Morgunblaðið - 15.09.1987, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 15.09.1987, Blaðsíða 54
ðð 54 vgex HaHMaTqaa ar Hii;)Anin.rrTH<f (tkta.ihvíitd.rom MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987 Barnadanskennslu, þar sem kennd er leikræn tjáning í þvi gamla og nýja sem gerir lærdóminn léttan og skemmtilegan. Gömludansakennslu, Standard danskennslu, Latíndanskennslu. Sérnámskeið: Tjútt — Bugg — Rokk. Nýtt: Sérstakir Latin danstímar. Lokaðir tímar þar sem fjöldi í tíma er 26 nemendur NÁMSGJALD: Ein kennslustund í viku, Börn 4-5 ára kr. 840 per. mánuð. Aðrir kr. 1.052 per. mánuð 1 kennslustund í viku. AFSLÁTTUR: Nýjung. Allt að 40% afsláttur á ýmsum dögum og ýmsum tímum. ELDRI BORGARAR: Sérstakir síödegisdanstimar allt að 50% afsláttur. Nýjung. Greiðslufyrirkomulag fyrir þá sem þess óska. Forráðamenn grunnskóla, héraðsskóla og aðrir sem hug hafa á að fá danskennslu í sitt byggðarlag, haf- ið samband, við gerum gott og sanngjarnt tilboð. KENNSLUSTAÐIR: Reykjavik. Ármóli 17 a, simi 38830. Hafnarfj. Linnetstígur 3, sími 51122. Ýmsir aðrir staöir á landinu. Vinningstölurnar 12. september 1987. Heildarvinningsupphæð: 4.735.981 1. vinningur var kr. 2.372.636,- og skiptist hann á milli 4ra vinningshafa, kr. 593.159,- á mann. 2. vinningur var kr. 709.275,- og skiptist hann á milli 965 vinningshafa, kr. 735,- á mann. 3. vinningur var kr. 1.654.070,- og skiptist á milli 13.670 vinn- ingshafa, sem fá 121 krónur hver. Verkfall — þá og nú úr herbúðum Alþýðubandalagsins að blásið yrði í herlúðra í kjaramál- um og nú yrði staðið þannig að málum að kennurum yrði beitt fyr- ir stríðsvagninn enda hlytu menn að geta sameinast um að laun þeirra og annarra hópa meðal ríkis- starfsmanna væru hróplega lág...“ „ ... Opinberir starfsmenn eru að jafnaði óbilgjamari í kröfugerð en almennir launþegar... Þá er það staðreynd að sömu aðilar og eru háværastir í launakröfugerð fyrir opinbera starfsmenn beijast hatrammlegast gegn því að breyt- ingar séu gerðar sem leiða til fækkunar þessara starfs- manna...“ „ ... Til að ná því markmiði að fella ríkisstjómina virðist Alþýðu- bandalagið hafa einsett sér að stuðla að sem lengstu verkfalli BSRB og koma í veg fýrir samn- inga VSI og ASÍ ...“ Morgunblaðið 26. okt. 1984 „BSRB-menn hafa sýnt ótrúlega stífni og ófyrirleitni," segir Albert Guðmundsson þáverandi fjármála- ráðherra í fyrirsögn og í viðtali hefur Morgunblaðið eftir honum m.a.: „Fólk verður bara að fá að vita, að þeir em með svo ótrúlega stífni og ófyrirleitni að engu tali tekur, og slíkt gengur auðvitað ekki, ef samningar eiga að takast." Leiðara í sama blaði lýkur með þessum orðum:.......forvígismenn launþega verða að gera það upp við sig hvort þeir em í pólitískri baráttu í anda Alþýðubandalagsins eða kjarabaráttu í þágu umbjóð- enda sinna.“ Morgunblaðið 27. okt. 1984 Úr leiðara: „Einhvers konar byltingarskjálfti hefur hlaupið í ýmsa talsmenn BSRB eins og best sést á verkfallstíðindum samtak- anna. Það er tími til þess kominn að þessir skjálfta- og átakamenn víki fyrir hinum sem vilja semja og binda enda á átökin." Morgunblaðið 28. okt. 1984 Úr Reykjavíkurbréfí: „Að ein- hveiju leyti stafar þessi harka af því að samtök opinberra starfs- manna em einfaldlega óvön því að standa að verkföllum. Stríðsgleðin verður meiri en hjá þeim sem langa reynslu hafa á þessu sviði..." „ ... Harkan í verkföllum opin- berra starfsmanna er hættuleg fyrir margra hluta sakir ..." „ ... Verkföll BSRB koma með miklum þunga niður á fólki, sem ekkert hefur til saka unnið." Það var nú það Þessar úrklippur em aðeins sáralítið brot af því flóði, sem dundi á landsmönnum þessa viðburða- ríku daga. Miklu púðri var í það eytt að sýna landsmönnum fram á að tilgangurinn með verkfallinu væri ekki að bæta kjör félags- manna (sem stundum var meira að segja viðurkennt að væm ekki öfundsverð) heldur væri þetta fyrst og fremst herferð BSRB foryst- unnar (undir stjóm Alþýðubanda- lagsins, þegar verst lét) til að klekkja á ríkisstjóminni. Lýðræðið var beinlínis í hættu. Forystumenn BSRB vora krafð- ir ábyrgðar á því að neita leið þjóðarsátta, skattalækkunarleið, en einblína þess í stað á 30% kaup- hækkun, sem óhjákvæmilega hlyti að leiða til gengisfellingar og versnandi lífskjara. Lítt var hlustað á forystumenn bandalagsins en þeir bentu á að reyndar hefði þeim aldrei staðið nein skattalækkunarleið til boða. Eina, sem fram hefði komið í því máli var tilboð um að lækka beina skatta um 600 milljónir, en sá böggull fylgdi skammrifi að óbeinu skattamir yrðu hækkaðir um jafn mikið. Þessi svör dmkknuðu í áróðrinum gegn bandalaginu og félagsmönnum þess. Mýf mZtCÓUNN SÉRHÆFÐIR DANSKENNARAR í: eftir Bjöm Amórsson Að gefnu tilefni leitaði ég til úrklippusafns BSRB eftir fróðlegt viðtal við Þorstein Pálsson forsæt- isráðherra í nýjasta tölublaði tímaritsins Mannlífs. Hvað sem öllum skollaleik um eignarétt líður verður því vart mótmælt að Morg- unblaðið er helsta stuðningsblað Þorsteins Pálssonar og því nokkuð forvitnilegt að rifja upp ummæli þess um verkfall BSRB á haust- mánuðum 1984. Fyrst Björn Bjarnason í Morg- unblaðinu 25. okt. 1984 „Nú eins og árið 1977 þegar opinberir starfsmenn fóm fyrst í verkfall einkenndist framkvæmd þess af mikiili hörku, sem oft er ekki annað en óbilgimi. í upphafi deilunnar átti engin ráð að spara...“ „ ... ætlunin var að lama sem flesta þætti þjóðlífsins. Meira kapp var á það lagt fyrstu dagana sem deila ríkisins og BSRB stóð að skilgreina hveijir skyldu starfa áfram í verkfallinu en að komast að niðurstöðu um kaup og kjör ...“ „ ... Morgunblaðið andmælti því á sínum tíma þegar Matthías A. Mathiesen, fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, lagði fram fmmvarp um verkfallsrétt opin- berra starfsmanna. Verður að telja að reynsian í tveimur verkföllum BSRB sýni að þau andmæli vom ekki ástæðulaus ... „ ... Forystusveit BSRB um- tumaðist eftir að Davíð Oddsson, borgarstjóri, varð við tilmælum Starfsmannafélags Reykjavíkur- borgar, að semja við það sérstak- iega, en það tókst að morgni mánudagsins 15. október... Síðar bauð Albert Guðmundsson, fjár- málaráðherra, BSRB ívið betri kjör...“ „Strax í sumarbyijun barst það Frá 17. septemher 624040 N\rr símanumer NÝTT húsnæði SliðuYQQÍU 7 F.I.D. nnritun og upplýsingar virka daga kl. 13-19. Símar 38830— 51122. VERTU VELKOMIN FERÐASKRIFSTOFAN Suðurgata 7 simi 624040 Allra val OKEYPIS Ókeypis upplýsingar um vöm og þjónustu. Það eina sem þú þarft að gera er að lyfta símtólinu, velja númer Gulu línunnar 62 33 88 og spyrja. Hjá starfsfólki Gulu línunnar færð þú vinalega þjónustu og greið svör við spurn- ingum þínum. Einfalt og stórsniðugt - ekki satt! ,ÉG ER ÁKVECIN I PVl AD NOTA TIMANN VEL I VETUR OG SÆKJA NAm- SKEIÐ. TIL A0 AUOVELDA MÉR VAUÐ HRINGOI ÉG I GULU LlNUNA OG PAR FÉKK ÉG PÆR UPPLVSINGAR SEM ÉG PURFTI. OG NU ER MlNUM TðMSTUNDUM RAÐSTAFAÐ - PEIR VITA B0KSTAFLEGA ALLT MENNIRNIR" Að heiman og úr vinnu þekkjum við vandamál sem tímafrekt virðist að leysa, en Gula línan greiðir úr á augnabliki. Við þurfum að hafa upp á sjónvarpsviðgerðamanni, vélritara eða þýðanda. Ná í iðnaðarmenn, fá upplýsingar um hvar er selt parket, hvar er hægt að kaupa vara- eða aukahluti í bílinn eða leigja smóking. Úr slíkum vandamálum leysir starfsfólk Gulu línunnar. Athugaðu það, þú hringir og færð upplýs - ingamar strax - og það ókeypis. „ÉG HEF FAU STARFSFÚLKI A AD SKIPA OG HEF PVl HRINGT I GULU LlNUNA PEGAR YFIR FLVTUR A SKRIFSTOFUNNI. PEIR HAFA Á SKRÁ LAUSAFÓLK I.FREE UNCE'I TIL ALLRA SKT "OFUSTARFA. ÞETTA HEFUR LEYST MIN.. VANOA OG SPARAÐ MÉR ST0RFÉ - POTTPÉTT PJÓNUSTA' - 62 3J88
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.