann hefur skrifað
á kröfuspjöldin er: „Joan, heimili
okkar sem kostaði 2,5 miljónir dala
er þitt. Við keyptum það fyrir
reiðufé á meðan við vorum gift.
Nú er ég á götunni. Hjálp!"
Holm er óánægður með þá mynd
sem fjölmiðlar hafa dregið upp af
honum, þar sem hann hefur verið
kallaður „ómerkilegur glaumgosi
sem lifir eins og sníkjudýr á Joan
Collins". Hann heldur því fram að
hann hafi fómað glæstum söngferli
og fyrirtæki til þess að helga líf
sitt leikkonunni. Hann segist hafa
séð algjörlega um fjárhagsmál
hennar sem hún hafi ekki ráðið við
og finnst hann að vonum illa svik-
inn að vera fleygt svona út á götu,
slippum og snauðum.
Holm bindur þó ekki miklar von-
ir við að mótmælin muni hafa áhrif
á dómarann, en segist aðeins vilja
fá nokkrar krónur til að komast af
þangað til niðurstaða fæst í skilnað-
armálinu. Meðal þess sem Holm
telur upp meðal helstu úgjaldaliða
eru tæpar 700 þúsund krónur í
húsaleigu á mánuði, og þætti sum-
um það dijúgur skildingur fyrir þak
yfír höfuðið.
Reuter
Svíinn Peter Holm, fyrrum eiginmaður Joan Collins, fyrir utan heimili þeirra í Beverly Hills, þar sem
hann hefur komið sér fyrir með kröfuspjöld.
1, ' iimmiataiiw .JHj U - I £ |1
IhMí í ■" 'i I mw ffim’ ^* \ 1
■ 4®* j - iií 1* j% 1 si,. |
f j 1 1' 1 1 1 8 1 B® £!££& ’il
11, ■jjjjljl i 0Hg | • «/ J W’! wBl 1
Sri Chinmoy setti heimsmet þegar hann lyfti 3,2 tonna lóðum með annarri hendi 30. janúar sl.
Lyflti 3,2 tonnum
með annarri hendi
Sri Chinmoy, upphafsmaður
friðarhlaupsins, lét sig ekki
muna um það að lyfta 3,2 tonna
lóðum með annarri hendi og
er það sannkallað afrek, Lyftan
hefur verið staðfest af breskum
og bandarískum lyftingasam-
böndum. Þetta ofurmannlega
afrek vann Chinmoy eftir að
hafa æft lyftingar í um 2 ár
og þykir flestum ótrúlegt að
þessum 56 ára gamla manni
skyldi takast að lyfta þessu
fargi, og það með annarri
hendi.
Sri Chinmoy er ættaður frá
Indlandi en fluttist til Banda-
ríkjanna á sjöunda áratugnum
þar sem hann hefur kennt og
iðkað innhverfa íhugun og boð-
að frið. Hann leggur stund á
ýmislegt annað en íþróttir og
íhugun, m.a. skrifar hann ljóð,
sögur og leikrit, semur tónlist
og málar myndir svo þúsundum
skiptir auk þess sem hann hefúr
ferðast um allan heim til að
efla friðinn.
Chinmoy segir að tilgangur-
inn með kraftaverkaiyftunni sé
fyrst og fremst að vekja at-
hygli á því að allt sé hægt ef
að viljinn er fyrir héndi. „Þú
getur sagt sem svo að einbeit-
ing, bæn og hugleiðsla sé
einungis fyrir andann. En því
vil ég mótmæla. Við getum líka
virkjað andlegan styrk til góðs
fyrir líkamann. Hugleiðsla og
einbeiting gefúr okkur styrk
og þann styrk er Iíka hægt að
nota til lfkamlegra athafna“
segir Sri Chinmoy.
Hassan kyssir hönd Elísabetar drottningar þar sem hún tekur
á móti honum við Windsor-kastala.
Kóngiir o g
drottning
hittast
Hassan Marokkókóngur var í opinberri heimsókn í Bretlandi
í síðustu viku. Hann hitti þar m.a. Elísabetu drottningu og fór
vel á með þeim eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Reuter
í lok heimsóknarinnar var haldin mikil veisla á Claridges hótel-
inu í London og var Hassan gestgjafí þar. Hér tekur hann á
móti drottningunni sem klædd var sínu fínasta, með kórónu
eins og alvöru drottning, en Hassan er i kufli að marokkanskri
hefð.