Morgunblaðið - 15.09.1987, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 15.09.1987, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987 Hvað þarf til að fatlað ungmenni geti notið jafnréttis til jafns við ófatlað til náms? Það getur þurft mikla sérkennslu og aukakostnað vegna aðgengis og námsgagna og ýmiskonar ytri aðstöðu. Hvað þarf til að fatlað ungmenni geti notið jafnréttis í félagslífi til jafns við ófatlað ungmenni?Það getur þurft að auka vinnu í ungl- ingamálum til að mæta sérþörfum fatlaðra ungmenna í félagslífínu. Þannig mætti raunar lengi telja og málið er einfalt hvað þetta varð- ar. Málið snýst um það að þeir aðilar sem stjóma félagslegum þáttum í þjóðfélagslífinu — bæði í ríkisgeiranum og í sveitarfélögun- um — skilji þessa hluti. Þetta er reikningsdæmi sem auðvelt er að setja inn í fjárhagsáætlanir hvers sveitarfélags til að mynda. Það eru í landinu mörg hundruð fötluð ungmenni. í hveiju sveitarfé- lagi er viss fjöldi fatlaðra ung- menna. Það er tiltölulega auðvelt, ef vilji er fyrir hendi, að kanna þennan fjölda og fínna þarfir hvers og eins. Dæmi um þetta er í sveitar- félagi þar sem þetta hefur verið reynt. í kjölfar slíkrar könnunar þarf svo einfaldlega að reikna það út hvaða kostnaður er við þá við- bótarþjónustu sem fötluð ungmenni þurfa á að halda. Það þarf að reikna það út hvað það kostar að veita þessum unglingum þetta almenna jafnrétti. Því miður hefur verið misbrestur á að sveitarfélag hafí viðurkennt þessa einföldu staðreynd í verki þó að góðar undantekningar séu þó á því. Víða sitja fötluð ungmenni í meira og minni einangmn langtím- um saman. í upphafi var talað um það á hvaða plani jafnréttisumræðan er í þjóðfélaginu. Hér hefur verið drepið á einn lítinn þátt í jafnréttismálum. Þama er af mörgu að taka. Ég efast samt um að skortur á jafn- rétti sé meiri annarsstaðar en hjá fötluðu fólki. Það er með ólíkindum hvað það hefur dregist að veita öll- um fötluðum sömu möguleika og ófötiuðum í þjóðfélaginu. Að það skuli til að mynda vera staðreynd að hluti af mikið fötluðu fólki fær ekki einu sinni fullnægt frumþörf- um sínum um húsnæði og umönnun á eðlilegan hátt, vekur áleitna spumingu um þá siðmenningu sem við búum við í okkar ríka þjóðfélagi. Höfundur eratvinrwmálafulltrúi íKópavogi. Skólakór Garðabæj- ar með tón- leika í kvöld SKÓLAKÓR Garðabæjar býr sig nú undir tónleikaferð til Eng- lands og heldur kórinn tónleika í kvöld í Hallgrímskirkju í Reykjavík. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og verða flutt verk af kirkjulegri efnisskrá kórsins. Kórinn mun dveljast í Hampton í boði Hampton School Choir dag- ana 19.-27. september og halda þrenna tónleika. Tvenna kirkjutón- leika í St. Mary’s Church í Hampton og St. Peter’s Church við Eaton Square í London og svo tónleika með þjóðlögum og annarri verald- legri tónlist í tónleikasal Hampton skólans. Með kómum verða þrír hljóð- færaleikarar, Sigurður Halldórsson sellóleikarí og Pétur Jónasson gítar- leikari og Gústaf Jóhannesson organleikari, sem bæði leikur ein- leik og með kómum. Eins og fyrr segir verður kórinn með tónleika í kvöld í Hallgríms- kirkju. Það era elstu félagar kórsins sem taka þátt í ferðinni en kórinn starfar í þremur deildum. Stjómandi kórsins er Guðfínna D. Ólafsdóttir. 43 Trésmiðjan Ösp hf.: Sérhæfa sig í smíði einingahúsa Stykkishólmi. HJA Trésmiðjunni Ösp hf. í framkvæmdastjóra fyrirtækisins Stykkishólmi hefir verið yfirfullt hafa þeir 20—30 menn í sinni þjón- að gera á þessu ári og framund- ustu og gætu bætt við fleiri starfs- an er tími athafna og iðju. mönnum væra þeir á lausu. Ríkarður segir að þeir framleiði ein- Að sögn Ríkarðs Hrafnkelssonar ingahús í 5 stærðum og hafa þeir sérhæft sig í þessari húsagerð og gat Ríkarður þess að þeir sem hefðu skipt við þá væra mjög ánægðir með húsin, þau hefðu í einu og öllu reynst vel. Þá segir hann að fyrir nokkrum árum hafi þeir hafið smíði leik- tækja handa skólum og leikvöllum og hafí þau notið mikillar hylli og gengið vel að selja þau. Þeir hafa líka verið í almennum verkefnum, bæði viðhaldsverkefnum og öðram og liggi nú þó nokkuð fyrir. Það hefír ekki lítið að segja að atvinnu- ástandið í Stykkishólmi hefír verið ágætt á þessu ári, bæði til lands og sjávar. — Arni Morgunblaðið/Árni Helgason Ríkarður Hrafnkelsson fram- kvæmdastjóri Trésmiðjunnar Aspar. Eini dansskólinn seiH kcnnir alla dansa. Þú finnur örugglega eitthvað við þitt hæfi! Barnadansar Undirstaða fyrir alla samkvæmis- dansa. Hringdansar - sungið með. Gamlir dansar og splunkunýir dansar. i Disko-Jazz Freestyle Nýir dansar. Kennt eftir viðurkenndu bresku keppniskerfi. Einstaklingsdans- ar, paradansar og hópdansar. Aðeins allra nýjustu lögin ráða ríkjum. - Jazzballett - Jazzdans. Fyrir börn frá 7 ára, unglinga og ungar konur á öllum aldri. Splunkunýir rosagóðir dansar. Jazzleikskólinn Böm á aldrinum 3-6 ára læra létta jazzleikdansa. Þau herma eftir Guffa, Mikka mús og Jóakim. Spennandi nýir dansar fyrir framhaldsnemendur. r ~mm HMULtfl— Jg^ VISA ■HB9HI Stepp - Tap-dans Allir geta lært að steppa. Stepp er bæði fyrir stelpur og stráka. Börn frá 8 ára aldri unglingar og fullorðnir. Hver man ekki eftir Gene Kelly og Fred Astair? Það er enginn of gamall til að reyna. Samkvœmisdansar Fyrir börn, unglinga, hjón og pör. Hagnýt spor og dansar sem við notum þegar við förum út að dansa. - Gamlir og nýir samkvæmisdansar. ”Kaffikvörnin ” - danstímar fyrir eldri borgara Við dönsum á föstudögum í Bolholti 6, kl. 15.00. ( hléinu er nýmalað kaffi og heitt á könnunni. Framhaldsflokkur - byrjendaflokkur. Innritun í síma 687580 daglega frá kl. 13.00 -18.00 eða hjá Unni og Hermanni í síma 36141. Dansinn lengir lífið! Hermann Ragnar Nýtt Rock in Roll Sérstakir ”Rokk-stuð” tímar verða í fyrsta skipti í vetur. Þurrkað verður af gömlu góðu plötunum. Framhaldsflokkar Nýir þrælgóðir dansar og ný spor. Haldið verður áfram þar sem frá var horfið. Hafið samband við okkur sem fyrst og við finnum rétta hópinn. Vetrarönn I Innritun lýkur föstudaginn 18. september. Þangað til verður innritað daglega í Bolholti 6 frá kl. 13.00 - 18.00. Símar 68-74-80 og 68-75-80. Skírteini verða afhent laugardaginn 19. septem- ber í Bolholti 6 frá kl. 14-17. Kennsla hefst mánudaginn 21. septem- ber. Greiðslukortaþjónusta. Fjölskyldu- afsláttur. Skrifstofan í Bolholti 6 er opin daglega frá kl. 14-20, mánudaga til föstudaga. Á laugardögum opnum við kl. 12 á hádegi og lokum kl. 17. Hermann Ragnar Unr<ur V Henný <XM> Trygging fyrir réttri tilsögn í dansi. llPYB#P4l ' ( I ÖC7; K : hefst mánudaginn 21. september og lýkur með jólagleði í veitingahúsinu EVRÓPU í desember. Kennslustaðir: Bolholt 6 og veitingahúsið EVRÓPA ^r) 'líc&Á. BOLHOLTI 6, SÍMAR 68-74-80 OG 68-75-80. O
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.