Morgunblaðið - 15.09.1987, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 15.09.1987, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987 Þ Ú ÞARFT EKKI LENGUR A Ð LEITA LANGT YFIR SKAMMT! í SKEIFUNNI 17 ER SÉRVERSLUN MEÐ TÖLVUVÖRUR, HUGBÚNAÐ OG SKRIFSTOFUVÉLAR. Allar helstu tegundir PC tölva. Margs konar hugbúnaður. Tölvuprentarar af mörgum gerðum, tölvuteiknarar, skjásiur, disklingar, tölvuborð, hljóðdeyfar fyrir prentara, prentborðar, disklingageymslur. Ritvélar, reiknivélar, vasatölur. Ljósritunarvélar. Allt á einum stað. TÖLVU IfPlDI ID HUGBÚNAÐUfí VftiiLVIL SKRIFSTOFUTÆKI SKEIFAN 17 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 91-687175 Þekking — Reynsla — Þjónusta VINDMYLLUR GUÐANNA Erlendar bækur Jóhanna Kristjónsdóttir Sidney Sheldon: Windmills of the Gods Útg.Fontana/Cotlins 1987 Sidney Sheldon er þekktur reyf- arahöfundur hérlendis og allmargar bækur hans verið þýddar á íslenzku. Vindmyllur guðanna er ágætis af- þreyingarbðk og þótt ég sé ekki sérfræðingur í Sheldon er hún skemmtilegust þeirra bóka hans, sem ég hef gluggað í. Sagan gerist í tíð næsta eða þamæsta forseta Bandaríkjanna eða svo. Stanton Rogers hefur keppt lengi að því að verða forseti, en einkamálavafstur hans bindur enda á það og fomvinur hans Paul Ellison hefur hlotið hnossið. En hann veit sem er, að Rogers er betri en enginn og skipar hann nánasta ráðgjafa sinn. Stjómmálasamskipti við Rúm- eníu sem hafði verið slitið eru ofarlega í huga Ellison forseta og almennt er honum umhugað um að bæta sambúðina við kommúnist- aríkin. Nú þarf að velja snjalla manneslqu til að verða sendiherra Bandaríkjanna í Búkarest. Um þær sömu mundir og þeir Ellison og Rogers vinna baki brotnu við að endurskipuleggja utanríkis- þjónustuna kemur öðruhveiju saman dularfullur hópur manna, sem leggur á ráðin um hryðjuverk og hvers konar glæpaverk. I þessum hópi er enginn nefndur með nafni og 'enginn veit hver Stjómandinn er í raun og vem. Þeir sem fá ein- hvem pata af þessum hóp em umsvifalaust gerðir höfðinu styttri. Síðan er leidd fram á sögusviðið Mary Ashley, háskólakennari og OSRAM Kápumynd hamingjusamlega gift læknisfrú og hún er til allrar hamingju af rúm- enskum ættum. Hún nýtur álits hvarvetna þótt hún sé ekki fræg um öll Bandaríkin. En hinn snjalli Stanton Rogers fær þá hugmynd að hún verði skipuð sendiherra í Búkarest. Hún tregðast við, en eft- ir að maður hennar ferst af slys- fömm(?) lætur hún undan. Þá kemur við sögu persónan Angel í Argentínu, frækinn laun- morðingi, sem áðumefnd samtök leita oft til þegar þau þurfa að láta ryðja einhveijum úr vegi. Hann hefur samstarf við mddalega og óræstilega gleðikonu í Buenos Aires og það er hún sem kemur til hans boðunum hveiju sinni(?). Það bíður Mary Ashley mikið og erfítt starf, þegar til Búkarest er komið. Ekki bætir úr skák, að henni semur ekki við næst æðsta manninn í sendiráðinu Mike Slade. En sem betur fer getur hún alltaf leitað til Stantons Rogers, sem gefur henni holl ráð og leiðbeiningar(?). Hún verður þess vísari, að njósn- að er um hana, og einhver virðist sækjast eftir lífí hennar. Líklega Mike Slade, alla vega ekki hinn góði og glæsilegi læknir Louis Des- forges, sem hún verður dálítið hrifin af. Og líkar ekki par vel, þegar Mike Slade skýtur Desforges með köldu blóði. Varla getur það hafa verið Desforges, sem sóttist eftir lífí hennar. Samtökin fyrirskipa að Mary verði myrt í Búkarest og Angel kemur á vettvang til að framkvæma það. Og er nú betra að segja ekki meira að sinni. Þetta er sem sagt spennandi bók, vel sögð og söguþráðurinn ekki of æsikenndur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.