Morgunblaðið - 19.09.1987, Page 51

Morgunblaðið - 19.09.1987, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987 51 ■ ólikindum og kom fram í ótrúleg- ustu hlutum löngu eftir að hún varð blind og fjörgömul. Þannig gat hún komið mörgu góðu til leiðar fram á síðustu ár. Sjálfur naut ég þessara eiginleika hennar sumarið 1975. Hún tók mig þá á eintal og sagði mér að sér væri sérstaklega annt um að ég bæri Margréti nokk- urri Jónsdóttur kveðju sína. Þessa konu hafði ég aldrei hitt og hélt að frænka mín ætti margra annarra betra kosta völ til að koma kveðju til þessarar vinkonu sinnar. En mér fór sem fleirum að undan óskum Jónínu varð ekki vikist, enda stend ég nú í ævarandi þakkarskuld við frænku mína fyrir þetta tiltæki. Alblind hafði hún að sjálfsögðu séð það sem mig óraði ekki fyrir, það er að segja konuefni frænda síns. Mér er alls ókunnugt hvort Jónína prófaði hjúskaparmiðlun í fleiri til- vikum en hitt er víst að í þetta skipti tókst henni afburðavel þótt komin væri á níræðisaldur. Nú þegar leiðir okkar Jónínu skiljast er mér efst í huga þakk- læti til forsjónarinnar fyrir að hafa átt hana að frænku. Blessuð sé minning hennar. Jakob Jakobsson Hún var orðin gömul kona þegar fundum okkar bar fyrst saman. Hún stóð í dyrunum á símaherberginu á Syðri-Þverá og spurði mig, gest- komandi þar í fyrsta_ skipti, hvert ferðinni væri heitið. Ég var á leið- inni austur á land þar sem ég ætlaði að hitta gamla ömmu mína og ferð- ast með henni um bemskuslóðir hennar. „Hefur hún góða sjón?“ Ég jánkaði því og andlitið í dyra- gættinni ljómaði. Jónína Gunn- laugsdóttir gladdist innilega með jafnöldru sinni sem hún þekkti ekk- ert. Sjálf hafði hún verið svipt síðustu skímunni. Tveimur árum síðar kom ég aftur að Syrði-Þverá og enn kemur upp í hugann mynd af Jónfnu þar sem hún stóð í dyrunum á símaherberg- inu og hallaði sér upp að dyrastafn- um. „Þú verður að komast til Illugastaða núna meðan veðrið er svona gott og æðarkollumar liggja á.“ Ég taldi á því öll tormerki, bfllaus og bæjarleiðimar margar. En hún lét sig ekki. Hún var búin að bíta það í sig að Illugastaði skyldi ég sjá í fyrsta skpti í glamp- andi sólskini og fjömna iðandi af lífi. Hún átti það til að vera dálítið ýtin væri það öðmm til framdrátt- ar. Áður en ég vissi af var hún búin að útvega mér far. Þegar ég kom aftur frá mér numin brosti hún sínu heillandi brosi og engin gat merkt að glampandi augun vom blind. Allan tímann hafði hún verið með mér, gengið með mér um fjör- una, farið út í Smiðjusker, strokið æðarkollu, hlustað á teistumar ýla á hálfhmndum veggjum dúnkofans gamla og tekið örlítinn kríuunga í lófann. Seinna um sumarið sátum við niðri í fjóshlöðu með dúngrind á hnjánum. Vinnulúnar hendumar urðu svo ótrúlega fímar þegar þær snertu dúnhnoðrana og nem þá á grindinni til þess að ná úr þeim skumi og óhreinindum. Við mösuð- um saman eins og jafnöldrar þótt aldursmunurinn væri nærri því hálf öld. „Þú ættir að bera honum Jak- obi frænda mínum fyrir sunnan kveðju mfna. Hann getur sagt þér svo margt um Ulugastaði." Eg dró ekki dul á að mér þótti uppá- stungan fráleit. „Jæja, góða min,“ sagði hún og á henni mátti heyra að málið var ekki útrætt. Hún átti það til að vera dálítið þijósk væri það öðmm í hag. Hún hafði líka skilningarvit, sem ekki er öllum gefíð, og því kunni hún að beita öðmm til láns. Margur hefði lagt árar í bát í spomm Jónína þegar hún varð að fara frá Illugastöðum af því að hún missti sjónina. En slíkt hvarflaði aldrei að henni. Hún var hógvær, allra helst þegar hún sjálf átti í hlut, en jafnframt var henni gefíð sjálfstraust. Hún fann sér ný verk- efni. Hún hefði sjálfsagt getað fengið bestu vistarvemna fyrir sig hjá dóttur sinni og tengdasyni á Syðri-Þverá, en hún vildi vera í erlinum. Símaherbergið inni af eld- húsinu varð ívemstaður hennar. Meðan hún gat hreinsaði hún dún- inn á hveiju vori, pijónaði sokka og vettlinga, hafði ofan af fyrir bamabamabömunum, lagði veður- spána á minnið fyrir þá sem vom í útiverkunum og ansaði í símann. Símaþjónusta á tilteknum tíma þótti henni út í hött. Fólki gat legið á og slys borið að höndum hvenær sem var. Henni þótti verst að geta ekki skráð símtölin en hún var stál- minnug og á síðari ámm fékk hún óvænta aðstoð þegar hún sinnti símanum í viðlögum. í allmörg ár var Guðbjörg frá Sellandi, sem nú er látin, heimilisföst á Syðri-Þverá. Hún treysti sér ekki lengur til þess að vera einsetukona í torfbæ og átti hvergi höfði sínu að halla. Hana bar að garði á Syðri-Þverá og þar er engum úthýst. Guðbjörg varð eins konar próventukona og undi hag sínum vel. Þær skemmtu sér konunglega, gömlu konumar, þeg- ar þær sátu við litlu sveitasímstöð- ina og bættu hvor aðra upp. Jónína blind en hafði afburðaheym; Guð- björg hálfheymarlaus en sá vel. Jónína afgreiddi símtölin, Guðbjörg skrifaði þau niður. Jónína lét sér ekki nægja að sinna þeim verkum sem hún gat leyst af hendi heldur fylgdist hún með öllu sem gerðist. Hún kunni skil á vara- hlutum í alls konar nýtísku hey- vinnuvélar sem hún hafði aldrei séð. Hún lét lýsa öllu fyrir sér, hveijum viðardrumbi, sem rak á Illugastaðafjömr, skýjafari og snjó í ijöllum. Hún vissi hvar hafís var fyrir landi og hvaða vegir í sýslunni vom holóttastir. Þegar gest bar að garði fór hún á kostum. Hún naut þess að tala við fólk, fræðast og fræða. Hún kunni ósköpin öll af kveðskap utan- bókar, ljóð þjóðskálda, stökur og tækifæriskvæði eftir hagyrta sveit- unga sína. Hún var höfðingleg í sjón og raun. Tilfínningarík var hún en þó stillt og fáguð. Hún þjáðist með þeim sem áttu bágt og brosti með þeim sem glöddust. Þeim, sem þekktu hana, duldist ekki að blind sá hún betur en margir alsjáandi. Ég varð henni einu sinni samferða fram Vatnsnes. Hún var á tíræðis- aldri, á leið á sjúkrahúsið á Hvammstanga frá jarðarfór Hrólfs sonar síns á Tjöm. Hún var ör- magna og sárþjáð en gat stytt sér stundir með því að rifja upp alla leiðina, hveija þúfu við veginn, hvert sker undan ströndinni. Hún vissi að hún átti eftir að fara hjá Illugastöðum einu sinni enn á leið til Tjamar og hún hlakkaði til þeirr- ar ferðar. Hún var sannfærð um að þá yrði hún sjáandi aftur. í dag fer hún þessa ferð og við sem fylgj- um henni stuttan spöl skynjum návist hennar við hvert fótmál. Margrét E. Jónsdóttir Mér er ljúft að minnast Agnar Jónínu Gunnlaugsdóttur frá Illuga- stöðum, fædd 31. ágúst 1894, dáin 13. september 1987. Hugur minn reikar aftur til vors- ins þegar unglingurinn kom úr Reykjavík til Illugastaða að vera þar í sveit. Húsmóðirin Jónína tók á móti með bjartan svip og bros á vör, kvikk í hreyfíngum í dökkrós- óttum kjól og svuntu með sveip í hári og síðar fléttur sem vafðar vom tvo hringi um höfuðið. Þannig sá ég hana fyrst og þann- ig var hún alla daga. Jónína var hluti af Vatnsnesinu og Illugastöðum, skeijunum, klöpp- unum, berginu, víkunum, æðarfugl- inum og hafínu. Einnig vom rætur hennar sterkar til fólksins sem hafði byggt þessa sveit mann fram af manni til samferðafólks sem allir vom frændur í andlegum og verald- legum skilningi. Unglingurinn leitaði skjóls hjá Jónínu sem gaf, miðlaði og kenndi. Samveran var náin. Alla daga gekk Jónína í öll þau verk sem gera þurfti, bæði úti sem inni. Má þar nefna vorverkin; raka skítinn af túninu, breiða taðið til þerris á melunum, ganga æðarvarpið, þar sem Jónína þekkti fuglinn og fugl- inn þekkti hana, og hún hlúði að honum með mikilli ástúð og vænt- umþykju. Með Jónínu er genginn einn af þeim síðustu fulltrúum gamla tímans á íslandi, þar sem fólkið og landið vora eitt, hin fagra og óblíða náttúra, sem bæði gaf og tók. Elsku Jónínu kveð ég með þakk- læti í huga. Auðbjörgu, Jóhannesi og bömunum sendi ég kveðju mína. Rut Rebekka Siguijónsdóttir HRE NT ekki erfitt Vegna 25 ara afmælis Gerni, veitum við afslátt af Gerni háþrýstihreinsitækjum, meðan Sjávarútvegssýningin stendur yfir. WMi Ath! opio a laugardögum frá kl. 10-12. ás&á Skeifan 3h Simi 82670

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.