Morgunblaðið - 19.09.1987, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987
15
möguleika og allt aðra en aðrar
greinar myndlistar hafa upp á að
bjóða.
Allt þetta og margt fleira datt
mér í hug er ég skoðaði sýningu
Péturs Fríðriks í hinum vistlega
sal nýja hótelsins við Sigtún,
„Holiday Inn“.
Myndefnin hjá Pétri hafa verið
þau sömu um langt árabil sem ekki
skal lasta, en hitt er annað mál að
vinnubrögðin hafa lítið breyst, svo
það er líkast sem maður sé að skoða
sömu sýninguna aftur og aftur. Að
minnsta kosti sá ég ekki mikinn
mun á þessari sýningu og þeirri í
salnum á Austurströnd á Nesinu í
fyrra eða ýmsum eldri sýningum.
í þessu virðist liggja nokkur
heimfýsi á ákveðnar slóðir, þrá eft-
ir sömu upplifuninni — hér er
nostalgían í öllu sínu veldi. Málarinn
Pétur Friðrik.
Pensildrættir heimfýsninnar
Myndiist
Bragi Ásgeirsson
Á sama hátt og bókmenntir eru
skilgreindar og flokkaðar ætti að
vera auðvelt að útlista málaralist-
ina. Fyrir sumum er myndverkið
eilíf rannsókn, hver mynd ný upp-
götvun í ríki myndlistarinnar og
þannig stærði hinn mikli núlista-
maður, Marcel Duchamp, sig af því
að hafa aldrei endurtekið sig. Hann
er sagður hafa haft rétt fyrir sér,
eða svona hérumbil. Aðrir mála
stöðugt sama stefið og gildir hér
einu í hvaða stíl það er gert — sum-
ir nefna það staðfestu, en aðrir
endurtekningar og er vísast sann-
leikskorn í hvorutveggja.
Norski málarinn Harald Sohlberg
(1869—1935) málaði fræga ,mynd
er hann nefndi „Vetrarnótt í Rond-
ane“ og gerði svo heilar 14 eftir-
myndir af henni. Ein þessara
eftirmynda og af lakara taginu, eigi
maður að trúa orðum Knut Berg,
forstöðumanns Þjóðlistasafnsins í
Ósló, seldist nýlega á 2,2 milljónir
norskra króna á uppboði, svo að
dýr myndi Hafliði allur, líkt og sagt
er.
Og Munch gerði einnig eftir-
myndir af fyrri verkum sínum, en
í allt öðrum tilgangi, sá einfaldlega
svo mikið eftir frummyndunum að
honum leið eins og hann hefði selt
börn sín — vildi mála þau til sín
aftur.
Sumir fara út í grafík til að fjöl-
falda hugmyndir sínar, en aðrir
vegna þess að þeir sjá í sérstakri
tækni listgreinarinnar heillandi
Paul Cézanne málaði íjallið St.
Victoire í Provence ótal sinnum og
í sínum auðkennilega stíl, en samt
er greinilegur munur á þeim öllum,
að því er sagt er.
Vafalítið eru endurtekningar list
í sjálfu sér, en þó ekki ávallt af
þeim meiði að ég telji þroskavæn-
legt til eftirbreytni.
Eg hlyti að endurtaka mig og
fyrri skrif mín ef ég lýsti sýning-
unni svo sem hún kemur mér fyrir
sjónir í einstökum atriðum og á því
hef ég ekki mikinn áhuga.
En að einu leyti tel ég mér það
óhætt og það er að húsamyndimar
á sýningunni tel ég bera af öðrum
myndum, nefnilega „í Hafnarfirði"
(7), „Síðkvöld á Skagaströnd" (16)
og „Gaflar" (19). Þá eru hressilegir
pensildrættir í myndinni „Guð-
mundur í Ásum“ (13).
SAGA AUGNA-
BLIKANNA
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Málarinn Helgi Þorgils er með
sýningar á tveim stöðum, svo sem
kunnugt er, og vík ég hér nokkrum
orðum að sýningunni í Galleríi Svart
á hvítu við Óðinstorg. Listdómur
um sýninguna að Kjarvalsstöðum
birtist laugardaginn 12. september.
Ekki sé ég mikla ástæðu til þess
hjá Helga að sýna á tveim stöðum,
en frumkvæðið kemur hér frá for-
ráðamönnum sýningarsalarins og
má að ósekju koma fram. Þá gat
listamaðurinn ekki séð fyrir, að
búið yrði að koma upp jafn ágætri
aðstöðu fyrir smærri myndir í Aust-
urgangi og raunin er. Eg segi fyrir
mig, að myndimar hefðu frekar átt
heima þar.
Myndimar í sýningarsalnum við
Óðinstorg eru að meginhluta til
hugdettur augnablikanna, sem
fæddu þær af sér — hugmyndir úr
bókmenntaheiminum í eins konar
myndasögustíl, er byggist á marg-
víslegum myndhvörfum.
Á stundum em þetta fígúrur, er
hlykkjast um allan myndflötinn eða
svífa í tómarúmi — líkamshlutir
bregða á leik og víxlast og bem-
skir kynórar blómstra.
Ósjaldan dettur manni súrreal-
ismi í hug við skoðun þessara verka,
en myndimar em þó frekar brota-
brot liststíla líkast einingum í
myndkotm, sem hafa bmgðið á leik
í óræðri niðurröðun. Serri fyrr em
það myndir, þar sem bregður fyrir
„malerískum" tilþrifum, sem ég
staðnæmist helst við, svo sem
„Andardráttur lífsins" (9),
,,Haust“(ll), „Meyjan og biðlamir"
Helgi Þorgils Fríðjónsson.
(16) og „Boðskapur frelsisins" (26).
Þá er ýmislegt gott um grafíkmöpp-
una að segja er nefnist „Saga
augnablikanna" og léttum, leikandi
línum bregður fyrir í litlu grafík-
myndunum sextán. Þótt þetta sé á
engan hátt jafn veigamikil sýning
og á Kjarvalsstöðum, þá hafa
áhugasamir vafalaust mikið gagn
af innliti í sýningarsalinn við Óðins-
torg einkum vegna þess, að hér er
um nokkuð aðra hlið á Helga að
ræða og meira í ætt við fyrri tilraun-
ir hans . . .
Rsektun hausBaukaer auöveld. Þeír ^réihelwvedð meteúrval af
^von.HSMi^—^^ðl.auKarogv^r
^SS^ar.hávaxnir g-JJr
2. 50 stk. túlípanar, lagvaxmr. Kr.490._
Blómum..