Morgunblaðið - 19.09.1987, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987
Norðurgluggi leigir húsnæði fyrir gallerí:
Morgunblaðið/GSV
Ula þefjaðir eftir busavígsluna
Nýnemar f Verkmenntaskólanum á Akureyri fengu óbliðar móttökur
l\já eldri og ráðsettari nemum { fyrradag er busavigslan fór fram. Busun-
um var hent niður rennibraut og ofan i ókræsilegan poll. Eldri nemar
hðfðu safnað saman mysu, matarúrgöngum og fleiru og fengið hrsert í
Síldarverksmiðjunni i Krossanesi. Voru busarnir heldur illa þefjaðir er
þeir stóðu upp eftir að búið var að stinga þeim ofan i drullupollinn.
Morgunblaðið/Svavar B. Magnússon
Morgunblaðið/Svavar B. Magnússon
Óskar Þór Sigurbjörnsson for-
maður bæjarráðs Ólafsfjarðar
við höfnina. Tvö fiskiskip Ólafs-
firðinga liggja við bryggju.
inni nema að undangengnum
nákvæmum rannsóknum á afleið-
ingum breytinganna.
Tónlistarskólinn settur á sunnudag:
Nemendurnir hafa
aldrei verið fleiri
TÓNLISTARSKÓLINN á Akur-
eyri verður settur á sunnudag.
Athöfnin verður í Akureyrar-
kirkju og hefst klukkan 17.
530 nemendur eru skráðir í
skólann að þessu sinni og hafa
þeir aldrei verið fleiri. Kennt er á
25 hljóðfæri, ásamt einsöng, og
eru nemendur á aldrinum 4 til 40
ára. Forskóladeild er starfrækt
fyrir nemendur á aldrinum 5 til 9
ára. Atta hljómsveitir verða starf-
andi í skólanum og taka yfír 200
nemendur þátt í starfi þeirra. 31
kennari starfar við skólann í vetur.
í frétt frá Tónlistarskólanum
segir að húsnæði skólans sé orðið
allt of Iítið og ófullnægjandi, svo
leigja þurfi viðbótarhúsnæði fyrir
kennsluna. Þá valdi skortur á
leiguíbúðum og herbergjum á
Akureyri skólanum miklum vand-
ræðum við mannaráðningar.
Markmiðið að reka fyr-
irtækið af fagmennsku
og listrænum metnaði
- segir Helgi Vilberg stj órnarformaður
NORÐURGLUGGI hf. hefur tek-
ið á leigu húsnæði við Glerárgötu
fyrir galleri. Stefnt er að opnun
salarins 17. október með sýn-
ingn.
Norðurgluggi er hlutafélag sem
13 einstaklingar á Akureyri stofn-
uðu fyrr á þessu ári í þeim tilgangi
að reka gallerí. í þeim hópi eru
bæði listamenn og menn úr atvinn-
ulífínu.
Helgi Vilberg, formaður stjómar,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að húsnæðið við Glerárgötu væri
180 fermetrar að stærð og væri þar
hátt til lofts og vítt til veggja. Hann
Ibúðir aldraðra:
Stofnað bygginga-
félag íbúanna
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur
ákveðið að gangast fyrir stofnun
byggingafélags væntanlegra
íbúa í íbúðum aldraðra við Víði-
lund, og að hefja framkvæmdir
við grunn fyrsta hússins i haust.
íbúðimir eru þijátíu og verða í
fjölbýlishúsi við Víðilund, sem er
fyrsti áfangi í byggingu íbúða aldr-
aðra á þessum stað. Aform eru um
að byggja síðar annað eins hús og
einnig raðhús. Akureyrarbær ætlar
að kaupa þijár íbúðir í húsinu og
byggir auk þess þjónustukjama.
sagði að innréttaðir yrðu 2 sýning-
arsalir. Félagið fær húsnæðið
afhent næstkomandi mánudag og
sagði Helgi að strax yrði hafist
handa við nauðsynlegar breytingar.
Rejmt yrði að innrétta sem full-
komnasta sýningaraðstöðu, meðal
annars þyrfti að reisa veggi og skil-
rúm og kaupa fullkominn ljósabún-
að.
Helgi sagði að áhersla yrði lögð
á að fá góðar sýningar íslenskra
listamanna. Einnig yrði þar um-
boðssala á verkum, haldnir fyrir-
lestrar og önnur skyld starfsemi.
„Markmið okkar er að reka þetta
fyrirtæki af fagmennsku og list-
rænum metnaði," sagði Helgi.
Ólafsfjörður:
Smábátahöfnin, þar sem þijár flotbryggjur voru lagðar út í sumar.
Framkvæmdir við
höfnina efstar á baugi
FRAMKVÆMDIR við höfnina í
Ólafsfirði hafa verið efst á baugi
á bæjaryfirvöldum á þessu ári.
kar Þór Sigurbjörnsson for-
maður bæjarráðs segir að unnið
hafi verið fyrir um 20 milljónir
kr., þar af væri ríkið búið að
greiða 11,5 milljónir.
Óskar segir að biýnt hafi verið
að ráðast í framkvæmdimar við
höfnina, eftir langvarandi stöðnun
á því sviði. Skipin hafi verið farin
að taka niðri í höfninni auk þess
sem fískiskipafloti Ólafsfjarðar
hefði stækkað og þrýstingurinn á
endurbætur því aukist.
í sumar dældi dýpkunarskipið
Hákur 36 þúsund rúmmetrum af
sandi upp úr höfninni og verktaki
mokaði að auki 7 þúsund rúmmetr-
um upp úr smábátahöfninni. Óskar
sagði að sandmokstrinum hefði ver-
ið ýtt til hliðar lengi en nú hefði
það ekki verið hægt lengur. Einnig
var gert við bryggjur og lagðar út
3 flotbryggjur. Öskar sagði að end-
urbótum á höfninni væri langt í frá
lokið og vonaðist til að áframhald-
andi Qárveiting fengist til verksins.
Ólafsfjarðarhöfn væri ein erfíðasta
höfn landsins og nauðsynlegt að
halda áfram við endurbætur á
henni.
Óskar sagði að Ólafsfírðingar
hefðu hug á að byggja sandvamar-
garð, enda myndi hann borga sig
upp á stuttum tíma í minni dýpkun-
arkostnaði. En Ólafsfirðingar biðu
eftir að módelrannsóknastöð Hafn-
armálaskrifstofunnar kæmist í
gagnið á ný, því ekki væri hægt
að ráðast í neinar breytingar á höfn-
2 0 V E R 3
I R
Opið í dag frá kl. 10-16
LÆS