Morgunblaðið - 15.09.1987, Blaðsíða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987
fclk í
fréttum
Bette
Davis
heiðruð
Bandaríska leikkonan Bette
Davis var sæmd orðu nú á fðstu-
daginn af franska menningar-
málaráðherranum, Francois
Leotard. Orðuveitingin fór fram
í tilefni af bandarískri kvik-
myndahátíð, sem nú stendur
yfir í borginni Deauville í
Frakklandi.
Reuter
Bette Davis þiggur orðuna af
franska menningarmálaráð-
herranum.
STENI - VEGGKLÆÐNING
STENi-veggklæðning er frábær
fyrir flestar gerðir nýbygginga, t.d.
einbýlishús, fjölbýlishús, skóla,
iðnaðar- og verslunarhúsnæði,
svo eitthvað sé nefnt.
Andlitslyfting fyrir gamla
húsið.
STENI-veggklæðning er tilvalin
þegar endurnýja þarf gamla húsið,
ekki síst vegna þess hve vel hún
gengur með öðrum efnum, s.s.
bæsuðu eða máluðu timbri og
gefur þannig ýmsa möguleika.
Orkusparnaður og einangrun-
argildi.
Mörg eldri hús eru illa einangruð
og þ.a.l. dýr í upphitun. Með
STENI-klæðningu og glerullar-
einangrun á útveggi fæst hlýtt og
notalegt hús og stórum minni
upphitunarkostnaður.
STENI - VEGGKLÆÐNING - Sannkallað „steinefni“ fyrir húsið
^ BYGGINGAVÖRUVERSLUN
BYKO KÓPAVOGS
jO TIMBURSALAN
SKEMMUVEGI 2 SlMI:41000
Morgunblaðið/Þorkell
Finnsku krakkarnir í Hvassaleitisskóla. Kennarar þeirra, Helene
Karmelind Jftrvinen, og Ronnie Rehn sitja aftast fyrir miðju.
Skrítið
að hér séu engin tré
- segja finnskir nemendur
í Islandsheimsókn
Nú í síðustu viku voru stödd
hér á landi 20 finnsk böm
á aldrinum 11-12 ára, sem unnu
að verkefni um ísland í tengslum
við nám sitt. Þau gistu'í Hvassa-
leitisskóla, og þar hitti Fólk í
fréttum þau ásamt kennurum
þeirra, þeim Helene Karmelind
Járvinen, og Ronnie Rehn.
í finnskum grunnskólum er það
algengt að nemendur fari í sk.
„lágerskola", þar sem farið er
með kennurum út á land, og unn-
ið að verkefni um náttúru og
menningu einhvers ákveðins stað-
ar. Foreldrar nokkurra bamanna
sem hér voru stödd, fengu þá
hugmynd að það væri gaman að
senda þau til íslands í „láger-
skola", og var strax hafíst handa
við undirbúning ferðarinnar fyrir
tveimur ámm.
Það var síðan í upphafí síðasta
skólaárs að íslenskur nemandi,
Hildur Ingvarsdóttir, kom inn í
bekkinn í Cygnaeusskóla í Hels-
inki, og komst þá á samband
nemenda þar og nemenda í Hvas-
saleytisskóla, gamla skólanum
hennar Hildar. Finnsku nemend-
umir gerðu verkefni um ísland í
skólanum, og stóðu í bréfaskrift-
um við gestgjafa sína hér, þannig
að þau vom vel undirbúin þegar
þau komu til landsins sunnudag-
inn 6. september.
Hver dagur í íslandsferðinni
var þaulskipulagður, og fóm böm-
in meðal annars upp I Heiðmörk,
til Þingvalla, Gullfoss og Geysis,
og í sund í Bláa Lóninu. Þegar
þau vom spurð hvað þeim hefði
þótt skemmtilegast, vom þau ekki
í vafa, mest gaman var að fara á
hestbak í Laxnesi, en einnig þótti
þeim mikið til koma að sjá hvera-
svæðið í Haukadal, og að sjá
Strokk gjósa. Þeim þótti veðrið
gott, nema að sumum þótti nokk-
uð kalt. Þá þótti þeim mjög skrítið
að sjá land þar sem em engin
tré, enda öðm vön á heimaslóðun-
um.
Finnsku bömin heilsuðu upp á
'forseta íslands, Vigdísi Finn-
bogadóttur, á Bessastöðum, en
þau áttu inni heimboð hjá forset-
anum frá heimsókn hennar til
Finnlands í apríl sl. Þau heimsóttu
einnig fjölskyldur nerpendanna í
Hvassaleitisskóla sem þau höfðu
skrifast á við. Þau sögðu að það
hefðu ekki verið neinir teljandi
tungumálaerfíðleikar, þau hefðu
talað saman á „skandinavísku",
en aðallega samt á ensku. Þá
sögðust krakkamir skilja pínulftið
í íslensku, og sumir sýndu blaða-
manni fram á kunnáttu sína með
því að telja upp að tíu, eða segja
„góðan daginn", „gjörðu svo vel",
„hvað er klukkan", og „bless,
bless“.
íslandsferðin var engin lysti-
reisa, enda er markmiðið með
„lágerskola" að sameina gagn og
gaman, og bömin skrifuðu dag-
bók og unnu að ýmsum verkefn-
um á meðan að á dvöl þeirra hér
á landi stóð. Þau Helene og
Ronnie létu mjög vel af öllum
aðbúnaði í Hvassaleitisskóla, og
gestrisni og skipulagningu gest-
gjafa; og þau sögðu að þrátt fyrir
alla vinnuna og kostnaðinn sem á
bak við íslandsferðina liggur, þá
væri það svo sannarlega þess virði
að koma hingað.
Bömin hafa eignast marga
góða kunningja hér á landi, og
er hugmyndin að 6.-K í Hvassa-
leitisskóla, „vinabekkur" fínnsku
krakkanna, endurgjaldi heim-
sóknina, og fari til Helsinki í
Finnlands næsta sumar.
Morgunblaðið/Þorkell
Það var ofsalega gaman á íslandi, sögðu þessar tvær stöllur.