Morgunblaðið - 15.09.1987, Blaðsíða 70
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987
V70
Fjölmenni var við vigsluna og á myndinni má sjá Harald Sturlaugsson afhenda þakklætisvott fyrir
vel unnin störf.
Akranes:
Ný félagsaðstaða íþrótta-
manna tekin í notkun
Akranesi.
Knattspyrnufélag ÍA og
Sundfélag Akraness tóku i
notkun nýja félagsaðstöðu við
íþróttavöllinn á Akranesi sl.
sunnudag og i tilefni þess var
nokkrum gestum boðið til
vigslunnar. Allir þeir sem
mættir voru áttu það sammerkt
að hafa á einn eða annan hátt
tekið þátt i þvi að ljúka fram-
kvæmdum á aðeins 30 dögum.
Þessi nýja félagsaðstaða er til
húsa í nýrri íþróttamiðstöð sem
er að rísa við íþróttavöllinn og
með tilkomu hennar batnar mjög
öll aðstaða félaganna til félags-
starfs. Það voru þeir félagar
Gunnar Sigurðsson og Haraldur
Sturlaugsson sem voru í forsvari
fyrir þessum framkvæmdum og
hafa þeir staðið í ströngu á þessu
ári en eins og kunnugt er beittu
þeir félagar sér fyrir því að ljúka
við tvo grasvelli fyrr í sumar.
Við vígslu hins nýja félags-
heimilis tóku nokkrir viðstaddir
til máls og færðu íþróttafélögun-
um hamingjuóskir í tilefni dags-
ins. Ymsar gjafír bárust til
félagsheimilisins, m.a. gaf for-
eldrafélag 6. flokks fullkomin
útbúnað til móttöku sjónvarpsefn-
is frá gervihnöttum ásamt sjón-
vaipi og myndbandi.
I dag mun síðan fara fram
knattspymuleikur í Evrópukeppni
bikarhafa á Akranesvelli og eru
mótheijar Akraness sænska liðið
Kalmar. Hin nýja aðstaða mun
Hin nýja aðstaða er einstaklega glæsileg og þar er hægt að sjá
glæsilegt verðlaunasafn og rifja upp minningar frá liðnum tíma.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Gunnar Sigurðsson(t.h.) og Haraldur Sturlaugsson ánægðir við
vigsluna.
því strax verða notuð við stórvið:
burði á knattspymusviðinu. í
félagsaðstöðunni hefur verið kom-
ið fyrir verðlaunagripum, fánum
og myndum úr löngu og giftu-
dijúgu starfi íþróttabandalags
Akraness sérstaklega á sviði
knattspymu og sunds. — JG
Á myndinni eru talið frá vinstri: Árni Guðbjörnsson með Lísu Mána, Davíð Oddsson borgarstjóri, Sigurð-
ur Hreinn Hilmarsson með Meistara Labba Trölla, Guttormur B. Þórarinsson með Týru, Helga Finns-
dóttir með Coru. Fyrir framan þau stendur Öivind Asp, dómari sýningarinnar.
Hundaræktarfélag íslands:
Hundasýningar á Ak-
ureyri og í Reykiavík
Hundaræktarfélag íslands gekkst fyrir hundasýningum á
Akureyri ( sjá frásögn á bls. 40 ) og í Reykjavík um helg-
ina. Norski hundadómarinn Öivind Asp, sem hefur rétt til
að dæma öll hundakyn, dæmdi hundana á báðum sýningunum.
Á sýningunni í Reykjavík voru
hátt í tvö þúsund manns en hún
var haldin í Reiðhöllinni í Víðidal á
sunnudaginn. Þar vom sýndir 118
hundar og bestur þeirra var valinn
Golden Retriever hundurinn Lísu
Máni Áma Guðbjömssonar. í öðm
sæti varð Labradorinn Meistari
Labbi Trölli í eign Sigurðar Hreins
Hilmarssonar, í þriðja sæti varð
íslenski fjárhundurinn Týra Gutt-
orms B. Þórarinssonar og í fjórða
Cora sem er Cocker Spaniel í eigu
Helgu Finnsdóttur.
Besti íslenski fjárhundurinn á
sýningunni í Reykjavík var Týra,
eigandi Guttormur B. Þórarinsson
og í öðru sæti í þeim flokki var
Garða Óðinn II í eigu Guðrúnar
Guðjohnsen. Besti írski Setterinn
var valinn Ríkharður ljónshjarta,
eigandi Þorgrímur Sveinsson og í
öðm sæti í þessum flokki varð
Skrugga sem Asta Fr. Bjömsdóttir
á. í fyrsta sæti af Cocker Spaniel-
hundum varð Cora, sem Helga
Finnsdóttir er eigandi að, en í öðru
sæti af þeim varð Comet Önnu
Þorkelsdóttur. Besti Greifíngja-
hundurinn var talinn Meistari
Guttormur Roi, sem Þuríður Berg-
mann Jónsdóttir á. í fyrsta sæti af
Labradomnum varð Meistari Labbi
Trölli, í eign Sigurðar Hreins Hilm-
arsonar, eins og áður sagði, en í
Heiðursgestur sýningarinnar, Davíð Oddson borgarstjóri, veitir Árna
Guðbjörnssyni, eiganda Golden Retrieverhundsins Lisu Mána, verð-
laun fyrir besta hundinn á sýningunni.
öðm sæti í þeim flokki varð Lísu
Tara Erlends Eysteinssonar. Fyrstu
verðlaun í flokki Toy Púðla fékk
Mína í eigu Njálu Vídalín og Prins
Lilju Hallgrímsdóttur fékk önnur
verðlaun í þeim flokki. Sú Miniat-
ure Púðla, sem talin var best á
sýningunni, var Hörgár Héla Fríðu
Bjömsdóttur en í öðm sæti varð
Hörgár Puzcas Steinunnar Jóns-
dóttur.
Besta ungviðið á sýningunni var
íslenski fjárhundurinn Skonsa frá
Kolsholti en eigandi hennar er Kol-
brún Jónsdóttir. Golden Retriever-
hundurinn Igor, sem er í eigu
Viggós S. Pálssonar, var hins vegar
valinn besti hvolpurinn. Virginia
Tania var síðan valin besti öldung-
urinn (eldri en sjö ára);
Hundaræktarfélag íslands var
stofnað 4. september 1969 og em
félagamir nú rúmlega tólfhundmð
talsins, að sögn Guðrúnar Guðjohn-
sen, formanns félagsins.
Guðrún telur það vera mjög
slæmt fyrir hundaræktun hér á
landi að ekki skuli vera leyft að
flytja hunda inn í landið. Til dæmis
sé Setterinn kominn í mikla hættu
vegna skyldleikaræktunar.