Morgunblaðið - 19.09.1987, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987
J.
Loðnuveiðar:
Sættum okkur ekki við verð-
lækkun af völdum sljórnvalda
Fáum 150 krónum minna fyrir tonnið, verði söluskattur ekki
endurgreiddur til verksmiðjanna, segir Örn Erlingsson, skipsljóri
UPPHAF loðnuveiða og vinnslu
er nú háð því, að ljóst verði hvort
stjórnvöld hætti við endur-
greiðslu á uppsöfnuðum sölu-
skatti til verksmiðjanna að sögn
Arnar Erlingssonar, skipstjóra á
loðnuskipinu Erni KE. Hann seg-
ir, að verði söluskatturinn ekki
endurgreiddur, þýði það að verk-
smiðjurnar borgi um 150 krónum
minna en ella fyrir hveija loðnu-
lest. Halldór Ásgrímsson, sjávar-
útvegsráðherra, segir að þetta
eigi ekki að hefta upphaf veið-
anna, þar sem þessir peningar
komi með einhverjum hætti til
verksmiðjanna aftur.
Öm sagði í samtali við Morgun-
blaðið að nokkur skip væru þegar
tilbúin til veiða og ekkert annað en
óvissan um endurgreiðslu sölu-
skattsins kæmi í veg fyrir að þau
fæm af stað. Sjómenn og útgerðar-
menn sættu sig ekki við verð til
þeirra lækkaði af völdum stjóm-
valda á sama tíma og verð fyrir
flestar aðrar fisktegundir færi
hækkandi. Hann sagði ennfremur,
að verksmiðjumar gæfu ekki út hve
mikið þær væm tilbúnar til að borga
fyrir loðnuna af þessum sökum og
því færi enginn á sjó. Á síðustu
vertíð fiskaði Öminn rúmlega
22.000 lestir. 150 krónur á hverja
lest miðað við þann afla þýða því
um 3,3 milljónir króna til eða frá.
Halldór Ásgrímsson, sjávarút-
vegsráðherra, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að ekki gæti verið
að þetta mál kæmi í veg fyrir að
veiðar hæfust. Þessir peningar fæm
í loðnudeild Verðjöfnunarsjóðs og
yrðu því ekki teknir af verksmiðjun-
um. Hins vegar yrðu peningamir
bundnir í sjóðnum. Aðspurður um
það hvort verðjöfnun kæmi til
greina á vertíðinni, sagðist hann
ekki vilja tjá sig um það.
Halldór sagði, að þessi staða
væri erfið. Á sama tíma og annað
fískverð hækkaði, gæfu markaðir
fyrir loðnuafurðir ekki tilefni til við-
unandi verðs til útgerðar og
sjómanna. Því yrði að taka þennan
þátt bráðabirgðalaganna sérstak-
lega upp, þegar þau yrðu lögð fyrir
Alþingi til staðfestingar. Spuming-
in væri hvort annað gæti gilt fyrir
loðnuveiðar og vinnslu en aðrar
greinar og verksmiðjumar gætu
reiknað með því að fá þessa pen-
inga, en með hvaða hætti það yrði,
væri óljóst.
VEÐUR
í DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa íslands
(Byggt é veðurspá kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 19.09.87
YFIRLIT á hádegi f gær: Hæft yfir Grænlandi, en lægft austur í hafi.
SPÁ: í dag verður fremur hæg austan- og norðaustan átt á landinu.
Vífta bjart veftur sunnanlands og inn til landsins á norðurlandi,
annars skýjaft og sums staftar þokubakkar efta skúrir vift strönd-
ina. Hiti 3—10 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
SUNNUDAGUR OG MÁNUDADGUR: Austlæg átt og fremur svalt.
Þurrt sums staftar vestanlands en rigning víðast hvar í öftrum lands-
hlutum.
TÁKN:
Heiðskírt
á
•ái>
m
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
■j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V
El
— Þoka
= Þokumóða
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
’, » Súld
OO Mistur
—[- Skafrenningur
1^7 Þrumuveður
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að fsl. tíma hltl veður Akureyri 8 skýjað Reykjavfk 8 akúr
Bergen 9 skúr
Helsinki 11 skýjafi
Jan Mayen 6 skýjafi
Kaupmannah. 16 þokumófia
Narssarssuaq 3 léttskýjað
Nuuk 2 þoka
Osló 11 rignlng
Stokkhólmur 11 alskýjafi
Þórshófn 7 skúr
Algarve 28 skýjað
Amsterdam 16 léttskýjafi
Apena 30 helðskfrt
Barcelona 28 mlstur
Berlfn 23 rlgnlng
Chlcago 17 súld
Feneyjar 27 þokumófia
Frankfur. 28 skýjafi
Glasgow 14 léttskýjað
Hamborg 17 skýjafi
Las Palmas 28 skýjað
London 18 léttskýjað
LosAngelea 17 skýjað
Lúxemborg 26 slcýjað
Madrld 28 léttskýjað
Malaga 28 rykmlstur
Mallorca 30 heifisklrt
Mrntreal 9 léttskýjað
NewYork 20 skúr
Parfs 28 skýjað
Róm 28 þokumóða
Vln 28 skýjað
Washlngton 21 þokumófia
Winnlpeg 13 alskýjað
Vonnegvthjá AB
Kurt Vonnegut, rithöfundur frá Bandaríkjunum, sat hádegis-
verðarboð íslensks útgefenda síns, Almenna bókafélagsins, í
gær og var myndin tekin við það tækifæri. Á myndinni eru:
Kurt Vonnegut, Jóhannes Nordal, Björn Bjarnason, Kristján
Karlsson, Einar Már Guðmundsson, Sigurður Valgeirsson,
Eiríkur Hreinn Finnbogason, Sigurður Pálsson, Jóhann
Hjálmarsson og Kristján Jóhannsson.
Kringlan:
Vaktakerfi í bígerð
- segir Ragnar Atli Guðmundsson
framkvæmdastj óri Kringlunnar
ENGAR stórvægilegar breyting-
ar munu eiga sér stað á næstunni
á opnunartíma verslana Kringl-
unnar, að sögn Ragnars Atla
Guðmundssonar framkvæmda-
stjóra, heldur verður brugðist við
auknu frjálsræði á opnunartíma
verslana með því að undirbúa
verslunareigendur og starfsfólk
vel undir hugsanlegan lengri
opnunartíma.
„Okkur líst mjög vel á þessa nið-
urstöðu borgarstjómar en hefðum
þó viljað hafa verslunartímann al-
gerlega frjálsan. Þessar nýju reglur
eru hins vegar stór áfangi á réttri
leið,“ sagði Ragnar Atli.
Fundur verður haldinn í næstu
viku með verslunareigendum þar
sem ákvörðun verður væntanlega
tekin um viðbrögð. Kvaðst Ragnar
Atli munu hafa frumkvæði að því
að tekið yrði upp vaktakerfí og
væri mikil áhersla lögð á það að
ná góðu samstarfí við Verslunar-
mannafélag Reykjavíkur. „Það er
mjög mikilvægt, að lengri opnun-
artími bitni ekki á starfsfólkinu."
Ragnar sagði að rólega yrði farið
af stað, en í framtíðinni yrði opið
mun lengur en nú væri; „slíkt er
eðli verslanamiðstöðva sem Kringl-
unnar."
Verslanir í Miðbænum:
Sjáum hverju fram vindur
- segir Astbjörn Egilsson fram-
kvæmdastjóri Miðbæjarsamtakanna
EKKI eru uppi nein áform um
lengri opnunartíma verslana i
miðbænum í kjölfar hinna nýju
reglna um frjálsan opnunartima,
að sögn Ástbjamar Egilssonar
framkvæmdastjóra Miðbæjar-
samtakanna.
Ástbjöm gat þess í samtali við
Morgunblaðið að hin nýja staða
hefði ekkert verið rædd í í hópi
kaupmanna í Gamla miðbænum, en
kvaðst hann ætla að menn biðu
átekta og sæju til. „Við höfum und-
anfarið verið að hvetja okkar
félagsmenn til þess að hafa opið til
ijögur á laugardögum og látum það
nægja, að minnsta kosti í bili.“
Kvaðst Ástbjöm vantrúaður á að
verslanir t. d. við Laugaveginn færu
að hafa opið á kvöldin og myndu
sunnudagar enn sem fyrr fá að
vera í friði.
Aðspurður um ágæti þessara
nýju reglna, sagði Ástbjöm að ugg-
ur væri í mörgum kaupmönnum,
þar sem mikið lengri opnunartími
legði miklar kvaðir á menn. Þó taldi
hann að matvörukaupmenn „á
hominu" ættu að geta náð til baka
einhveiju af þeim viðskiptum sem
þeir misstu til stórmarkaðanna.