Morgunblaðið - 15.09.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.09.1987, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987 Norræn sýning opnuð í Japan: Forsetínn hittír keisarann og forsætisráðherrann að máli Heimsókn frú Vigdísar Finnbogadóttur veitt mikil athygli FORSETI íslands frú Vigdís Finnbogadóttir kom til Narita- flugvallar við Tokyo kl. 6.00 að íslenskum tima í gær frá Hong Kong. Forsetinn heimsækir Japan í þeim tilgangi að vera viðstödd opnun „Scandinavia today“, sýningar á norr- ænni menningu. Að sögn Péturs Thorsteinsson sendiherra íslands í Japan veita þarlendir fjölmiðlar heimsókninni mikla athygli. Á föstudag hittir frú Vigdís Hirohito Japans- keisara að máli fyrst íslenskra þjóðhöfðingja og situr síðan hádegisverð í boði Nakasone forsætisráðherra. Á Narita-flugvelli tók fulltrúi Eftir móttökuathöfnina var ek- ríkisstjómar Japans auk þriggja ið til miðborgar Tokyo að Imper- ial-hótelinu, dvalarstað forsetans og fylgdarliðs hennar, sem er gengt keisaragarðinum. Á hótel- inu tóku sendiherrar Norðurland- anna og makar þeirra á móti forsetanum. í gærkvöidi þáði frú Vigdís kvöldverðarboð utanríkisráðu- embættismanna úr utanríkisráðu- neytinu á móti forsetanum. Þar var einnig viðstaddur öldunga- deildarþingmaðurinn Tsuchiya, formaður þingflokks Fijálslynda flokksins í efri deild japanska þingsins og íslandsvinafélags þess. neytisins. Að því búnu var haldið til leikhúss í miðborg Tokyo, þar sem forsetinn hafði óskað eftir því að líta hefðbundið japanskt Kabuki-leikrit. í lok sýningarinnar brá hún sér að tjaldabaki og ræddi við leikarana. Forsetinn dvelur í Tokyo þriðju- dag og miðvikudag. Hun mun meðal annars halda fréttamanna- fund og veita japanska ríkissjón- varpinu viðtai. Nefnd á vegum utanríkis og menntamálaráðu- neyta íslands undirbjó heimsókn forsetans meðal annars með því að bjóða til landsins þremur hóp- um japanskra fréttamanna. Hefur þetta starf borið þann árangur að sögn Péturs að koma forsetans vekur engu síðri athygli í Japan VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, 15.09.87 YFIRLIT á hádegi ( gœr: Skammt suðsuðaustur af landinu verður alldjúp lægð sem þokast norðaustur. SPÁ: í dag Iftur út fyrir aö verði austankaldi víða á landinu. Sunnan- lands og austan verða skúrir eða dálítil rigning, en úrkomulítið norðaustanlands og vestan. Hiti 3—8 stig, en næturfrost norðantil á landinu. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA MIÐVIKUDAGUR: Austanátt víðast hvar, fremur hæg, skúrir eða rigning um suðaustan- og austanvert landið en að mestu þurrt annars staðar. Hiti 4—7 stig. FIMMTUDAGUR: Allhvöss norðaustanátt um vestanvert landið en hægviðri austan til. Víða skúrir eða slydduól vestan- og norövestan- lands en annars staðar úrkomulítið. Hiti 2—7 stig. TAKN: Heiðskírt Léttskýjað M Hálfskýjað A m Skýjað Alskýjað / Norðan, 4 vindstig: * Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma 1 o H'rtastig: 10 gráður á Celsius SJ Skúrir * V E' = Þoka = Þokumóða Súld 5 OO Mistur _J. Skafrenningur Þrumuveður xn VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri 2 enjóél Reyklavik 5 skýjað Berger, 13 skýjað Helsinki 14 skýjað Jan Mayen +2 snjóól Kaupmannah. 17 skýjað Naraaarsauaq 3 skýjað Nuuk 6 alskýjað Oaló 16 skýjað Stokkhólmur 15 skýjað Þórahöfn 10 alskýjað Algarve 29 hálfskýjað Amsterdam 18 Mttskýjað Aþena 30 heiðsklrt Barcelona 28 mlstur Berlln 17 rlgnlng Chlcago 9 þokumóða Feneyjar 26 þokumóða Frankfurt 22 skýjað Glasgow 13 skúr Hamborg 17 skýjað Las Palmas 28 rykmlstur London 19 skýjað LoaAngeles 16 heiðeklrt Lúxemborg 19 skýjað Madrld 31 láttskýjað Malaga 28 helðsklrt Mallorca 30 helðskfrt Montreal 16 láttskýjað NewYork 21 skýjað Parls vantar Róm 29 helðskfrt Vfn 31 skýjað Washington 22 mistur Winnipeg 9 helðsklrt en um opinbera heimsókn væri að ræða. Á fímmtudag heimsækir forset- inn hönnunarsýningu „Scandina- via Today" í Nútímalistasafni Toyama-borgar. Hún snýr aftur til Tokyo um kvöldið og hittir Hirohito keisara að máli í höll hans næsta morgun. Forsetinn gengur því næst á fund Nakasone fráfarandi forsætisráðherra og situr hádegisverð í boði hans. Eftir móttöku forsætisráðherra fer frú Vigdís með jámbrautalest frá Tokyo til hinnar fomu borgar Kyoto. Sendifulltrúi héraðsskrif- stofu utanríkisráðuneytisins heldur forsetanum hóf á föstu- dagskvöld en á laugardag situr hún boð Seibu Saison samsteyp- unnar. Frú Vigdís Finnbogadóttir for- seti flýgur frá Osaka til Frakk- lands á sunnudag þar sem hún verður viðstödd opnun íslandsviku í Bordeaux. Seyðfirðingar kalla Kristján Róberts- son til prestsstarfa SÉRA Kristján Róbertsson hefur verið kallaður til prestsþjónustu í Seyðisfjarðarprestakalli frá 1. október. Með þessu hagnýtir sóknamefnd Seyðisíjarðarprestakalls sér það ákvæði í nýjum lögum um veitingu prestakalla, að kalla sér prest. Sr. Kristján Róbertsson er 62 ára gamall. Hann lauk guðfræðiprófí árið 1950 og var vígður til prests- þjónustu sama ár. Sr. Kristján hefur m.a. verið prestur á Siglufírði, við Dómkirkjuna í Reykjavík og á Hvanneyri í Borgarfirði. Auk þess hefur hann þjónað ýmsum söfnuð- um vestanhafs, þar sem hann starfar nú. Kona hans er Auður Guðjónsdóttir. (Úr fréttatilkynningu) Séra Kristján Róbertsson Útvegsbankamálið: Klukkutíma langur fundur tilboðsgjafa TILBOÐSGJAFAR í hlutabréf rikisins í Útvegsbankanum sátu á klukkutíma löngum fundi með viðskiptaráðherra i gærmorgun. Þessir aðilar ræða nú um hugs- anleg sameiginleg kaup á hluta- bréfunum. Engin niðurstaða varð af fundinum og er næsti fundur fyrirhugaður eftir viku. Á fundinum með Jóni Sigurðs- syni viðskiptaráðherra sátu fyrir hönd Sambandsins og samstarfs- fyrirtækja þess sem gerðu tilboð í hlutabréfín Guðjón B. Ólafsson for- stjóri, Axel Gíslason aðstoðarfor- stjóri, Geir Magnússon bankastjóri Samvinnubankans og Kjartan P. Kjartansson forstöðumaður fjár- málasviðs. Af hálfu 33 aðila sem einnig gerðu tilboð í bréfín sátu fundinn Friðrik Pálsson forstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna og Hörður Sigurgestsson forstjóri Eimskips hf. Þegar þessar viðræður hófust í byrjun september lýsti viðskiptaráð- Bílvelta íHUðunum BIFREIÐ valt á mótum Bólstaða- hlíðar og Stakkahliðar f gær- morgun, þegar annarrí var ekið í hlið hennar. Ökumaður var fluttur á slysadeild, en meiðsli hans munu ekki vera mikil. Slysið varð um kl. 8 í gærmorg- un. Bifreið var ekið vestur Bóla- staðahlíð og í hlið bifreiðar sem kom norður Stakkahlíðina, svo sú valt. Ein kona var í bifreiðinni og var hún flutt á slysadeild. herra yfir að ef þær hefðu ekki skilað árangri um næstu mánaða- mót yrðu aðrar leiðir réyndar til að leysa þetta mál. Sigurður Harald Ólafsson Lést af slysförum Drengurinn, sem lést í um- ferðarslysi i Mosfellsbæ á föstu- dag, hét Sigurður Harald Ólafsson. Sigurður Harald var níu ára gam- all, fæddur 25. ágúst 1978. Hann var til heimilis að Brekkulandi 1 í Mosfellsbæ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.