Morgunblaðið - 19.09.1987, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987
Haustið
og litir laufanna
Nú er að byija sú septembersýn-
ing sem getur staðið út október
ef veður helst kyrrt og svalt. Lauf-
skrúð trjánna logar í ótal tilbrigð-
um gulra og rauðra lita.
En hvernig stendur á öllum
þessum jitbrigðum?
Hún Ágústa bað mig blessaðan
að gera grein fyrir því. Og auðvit-
að skorast enginn undan þegar hún
Ágústa biður um viðvik. Jú — það
er þannig að hvert laufblað er í
raun heljarmikil verksmiðja og um
leið agnarlítið orkuver. Efna- og
orkuferillinn í hveiju laufblaði er
afar flókinn. Flóknari en svo að
hægt sé að gera honum fullnægj-
andi skil í stuttum pistli í Morgun-
blaðinu. En það skal samt reynt
með ýktri einföldun: Á vorin og
fram eftir sumri eru laufblöðin
mjúk, fagurgræn og afar næm á
birtu sólarinnar og háma í sig orku
frá sólarljósinu. Orkan gerir plönt-
unum kleift að draga til sín vatn
og næringarefni úr moldinni og
anda að sér heilnæmu loftinu.
Plöntumar taka til sín miklu meira
loft en þær þurfa vegna öndunar-
innar einnar. Þær eru nefnilega á
höttunum eftir kolefni til að byggja
upp vefi sína. Plöntumar binda
kolefnið en nota lítið súrefni — sem
þær reyndar framleiða líka og
senda út hreint og ómengað okkur
ti! góða. Þegar líður á sumarið
hægir á starfseminni. Blöðin eldast
ogþykkna af umfram- og úrgangs-
efnum. Þegar nætumar lengir og
kólna senda minnisbankar tijánna
þau boð út til blaðanna að nú sé
nóg komið og orðið tímabært að
koma öllu nýtilegu í örugga vetrar-
geymslu. Þá verða mikil efnahvörf
í blöðunum — og reyndar plönt-
unni allri. Próteinin og kolvetnin
sem trén hafa byggt upp í blöðun-
um eru snarast send niður í kjall-
ara eða innar í börk og brum. Síðan
fara ákveðnir hvatar að vinna að
því að loka öllum lögnum milli
blaða og bols. í blöðunum verða
samt eftir efni sem plöntumar
þurfa ekki að nota eða em svo
torleyst að auðveldara er að taka
þau upp gegnum rótarkerfíð næsta
vor.
En litimir? Við getum til mikill-
ar einföldunar sagt að laufblaðið
sé byggt upp á svipaðan hátt og
litfílma. í laufínu em einkum 3
flokkar ljósnæmra litarefna. Fyrst
og fremst blaðgrænan eða klóró-
fyllið, sem em köfnunarefnisrík
próteinsambönd, mjög sambærileg
við okkar eigin blóðrauða. Blað-
grænan er næm á bláa, græna og
gula geisla litrófsins.
Hinn guli og rauðguli karótín-
flokkur nýtir rauða og gula litrófíð.
Gulu litarefnin hafa líka nokkm
hlutverki að gegna við að sía frá
útfjólublátt ljós sem getur skaðað
plöntumar. Karótínin leggja til lit
í rauðgul og hlýrauð blóm og skína
af reynibeijum og safaríkum gul-
rótum. Hið rauðfjólubláa antósý-
anín og hið rauða fýtókkróm em
í frekar litlum mæli í plöntunum.
Antósýanín er aðallitgjafínn í rauð-
Qólubláum, bleikum og bláum
blómum. Einnig ræður það lit á
bláum beijum og „svörtum“. Antó-
sýanín nýtir útfjólublátt ljós og er
einkum í sólelskum plöntum, sem
bera það oftast í efsta litlagi blað-
anna til að veijast of sterkri
geislun. Fýtókróm er rautt litarefni
sem menn vita ekki gjörla hvaða
hlutverkum gegnir. Það virðist
hafa mjög takmarkað næmi á sýni-
legt ljós á afar þröngu bili hins
fmmrauða sviðs en er aftur virk-
ara þegar kemur út á brautir
hinnar innrauðu og ósýnilegu
birtu. Talið er a fýtókróm skipti
miklu máli fyrir birtuhreyfingar
plantnanna og sé einskonar tíma-
vörður, sem stjómar starfsemi
tengdri þroska þeirra. Innrauðir
geislar stjóma sem sagt fleiru en
flarstýrðum sjónvörpum, dyralok-
um og skerpuvali sjálfvirkra
myndavélaí
Það er fyrst og fremst blað-
grænan með sín verðmætu köfnun-
arefnissambönd sem trén vilja
halda í til næsta árs. Karótínefninn
em torleysanleg og verða eftir í
blöðunum. Einnig verður töluvert
eftir af antósýaníni en fytókrómið
færist inn í bmm og greinar og
bíður þar eins og upptrekkt vekj-
araklukka, sem setur allt af stað
þegar vorar á ný.
En þó að við kunnum skil á litar-
efnunum er ekki þar með sagt að
við vitum upp á hár hvemig þau
blandast í haustskrúðinu. Þar hafa
utanaðkomandi þættir afgerandi
áhrif. Fyrst og fremst veðurfarið.
Sé haustveðráttan rök og hlý verð-
ur haustskrúðið skammvinnt.
Einnig ef gerir hörð hret strax.
En í kaldri og stilltri hausttíð var-
ir það lengur. Sömuleiðis hefur
jarðvegurinn sitt að setja. Fijór
og rakur jarðvegur tefur fyrir en
þurr og magur ýtir undir haust-
skrúðið og heldur því lengur.
Margir vilja halda í greinar með
haustlaufínu á og vissulega er
heimilisprýði af skrautlegum
haustgreinum. En í flestum tilvik-
um er ekki auðvelt um vik. Helst
er hægt að þurrka blábeijalyng
eins og það kemur fyrir, en flest
annað vill fella lauf strax þegar inn
í stofuna kemur fyrir, að sérstakri
tækni sé beitt. Brellan er sú að
blanda einum hluta af glýseríni
saman við tvo af heitu vatni, hræra
vel í og láta síðan tijágreinamar
standa í þar til allar blaðfmmur
em orðnar mettar af glýseríninu.
Þessa aðferð má nota á allar
greinar til að halda á þeim lauf-
inu. Laufíð helst þurrt og mjúkt
en hvemig sem við fömm að held-
ur það uppmnalega litnum ekki
lengi. Á endanum fær það á sig
bronslitan eða brúnan blæ en er
samt sem áður fagurt á að líta og
mjúkt viðkomu. Glýserín fæst í
apótekum.
Reykvískir haustlitir em sjaldn-
ast svipur hjá sjón sé mið tekið
af norður-amerísku laufskógunum.
Það þarf jafnvel ekki að fara
lengra en til Akureyrar til að fá
óhagstæðan samanburð. En Heið-
mörkin og Þingvellir em sannar-
lega skrautleg tilsýndar í haustlit-
unum.
Hér em það einkum reynir og
hunangsviður sem skarta einrauðu
á haustin. Misplar, kvistir og roða-
ber skarta rauðu. Aspir, birki og
hlynur lýsa upp með skærgulu.
Litakóngur haustsins er samt hag-
þymir sem því miður er alltof
sjaldgæfur enn sem komið er. En
vonandi stendur það til bóta.
Birkikvistur
ÞYSKAN,
APANSKAN,
SÆNSKAN EÐA
AMERÍSKAN BÍL
NIPPARTS
Það er sama hverrar
þjóðar bíllinn er.
Við eigum varahlutina.
i EIGUM Á LAGER:
kúplingar,kveikjuhluti;bremsuhluti,
STARTARA, ALTERNATORA, SÍUR,AÐALLJÓS,
BENSÍNDÆLUR, ÞURRKUBLÖÐ ofl.
KREDITKORTA ÞJÓNUSTA
Úrvals varahlutir
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300
AIPÁM
UÓSAPERUR
LOGA
LENGUR
FINNSK FRAMLEIÐSLA
Heildsölubirgðir
SáÞÝSK-ÍSLENSKAHF
■ ■ Lynghálsi 10-110 Reykjavik -*• Sími: 82677