Morgunblaðið - 19.09.1987, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987
Bladburöarfólk
óskast!
SELTJNES VESTURBÆR
Selbraut Tjarnargata 3-40
Tjarnarstígur o.fl. Hjarðarhagi 44-64
AUSTURBÆR ÚTHVERFI
Ingólfsstræti
Lindargata frá 39-63
Laugavegurfrá 32-80
Skipholt 40-50 o.fl.
Stigahlíð42-
Eskihlíð 5-15 o.fl
Eskihlíð 6-12
KÓPAVOGUR
Hraunbraut
Básendi
Austurgerði
Sunnuvegur
Langholtsvegur
71-108
Háaleitisbraut 11-43
BREIÐHOLT
Fellahverfi
Mekkanó er þroskandi leikfang, sem reynir á huga og
hönd. Það ýtir undir hugmyndaflug og sköpunargáfu og
er því kjörið fyrir börn á öllum aldri.
Mekkanó er til I mörgum stærðum og gerðum. Verð frá
kr. 630.-. Póstsendum.
ÁSKRIFENDUR
AÐEINS EITT
SÍMTAL
691140 691141
Með einu símtali er hægt aft breyta innheimtuað-
ferðinni. Eftir það verða áskriftargjöldin skuldfærðT
viðkomandi greiðslukortareikning mánaðarlega.
Sjávarútvegssýningin í Laugardalshöll
Sjávarútvegssýn-
ingin hefst í dag
Sjávarútvegssýningin „Ic-
elandic Fisheries Exhibiti-
on“ hefst í Laugardalshöil í
dag. Um 460 sýnendur taka
þar þátt og eru íslenzk fyrir-
tæki rúmlega eitt hundrað.
Undirbúningur á sýningar-
svæðinu hefur staðið yfir
síðustu daga af miklum krafti
og sýningarbásamir risið einn
af öðrum. Að öðrum ólöstuðum
má segja að sýningarbás
„Quality Fishandling Group“,
sem er hópur íslenzkra og er-
lendra fyrirtækja, sé sá reisu-
legasti, byggður á tveimur
hæðum líkt og kastali. Básinn
hannaði Kristján Kristjánsson
frá Akureyri.
Hollendingar virkir þátttakendur
Aukin sókn í ferskan fisk frá fslandi
FJÖLDI Hollendinga leggur leið
sína til íslands á sjávarútvegssýn-
inguna í Reykjavík nú um helgina.
Fyrst og fremst er þar um að
ræða einstaklinga sem hafa
áhuga á auknum viðskiptum við
íslenska ferskfiskútfiytjendur og
má í því tilefni nefna komu full-
trúa allra helstu fiskmarkaða
landsins. Borgarstjori IJmuiden,
sem er ein mikilvægasta fiskiðn-
aðarborg Hollands, Hr. F.G. van
Hoek, er meðal þeirra, sem hing-
að koma. Jafnframt munu fulltrú-
ar hollenska sendiráðsins i
London, sem fer með stjórnmálas-
amskipti landanna, vera til staðar.
í Umuiden er annar stærsti fisk-
markaður Hollands, en sá stærsti er
i Urk sem liggur inni í miðju landi.
Umuiden er við minni Norðursjávar-
skipaskurðarins, sem tengir Amst-
erdam við skipasamgöngur á
Ermarsundi og Norðursjó. Höfnin
ásamt fískmarkaðnum er sjálfseign-
arstofnun og undanfarin ár hefur
átt sér stað mikill vöxtur í fersk-
fískviðskiptum þar og nú er svo
komið að langflestir fiskheildsalar
Hollands hafa aðalbækistöðvar sínar
í borginni.
í samtali Morgunblaðsins við F.G.
van Hoek varðandi þá akvörðun
borgarstjomar Umuiden (Gemeente
Velsen) að taka þatt í sjávarútvegs-
sýningunni í Laugardalshöll að þessu
sinni, kom fram að_ mikill áhugi er
á viðskiptum við íslendinga. Van
Hoek benti meðal annars á, að vegna
legu hafnarinnar og þess umfangsm-
ikla dreifingarkerfis, sem kemur
saman í IJmuiden, væri unnt að
dreifa á hraðvirkan og öruggan hátt
ferskum og fullunnum físki til allra
landa meginlands Evrópu innan nok-
kurra klukkustunda fra þvi að
aflanum hefur verið landað. Hann
benti á að nú væri unnið að því að
leggja sérstakan veg fyrir flutninga-
bíla, sem tengir fiskmarkaðinn beint
við hraðbrautimar.
Greinilegt er að Hollendingar
leggja jafnframt mikla áherslu á þá
miklu þekkingu, sem er til staðar i
landinu á alþjóða markaðssetningu
fískafurða og dreifingu þeirra. Fisk-
markaðamir i Hollandi, sem heyja
innbyrðis barattu um öflun hráefnis
fyrir markaðina, munu hver fyrir sig
senda eigin fulltrúa til þess að ræða
við íslenska útflytjendur. Ekki hvað
síst verður lögð áhersla á kaup a
ferskum flatfíski enda auðsýnilegt'
að um mikinn skort verði að ræða
i fískvinnslum Hollands, ef ekki tekst
að fínna nýja hráefnisbrunna fljot-
lega.
Kvótakerfi Evrópubandalagsins
er farið að setja mark sitt á fisk-
markaði Evrópu og verð til neytenda
hefur farið hækkandi. Þó hafa þeir
aðilar, sem Morgunblaðið ræddi við,
bent á mikilvægi þess, að sá fiskur,
sem sendur er á Evrópumarkað,
hvort heldur hann er ferskur eða
frystur, sé ormalaus. Bent var á
það, sem gerðist í Þýskalandi og að
nú síðast hefði verið haldinn fundur
ferskfísksmala í Hollandi í Rotterd-
am og að þar hefði komið fram
andstaða við ferskan fisk fra Dan-
mörku vegna orðroms um að í
honum fyndist ormur. Aukin þörf
Evrópubandalagsins fyrir ferskan
fisk og þá sérstaklega flatfisk auk
þorsks og karfa, mun auka þrýsting
erlendra aðila á hráefnismarkað ís-
lendinga var sameiginleg niðurstaða
þeirra sem Morgunblaðið ræddi við.
E.K.
Frá hollenskum fiskmarkaði.
RITGERÐ UM GEIMVARNIR
Öryggismálanefnd hefur gef-
ið út ritgerðina Geimvarnir:
Áætlanir risaveldanna og áhrif
þeirra. Ritgerðin er eftir Albert
Jónsson, fréttamann og stjórn-
málafræðing, sem nýlega hefur
verið ráðinn frarnkvæmdastjóri
Öryggismálanefndar.
I fréttatilkynningu frá Öryggis-
málanefnd segir m.a.: „Vamir
snerta grundvallaratriði í hug-
myndum manna um kjamorkuvopn
og hlutverk þeirra. Fátt hefur haft
jafn mikil áhrif á umræðu um
kjamorkuvopn og afvopnun að
undanfömu og stefna risaveldanna
tveggja varðandi vamir gegn
kjamorkuvopnum. Hæst hefur bo-
rið geimvamaáætlun Banda-
ríkjanna og deilur um hana.
Annarsvegar em þeir sem segjast
eygja þann möguleika að með
geimvömum megi auka stöðug-
leika í samskiptum risaveldanna,
jafnvel þótt áfram verði fyrst og
fremst treyst á fælingarmátt
kjamorkuvopna. Að auki sé hugs-
anlegt að vamir geti leitt til þess
í framtíðinni að endir verði bundinn
á kjamorkuógnina. Hins vegar eru
þeir sem halda fram að einungis
komi til greina mjög takmarkaðar
vamir og jafnvel sé með öllu óvíst
af tæknilegum ástæðum að þær
líti dagsins ljós. Verði slíkar vamir
að vemleika leiði það einungis til
hraðara vígbúnaðarkapphlaups og
aukinnar hættu á kjamorkuátök-
um.
Markmiðið með ritgerðinni er
að gera stuttlega grein fyrir áætl-
unum beggja risaveldanna um
vamir. Einnig er greint frá tækni-
legum möguleikum og vandamál-
um, sem áætlanimar standa
frammi fyrir, fjallað um stöðu
rannsókna á þessu sviði og spurt
hvaða líkur séu á því að unnt verði
að koma upp vömum sem máli
skipti. Loks er rætt um áhrif hugs-
anlegra vamarkerfa á vígbúnaðar-
kapphlaupið og stöðugleika í
samskiptum risaveldanna.
Ritgerðin er í fjölriti og er 59
bls. að stærð:“ - 1 *1 '