Morgunblaðið - 15.09.1987, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987
Á jasshátíð í Montr eal
Rætt við hljómsveitarmeðlimi í Súld
sem þátt tóku 1 einni af stærstu
jasshátíðum í heimi
íslenska hljómsveitin Súld vakti mikla athygli er hún
lék í ríkissjónvarpinu um áramótin. Bæði var að allir
hljómsveitameðlimir eru framúrskarandi hljóðfæraleik-
arar og síðan hitt að þeir léku tónlist sem var ólík því
sem áður hefur heyrst hérlendis. Upp frá því hefur
margt gerst hjá Súld og þar einna merkast að hljóm-
sveitinni var boðið að leika á djasshátíðinni í Montreal
sem fulltrúi Norðurlandanna, en djasshátiðin í Montreal
er með stærstu djasshátiðum. í framhaldi af þvi var
Súld einnig boðið að leika á djasshátiðinni í Toronto.
Hljómsveitina Súld skipa þeir Tryggvi Hubner gítar-
leikari, Steingrímur Guðmundsson trommuleikari,
Szymon Kuran fiðluleikari og Stefán Ingólfsson bassa-
leikari. Blaðamaður leitaði til tveggja hljómsveitarmeð-
lima, þeirra Steingríms og Szymon, og bað þá að segja
ferðasöguna og einnig að segja frá því hvað varð þess
valdandi að Súld varð fyrir valinu.
Súld í Toronto
Yið vöktum fyrst athygli
þegar hljómsveitin spilaði
í beinni útsendingu í
Breiðvangi. Hljómsveitin var þá
fjögurra mánaða. Hún verður
bara eins árs í haust svo það er
búið að gerast mikið á einu ári.
Tiiboðið um að spila í Montreal
má rekja til þess að ég spilaði þar
nóvember með fólki sem ég var
með í námi í San Fransisco. Þá
höfðum við samband við forráða-
menn djasshátíðarinnar og þeim
leist mjög vel á að fá tónlistar-
menn frá íslandi þar sem þeir
hafa verið með þáttaröð um tón-
list frá öllum heimshomum.
Svo sendi ég kassettu, sem
reyndar týndist eins og oft vill
verða, en fannst að lokum. Það
var hlustað á hana og tónlistin
féll í kramið. Þetta var upptaka
frá þætti á rás eitt, sæmilegasta
upptaka, en hljómsveitin var mjög
ung þegar hún var gerð. Þessi
kassetta varð til þess að ákveðið
var að Súld fengi að vera með.
Ekki bara vegna þess að við vær-
um frá íslandi heldur vegna þess
að þeim leist vel á tónlistina. Það
er ekki margar hljómsveitir sem
leika þessa gerð tónlistar, né held-
ur margir fíðluleikarar sem það
gera.
Við fórum síðan til til Toronto
24. og héldum þar hljómleika. Það
kom til vegna sambands sem er
á milli hátíðanna í Montreal og
Toronto, en ein hljómsveit sem
hafði átt að spila í Toronto, frest-
aði hljómleikum. Toronto Jass-
festival hringdi til mín og spurði
hvort við gætum komið við í Tor-
onto. Það var auðvitað ekkert
nema ánægjulegt fyrir okkur. Þar
spiluðum við í litlum klúbbi, sem
var skemmtilegur reggíklúbbur
með grænmetisfæðu og skemmti-
legum bar. Það urðu um tvö
hundruð manna hljómleikar. Góð
upphitun fyrir stóru hátíðina.
í Montreal
Við vorum tvo daga í Montreal
áður en við áttum að spila og
náðum að slappa aðeins af. Við
náðum meira að segja að æfa, en
við fengum inni með æfíngar-
húsnæði hjá kunningjafólki
Steingríms.
Framkvæmd hátíðarinnar var
til fyrirmjmdar. Það var lítill hóp-
ur af ungu fólki sem skipulagði
hátíðina og tókst það mjög vel.
Greinilegt var að allir voru
þaulæfðir og gert ráð fyrir öllu,
enda er hátíðin orðin átta ára.
Dagskráin var þannig skipulögð
að fólk hafði góðan tíma til að
fara á milli atriða, og það var
bara ein hljómsveit að spila í einu
svo ekki þurfti að gera upp á
milli. Og frá því að við komum
Súld á sviðinu í Motreal.
Szymon Kuran og Stefán Ingólfsson.
Aujour lejour VtNDREOI JUIN SAMEDI JUIN DIMANCHE JUIN LUNDI JUIN MAROI JUIN MERCREDI JEUDi JUIILET JUILLET VENDREDI JUILLET SAMEDI OIMANCHE JUILLET JUILLET
midi afiMKSSí1™ MMK.MMOO AOCOU. BWTOM oaccmo f uunoux AOCOIO. SRS5K,1“^|{™ MIDI
MIDI tí&XSCl1**1 WCKAmt i«o««o«0 \tZZ'S!l,AZZ MIDI
16h00~STCfeK!. - 17hÖ0 iOuMorvtiAM Sm""' Aim cmom focrpomr ÍScTi'1 tmotrrct Sí— 16h00 17h00
SKÍÍÍZÍm* STmSXÚm 3HS!sEaÉE=*~ 17h30
ishóoaaSK.^. TS'rtnSSSvnu mmícHn- - . ZSíSSmI— uuhn.um TSTuSTJje ootbtcoHo KÍP.“-y5Vi 18h00 18h00
19h00 ÍÍ, Git5STco«e«im AIR CAMAOA (S) IkélnMOM |js5; szszZT' sspsz ESK. jocmciMm “ÍSSaT Ut CRANDS CONCIRTS AIR CANAOA (Sr) ThlAra 1,0—••> 19h00
i9höösgaa- •urcmiMB “““ iS3S«. SÍtiií.o rMMjvrro tooHtmumtoi 19h00
19h00aay?uru«.(HMl uHntnSún S5USS?' sBass,' SEYiSSZr** sasísr sisrisSr otm, utotor 19h00
i9hoo«ra5ítís*‘ r»»C.Th /Ujcr. &««• Tu,rsssom Zmi'tXw SS3<'2SL*' cfítz’L i’uSi'SSL, SSÍSmm praBv«*‘ 19h00
20h00ÖStóKt^. %£££. S1"' UMTtr° mmU SÍÍSS7" ocíSEo isgœn«™ ISI 0—«VM#ROOO*u^l CrmuA 20h00
20H30 . "iSTo, ccmrn»m “O* oZ’intr"' UPtKUiUOH **”''***- 20h30
20h30KS2EÍSIKítf^~ O0.MMMI H51£S‘U' fwT VSVXtm íí»',"3S,.,c 'íH'Sjto 20h30 20h30
21 hOO ^2X7? ‘F4c,AUX y&xxr** issasr PP^ ‘^Sísssí Hf; “ ZZgSXg' nooovm ÍSu*"” ItiSmwiÍAÍlol .aStíSSarst— suul ÉVtNEMENTS SftCIAUX ALCAN 21h00
zihoop^;^ ssSr 7zzrouu rScSTtSSS, i£í McCAM, wSrU» SSSSÍ-- AMcm, uttm uomoaonuc HOOACt mOLAM om„ ÍpE— 21h00
21h30lg.35^‘—.. æET' tmxtu, m"'~ iSSSsr" 21h30
ÍSmowÍÍi 'TSÍS~“- zBsrZ. 1, mu,7 ssHs? SiSaJevi 22h00
- ■),Lnn <•>»« Z dnuu Nurr SSHr2” UXTIT w- 23h00
MMJmioi ^ HfSJS’!*! SZLSTS SZZSnu Ttlt-JAZZ OmmSUmm Q OJAUH, M J CMM I (•" ntfnol 23h30
1 footÍrmu,
Dagrskrá Montrealhátiðarinnar. í dagskránni má lesa nöfn eins og Herbie Mann, Billy Cobham,
Keith Jarret, Dexter Gordon, Dave Brubeck, Ella Fitzgerald, Winton Marsalis og Súld, sem reynar
er skrifað SUld.
og þar til við fórum var hugs-
að fyrir öllu, hvað okkur varðaði.
Það sást vel þegar við fórum í
hljóðprufu, þar voru valdir sviðs-
menn til dæmis var einn maður
bara við mónitora og annar í að
bjarga málum. Steingrímur kvart-
aði yfír snerli sem var hálfgerður
byijandasnerill og ekkert með það
að það var bara kallað í talstöð
og stuttu síðan kom sendi-
ferðabíll með nýjan sneril. Annað
sem nefna má er að við vorum
með fímmta meðlim hljómsveitar-
innar með okkur sem var Bjami
Harðarson. Hann hefur unnið með
okkur hér heima og þekkir vel til
hljómsveitarinnar og til þess sem
við viljum ná fram. Það var ætíð
komið fram við hann af fullri virð-
ingu og farið eftir öllu því sem
hann sagði.
Það má segja að heilu hverfí
hafi verið lokað beinlínis vegna
hátíðarinnar. Ókeypis aðgangur,
götum var bara lokað og fólk gat
farið að vild um svæðið. Á aðalgö-
tunni, sem er svona álíka löng og
Laugarvegurinn, voru 10-15 litlir
djassklúbbar eða krár og 3-4 stór-
ir salir sem helstu nöfnin spiluðu
f, eins og Billy Cobham og John
McFarane og Stanley Jordan og
álíka. Við spiluðum síðan þann
28. á stóru útisviði, en það voru
þijú svið á þessu útisvæði, og við
spiluðum á því stærsta. Það var
töluvert af fólki þama og þegar
við spiluðum voru svona 15-20
þúsund manns sem söfnuðust við
sviðið.
Undirtektir voru mjög góðar
og fólk kunni greinilega vel að
meta tónlistina. Allir vom með á
nótunum þegar ég tók trommu-
sóló, og þegar Szymon dansaði
kósakkadans með fiðluleiknum
ætlaði allt að verða vitlaust.
Þetta var skemmtileg tilbreyt-
ing frá því að spila á íslandi, þvi
þama vomm við að spila okkar
eigin tónlist, sem öll var fmmsam-
in, og enginn spurði okkur af
hveiju við væmm að spila einmitt
þessa tónlist. Fólk tók okkur og
tónlistinni án skilyrða. Hér á ís-
landi höfum við stundum verið
spurði af hveiju við leikum ekki
léttari tónlist, sem er í raun að
spyija af hveiju við hættum ekki
að vera listamenn og gemmst iðn-
aðarmenn í tónlist.
Okkur bauðst að halda aðra
tónleika í Montreal, en það hefði
þýtt viku lengri dvöl og óhemju
pappírsvinnu vegna dvalarleyfís
Szymons.
Stefnum á
Skandinaviu
í framhaldi af þessari ferð hef-
ur okkur verið boðið að spila aftur
á djasshátfðinni í Toronto að ári
og líklega verðum við einnig með
í Montreal. Þá verðum við reynsl-
unni ríkari og eitt af því sem við
þurfum að gera til undirbúnings
er að gera plötu til að hafa í far-
teskinu, enda vomm við mikið
spurðir um plötur ytra. Við byij-
um á upptökum nú í september.
Næst á dagskrá hjá okkur er
sfðan ferð um Skandinaviu. Við
stefnum á Porre Jassfestival í
Finnlandi og Moldu í Noregi og
kannski Stokkhólm og Kaup-
mannahöfn. Okkur var einnig
boðið í hljómleikaferð til Kanada
næsta sumar, en við eigum eftir
að segja af eða á hvað þá ferð
varðar.
Við höfum síðan ekki gefíð ís-
land upp á bátinn og ætlum okkur
að spila víða í vetur, í félagsmið-
stöðvum sem og á skemmtistöð-
um, til að kynna tónlist okkar sem
vfðast. Okkur langar einnig að
spila úti á landi.
Það vom margir sem eiga
þakkir skildar fyrir aðstoð við
okkur með þessa för og þeim verð-
ur öllum seint fullþakkað. Einna
mestar þakkir fær kanadíski
konsúllinn á íslandi, Kristbjörg,
sem vann mikið verk í að verða
Szymon út um áritun og atvinnu-
leyfi í Kanada.
Viðtal: Árni Matthiasson