Morgunblaðið - 15.09.1987, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 15.09.1987, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987 41 Fulltrúar á 8. þingi Landssambands íslenskra sam vinnustarfsmanna. 70 manns á þingi LÍS DAGANA 4.-6. september var haldið að Bifröst i Borgarfirði átt- unda landsþing LÍS, Landssambands íslenskra samvinnustarfsmanna. Þingið sátu fulltrúar starfsmannafélaga samvinnuhreyfingarinnar og gestir þeirra, alls um 70 manns víðsvegar að af landinu. Þingsetning var föstudagskvöldið 4. september og voru þá fluttar skýrsl- ur stjómar og teknar til afgreiðslu. Af starflnu kom það fram að sumar- búðir bama samvinnustarfsmanna vom reknar í tíunda sinn í ár en þær hafa notið mikilla vinsælda. Forstöðu- maður sumarbúða hefur verið _Ann Marí Hansen úr Hafnarfirði. LÍS á svæði undir orlofshús í landi Breiðu- mýrar í Reykjadal í S-Þing. Er stefnt að þvi að það land verði fullskipulagt og hafnar framkvæmdir þar enda hafa þegar borist umsóknir um hús. Einnig hefur mikið verið unnið í lífeyr- ismálum. Ávörp fluttu Þórir Páll Guðjónsson fyrrverandi formaður LÍS og Claes Bjurá sem var á þinginu fulltrúi KPA, Kooperativa Personal Alliansen, sem em samtök samvinnustarfsmanna á hinum Norðurlöndunum. Þess má og geta að þau samtök héldu upp á 40 ára afmæli sitt í ágúst sl. í Karlstad í Svíþjóð. Þangað fór knattspymulið íslenskra samvinnustarfsmanna og vann það til silfurverðlauna. Fékk lið- ið líka mikið hól fyrir prúðmannlega framkomu innan vallar sem utan. Aðalmál landsþingsins vom málefni samvinnustarfsmanna en starfandi var nefnd sem lagði fram tillögur í tíu liðum varðandi þau mál. Þær til- lögur birtust í síðasta tbl. Hlyns, tímarits LÍS. Þar er lögð áhersla á að mennta og þjálfa starfsfólk svo að vinnuaðstaða og kjör séu ekki lak- ari hjá samvinnuhreyfingunni en öðmm og helst sé gert betur. Lögð er áhersla á virka stjómun, gott upp- lýsingastreymi og tillögur em um nýráðningar og tilfærslur milli starfa. Loks em settar fram tillögur um að- búnað, almenn kjör og frístundir. Einnig var rætt um lífeyrismál, en Lífeyrissjóður Sambandsverksmiðj- anna á Ákureyri hafði sótt um aðild að Samvinnulífeyrissjóðnum sem var samþykkt. Mörg fleiri mál komu til umræðu og vom þingfúllrúar ófeimn- ir að viðra skoðanir sínar. Að lokum var gengið til kosninga og var Páll Leósson frá Akureyri end- urkjörinn formaður. Með honum í framkvæmdastjóm em Kristín Guð- rún Helgadóttir, Guðmundur Logi Lámsson, Jóhann Sigurðsson og Jak- ob Bjömsson öll frá Akureyri. Auk þess vom kosnir sex menn í aðal- stjóm sem í sitja fulltrúar víðsvegar að af landinu, auk kosninga til ýmissa annarra starfa og fulltrúa í stjóm Samvinnulífeyrissjóðsins, en þar eiga sæti af hálfu LÍS Matthías Guð- mundsson, Reykjavík, og Birgir Marinósson, Akureyri. Að þingi loknu þáðu kaffi í Bifröst nokkuð á annað hundrað lífeyrisþegar samvinnuhreyfingarinnar sem vom í skemmtiferð um Borgarfjörð í laugar- daginn 5. september. (Fréttatílkynning) Vegna flutninga seljum við á spreng-hlægilegu verði t.d.: Gólfteppi frá kr. 295.- m2 — Flísar á góif og veggi frá kr. 770.- m2 — Hreinlætistækjasett í litum (baðkar, handlaug, W.C.) frá kr. 15.000.- — Handlaugar frá kr. 1.000.- — Baðkör frá kr. 1.500.- — Ennfremur blöndunartæki, baömottur, baðhengi, baðljós, o.m.fl. Þetta stórkostlega tækiiæri má enginn láta Iramhjá sér fara. 13 ÚTSÖLUMARKAOUR iarma Reykjavíkurvegi 64 — S:652285 X jtaiBifTHt! ■c > -i VIÐ BJÓÐUM UPP Á EINSTAKA FERÐ TIL ÍSRAELS OG EGYPTALANDS, ÞAR SEM M.A. VERÐUR FERÐAST UM SÖGUSLÓÐIR BIBLÍUNNAR. MIÐVIKUDAGUR, 28. 0KT0BER. Flogiö Irá Keflavlk tll Heathrow flugvallar. Þar blöur langferöabill tll að flytja hópinn til Gatwick flugvallar og þaðan verður flogið til Tel Aviv. FIMMTUDAGUR, 29. 0KT0BER. Skipulögö skoöunarferö um Tel Aviv. FÖSTUDAGUR, 30. OKTOBER. Farið af staö frá Tel Aviv og keyrt sem leið liggur til noröurs meðfram strönd Miöjaröarhafsins og komið til Sesareu, borgar sem Herodes konungur lét reisa til heiðurs keisaranum, en varð slðar krossfaraborg. Komiö til Karmel fjalls og þaðan til Haifa, sem er helsta hafnarborgin I israel mjög falleg og nýtiskuleg. Þá er ekið til Meggidó og Taborfjalls. Þessa nótt veröur gist á gistihúsi á samyrkjubúi. LAUGARDAGUR, 31. 0KT0BER. Heildagsskoðunarferö til Gólanhæöa og Gallleuvatns. Farin veróur bátsferð yfir vatnið. Glst á samyrkjubúi. SUNNUDAGUR, 1. NÓVEMBER. Fariö til Nasareth og Boöunarkirkjan skoöuö, sem byggö er yfir helli Jósefs og Marlu. Þaöan veröur haldió áfram til Are og Rosh Hanikra Gist á samyrkjubúi. MÁNUDAGUR, 2. NÓVEMBER. Ekiö sem leið liggur til suóurs eftir Jordandalnum, meöfram ánni Jordan til Jerikó sem er eins og vin I eyóimörkinni og talin vera ein elsta borg I heimi. Komiö til Betaniu og fleiri staöa. Gist I Jerúsalem. ÞRIÐJUDAGUR, 3. NÓVEMBER. Deginum eytt vió aö skoóa Jerúsalem og Ollvufjalliö. MIDVIKUDAGUR, 4. NÓVEMBER. Frjáls dagur i Jerúsalem. FIMMTUDAGUR, 5. NÓVEMBER. Farió til Betlehem og grafhýsi Rakelar, til Zlónsfjalls og Musterisfjalls. Gist i Jerúsalem. FÖSTUDAGUR. 6. NÓVEMBER. Frjáls dagur í Jerúsalem. LAUGARDAGUR, 7. NÓVEMBER. Áfram veróur haldiö I suöurátt til Dauöahafsins. Massada og Qumran. SUNNUDAGUR. 8. NÓVEMBER. Ekió til Kaíró. MÁNUDAGUR. 9. NÓVEMBER. Skoóunarferó um Kaíró. ÞRIÐJUDAGUR, 10. NÓVEMBER. Skoöaöir veröa Pýramídarnir og Memþhis, hin forna höfuóborg neöra Egyptalands, þar sem hinn frægi Alabasturs—Sfinx, sem Ramedis II lét reisa, stendur. MIÐVIKUDAGUR. 11. NÓVEMBER. Fariö til baka til israel. FIMMTUDAGUR. 12. NÓV. - 18. NÓV. Eilat. Þessa daga veröur boöið upp á sól og baöstrandarlif viö Rauöahafið. MIÐVIKUDAGUR. 18. NÓV. Haldiö at staö til London Kl. 22:30, en þar veróur gist i tvær nætur. Komió veröur til Keflavlkur föstudaginn 20. nóvember. VERÐ AÐEINS KR. 75.000,- Ath. að hálft fæói er innifaliö I verðinu. Ferdaskrifstofan ifFarandl Vesturgotu 5. Reykjavik simi 622420
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.