Morgunblaðið - 15.09.1987, Page 33

Morgunblaðið - 15.09.1987, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987 33 Skoðanakönnun innan Repúblikatiaflokksins: Sj ónvarpstrúboði vann óvæntan sigur Ames, Iowa, Reuter. Sjónvarpstrúboðinn Pat Robertson vann um heigina óvæntan sigur í skoðanakönnun Repúblikanaflokksins í Iowa-fylki vegna forsetakosninganna í Bandaríkjunum á næsta ári. Robertson skaut þeim Robert Dole, öldungadeildarþingmanni frá Kansas, og George Bush varaforseta báðum aftur fyrir sitr. Að sögn kunnugra hleypir þessi sigur Robertsons spennu í forkosn- ingar Repúblikanaflokksins vegna forsetakosninganna. Mesta athygli vakti að Bush skyldi ekki njóta meira fylgis en staða hans þykir einkar traust auk þess sem hann hefur fengið hina hæfustu menn til að skipuleggja baráttu sína. Bush lenti í þriðja sæti á eftir þeim Dole og Robertson en tæplega 4.000 stuðningsmenn repúblikana tóku þátt í skoðanakönnuninni. Robertson fékk 33,7 prósent at- kvæða, Dole 25 prósent og Bush tæp 23. Mike Mahaffey, formaður Repúblikanaflokksins í Iowa-fylki, lýsti yfir undrun sinni vegna niður- stöðu skoðanakönnunarinnar og sagði Robertson hafa treyst stöðu sína þar sem augljóslega væri ekki unnt að vanmeta framboð hans. Kosningastjóri Georges Bush tók í sama streng og sagði að óvæntur sigur Robertsons sýndi að virkja þyrfti rótgróna stuðningsmenn flokksins. Sjónvarpstrúboð Robertsons nær til um fjögurra milljóna Bandaríkjamanna. Sjálfur segist hann iðulega taja við Drottin alls- herjar auk þess sem hann kveðst einnig hafa stýrt fellibyljum, sem ógnað hafa íbúum Bandaríkjanna, frá ströndum landsins. Jamaika: Lögregla leitar morð- ingja Tosh Kingston, Jamaika, Rcuter. SÉRSVEITIR lögreglunnar í Jamaika sem leita morðingja reggisöngvarans Peter Tosh hafa grunaða menn undir eft- irliti en þeir hafa ekki enn verið handteknir. Hinn 43 ára gamli listamaður var skotinn í höfuðið á föstu- dagskvöld að sögn talsmanns lögreglu. Ræningjar réðust inn á heimili Tosh í Kingston og heimtuðu peninga en hann neit- aði. Morðingjamir drápu auk þess vin Tosh, Wilton „Doc“ Brown, og særðu fimm aðra, þar á meðal Marlene Brown lífsförunaut Tosh. Ofbeldisverkin hafa vakið mikinn ugg meðal íbúa höfuð- borgar reggísins, tónlistarinnar sem Tosh notaði til að beijast gegn ranglæti og fátækt. Tosh stofnaði hljómsveitina Wailers ásamt Bob Marley á sjöunda áratugnum. Þegar hún var leyst upp á áttunda áratugnum hóf Tosh sjálfstæðan popptónlistar- feril við góðan orðstír. Verdens Gang Áreksturinn varð klukkan 10.56 að norskum tima á sunnudag. Norska vélin kom frá Banak og eftir áreksturinn fylgdu tvær F-16 herþotur henn til baka. Sovéska herþotan kom frá flugvelli nærri Murmansk á Kóla-skaga. Mynd þessa af sovésku orustuþotunni tók Jan Salvesen ,flugmaður norsku vélarinnar, áður en áreksturinn varð. Reuter Sovésk orustuþota flýgur á norska yfir Barentshafi: Skalf af hræðslu og ótt- aðist að vélin myndi hrapa - sagði flugmaður norsku vélarinnar Osló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsins. SOVÉSK herþota af gerðinni SU-27 „Flanker" flaug á sunnudag á norska eftirlitsflugvél í alþjóðlegri lofthelgi yfir Barentshafi. Norska flugvélin, sem er af gerðinni Orion, var í reglubundnu eftirlitsflugi er óhappið átti sér stað. Einn hreyfill norsku vélarinn- ar eyðilagðist og málmflísar gengu inn í skrokk hennar. Engin slys urðu á mönnum. Orion-vélin var stödd 48 sjómíl- vélamar samsíða nokkra stund ur utan sovéskrar lofthelgi þegar áður en sú sovéska hvarf. Hálftíma herþotan kom upp að henni. Flugu síðar kom sovéska herþotan aftur Nýja-Kaledónía: Nær algjör eining um stj órn Frakka Noumea á Nýju-Kaledóníu, Reuter. YFIRGNÆFANDI meirihluti kjósenda á Nýju-Kaledóníu staðfesti að eyjamar skildu áfram vera undir stjóm Frakka. Það gefur þó ekki fullnægjandi mynd af stöðu mála, því Kanakar, frambyggjar eyjanna, sniðgengu kosningarnar. 98,3% vom fylgjandi áframhald- andi sambandi við Frakkland, en 1,7% vildu láta lýsa yfir sjálfstæði. 58,9% þeirra sem vora á kjörskrá neyttu kjörréttar síns, en það er talsvert meira en búist hafði verið við. Jacques Chirac, forsætisráðherra Frakklands, sagði að þessi úrslit væm „lýðræðinu og Frakklandi mikill sigur" og sagði kjörsóknina sýna svo ekki væri um villst hver hugur manna væri. Talsmenn Sósíalískrar þjóðfrels- isfylkingar Kanaka (FLNKS) sniðgengu kosninguna og sögðu að hún hlyti að hafa í för með sér að sambandssinnar ynnu, þar sem Frakkar hefðu flust í slíkum mæli til Nýju-Kaledóníu að þeir væru nú í meirihluta. Þeir hefðu verið þar sem nýlenduherrar, en þegar sjálf- stæði eyjanna væri til umræðu hlyti slíkt að vera mál frumbyggjanna. Því kröfðust þeir þess að kjörrétt hefðu einungis Kanakar og þeir sem rakið gætu ættir sínar til eynna í a.m.k einn mannsaldur. „Við höfn- um eindregið hvaða niðurstöðu þessara gervikosninga sem er,“ sagði Yann Celene Uregusi, með- limur í stjórnmálaráði FLNKS. Kanakar eru í minnihluta á eyj- unum, um 43%, en afgangurinn er frá Frakklandi, Asíu og Eyjaálfu. Ekki kom til neinna átaka eins og talin hafði verin hætta á og þeir 8.400 hermenn og lögreglu- þjónar, sem kvaddir höfðu verið til, áttu náðuga daga. Þeir héldu þó uppi eftirliti með helstu vegum og gættu lqörstaða, en óttast var að aðskilnaðarsinnar myndu reyna að hindra Kanaka í hópi sambands- sinna í að ganga til kosninga. Ákjörskrá 85.022 Kjörsókn 50.250 Ógildatkvæði 797 GÖd atkvæði 49.453 Adskilnadarsinnar 842 Sambandssinnar 48.611 á vettvang og flaug mjög nærri norsku vélinni. Herþotan flaug undir væng norsku vélarinnar og jók síðan skyndilega ferðina. Við þetta rakst þotan utan í ysta hreyf- il Orion-vélarinnar. Brak úr hreyflinum gekk inn í skrokk norsku vélarinnar og fjarskipta- búnaður aftast á flugvélinni eyði- lagðist. Orion-vélin sendi strax út neyð- arkall. Tvær þotur af gerðinni F-16 voru sendar af stað og fylgdu þær norsku vélinni til flugvallar í Banak í Finnmörku. Að sögn áhafnar norsku vélarinnar varð sovéska þotan ekki fyrir neinum skemmd- um. Fylgst var með þotunni á ratsjá þar til hún lenti á flugvelli á Kóla-skaga. „Þetta er það hræði- legasta sem ég hef upplifað. Ég skalf af hræðslu og óttaðist að vélin myndi hrapa," sagði Jan Sal- vesen, flugstjóri Orion-vélarinnar. „Skömmu áður en vélamar rák- ust saman tók sovéski flugmaður- inn af sér hanskana og baðaði út höndunum. Ef til vill var hann að sýna okkur hvað hann væri fær flugmaður. Hann flaug vélinni undir annan væng okkar og jók skyndilega ferðina," sagði Salves- en. „Flugvélin hristist og skalf. Við urðum að drepa á einum hreyflinum vegna þess jafnvægi vélarinnar raskaðist. Brak úr ónýta hreyflinum rauf gat á skrokkinn og við það féll loftþrýstingurinn. Við urðum því að steypa okkur niður í 10.000 feta hæð til þess að forðast súrefnisskort , “ bætti hann við. Yfirmenn Salvesens hafa lofað framgöngu hans og sagt hann hafa sýnt einstaka rósemi og yfirvegun á hættustund. „Villimennska", sagði Alf Gran- viken, yfírmaður herafla Noregs. „Ég fæ ekki betur séð en að so- véski flugmaðurinn hafi ofmetið eigin hæfni og hagað sé dólgs- lega,“ bætti hann við. Norskar og sovéskar flugvélar fljúga oft samsíða í alþjóðlegri loft- helgi er flugmenn þeirra bera kennsl hvorir á aðra. Vanalegt er að vélamar haldi sig minnst í 150 metra fjarlægð. Norskir herforingjar telja óhugsandi að sovéski flugmaður- inn hafi flogið viljandi á norsku flugvélina til þess hafí hann sjálfur verið í of mikilli hættu. Norska ríkisútvarpið sagði í gær að so- véska flugmanninum kynni að hafa verið falið að hindra norsku flug- vélina í að koma nær Sovétríkjun- um vegna þess að hugsanlega hafí Sovétmenn verið að reyna nýtt farartæki eða flugvél, sem ráða- mönnum innan Atlantshafsbanda- lagsins væri ekki kunnugt um. Norðmenn hafa komið kröftug- um mótmælum á framfæri við stjómvöld í Sovétríkjunum. Fáein- um klukkustundum eftir árekstur- inn kölluðu starfsmenn utanríkis- málaráðuneytisins Alexander Teterin, sendiherra Sovétríkjanna í Noregi, á sinn fund. „Ríkisstjóm- in lítur þetta atvik mjög alvarleg- um augum," sagði Thorvald Stoltenberg utanríkisráðherra og lét í það skína að hann hefði talað rækilega yfir hausamótunum á sovéska sendiherranum. Stolten- berg krafðist skjótra svara og útskýringa á því hvemig atvik sem þetta gæti gerst. „Ég heiti því að svar mun ber- ast um hæl og það verður itarlegt,“ sagði Teterin í viðtali við frétta- menn í gær. „Ég veit það eitt að flugmenn beggja vélanna höfðu fengið sínar fyrirskipanir," bætti hann við.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.