Morgunblaðið - 19.09.1987, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987
35
| Lokaprédik-
anir í kapellu
Háskólans
í DAG flytja tveir kandidatar í
guðfræði lokaprédikanir sínar i
kapellu Háskólans, þær Ragn-
heiður Erla Bjarnadóttir og Yrsa
Þórðardóttir.
Athöfnin hefst kl. 14.00 og er
almenningi opin. Hörður Áskelsson
lektor spilar við athöfnina.
László Dubrovay Robert Aitken
tónskáld. flautuleikari.
Lokatónleikar
í Skálholtskirkju
LOKATÓNLEIKAR Tónlistar-
hátíðar ungs fólks á Norðurlönd-
um verða í Skálholtskirkju í dag,
19. september, kl. 17.00. Gestir
hátíðarinnar, þeir Robert Aitken
flautuleikari og tónskáld frá
Kanada og György Geiger
trompetleikari frá Ungveija-
landi, koma fram.
Robert Aitken flytur verk eftir
Lou Harrison, Heinz Holliger, Þor-
kel Sigurbjömsson og sjálfan sig.
György Geiger og strengjasveit
undir stjóm Mark Reedman flytja
Konsert nr. 3 fyrir trompet og
strengi eftir László Dubrovay, ung-
verskt tónskáld, sem einnig er
gestur hátíðarinnar.
Borgaraflokkurinn:
Félag ungra
borgara stofnað
STOFNFUNDUR Félags ungra
borgara verður haldinn í veit-
ingahúsinu Glæsibæ í dag, 19.
september ld. 14.30.
A fundinum verða lög félagsins
afgreidd og félaginu kosin stjórn,
jafnframt því sem alþingismennim-
ir Albert Guðmundsson, Guðmund-
ur Agústsson og Júlíus Sólnes flytja
ávörp.
Þetta er fyrsta Félag ungra borg-
ara sem stofnað er á landinu og
verða á næstu vikum og mánuðum
stofnuð samskonar félög um land
allt.
(Úr fréttatilkyimmgu)
Morgunblaðið/Einar Falur
Sýningu Péturs Friðriks
lýkur á sunnudagskvöld
MÁLVERKASÝNINGU Péturs Sýningin er opin frá kl. 14 myndir og olíumálverk. Listamað-
Friðriks í sýningarsal Holiday síðdegis. urinn hefur málað þessi verk
Inn-hótelsins við Sigtún lýkur Pétur Friðrik sýnir 30 vatnslita- undanfarin Qögur ár.
á sunnudagskvöld kl. 22.00.
Hljómsveitin Gildran, talið frá
vinstri: Þórhallur Árnason bassi,
Karl Tómasson trommur og
Birgir Haraldsson söngur og
gítar.
Gildran
á Akranesi
HLJOMSVEITIN Gildran heldur
tónleika í Bióhöllinni á Akranesi
í kvöld, 19. september, kl. 21.00.
Á þessum tónleikum kynnir
hljómsveitin efni af plötu sinni sem
kom út í vor.
Fiskmarkaðurinn í Bretlandi:
Slök gæði felldu
verð um helming
Verð féll aftur í Þýzkalandi
VERÐ fyrir ferskan fisk héðan
í Bretlandi hefur verið hátt
þessa vikuna með einni undan-
tekningu, sem stafaði af slökum
gæðum fisksins. Meðalverð fyr-
ir fisk úr gámum er 82,63
krónur og svipað úr skipunum.
Hátt verð náðist í Þýzkalandi í
upphafi vikunnar, en á fimmtu-
dag féll það aftur.
A fímmtudag seldi Gjafar VE
102 lestir í Hull. Heildarverð var
4,3 milljónir króna, meðalverð
41,63. Hluti aflans var dæmdur
óhæfur til manneldis en hitt fór
allt í þriðja gæðaflokk. Sama dag
voru seldar 90 lestir úr hraðflutn-
ingaskipinu Anne Lise. Heildar-
verð var 7,8 milljónir króna,
meðalverð 86,55.
í Bremerhaven var á fimmtudag
seldur fískur úr þýzka togaranum
Gestemunde og tveimur gámum
héðan. Meðalverð var rúmar 40
krónur, en fór yfir 60 fyrrt í vi-
kunni.
INNLENT
Uppskeruhá-
tíð knatt-
spyrnudeild-
ar Leifturs
Ólafsfirði.
í dag mun knattspyrnufélagið
Leiftur halda uppskeruhátíð. Þá
mun Leiftur i dag spila sinn
síðasta leik í sumar við Þór á
Akureyri kl. 14. Þetta er minn- ~
ingarleikur um Óskar Gunnars-
son.
Diskó í verður í Tjarnarborg frá
kl 17 til 18.30 í boði bæjarstómar.
Leiftursliðið kemur á staðinn og
gefur eiginhandaráritanir. Kl. 18.45
verður tekin fyrsta skóflustungan
að nýjum grasvelli. Um kvöldið kl.
23 til 3 mun bæjarstjóm Ólafjs-
fjarðar standa fyrir dansleik í
Tjamaborg. Aðgangur er ókeypis
og bæjarbúar eru velkomnir meðan
húsrúm leyfír. Er aðstandendum
Leifursliðsins velkomið að leggja fé
í kassa knattspymumanna við inn-
ganginn. Kl. 24 verða markakóngur
og knattspymumenn ársins í
kvennaflokki og meistaraflokki
1987 krýndir.
Knattspymumenn og eiginkonur
þeirra munu sitja veislu í Smiðjunni
á Akureyri í boði Stefáns Gunlaugs-
sonar veitingamanns.
Jakob.
Jakob Jónsson
Sýnir í
Asmundarsal
JAKOB Jónsson sýnir olíumál-
verk í Ásmundarsal við Freyju-
götu dagana 19. september til
4. október.
Jakob hóf myndlistamám í Kaup-
mannahöfn 1965 við Ny Carlsberg
Glyptotek og að því loknu stundaði
hann nám við Listaháskólann hjá
prof. S. Hjort Nielsen, en þar lauk
hann námi árið 1971.
Jakob hefur áður haldið þijár
einkasýningan í Bogasalnum 1976
og í Listasafni ASÍ1981 og 1984.
Á sýningunni í Ásmundarsal eru
27 verk og er sýningin opin virka
daga kl. 16.00-22.00 og um helgar
kl. 14.00-22.00.
Kvikmyndahátíð 1987 hefst í dag
Kvikmyndahátið Listahátíðar
verður sett í dag klukkan 14.00
í Laugarásbíói. Kynnir verður
Jón Þórarinsson, formaður
framkvæmdastjórnar Listahá-
tíðar. Davíð Oddsson, borgar-
sjóri, setur hátiðina og Sigurð-
ur Sverrir Pálsson afhendir
verðlaun i smámyndasam-
keppni sem Listahátið efndi til.
Á eftir verður sýnd mynd
italska kvikmyndaleikstjórans
Ettero Scola, „Makkaróní."
Aðrar kvikmyndir á hátíðinni í
dag verða „Fangin fegurð" (La
Belle Captive), eftir Robbe—Gril-
let, sem verður sýnd klukkan
17.00, og RAN eftir Kurosava,
klukkan 22.00. Auk þess verður
„Makkaróní" sýnd klukkan 20.00.
Að þessu sinni munu sex er-
lendir kvikmyndaleikstjórar sækja
hátíðina. Ettore Scola, frá Ítalíu,
mun verða viðstaddur setningu
Kvikmyndahátíðar. Scola er
fæddur árið 1931 í Trevico á ít-
alíu. Hann lagði stund á lögfræði
í Rómarháskóla og vann um tíma
sem blaðamaður við tímaritið
„Marco Aurelio" og fleiri blöð.
Hann skrifaði í fyrstu kvikmynda-
handrit ásamt öðrum allt frá 1953
til 1964, en þá leikstýrði hann
sinni fyrstu kvikmynd. Hann hef-
ur síðan haldið áfram að skrifa
handrit fyrir aðra, jafnframt því
sem hann hefur aukið hróður sinn
sem leikstjóri. Hann hlaut verð-
laun í Cannes árið 1976 sem besti
leikstjóri fyrir myndina Brutti
Sporchi e Cavitti og árið eftir
hlaut hann sérstök verðlaun
dómnenfndar fyrir Una Giomata
Speciale. Mynd hans „Makkar-
óní,“ sem verður sýnd á Kvik-
myndahátíð að þessu sinni, er frá
árinu 1985.
Frá Finnlandi koma bræðumir
Mika og Aki Kaurismáki. Mika,
eldri bróðirinn, er fæddur 1955.
Hann stundaði nám í Hochschule
fúr Femsehen und Film í Munc-
hen og útskrifaðist þaðan 1981.
Hann hefur þegar leikstýrt fímm
kvikmyndum í fullri lengd.
„Rosso" nefnist mynd Mika sem
sýnd verður á Kvikmyndahátíð og
var hún framleidd árið 1985.
Aki Kaurismáki byijaði á því
að aðstoða Mika við gerð mynda
hans, en á árinu 1983 var kominn
tími til að spreyta sig á hlutverki
leikstjórans. Fyrsta viðfangsefnið
var ekki af ómerkara taginu, því
pilturinn réðst til atlögu við sjálf-
an Dostojevskí, nánar tiltekið
„Glæp og refsingu." Mynd Akis,
sem sýnd verður á Kvikmynda-
hátíð að þessu sinni er „Skuggar
í paradís" og er frá árinu 1986.
Krzysztof Zanussi, kemur frá
Póllandi. Hann fæddist í Varsjá
árið 1939. Á árunum 1955—11959
stundaði hann nám í efnafræði
við Varsjárháskóla en sótti jafn-
framt fyrirlestra um kvikmyndir
við Listastofnun pólsku vísinda-
akademíunnar. Ifyrsta kvikmynd-
in var gerð er hann var í
kvikmyndaklúbbi áhugamanna
við Varsjárháskóla. Árið 1973
vann hann til verðlauna mennta-
málaráðuneytisins pólska. Mynd
Zanussis á hátíðinni er „Ár hinnar
kyrru sólar."
Alain Robbe—Grillet, sem verið
hefúr gestur Bókmenntahátíðar
1987 verður einnig gestur Kvik-
myndahátíðar. Hann er, sem
kunnugt er, brautryðjandi hinnar
svokölluðu „nýju skáldsögu."
Fyrsta kvikmynd Robbe—Grillet
kom út árið 1963, Síðan hefur
hann gert sex kvikmyndir. Á
Kvikmyndahátíð nú verður sýnd
eftir hann myndir „Fangin feg-
urð.“
Varla er það ofsögum sagt að
pólski leikstjórinn Roman Pol-
anski sé frægasti kvikmyndagerð-
armaður sem þekkst hefur boð
Kvikmyndahátíðar til þessa. Pol-
anski vakti fyrst athygli á
námsárum sfnum við einn viður-
kenndasta kvikmyndaskóla
heims, Pólska kvikmyndaskólann
í Lodz, 1954—1959. Að loknu
námi, fékk Polanski vegabréfsá-
ritun til Frakklands, einkum
vegna þess að systir hans var þar
gift og búsett. Sú mynd sem færði
Polanski heimsathygli var „The
Knife in the Water,“ frá árinu
1962 og verður hún sýnd á Kvik-
myndahátíð að þessu sinni. Auk
þess fáum við að sjá kvikmyndina
„Tess," sem Polanski gerði árið
1979.
—