Morgunblaðið - 15.09.1987, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987
51
Ofurhugi á mótorsvifdreka
NÝLEGA var frá því sagt á
síðum Morgunblaðsins að hol-
lenskur „ofurhugi" að nafni
Eppo Harbrink Numan hyggist
fljúga mótorsvifdreka yfir Norð-
ur-Atlantshafi sumarið 1988 og
þá með viðkomu á íslandi. Les-
endum Morgunblaðsins til
glöggvunar birtist hér mynd af
farartækinu sem var til sýnis á
flugsýningunni miklu í Paris í
júní sl. Það sést að ekki fer mik-
ið fyrir farartækinu hans
Numans, sem heitir „Charcoal"
í höfuðið á veitingahúsi sem
Numan rekur í heimabæ sínum,
Den Haag í Hollandi.
Það er hálf ótrúlegt að nokkrum
manni skyldi detta það í hug að
ferðast á þennan máta yfír Norður-
Atlantshaf þegar hægt er að ferðast
mun ódýrara og með mun minni
fyrirhöfn milli heimsálfa, t.d. með
breiðþotu þar sem þægindin eru
mun meiri.
Mótorsvifdrekinn „Charcoal" er
knúinn fjögurra strokka Limbach-
fjórgengishreyfli sem er talinn mjög
gangþýður og sparneytinn. I bátn-
um þar sem flugmaðurinn situr
hefur annað sætið verið fjarlægt
og þar komið fyrir 125 lítra elds-
neytisgeymi. Meðal siglingatækja
verða Loran-C-mótttakari og sjálf-
virkt stefnumiðunartæki, eða ADF
eins og það nefnist á flugmáli. Sjálf-
ur verður Numan vel klæddur að
hætti kafara og orrustuþotuflug-
manna ef ske kynni að hann þyrfti
að nauðlenda á leiðinni og fá sér
óvæntan sundsprett. Ennfremur
verður hann með neyðarbúnað alls-
konar með sér, þar með talið
gúmmíbjörgunarbát, neyðarblys í
öllum regnbogans litum, vítamín-
bætt drykkjarvatn, veiðibúnað og
357 magnum-skammbyssa af
Smith & Wesson-gerð, sem er
liklegast ætluð til notkunar ef Nu-
man og ísbjöm skyldu verða
samferða á ísjaka einhvers staðar
á leiðinni.
Numan ráðgerir að leggja af stað
frá Rotterdam í júlí nk. og verður
fyrsti viðkomustaður hans í Cranfí-
eld í Englandi þar sem fram fer
stór og mikil flugsýning heimasmíð-
aðra flugvéla. Þaðan ætlar hann
um Skotland, Benbecula og
Stomoway til Voga í Færeyjum og
áfram til Homafjarðar. Frá Homa-
fírði mun leiðin liggja um Selfoss
og þaðan til Látravíkur þaðan sem
hann ætlar að fljúga til Kulusuk á
austurströnd Grænlands. Frá Kulu-
suk hyggst hann þræða strendur
Grænlands suður að Nassarssuaq
og þaðan áfram norður með vestur-
ströndinni um Nuuk til Syðra-
Straumíjarðar. Frá Syðra-Straum-
firði mun leið hans liggja til
herstöðvarinnar við Cape Dyer á
Baffínslandi, síðan til Frobisherflóa
og þaðan áfram suður um óbyggðir
Kanada. Lokaáfangastaður Nu-
mans verður í Oshkosh í Wiscons-
in-fylki í Bandaríkjunum og áætlar
hann að vera kominn þangað í byrj-
un ágúst en þá fer fram hin árlega
flugsýning Experimental Aircraft
Association, sem er ætluð flug-
áhugamönnum og er stærsta og
fjölsóttasta flugsýning í heimi og
stendur í vikutíma. Upphaflega
ætlaði Numan að verða fyrstur
manna til að fljúga mótorsvifdreka
hringinn um hnöttinn en það vom
alltof mörg ljón í veginum fyrir því
að hans sögn, fyrst og fremst af
stjómmálalegum ástæðum. Það
verður eflaust gaman að fylgjast
með hvemig áformum hollenska
ofurhugans líður og hvemig honum
tekst til við að verða fyrstur manna
yfír Atlantshaf á mótorsvifdreka.
Mynd og texti: PPJ
<
cn
5
ö
[ KRINGLUNNI
Radial
stimpildælur
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN SÍMI 624260 o
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER <
KSI
UEFA
EVRÓPUKEPPNI BIKARMEISTARA
Akranes
Kalmar
á Akranesvelli í dag klukkan d ^R.30
Akranes hefur skorað flest mörk allra liða í sumar.
Verða sænsku meistararnir slegnir út?
Flugfélag með ferskan blæ
ARNARFLL