Morgunblaðið - 15.09.1987, Blaðsíða 72
/
ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Félag starfsfólks í húsgagnaiðnaði:
Verkfall hófst
~á miðnætti
VERKFALL Félags starfsfólks í
húsgagnaiðnaði kom til fram-
kvæmda á miðnætti í nótt.
Samningaf undir hafa verið
haldnir í deilunni hjá ríkissátta-
semjara um helgina og fundur
hófst að nýju klukkan 17 í gær.
Kristbjöm Ámason, formaður
félagsins, sagði í samtali við Morg-
unblaðið seint í gærkveldi að mikið
bæri á milli samningsaðila. Félagið
hefði verið til með að fresta verk-
falli í tvo til þijá daga, ef tilboð
kæmi frá vinnuveitendum sem gæti
orðið viðræðugrundvöllur, en ekkert
tilboð hefði litið dagsins ljós. Hann
sagði að mikil samstaða væri í fé-
laginu og fundur yrði í húsnæði
þess í dag, þar sem staða mála
yrði skýrð.
Félag starfsfólks í húsgagnaiðn-
aði gerði samning við vinnuveitend-
ur í vetur. Hins vegar tókst ekki
samkomulag um fastlaunasamning
fyrir 1. september, en frá þeim tíma
var hægt að segja upp samningum
og boða verkfall með hálfs mánaðar
fyrirvara.
“^Skógrækt ríkisins:
Lengsti árssproti
87 sm í Skorradal
ÁRSSPROTI á sitkagreni í girðingu Skógræktar ríkisins í Skorra-
dal hefur mælst allt að 87 sm eftir sumarið að sögn Ágústs Árnasonar
__skógarvarðar. í Hallormsstaðarskógi er vöxturinn um og yfir meðal-
-^•iagi allt eftir tegundum að sögn Jóns Loftssonar skógarvarðar.
„Það er mjög fallegur vöxtur á
sitkagreni þar sem það stendur á
góðu landi og fann ég 87 sm árs-
sprota eftir sumarið, sem er með
því besta sem gerist," sagði Ágúst
Ámason. Árssproti á stafafuru er
svipaður og á síðasta ári en hún
tekur ekki jafn mikið tillit til tíðar-
fars og aðrar tegundir.
Næsta sumar má þó búast við
góðum vexti því sumarið á undan
hefur áhrif á árssprotann hveiju
sinni, sérstaklega ef veðrið er gott
síðari hluta sumars.
Aðal tekjulind skógræktarinnar
er jólatréssala og hefur mest verið
>
Hvalveiðideilan:
Búist við
samkomu-
lagi í dag
HALLDÓR Ásgrímsson sjávar-
útvegsráðherra væntir þess að
samkomulag náist í dag milli
Bandaríkjamanna og íslendinga
um hvalveiðar hér við land.
Ekki var gengið frá samkom-
laginu í gær eins og búist hafði
verið við.
Halldór Ásgrímsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gærkvöld
að verið væri að vinna að texta
samningsins og sagðist ekki vera
reiðubúinn til að ræða málið efnis-
lega fyrr en því væri lokið.
Aðspurður um hvort frestur sá
er íslendingar hefðu gefíð Banda-
ríkjamönnum væri ekki útrunninn
sagði Halldór að talað hefði verið
~~:um að ljúka málinu á þremur til
fímm dögum.
„Þessi tímamörk eru að líða, en
meðan við trúum að málinu sé um
það bil að ljúka verður því haldið
áfram. Ég vænti þess að samkomu-
lag náist á morgun og sé fulla
ástæðu til að ætla að svo verði,“
sagði sjávarútvegsráðherra í gær-
kvöldi.
tekið um 4.600 tré eitt árið. Á vor-
in er það plöntusalan sem sífellt
verður umsvifameiri. Hafa verið
seldar hnausplöntur frá 70 sm og
allt upp í 2ja metra tré. „Það er
svo mikil eftirspum eftir þessum
stóru tijám að ekki er hægt að
anna henni," sagði Ágúst.
„Vöxtur hefur verið mjög jafn á
öllum tegundum í sumar og munar
mest um hvað vorið sem kom
snemma var gott. Sumarið var aft-
ur á móti ekki eins og við best
þekkjum," sagði Jón Loftsson.
„Meðalsproti á greni og lerkitijám
er á bilinu 40 til 60 sm en þetta
óvenjulega góða vor gerir það að
verkum að sitkalúsin fékk mjög
góða byijun og hrellir okkur núna
ásamt köngulingnum."
Hallormsstaðarskógur er þó ekki
illa farinn nema nokkrir reitir og
mun það hafa einhver áhrif á jóla-
tréssöluna í ár. Árleg sala er á
bilinu 1000 til 1500 tré sem seld
eru á Austurlandi auk þess sem
nokkuð er um að tré fari á markað
sunnanlands.
DREGIÐIDILKA
Morgunblaðið/Helgi Bjamason
Nú er réttað um land allt, og hér er dregið í dilka í Jaðarsrétt, aðalskilarétt Akureyringa, á laugardaginn.
Sjá frásögn af réttum Akureyringa á bls. 40 og fleiri fréttir frá Akureyri, Hrísey og Ólafsfírði á þeirri síðu
og blaðsíðu 39.
Alþjóðlega sjávarútvegssýningin:
Gjaldeyristelgiir
um 200 miUjónir
ÁÆTLUÐ gjaldeyriseyðsla er-
lendra gesta á alþjóðlegu sjávar-
útvegssýningunni, sem hefst um
helgina, er nálægit 200 milljónum
.—r
Slátrunhafin
víða um land
LEYFI hefur verið veitt til
slátrunar í 43 sláturhúsum í
haust. Enn eiga nokkur hús
eftir að fá leyfi til að slátra,
en það eru hérðasdýralæknir
og yfirdýralæknir sem veita
slík leyfi.
Slátrun er hafín í mörgum slát-
urhúsum á vegum kaupfélaganna
um land allt, í Borgamesi, Búð-
ardal, á Sauðárkróki, Húsavík,
Vopnafirði, Egilsstöðum, Fos-
svöllum og Reyðarfírði. í gær var
byijað á Breiðdalsvík og á Akur-
eyri, en slátrun hefst almennt í
þessari viku.
Hjá Sláturfélagi Suðurlands
var slátrað í fjórum sláturhúsum
af sex í nokkra daga samkvæmt
óskum bænda. Síðan hefur verið
gert hlé á slátrun vegna frjallskila
og rétta en nú eru sláturhúsin að
byija aftur eitt af öðru. Slátrun
hófst á Hvolsvelli í gær, í dag
hefst slátrun á Kirkjubæjar-
klaustri og á morgun í slátur:
húsinu við Laxá í Leirársveit. í
gær lauk fyrri slátrun á Selfossi
en hún byijar aftur næsta mánu-
dag. Slátrað var í Vík í Mýrdal í
síðustu viku og verður byijað aft-
ur í næstu viku. í Laugarási hefst
slátrun á miðvikudaginn í næstu
viku.
Sláturfélag Suðurlands áætlar
að slátra um 135.000 ipár í haust
og er það svipaður fjöldi og í fyrra.
króna og kemur það að mestu
leyti inn í íslenzka þjóðarbúið.
Stærsti pósturinn í eyðslunni er
talinn gisting og uppihald, en
ferðamenn sem tengjst sýningum
sem þessari eyða að jafnaði mun
meiru en almennir ferðamenn.
Auk þessa má nefna liði eins og
flugfargjöld, flutningsgjöld á
tækjum, raforkusölu, húsaleigu í
Höllinni og vinnulaun. Til marks
um umfang sýningarinnar má
nefna að um miðja vikuna verður
sýningarsvæðið einn stærsti
vinnustaður landsins með um
1.000 manns í vinnu.
Áætlað er að um 2.000 erlendir
menn tengist sýningunni, ýmist sem
sýnendur og starfsmenn þeirra eða
sem gestir. Talið er að dagleg eyðsla
hvers og eins geti numið um 12.000
krónum eða alls um 60.000 krónum
sýningardagana fimm. Það eru um
120 milljónir króna. Þar að auki
koma þeir nær undantekningarlaust
með íslenzkum flugfélögum til
landsins og miðað við fargjald að
meðaltali á um 25.000 krónur gerir
það 50 milljónir alls. Leiga fyrir
sýningarbása og höllina sjálfa er
veruleg upphæð, en stór hluti bása-
leigu rennur til hins érlenda fyrir-
tækis, sem að sýningunni stendur.
Þá er raforka mikið notuð á sýning-
unni og gæti Laugardalshöllin á
þessum tíma verið einn stærsti raf-
orkukaupandinn á höfuðborgar-
svæðirtu.
Að sögn stjómenda sýningarinnar
gengur uppsetning hennar vel og
eru þeir sérstaklega ánægðir með
hve vel gengur að fá tæki og tól
ýmis konar í gegnum tollinn, en af-
greiðsla tollyfírvalda gekk hægt
fyrir sig fyrir síðustu sýningu haust-
ið 1984. Alls er reiknað með að
vamingur vegna sýningarinnar verði
fluttur hingað í 50 til 60 gámum,
flestum af stærri gerðinni.
Fyrsti snjór-
inn fallinn
Fyrsti snjórinn féll í fyrrinótt allt
frá norðanverðum Vestfjörðum
tíl Austfjarða. Snjóföl var á fjall-
vegum og nokkur hálka á
Norðaustur- og Austurlandi. Sam-
kvæmt upplýsingum Veðurstofu
íslands er gert ráð fyrir heldur
mildara veðri á næstunni.
I Reykjavík var næturfrost í fyrri-
nótt. Þá mældist 6,7 stiga frost niðri
við jörð. Þetta er í þriðja sinn í þess-
um mánuði sem næturfrost hefur
mælst í höfuðborginni.
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!