Morgunblaðið - 19.09.1987, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987
Frá 17. mtember
nýít 624041 simanumer )
íuisnæðí Suðurgata 7
VERTU VELKOMIN FERÐASKRIFSTOFAN 3000 Suðurgata 7 E sími 624040 Mlra /al
Húnavatnssýsla:
Gjöfulasta sumar um árabil
Staðarbakka.
EKKI virðast um það skiptar
skoðanir hér að sumarið hafi
verið eitt hið gjöfulasta og með
hagstæðasta tíðarfari sem kom-
ið hefur um langt árabil. Hey
munu vera með langmesta móti
og sennilega ætti fóðurgildið
að vera með betra móti. Fóður-
bætiskaup í sauðfé ættu ekki
að þurfa að vera mikil yfir vetr-
armánuðina. Kartöflurækt er
lítil hér um slóðir en uppskera
góð þar sem sett var niður.
Ekki leit vel út með veður dag-
ana fyrir göngumar, en svartaþoka
lá yfir heiðunum. Þokan var alltaf
talin versti óvinur smalans. En svo
brá við að dagana 11. og 12. þm.
*
AV)
SoBBCM
* ^ a^el
v>að eí et
as\eiís:tv
milljónir, á hverjum laugardegi. Upplýsingasími: 685111.
birti vel til og var leitarveður hið
ákjósanlegasta og einnig á réttar-
daginn þann 12. Var besta réttar-
veður svo göngur og réttir fóru
fram samkvæmt áætlun. Síðan hef-
ur verið frekar köld norðanátt með
slyddu og snjókomu a íjöllum og
annesjum en vægara inn til sveita
og var grátt í rót hér einn morgun-
inn en fór fljott.
A Tvídægru er víða mjög votlent
og stór svæði sem eru ófær hestum.
Það þótti tíðindum sæta að tveir
menn fóru á fjórhjóli í fyrstu leitim-
ar. Talið er að fé sé fremur vænt
og er slátmn hafin í báðum slátur-
húsunum á Hvammstanga. Ákveðið
er að um næstu helgi ef veður leyf-
ir fari Flugbjörgunarsveit Vestur-
Húnavatnssýslu í síðari leitir eins
og undanfarin haust. Er það ein
af tekjuöflunaraðferðum sveitarinn-
ar að taka að sér síðari leitimar.
Benedikt.
Klækjakvendin Russel og Winger.
Klækjakvendi
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Bíóborgin.
Svarta ekkjan — Black Widow
☆ ☆ ☆
Leikstjóri: Bob Rafelson. Kvik-
myndatökustjóri: Conrad L.
Hall, ASC. Handrit: Ronald
Bass. Tónlist: Michael Small.
Aðalleikendur: Debra Winger,
Theresa Russeli, Sami Frey,
Dennis Hopper, Nicol William-
son, James Hong.
Bandarísk. 20th Century Fox
1987.
Stafsmanni í dómsmálaráðu-
neytinu, (Debra Winger), þykir
gmnsamleg röð dauðsfalla ný-
giftra efnamanna. Allir falla þeir
frá skömmu eftir að hafa kvænst
ungum konum, en af eðlilegum
orsökum, að því virðist. Winger
er fylgin sér og eftir að leikurinn
hefur borist til Hawaii fær hún
vissu þess að hún hefur á réttu
að standa, hún er komin á spor
annars klækjakvendis, (Theresa
Russel), sem þegar hefur valið sér
næsta fómarlamb ...
Það er létt Hitehcock-stemmn-
ing yfír Svörtu ekkjunni sem
nýtur góðs af skemmtilegu sam-
spili tveggja ágætisleikkvenna og
velheppnuðu leikaravali en þó sér
í lagi bestu kvikmyndatöku sem
sést hefur í háa herrans tíð. Það
er sá gamalkunni snillingur,
Conrad Hall, sem einkum gerði
garðinn frægan á síðustu tveim
áratugum, með myndum á borð
við Cool Hand Luke, Butch
Cassidy and the Sundance Kid og
The Marathon Man, sem gerir
Svörtu ekkjuna áhugaverða. Því
handritið hittir tæpast nógu vel í
mark. Winger og Russel hæfa ein-
staklega vel hlutverkunum báðar
dökkar, dularfullar og kyngi-
magnaðar og bjarga miklu. En
samtölin og framvindan er hvergi
nærri eins leyndardómsfull, því
miður.
Það er alltaf forvitnilegt að sjá
til Rafelson, sem líkt og Hall gerði
sína bestu hluti í kringum ’70,
(Five Easy Pieces, The King of
Marvin Gardens). Hann á góða
spretti en í heild er Black Widow
losaraleg og skrifast það ekki síð-
ur á reikning Rafelsons en
handritshöfundinn. Svarta ekkjan
er mynd kvikmyndatökustjórans.
Hamborg er fyrir vandláta
- Við fljúgum þangað fimmtudaga og sunnudaga