Morgunblaðið - 19.09.1987, Page 35

Morgunblaðið - 19.09.1987, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987 35 | Lokaprédik- anir í kapellu Háskólans í DAG flytja tveir kandidatar í guðfræði lokaprédikanir sínar i kapellu Háskólans, þær Ragn- heiður Erla Bjarnadóttir og Yrsa Þórðardóttir. Athöfnin hefst kl. 14.00 og er almenningi opin. Hörður Áskelsson lektor spilar við athöfnina. László Dubrovay Robert Aitken tónskáld. flautuleikari. Lokatónleikar í Skálholtskirkju LOKATÓNLEIKAR Tónlistar- hátíðar ungs fólks á Norðurlönd- um verða í Skálholtskirkju í dag, 19. september, kl. 17.00. Gestir hátíðarinnar, þeir Robert Aitken flautuleikari og tónskáld frá Kanada og György Geiger trompetleikari frá Ungveija- landi, koma fram. Robert Aitken flytur verk eftir Lou Harrison, Heinz Holliger, Þor- kel Sigurbjömsson og sjálfan sig. György Geiger og strengjasveit undir stjóm Mark Reedman flytja Konsert nr. 3 fyrir trompet og strengi eftir László Dubrovay, ung- verskt tónskáld, sem einnig er gestur hátíðarinnar. Borgaraflokkurinn: Félag ungra borgara stofnað STOFNFUNDUR Félags ungra borgara verður haldinn í veit- ingahúsinu Glæsibæ í dag, 19. september ld. 14.30. A fundinum verða lög félagsins afgreidd og félaginu kosin stjórn, jafnframt því sem alþingismennim- ir Albert Guðmundsson, Guðmund- ur Agústsson og Júlíus Sólnes flytja ávörp. Þetta er fyrsta Félag ungra borg- ara sem stofnað er á landinu og verða á næstu vikum og mánuðum stofnuð samskonar félög um land allt. (Úr fréttatilkyimmgu) Morgunblaðið/Einar Falur Sýningu Péturs Friðriks lýkur á sunnudagskvöld MÁLVERKASÝNINGU Péturs Sýningin er opin frá kl. 14 myndir og olíumálverk. Listamað- Friðriks í sýningarsal Holiday síðdegis. urinn hefur málað þessi verk Inn-hótelsins við Sigtún lýkur Pétur Friðrik sýnir 30 vatnslita- undanfarin Qögur ár. á sunnudagskvöld kl. 22.00. Hljómsveitin Gildran, talið frá vinstri: Þórhallur Árnason bassi, Karl Tómasson trommur og Birgir Haraldsson söngur og gítar. Gildran á Akranesi HLJOMSVEITIN Gildran heldur tónleika í Bióhöllinni á Akranesi í kvöld, 19. september, kl. 21.00. Á þessum tónleikum kynnir hljómsveitin efni af plötu sinni sem kom út í vor. Fiskmarkaðurinn í Bretlandi: Slök gæði felldu verð um helming Verð féll aftur í Þýzkalandi VERÐ fyrir ferskan fisk héðan í Bretlandi hefur verið hátt þessa vikuna með einni undan- tekningu, sem stafaði af slökum gæðum fisksins. Meðalverð fyr- ir fisk úr gámum er 82,63 krónur og svipað úr skipunum. Hátt verð náðist í Þýzkalandi í upphafi vikunnar, en á fimmtu- dag féll það aftur. A fímmtudag seldi Gjafar VE 102 lestir í Hull. Heildarverð var 4,3 milljónir króna, meðalverð 41,63. Hluti aflans var dæmdur óhæfur til manneldis en hitt fór allt í þriðja gæðaflokk. Sama dag voru seldar 90 lestir úr hraðflutn- ingaskipinu Anne Lise. Heildar- verð var 7,8 milljónir króna, meðalverð 86,55. í Bremerhaven var á fimmtudag seldur fískur úr þýzka togaranum Gestemunde og tveimur gámum héðan. Meðalverð var rúmar 40 krónur, en fór yfir 60 fyrrt í vi- kunni. INNLENT Uppskeruhá- tíð knatt- spyrnudeild- ar Leifturs Ólafsfirði. í dag mun knattspyrnufélagið Leiftur halda uppskeruhátíð. Þá mun Leiftur i dag spila sinn síðasta leik í sumar við Þór á Akureyri kl. 14. Þetta er minn- ~ ingarleikur um Óskar Gunnars- son. Diskó í verður í Tjarnarborg frá kl 17 til 18.30 í boði bæjarstómar. Leiftursliðið kemur á staðinn og gefur eiginhandaráritanir. Kl. 18.45 verður tekin fyrsta skóflustungan að nýjum grasvelli. Um kvöldið kl. 23 til 3 mun bæjarstjóm Ólafjs- fjarðar standa fyrir dansleik í Tjamaborg. Aðgangur er ókeypis og bæjarbúar eru velkomnir meðan húsrúm leyfír. Er aðstandendum Leifursliðsins velkomið að leggja fé í kassa knattspymumanna við inn- ganginn. Kl. 24 verða markakóngur og knattspymumenn ársins í kvennaflokki og meistaraflokki 1987 krýndir. Knattspymumenn og eiginkonur þeirra munu sitja veislu í Smiðjunni á Akureyri í boði Stefáns Gunlaugs- sonar veitingamanns. Jakob. Jakob Jónsson Sýnir í Asmundarsal JAKOB Jónsson sýnir olíumál- verk í Ásmundarsal við Freyju- götu dagana 19. september til 4. október. Jakob hóf myndlistamám í Kaup- mannahöfn 1965 við Ny Carlsberg Glyptotek og að því loknu stundaði hann nám við Listaháskólann hjá prof. S. Hjort Nielsen, en þar lauk hann námi árið 1971. Jakob hefur áður haldið þijár einkasýningan í Bogasalnum 1976 og í Listasafni ASÍ1981 og 1984. Á sýningunni í Ásmundarsal eru 27 verk og er sýningin opin virka daga kl. 16.00-22.00 og um helgar kl. 14.00-22.00. Kvikmyndahátíð 1987 hefst í dag Kvikmyndahátið Listahátíðar verður sett í dag klukkan 14.00 í Laugarásbíói. Kynnir verður Jón Þórarinsson, formaður framkvæmdastjórnar Listahá- tíðar. Davíð Oddsson, borgar- sjóri, setur hátiðina og Sigurð- ur Sverrir Pálsson afhendir verðlaun i smámyndasam- keppni sem Listahátið efndi til. Á eftir verður sýnd mynd italska kvikmyndaleikstjórans Ettero Scola, „Makkaróní." Aðrar kvikmyndir á hátíðinni í dag verða „Fangin fegurð" (La Belle Captive), eftir Robbe—Gril- let, sem verður sýnd klukkan 17.00, og RAN eftir Kurosava, klukkan 22.00. Auk þess verður „Makkaróní" sýnd klukkan 20.00. Að þessu sinni munu sex er- lendir kvikmyndaleikstjórar sækja hátíðina. Ettore Scola, frá Ítalíu, mun verða viðstaddur setningu Kvikmyndahátíðar. Scola er fæddur árið 1931 í Trevico á ít- alíu. Hann lagði stund á lögfræði í Rómarháskóla og vann um tíma sem blaðamaður við tímaritið „Marco Aurelio" og fleiri blöð. Hann skrifaði í fyrstu kvikmynda- handrit ásamt öðrum allt frá 1953 til 1964, en þá leikstýrði hann sinni fyrstu kvikmynd. Hann hef- ur síðan haldið áfram að skrifa handrit fyrir aðra, jafnframt því sem hann hefur aukið hróður sinn sem leikstjóri. Hann hlaut verð- laun í Cannes árið 1976 sem besti leikstjóri fyrir myndina Brutti Sporchi e Cavitti og árið eftir hlaut hann sérstök verðlaun dómnenfndar fyrir Una Giomata Speciale. Mynd hans „Makkar- óní,“ sem verður sýnd á Kvik- myndahátíð að þessu sinni, er frá árinu 1985. Frá Finnlandi koma bræðumir Mika og Aki Kaurismáki. Mika, eldri bróðirinn, er fæddur 1955. Hann stundaði nám í Hochschule fúr Femsehen und Film í Munc- hen og útskrifaðist þaðan 1981. Hann hefur þegar leikstýrt fímm kvikmyndum í fullri lengd. „Rosso" nefnist mynd Mika sem sýnd verður á Kvikmyndahátíð og var hún framleidd árið 1985. Aki Kaurismáki byijaði á því að aðstoða Mika við gerð mynda hans, en á árinu 1983 var kominn tími til að spreyta sig á hlutverki leikstjórans. Fyrsta viðfangsefnið var ekki af ómerkara taginu, því pilturinn réðst til atlögu við sjálf- an Dostojevskí, nánar tiltekið „Glæp og refsingu." Mynd Akis, sem sýnd verður á Kvikmynda- hátíð að þessu sinni er „Skuggar í paradís" og er frá árinu 1986. Krzysztof Zanussi, kemur frá Póllandi. Hann fæddist í Varsjá árið 1939. Á árunum 1955—11959 stundaði hann nám í efnafræði við Varsjárháskóla en sótti jafn- framt fyrirlestra um kvikmyndir við Listastofnun pólsku vísinda- akademíunnar. Ifyrsta kvikmynd- in var gerð er hann var í kvikmyndaklúbbi áhugamanna við Varsjárháskóla. Árið 1973 vann hann til verðlauna mennta- málaráðuneytisins pólska. Mynd Zanussis á hátíðinni er „Ár hinnar kyrru sólar." Alain Robbe—Grillet, sem verið hefúr gestur Bókmenntahátíðar 1987 verður einnig gestur Kvik- myndahátíðar. Hann er, sem kunnugt er, brautryðjandi hinnar svokölluðu „nýju skáldsögu." Fyrsta kvikmynd Robbe—Grillet kom út árið 1963, Síðan hefur hann gert sex kvikmyndir. Á Kvikmyndahátíð nú verður sýnd eftir hann myndir „Fangin feg- urð.“ Varla er það ofsögum sagt að pólski leikstjórinn Roman Pol- anski sé frægasti kvikmyndagerð- armaður sem þekkst hefur boð Kvikmyndahátíðar til þessa. Pol- anski vakti fyrst athygli á námsárum sfnum við einn viður- kenndasta kvikmyndaskóla heims, Pólska kvikmyndaskólann í Lodz, 1954—1959. Að loknu námi, fékk Polanski vegabréfsá- ritun til Frakklands, einkum vegna þess að systir hans var þar gift og búsett. Sú mynd sem færði Polanski heimsathygli var „The Knife in the Water,“ frá árinu 1962 og verður hún sýnd á Kvik- myndahátíð að þessu sinni. Auk þess fáum við að sjá kvikmyndina „Tess," sem Polanski gerði árið 1979. —

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.