Morgunblaðið - 15.09.1987, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987
69
—an
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691100 KL. 13-14
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
UJtW 'U If
Þesslr hrlngdu . . .
Tekjur sjómanna eru
síst of háar
Guðmundur hríngdi:
„Að undanfömu hefur verið
rætt um telcjur sjómanna í Vel-
vakanda og er öll sú umræða á
nokkrum misskilningi byggð. Tal-
að er um aflaverðmæti í metveiði-
ferðum og iátið eins og
kostnaðurinn við veiðamar sé
enginn. Ef við tökum handfæra-
menn sem dæmi taka þeir flestir
allar tekjur sínar yfir sumarmán-
uðina. Þann tíma sem þeir em
að gera báta sína upp og mála
þá em þeir t.d. alveg kauplausir.
Eins þá daga sem ekki gefur eða
afli er iítill sem enginn. Margir
grásleppumenn ríða net sín sjálfir
og em að sjálfsögðu kauplausir
við það verk. Þegar hins vegar
aflast vel á sjónum hlaupa fjöl-
miðlar til og segja að þessir menn
hafi tugi þúsunda á dag upp úr
veiðunum.
Annað, sem ber einnig að hafa
í huga varðandi þetta, er kostnað-
urinn við útgerðina. Jafnvel litlar
trillur em mjög dýrar. Það sama
er að segja um veiðafærin sjálf -
tölvustýrðar rúllur, dýptarmælar
og siglingartæki. Olíukostnaður
em mikill svo og viðgerðakostnað-
ur þegar bilanir verða. Allt þetta
-verða fiskimenn að ijármagna
með veiðunum. Ég held að tekjur
sjómanna séu síst of háar. Þeir
vinna erfítt og stundum áhættu-
samt starf. Ég held að mörgum
sem sitja í þægilegum stöðum og
fá há laun mánaðariega myndi
bregða illa í brún ef þeir þyrftu
að gerast sjómenn og eiga allt
undir því hvemig aflast."
Góð þjónusta hjá
ísbúðinni á Melunum
Ein ánægð hringdi:
„Mig langar tii að gera athuga-
semd við dálítið furðuleg skrif sem
birtust í dálkinum „Þessir
hringdu" í Velvakanda fyrir
nokkm. Þar kvartar kona yfir
þjónustunni í ísbúðinni á Melunum
og segist hafa fengið þar heitan
mjólkurhristing. Ég hef oft versl-
að í þessari ísbúð, mjólkurhrist-
ingurinn þar er þykkur og góður,
og þjónustan á allan hátt til fyrir-
myndar. Svona í lokin langar mig
til að vekja athygli konunnar á
því að mjólkurhristingurínn kem-
ur úr ísvél. Hvemig getur hún
hafa fengið heitan mjólkurhrist-
ing?“
Barnabakpoki
Bamabakpoki með bamaúlpu í
gleymdist í Laugavegs Apóteki
fyrir skömmu og getur eigandinn
hringt eða sótt hann þangað.
Þríhjól
Rautt og hvítt þríhjól fannst
fyrir skömmu. Eignandi þess get-
ur hringt í síma 74536.
Lyklakippa
Lyklakippa með bíllykil og tveim-
ur húslyklum fannst í Miðbænum
fyrir skömmu. Eigandinn getur
hringt í síma 27557.
Hindra þarf hrað-
akstur um Kleppsveg
- háskalegar misfellur í umferðarskipulagi
Til Velvakanda.
í Morgunblaðinu 9. september
eru birtar nokkrar myndir af illa
leiknum bifreiðum eftir bflslys á
síðustu vikum. Þær eru allar alvar-
leg viðvöran og fullmargar mynd-
anna era einnig ægileg áminning
um þær skelfílegu fómir sem um-
ferðin krefur.
Tvær þessara mynda era af slys-
um á Kleppsvegi. Fáa íbúa við þá
íbúðagötu mun undra, að myndir
af slysum þar séu auðfundnai, enda
líður vart sá dagur, að þeir verði
ekki vitni að stærri eða smærri
óhöppum og slysum. Hitt vekur
mér og fleiri íbúum við þessa götu
meiri furðu, að þessi mikla tíðni
slysa við Kleppsveg og Elliðavog
skuli ekki óróa yfírvöld skipulags
og umferðarmála í borginni meira
en virðist.
Alltént er ekki að sjá að neitt sé
gert til að greina síaukna umferð
þungaflutninga og dráttarvagna,
sem leið eiga að og frá höfninni inn
á íbúðagötuna Kleppsveg, frá þeim
mikla flaumi fólksbfla sem skipu-
lagið hefur beint inn á sama veg
síðustu misseri. Mér er það illskilj-
anlegt, að ekki skuli fjölgað akrein-
um, a.m.k. við neðanverðan
Kleppsveg og enn óskiijanlegra að
þeir, sem málum ráða, skuli ekki
leggjast á eitt að eyða þeirri slysa-
gildra, sem beygjan á mótum
Sæbrautar og Kleppsvegar hefur
reynst. Þá finnst mér furðu gegna
hve lítil viðleitni er til þess að hindra
hraðaakstur um Elliðavog og
Kleppsveg, einkum á því svæði, þar
sem íjölfarin gönguleið liggur yfir
veginn norðan við Hrafnistu og
furðulegt má vera, ef umferðaryfir-
völd era sátt við hve illa sést tii
gangbrautarinnar er ekið er að
henni. Ef ekki er unnt að koma við
hraðahindranum þar og raunar
víðar á Kleppsvegi skil ég ekki hvers
vegna lögreglan er ekki tíðari gest-
ur þar til gæziu og hraðamælinga.
Og á ég að þurfa að trúa því að
ráðamenn gatnamála hér séu
ánægðir með það, hvemig gang-
brautin yfir Dalbraut sunnan
Kleppsvegar er máluð, sumar eftir
sumar, fullkomlega á skjön við
gangstéttir og stöðvunarmerki á
akbrautinni. Ég undraðist hve lengi
dróst að setja upp umferðarljós við
þau miklu slysagatnamót og er þau
vora komin, skildi ég ekki og skil
ekki enn, hvers vegna þau vora
ekki með beygjuörvum, sem drægju
án vafa úr tíðni smærri og stærri
óhappa er þar verða er bflar vestan
að beygja ofan að höfninni.
Það verður aldrei um of brýnt
fyrir ökumönnum og öðrum vegfar-
endum að sýna fulla tillitssemi og
aðgæslu í umferðinni og öll viðleitni
til þess er lofsverð því ábyrgð öku-
manna er vissulega mikil. En það
er ekki síður mikið í húfi að þeir,
sem með skipulag umferðar og
gatna fara, haldi vöku sinni og láti
einskis ófreistað að lagfæra aug-
ljósar og háskalegar misfellur eins
og þær sem við blasa á Kiepps-
vegi. Ég hef bent á fáeinar, sumar
stórháskalegar, sem við sem hér
búum og aðrir, sem um veginn fara,
geta vart sætt sig við lengur, svo
auðvelt sem það hlýtur að vera að
baeta úr.
Árni Bergur Sigurbjörnsson
SIEMENS
Hann er venjulegur ofn, grillofn og
örbylgjuofn, allt í senn.
'fi
Kjörinn í mötuneyti, kaffistofur, sumarhús og svo
vitaskuld á venjuleg heimili.
íslenskur leiðarvísir.
(liifeíí®QQD®DD@
SMUH& NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
VATNSLAGNIR
HEILDSALA — SMÁSALA
LEITIÐ UPPLÝSINGA.
VATNSVIRKINN/if
ÁRMÚLI 21 - PÓSTHÓLF 8620 - 128 REYKJAVlK
SlMI: VERSLUN 686455, SKRIFSTOFA: 685966
LYNGHÁLS 3, SÍMI 673415
ALLT FYRIR
SMIÐINN
RR BYGGINGAVÖRUR HE
SUÐURLANDSBRAUT 4. SlMI 33331.
-----------------------—____{