Morgunblaðið - 19.09.1987, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987
29
landi hefur orðið fyrir vatnsmengun
og fískidauða. Verst hafa Lough
Sheelin og önnur vötn í miðjum
þéttbýlum og blómlegum land-
búnaðarhéruðum orðið úti. Dæmi
um slæmt ástand ánna eru mörg
og kemur hvert einstakt þeirra sér
illa fyrir írskan ferðamannaiðnað.
Eftiaúrgangur sem fer i ánna
Blackwater í Cork-sýslu hefur drep-
ið hundruð fiska. A aðalveiðitíma-
bilinu í sumar mátti sjá fískana
fljóta um ána með kviðinn upp. Á
árbökkunum stóð fyöldi útlendinga
með veiðistangimar og vom ekki
físknir.
Á síðasta ári komu 6.000 mál til
rannsóknar hjá yfírvöldum. Aðeins
2% þeirra fóm fyrir rétt, í flestum
tilvikum héraðsdóm, og hæstu sekt-
ir vom í flestum tilvikum 250 írsk
pund (um 15.000 íslenskar krónur).
I einu tilviki var maður dæmdur í
18 mánaða fangelsi, en hann var
gripinn við að hella miklu magni
af dýrablóði í á.
Deilt er um hver ábyrgð stjómar-
innar er vegna aukinnar mengunar
í vötnum landsins. Þingið hefur
skipað nefnd til að kanna hveijum
beri að fylgjast með og sjá um
vatnsbúskap íra.
írska umhverfisráðið reynir að
halda uppi athugunum á ástandi í
vötnum og ám en fé er af skomum
skammti og hefur ráðið ekki lengur
efni á að kaupa eldsneyti á utan-
borðsmótora á bátum sínum svo nú
róa hinir áhugasömu um velferð
vatns á frlandi.
(Þýtt úr The Economist.)
um að hafa skipulagt ránið á flug-
vél frá flugfélagi Jórdaníu í Beirut
í júní árið 1985. Eftir heimildum
innan FBI er haft, að Younis hafí
verið lokkaður um borð í bátinn.
Eftir handtökuna var farið með
Younis, sem er 28 ára gamall shíti,
um borð í bandarískt flugmóðurskip
og þaðan með flugvél til Banda-
ríkjanna. Þar verður hann ákærður
fyrir gíslatöku, samsæri og fyrir
að hafa eyðilagt þotuna.
Younis og fjórir samstarfsmenn
hans vom eftirlýstir í Bandaríkjun-
um vegna þess, að um borð í þotunni
vom a.m.k. íjórir bandarískir borg-
arar af 60 farþegum alls. Bæði
farþegar og áhöfn sluppu heil á
húfí frá flugráninu en þotan var
eyðilögð með sprengiefni og
skothríð.
Bandarískir embættismenn
segja, að Younis sé liðsmaður
Amal-sveitanna en þær hafa á að
skipa 20.000 mönnum undir vopn-
um og lúta forystu Nabihs Berri,
dómsmálaráðherra í líbönsku
stjóminni. Vísuðu þeir á bug spum-
ingum um hvort skipt kynni að
verða á Younis og einhveijum
bandarísku gíslanna i Líbanon.
Kína:
Búast við
ferðafólki
frá Taiwan
Peking, Reuter.
Stjórnvöld i Kina segjast vera
að búa sig undir að taka á móti
þúsundum gesta frá Taiwan þeg-
ar stjórnin þar afnemur bann við
ferðalögum til meginlandsins.
Er búist við ákvörðun um það
fljótlega.
í Dagblaði alþýðunnar sagði á
fimmtudag , að um 10.000 manns
hefðu árlega komið til Kína frá
Taiwan þrátt fyrir að Taiwan-stjóm
hefði bannað slík ferðalög fyrir 38
árum. Sagði blaðið, að nú, þegar
til stæði að afnema bannið, væm
Kínveijar að búa sig undir að taka
á móti miklum ferðamannastraumi
til landsins.
Tveir taiwanskir blaðamenn em
nú staddir í Peking og hefur verið
látið mikið með komu þeirra. Fóm
þeir þangað í óþökk Taiwan-stjóm-
ar en ekki er búist við, að þeir
muni verða látnir gjalda þess. Er
eftir öðmm þeirra haft, að hann
vonist til að geta orðið fréttaritari
blaðs síns í Peking.
FRAMTÍÐARBÍLLINN
NISSAN PRAIRIE 4WD
ÁRGERÐ1988
Á ÆVINTÝRALEGU KYNNINGA R VERÐI
FRÁ KR. 61 5.000,-
JEPPI - SKUTBILL - FJOLSKYLDUBILL
FJÓRHJÓLADRIF: ÞÚ SKIPTIR í 4WD MEÐ ÞVÍ AÐ ÝTAÁ EINN TAKKA.
VÉL: 2000 CC - 97 HESTÖFL (DIN).
5GÍRA, BEINSKIPTUR, 5 DYRA, AFLSTÝRI, VELTISTÝRI, 14“ FELGUR.
AUK ÞESS ALLT SEM FYLGIR VEL ÚTBÚNUM BÍLUM OG MEIRATIL!
_______VERÐUR SÝIMDUR:___________________________
FÖSTUDAG: BLÖNDUÓSI, HJÁ BÍLAÞJÓNUSTUNNIEFSTUBRAUT 2,
• KL10-13.
SAUÐÁRKRÓKI, HJÁ BIFREIÐAVERKSTÆÐINU ÁKI, KL. 16-19.
LAUGARDAG: AKUREYRI, HJÁ BIFREIÐAVERKSTÆÐI
SIGURÐAR VALDIMARSSONAR, KL. 14-17.
SUNNUDAG: HÚSAVÍK, HJÁ BIFREIÐAVERKSTÆÐI
TRYGGVA GUÐMUNDSSONAR, HAUKAMÝR11,
KL. 14-17.
ÞJÓNUSTUSTJÓRI OKKAR VERÐUR TIL VIÐTALS Á ÞESSUM STÖÐUM
Á SAMATÍMA
KOMIÐ OG REYNSLUAKIÐ FRAMTÍÐARBÍLNUM
//
K
V
M1957
Í30
-1987%
ara
J
MUNIÐ BÍLASÝNINGAR OKKAR ALLA
LAUGARDAGAOG SUNNUDAGA KL. 14-17
ALLTAF HEITT Á KÖNNUNNI - VERIÐ VELKOMIN
INGVAR HELGASON HF.
Svningarsalurinn Rauðnyerði, simi 33560.