Morgunblaðið - 21.07.1987, Side 54
T < i
iw «»r i<
ír <’f-
/» »v
54
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIBJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987
Morgunblaðið/Ólafur Bragason
Helluflugvöllur var eins og alþjóðaflugvöllur þegar íslandsmótíð í vélflugi var haldið þar sl. laugar-
dag. Fremst á myndinni er Piper PA-28 Warrior flugvél Orra Eiríkssonar, íslandsmeistara, sem er að
undirbúa flugtak. Fjöldi annarra keppnisvéla bíður tilbúinn í röð fyrir aftan.
íslandsmótið í vélflugi:
*
Prri Eiiíksson varði
Islandsmeistara-
titilinn snilldarlega
— Tveir flugmenn skáru sig úr
Flug
Gunnar Þorsteinsson
Tveir flugmenn, Orri Eiríksson
frá Akureyri og Jón E.B. Guð-
mundsson frá Reykjavík, skáru sig
úr á íslandsmeistaramótinu í vél-
flugi sem var haldið á Helluflugvelli
á laugardaginn. Næstur á eftir þeim
var Bjöm Kristinsson frá Reykjavík
með tæplega 500 fleiri refsistig.
Keppnin var skemmtileg, veður var
gott og skipulag til fyrirmyndar.
Síðari hluta dagsins fór fram lend-
ingakeppni sem laðaði að nokkum
fjölda áhorfenda, enda sýndu flug-
mennimir þá mikil tilþrif. Að mati
dómara mótsins eru íslenskir einka-
flugmenn í mikilli framför frá
íslandsmeistaramótinu í fyrra.
íslandsmót í vélflugi skiptist í
þijá hluta: Flugleiðsöguhluta, sér-
verkefni og lendingakeppni.
í flugleiðsöguhlutanum er verið
að kanna hæfni keppenda til að
fljúga eftir nákvæmri flugáætlun
enda verður að halda réttum tíma,
hæð og ferli sem keppendur hafa
sjálfír reiknað út. Krafíst er ótrú-
legrar nákvæmni því frávik á hinum
ýmsu tímastöðvum mega ekki vera
nema tvær sekúndur. Nýbakaður
íslandsmeistari, Orri Eiríksson,
hlaut ekkert refsistig fyrir gerð
flugáætlunar, næstbestum árangri
á þessu sviði náði ísleifur Sveins-
son, með 3 refsistig, og með 6
refsistig voru þeir nafnarnir Guð-
mundur Tómasson og Jónsson.
Flugleiðasagan
erfiðust
Flugleiðsagan var tvímælalaust
erfiðasti hluti íslandsmeistaramóts-
ins. Floginn var tæplega 100
sjómflna hringur, Hella-Brúarhlöð-
Laugarvatn-Þjórsárósar-Austur-
Landeyjar, og fylgdust dómarar
með árangrinum á nokkrum tíma-
stöðvum, sumum lejmilegum.
Nákvæmasti flugmaðurinn var Orri
Eiríksson, með 357 refsistig, næst-
ur með 365 refsistig kom Jón E.B.
Guðmundsson, og þriðji var Almar
Sigurðsson sem hlaut 564 refsistig.
Sérverkefnin sem flugmennimir
þurftu að leysa fólust í því að finna
merki á jörðu niðri, þekkja kenni-
leiti af ljósmyndum og merkja þessi
atriði inn á landakort. Tilgangur
þessa hluta keppninnar er að reyna
hæfni flugmannanna til að kanna
umhverfíð á meðan þeir fljúga eftir
krefjandi tímaáætlun. Þennan hluta
leysti Orri best og fékk 60 refsi-
stig, Almar Sigurðsson og Jón E.B.
Guðmundsson komu næstir með 90
refsistig og í þriðja sætinu, með 150
refsistig, lentu þeir Guðmundur
Tómasson og ísleifur Sveinsson.
Einn reyndasti dómari mótsins,
Mogens Taagaard frá Selfossi,
sagði f samtali við blaðamann að
veðrið hefði verið „alltof gott“ fyrir
flugmennina í þessum keppnishlut-
um, „enda sáu þeir t.d. hálft
Suðurlandið þegar þeir voru komnir
í þúsund feta hæð“, sagði Mogens.
Lendingakeppnin
skemmtilegnst
Lendingakeppnin var örugglega
skemmtilegasti hluti keppninnar,
a.m.k. fyrir áhorfendur því þá
færist mjög mikið flör í leikinn og
voru tilþrif sumra flugmannanna
mikil. Nokkur fyöldi áhorfenda
fylgdist með á Helluflugvelli. Til-
gangur þessa hluta er að kanna
hæfni keppenda við fjórar mismun-
andi lendingar: Marklendingu,
gervinauðlendingu, gervinauðlend-
ingu án notkunar vængbarða og
marklendingu yfír hindrun.
Lendingakeppnin var miklu jafn-
ari og_ meira spennandi en aðrir
hlutar íslandsmótsins og voru sam-
anlögð refsistig úr lendingunum
flórum á bilinu 35—388. Enn var
Orri hlutskarpastur, og hlaut aðeins
35 refsistig í lendingakeppninni,
næstur kom Bjöm Kristinsson með
119 refsistig og þriðji, með 123
refsistig, var Guðmundur Jónsson.
Samtals hlaut íslandsmeistarinn,
Orri Eiríksson, 452 refsistig. í öðru
sæti var Jón E.B. Guðmundsson
Úrslit
Nr. Refsistig
1. Orri Eiríksson, TF-PIA 452
Piper PA-28-161
2. Jón E.B. Guðmundsson, TF-SKA 699
Cessna 150J
3. Bjöm Kristinsson, TF-UNA 1.171
Cessna 172M
4. Almar Sigurðsson, TF-EOS 1.249
Piper PA-28-161
5. fsleifúr Sveinsson, TF-FFU 1.258
Cessna 172N
6. GuðmundurTómasson,TF-HAL 1.323
Cessna 172N
7. Ragnar J. Ragnarsson, TF-RJR 1.529
Jodel DR 250/160
8. Albert Siguijónsson, TF-OLA 1.560
Piper PA-28-151
9. Gunnar Þór Ólafsson, TF-FRI 1.734
Cessna 172M
10. GuðmundurJónsson,TF-GJA 2.589
Cessna 172N
11. GuðmundurÁsgeirsson,TF-GAG 2.625
Piper PA-22-150
Morgunblaóið/ÓIafur Bragason
Glaður yfír unnum sigri. íslandsmeistarinn í vélfíugi 1987, Orri
Eiriksson, 22ja ára Akureyringur, hampar sigurlaununum.
Albert Sigurjónsson, niðursokkinn í gerð flugáætlunar. Flugmenn-
iralr máttu ekki vera nema 2 sekúndur frá tímastöðvum í flugleið-
J3öguhlutanum. enda var það erfíðastí hlutinn.
Morgunblaðið/Ólafur Bragason
BjÖrn Kristjánsson úr Reykjavík glímir við eina af Qórum lendinga-
þrautum sem lagðar voru fyrir flugmennina. Björn kepptí á vél
sinni, TF-UNA, Cessna 172 Skyhawk.
með samtals 699 refsistig og þriðji
var Björn Kristinsson með 1171
refsistig samtals. Lakastur var
árangur flugmanns sem var með
hvorki meira né minna en 2625
samanlögð refsistig.
Skipulagtil
fyrirmyndar
Skipulag mótsins var til fyrir-
myndar og fóru þar fremstir Friðrik
Sigfússon, mótsstjóri, sem var yfír-
dómari og Einar Steingrímsson,
flugumferðarstjóri úr Vestmanna-
eyjum, sem stjómaði flugumferð-
inni á Hellusvæðinu af sinni
alkunnu röggsemi.
Þetta var í fyrsta sinn sem vél-
flugmenn keppa um íslandsmeist-
aratitilinn á Helluflugvelli. EUefu
flugmenn tóku þátt í mótinu, en
að sjálfsögðu komu fjölmargir kol-
legar þeirra til að fylgjst með og
komu samtals um 30 einkaflugvélar
til Hellu þennan daginn. Gísli J.
Johnsen hf. lánaði IBM tölvubúnað
sem flýtti mjög fyrir hinum flóknu
útreikningum á refsistigunum.
Bjöm Thoroddsen flugmaður sýndi
listflug á „Shell-flugvélinni" við
mikinn fögnuð viðstaddra og má
segja að það hafí verið við hæfí,
því oft er íslandsmeistaramótið í
vélflugi nefnt Shell-mótið vegna
þess að Olíufélagið Skeljungur hf.
hefur gefíð veglegan farandbikar
til keppninnar.
Eftir tæpt ár verður Helluflug-
völlur væntanlega aftur í sviðsljós-
inu því fyrirhugað er að halda
Norðurlandameistaramótið í vél-
flugi á íslandi og kemur Hella helst
til greina í því sambandi.
„Ætla að halda
áfram að leíka mér“
— segir Orri Eiríksson Islandsmeist-
ari í vélflugi annað árið í röð
Orri Eiríksson, 22 ára véla-
verkfræðinemi frá Akureyri,
kom, sá og sigraði á íslands-
meistaramótinu í vélflugi 1987.
Orri var einnig íslandsmeistari
árið áður og segja má að hann
hafí varið títilinn með snilld á
Helluflugvelli sl. laugardag. Sá
keppandi sem næstur kom var
247 refsistígum ofar. Orri hefíir
um 250 flugstundir að baki og
keppti á flugvél af gerðinni Pip-
er PA-28-161 Warrior II.TF-PIA
frá Akureyri.
Komu þér þessi úrslit á óvart?
„Ég var ekkert viss um að mér
tækist að verja titilinn þó að ég
hafí nú búist við því að blanda mér
í baráttuna um efstu sætin. Það
eina sem ég var öruggur um í upp-
hafí, var að ég gerði pottþétta
flugáætlun. Það kom mér dálítið á
óvart að aðeins tveir keppendur
voru svona langefstir. Það er
kannski því að þakka að við höfum
mestu keppnisreynsluna að baki en
margir flugmannanna voru einmitt
að taka þátt í vélflugsmóti í fyrsta
sinn“.
Hvaða þrautir var erfíðast að
leysa?
„Það er enginn vafi á því að það
var flugleiðsagan sem var erfíðust.
Ég fékk samtals 452 refsistig, þar
af voru 357 vegna flugleiðsögunn-
ar, 60 vegna sérverkefna og 35
vegna lendinganna. Ég keppti á
Norðurlandameistaramótinu í vél-
flugi í Finnlandi í júní sl. og lenti
þar í 11. sæti af 17. og fékk 1.200
refsistig. Ég var þar fjórði í lending-
arkeppninni en flugleiðsagan dró