Morgunblaðið - 15.09.1987, Blaðsíða 19
vapr fl'ífTM'íTqrííí ?.r ímoAaTir.mfld aTaA.ifiMTio.fTOM
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987
Í9
Kristniboðsþing í Vatnaskógi
Borgarfirði.
HELGINA 4.-6. september sl.
var haldið Kristniboðsþing hið
30. i röðinni í Vatnaskógi i
Svínadal. Kristniboðsþing er
aðalfundur Sambands íslenzkra
kristniboða þar sem skýrsla
stjórnar er lögð fram, skýrslur
aðildarfélaga Kristniboðssam-
bandsins, reikningar og laga-
breytingar. Jafnhliða eru
málefni kristniboðsstarfsins
heima og erlendis rædd og
kristniboðar, sem eru heima,
segja frá starfinu i starfsmið-
stöðvunum ytra.
í skýrslu formanns Kristniboðs-
sambandsins, Skúla Svavarssonar,
kom fram m.a. að rekstur starfsins
yrði sífelit dýrari ár frá ári. Fjár-
hagsáætlun fyrir árið 1985 hljóð-
aði upp á 5.850 þús. og fyrir
yfírstandandi ár upp á rúmar 7,1
milljón króna. Undanfarin ár hefði
verið halli á rekstri starfsins, en
starfíð byggir algerlega á frjálsum
framlögum til starfsins. Af þessum
rúmum 7 milljónum, sem þarf á
þessu ári vantar á milli 3—4 millj-
ónir til að endar nái saman um
næstu áramót.
Tvenn kristniboðshjón eru ný-
komin heim frá Eþíópíu, sem hafa
verið að störfum þar. Eru engir
kristniboðar frá íslandi starfandi
þar eins og er. Starfíð heldur þó
áfram með innlendum mönnum. í
Kenýa eru ein kristniboðahjón að
starfí og önnur eru að fara út eft-
ir árs veru hér heima. Hefur starfíð
í Kenýa vaxið mjög ört á undan-
fömum ámm og má segja, að þar
sé hagkvæm tíð núna til að sá
Guðsorði, og því erfitt að neita
fólkinu um hjálp vegna fjár- og
mannfæðar.
Karl J. Gíslason gerði stjóm
Kristniboðssambandsins grein fyr-
ir kristniboðaköllun sinni sl. vetur.
Er hann ásamt fjölskyldu sinni við
nám í kristniboðaskólanum Fjell-
haug í Noregi. 15 ár ár em liðin
síðan síðasta konan, Ingunn Gísla-
dóttir, kom heim frá Eþíópíu. Þrátt
fyrir síendurteknar fyrirspumir
hefir ekki tekizt að hafa upp á
neinni konu til þess að halda starfí
hennar þar áfram. Kristniboðssam-
FLEXON
VESTUR-ÞYSKUR
HÁGÆÐA
DRIFBÚNAÐUR
FLUTNINGSKEÐJUR
Allar stœrðir
Hagstœtt verð
Við veitum þér
allar tœknilegar
upplýslngar
LANDSSMIÐJAN HF.
Verslun Ármúla 23 — S. (91)20680
bandið þarf að vera komið upp á
Norðmenn, hvað varðar starf
hjúkmnarfræðinga í Konsó.
Heimastarfíð hefur verið með
hefðbundnum hætti. Hefur verið
lögð áhersla á það að heimsækja
sömu staðina ár eftir ár til þess
að freista þess að tengjast þeim,
sem kynnast starfínu. Var farið
um Norð-Vesturland, Akureyri og
nágrenni þess og Austurland fyrri
hluta vetrar. Seinni hluta vetrar
var farið á Snæfellsnes og um
Suðvesturland. Á aðra staði er far-
ið óreglulegar. í þessum ferðum
kristniboðanna er starfíð kynnt í
skólum, stofnunum og á vinnustöð-
um, á samkomum, í kirkjum og í
viðtölum við einstaklinga.
Allt þetta starf er borið upp af
frjálsum framlögum einstaklinga,
stofnana og fyrirtækja, auk sam-
skota á samkomum. Þar kemur
langstærsta framlagið frá meðlim-
um kristniboðsflokkanna og trú-
föstum kristniboðsvinum.
Kristniboðsflokkar eru starfandi á
Akranesi.í Stykkishólmi, Skaga-
fírði, á Akueyri, í Vestmannaeyj-
um, Keflavík, Hafnarfírði og
Reykjavík. Um 15 aðildarfélög eru
að Kristniboðssambandinu auk
styrktarfélaga.
Kristniboðsþingið sóttu um 100
manns. í stjóm Kristniboðssam-
bandsins eru Skúli Svavarsson
Þingmenn á tröppum gamla skálans í Vatnaskógi.
formaður, Stína Gísladóttir ritari,
Siguijón Gunnarsson gjaldkeri,
Jóhannes Tómasson varaformaður.
Aðrir í stjóm em þeir Páll Friðriks-
son, Kristín Möller og Haraldur
Jóhannsson, sem kom nýr inn í
stjómina á Kristniboðsþinginu.
- pþ.
lækkun
•í íslcnskum
kaitötliim
\
Vegna mikillar og góðrar uppskeru lækkum
viðverðiðá kartöflunum okkar um /
Ágætiskartöflumar sem þú finnur í öllum
verslunum í dag voru valdar, þvegnar og pakkaöar í
morgun. Þess vegna vöknum við á sama tíma og bakararnir
og stöndum vörð um neytendaþjónustu eins og hún gerist allra best.
itlur
fallegarígegn
dreifingarmiðstöð matjurta
Síðumúla 34 S: 68-16 00