Morgunblaðið - 19.09.1987, Page 52

Morgunblaðið - 19.09.1987, Page 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987 Minning: FriðþjófurB. Guð- mundsson frá Rifi Fæddur 27. október 1904 Dáinn 3. september 1987 Friðþjófur Baldur fæddist á Sel- hól í Keflavík við Hellissand 27. október 1904, sonur merkishjón- anna Guðmundar Guðmundssonar formanns og Jófríðar Jónsdóttur, hann var næstelstur í hópi átta systkina. Hann fluttist með foreldrum sínum frá Selhól að Rifi 10 ára, 1914. Foreldrar hans höfðu þá búið að Hellissandi á annan áratug. Það tímabil var Guðmundur formaður á áraskipi frá einni erfiðustu brim- lendingu landsins, Keflavíkurlend- ingu og famaðist vel. Á Rifi bjó áður Jens Sigurðsson útvegsbóndi og formaður. Hann fluttist að Selhól, áður hús Guð- mundar. Þeir skiptu um bústaði því Jens var orðinn fullorðinn og vildi hætta búskap. Á Rifi byrjaði Guðmundur það starf sem frægt er orðið. Hann veitti mergð smáfugla, sem flogið höfðu frá Suðurskautslöndum til Rifs, vemd og vöm. Hann friðaði kríuna og varði varpsvæði hennar fyrir bömum, tófum og fullorðnu fólki. Sama gilti um selkópa sem leituðu skjóls í Rifsós. Enginn mun hafa ætlað, hvorki Guðmundur eða aðrir, að þessi smávaxni fugl, krían, svo langt að komin, yrði þess megnug að greiða kostnaðinn fyrir vemd sína, sú varð þó reyndin, því á örfáum ámm græddi krían upp malarholt og óræktaða móa í afburða góð slægju- og beitarlönd. Þegar Friðþjófur tók við jörðinni af föður sínum hélt hann sama sið með þeim afleiðing- um að nú er talið að í Rifslandareign sé mesta kríuvarp heims. Fátt mun betur lýsa hugarfari þeirra feðga en þessar aðgerðir til vemdar hin- um smáu. Friðþjófur og systkini hans unnu með foreldrum sínum að útgerð, fiskverkun og búskap. Þegar Frið- þjófur tók við búskap í Rifi gerði hann út vélbát sem hét Óskar og verkaði sinn físk. Hann var formað- ur eins og faðir hans, aflasæll dugnaðarmaður. 3. desember árið 1932 giftist hann Halldóm Krist- leifsdóttur, hinni mestu ágætis- konu. Vom þau mjög samhent. Friðþjófur og Halldóra hafa eignast §ögur mjög efnileg böm og tvö fósturböm ólu þau upp frá bemsku. Elst er Ester Úranía, fædd 1933, gift Kristni Haraldssyni, þau eiga 9 böm: Sævar, fæddur 1936, giftur Helgu Hermannsdóttur, þau eiga 3 böm; Svanheiður, fædd 1939, gift Jóhanni Lámssyni, þau eiga 4 böm; Kristinn Jón, fæddur 1941, giftur Þorbjörgu Alexandersdóttur, þau eiga 6 böm. Tvo fóstursyni hafa þau alið upp frá bemsku: Sæmund- ur Kristjánsson, fæddur 1943, giftur Auði Gormsdóttur, þau eiga 3 böm; og Hafsteinn Bjömsson, fæddur 1949, giftur Steinunni Júlí- usdóttur, þau eiga 4 böm. Þau hafa eignast 22 bamaböm og 14 bamabamaböm. Árið 1950 ákvað ríkisstjóm ís- lands að byggja landshöfn í Rifi, en því aðeins að Rifsbóndinn gengi að þeim söluskilmálum sem ríkið setti. Verðið var æði lágt, þótt lífstíðarábúð fylgdi í kaupunum. Lágt miðað við að Rif var talin ein besta bújörð til lands og sjávar á Snæfellsnesi. Hér var úr vöndu að ráða. Friðþjófur, sem var í forsvari fyrir systkini sín, seldi ríkinu jörðina Rif gegn því skilyrði að fram- kvæmdir yrðu hafnar innan ákveð- ins tíma. Við það var staðið. Með sölu Rifs tel ég að Rifsfjölskyldan hafi lagt þungt lóð á vogarskái til heilla fyrir búendur Snæfellsness, þó einkum Hellissands. Með hafnar- gerðinni hófust þáttaskil í útgerðar- sögu Snæfellinga. Friðþjófur var stór þátttakandi í þeirri útgerðarbyltingu. Hann lét byggja stór og vönduð skip ásamt sonum sínum, sem báðir vom skip- stjórar og miklir dugnaðarmenn. Allt atvinnulíf hefur blómgast, nýtísku atvinnufyrirtæki risu. Stór og vönduð íbúðarhús og sífellt vant- ar fleira og fleira fólk til starfa. Svo sem oft vill verða um fram- taksama dugnaðarmenn hafa trúnaðarstörf hlaðist á Friðþjóf. Hann starfaði í hreppsnefnd, í fjölda ára í hafnamefnd, söng í kirkjukór í Ingjaldshólskirkju frá 16 ára aldri og þar til hann veiktist, var 50 ár í sóknamefnd, þar af 25 ár sem formaður, meðhjálpari um marga áratugi og þegar hann veiktist fyr- ir sex ámm tók hin dugmikla kona hans, Halldóra, við þeim störfum er hann hafði áður unnið fyrir In- gjaldshólskirkjusöfnuð. Kynni okkar Friðþjófs hófust í bamaskóla, það var eitthvað í fari hans sem dró mig að honum. í hveijum frímínútum fómm við út til að glíma, því líkt var með okk- ur. Eða við fórum í það sem við kölluðum að taka mann af hest- baki. Þá lék annar hest með knapann á herðum sínum. Leikur- inn byggist á því að geta fellt sem flesta af herðum andstæðinga sinna. Okkur gekk oft vel í þeim leik. Einnig gerðum við út í félagi marga bréfbáta sem við sigldum á lækjasprænu sem rann meðfram skólanum og heitir Höskuldsá. Við fermingu skildust leiðir, Friðþjófur átti heima í Rifi, en ég úti á Sandi, en alla tíð hefur okkar vinátta hald- ist.^ Árið 1930 ákvað ég að fara norð- ur að Gjörgi á Ströndum á m/b Höfmngi, 10 tonna báti, til línu- veiða þar. Friðþjófur kom með mér ásamt fleirum. Áð hveiju sem Frið- þjófur sneri sér var hann útsjónar- samur, laginn og með brennandi áhuga á veiðiskapnum. Friðþjófur var greindur maður, glaður og mild- ur í viðmóti og sístarfandi meðan heilsan leyfði. Hann veiktist fyrir sex ámm, dvaldi á sjúkrahúsi Stykkishólms tvö síðustu árin. Hann andaðist þar. Með Friðþjófí er fallinn í valinn einn umsvifamesti athafnarmaður Hellissands. Eftir áratugs af kynni af Frið- þjófi og bræðmm hans, Pétri og Steingrími, hika ég ekki við að segja að þeir Rifsbræður hafi verið í hópi bestu og tryggustu samferðamanna minna á langri ævileið. Nú flyst Friðþjófur síðastur þeirra yfir á eilífðarsviðin, þar sem við trúum að kærleikur, friður og réttlæti ríki. Eg votta konu hans og bömum, og öllum aðstandendum innilega samúð. Karvel Ögmundsson í dag er til moldar borinn elsku- legur afí okkar, Friðþjófur Baldur Guðmundsson frá Rifi á Snæfells- nesi. Útför hans er gerð frá Ingj- aldshólskirkju. Eftirlifandi eiginkona hans er Halldóra Krist- leifsdóttir. Bjuggu þau allan sinn búskap í Rifí með búfénað ásamt útgerð. Afi og amma vom mjög samrýnd og var hjónaband þeirra farsælt. Afí var okkur mjög kær og kynni okkar við hann vom náin þar sem við bjuggum í næsta húsi. Hann var ákveðinn í skapi, glað- lyndur og sérstaklega bamgóður. Var hann ósérhlífínn við vinnu og hvar sem hann var við störf hópað- ist bamaskarinn í kringum hann. Afí var einn af þeim sem stoppaði aldrei, en á sunnudögum reyndi hann að komast hjá vinnu ef mögu- legt var, þar sem hann var trúaður og kirkjurækinn maður og jafn- framt meðhjálpari í Ingjaldshóls- kirkju í mörg ár. Alltaf var spennandi og gaman að fylgjast með og hjálpa til, ýmist við smölun á kindum eða kúm, í sauðburði, við mjaltir eða heyskap. Ef stund gafst frá búskapnum var hann farinn að aðstoða syni sína við útgerð s.s. fella net, beita og jafnvel róa með þeim. Var hann dýravinur mikill og má þar nefna að kríuna tók hann fram yfír aðra fugla. Honum var það mikið kappsmál að vemda kríu- varp á norðurhveli jarðar. Vaktaði hann varpið nótt og dag yfir há- varptímann og ef einhver dirfðist inn á svæðið var afi kominn á stað- inn. Ofarlega í huga hans var að byggja upp Rif og hvatti hann af- komendur sína að efla útgerð og byggingu á staðnum. Afi var trygg- ur sínum heimabæ og lét hann frá sér landareign til hafnarinnar til að efla sjávarútveginn sem það gerði tvímælalaust. Hér hafa verið skrifaðar örfáar minningar um okkar ástkæra afa og mun minning hans lifa í hjörtum okkar um ókomna tíð. Þökkum við allar þær mörgu og góðu stundir er við áttum með honum. Elsku amma, missir þinn er mik- ill, megi Guð styrkja þig í sorg þinni. „Já, öldur mínar munu aftur falla að ströndinni, og þó að dauðinn skiiji okkur og ég sé grafinn hinni miklu þögn, mun ég samt leita skilnings ykkar. Og ég mun leita án árangurs. Ef nokkuð af því sem ég hef sagt er sannleikur mun sá sannleikur birtast aftur á hreinni tungu og í orðum, sem skyldari eru hugsunum ykkar." (Khalil Gibran: Spámaðurinn.) Baldi, EUi, Dóra, Jói, Helena, Hafalda, Jófriður, Snædís og Guðbjörg. Eitt kvöld mun ég ganga til hvíldar þreytt- ur og þjáður, og þúsundir stjama munu á himninum skína. Og þá mun ég hugsa um það allt, sem gerst hefur áður, og íhuga bljúgur og hreinskilinn tilveru mína. (Steinn Steinarr.) í dag kveðjum við afa okkar Friðþjóf Guðmundsson sem verður lagður til hinstu hvfldar í Ingjalds- hólskirkju, en hann lést þann 3. september eftir langa legu á Stykk- ishólmsspítala. Margt er það sem bömin fara á mis ef þau fá aldrei að kynnast afa sínum og ömmu og hinni eldri kynslóð. Seint munum við gleyma þeim stundum sem við dvöldum hjá afa og ömmu. Og munum við lengi búa að því. Síðan við munum eftir okkur heima í Rifí hafði afi ætíð stundað búskap og fengum við krakkamir að vasast í öllu með honum og gera allt það sem fullorðna fólkið gerði, og þó við værum lengi við verkið var okkur alltaf sýnd þolinmæði. Afi var mjög bamgóður maður og vom bamabömin sem og önnur böm í þorpinu í kringum hann og vildu þau einnig fá að kalla hann afa. Það var stutt í gamansemina hjá honum og stríddi hann okkur oft í góðu tómi. Á maður margar góðar minningar um það. Afi var mjög sterkur persónuleiki og ákveðinn. Hann hafði mikil áhrif á allt í kringum sig. Honum þótti mjög vænt um nátt- úruna og til vitnis um það stuðlaði hann að því að það yrði kríuvarp á Rifi sem er eitt það stærsta á ís- landi í dag og sá hann um að vemda það og hlú að því. Hann varð hinn versti ef óboðnir gestir komu og gerðu usla í varpinu. Er gróður- starf sem þama var unnið ómetan- legt. Einnig brýndi hann það fyrir okkur krökkunum að vera góð við dýrin og umgangast náttúruna með virðingu. Afi var mjög trúrækinn maður og var hann meðhjálpari í kirkjunni okkar í mörg ár og fékk maður þá oft að hjálpa til við ýmis störf og var skemmtilegast að fá að sitja hjá afa og ömmu í messu og syngja hástöfum, þó svo að maður kynni ekki textann en þó var aldrei suss- að á mann. Hann var okkur bömunum góð fyrirmynd þar sem hann bragðaði hvorki áfengi eða reykti tóbak. Hann var reglusamur maður á alla hluti og gátum við lært ýmislegt af því. Það var ekkert það verksvið sem óx honum í augum, hann smíðaði húsin sín sjálfur og einnig smíðaði hann bát. Hann var nýtinn á alla hluti og var allt notað sem nothæft var. En kæmi einhver til hans og bæði hann um eitthvað var hann boðinn og búinn til að hjálpa þeim. Hann var vinur vina sinna. Afi og amma voru mjög samrýmd hjón. Þau stóðu ætíð saman við þau verk sem verið var að vinna að. í dag er borinn til grafar merkur maður sem var þegar orðin goðsögn í lifanda lífi. Elsku amma við vonum að guð styrki þig núna þegar þú sérð á eftir þínum ástríka eiginmanni. Við erum öli hjá þér og viljum styðja þig á þessari erfiðu stundu. Við viljum þakka Fransiskusystr- unum á Stykkishólmsspítala fyrir góða umönnun og hlýhug. Halldóra, Sæunn, Friðþjófur. í dag kveðjum við frá Ingjalds- hólskirkju Friðþjóf Baldur Guð- mundsson fymim bónda og útgerðarmann á Rifí á Snæfellsnesi. Friðþjófur fæddist á Selhóli á Hellissandi, næstelstur níu bama þeirra hjóna Jófríðar Jónsdóttur og Guðmundar Guðmundssonar. Tíu ára að aldri fluttist hann með fjöl- skyldu sinni í Rif. Friðþjófur ólst upp á alþýðuheimili, sem duglegir foreldrar sáu vel farborða þannig að þar leið enginn skort. Stórt heim- ili þurfti mikið og ekki veitt af hjálp elstu bamanna við öflun lífsbjargar- innar. Skólamenntun var lítil og fékk Friðþjófur einungis hina venju- legu bamamenntun þess tíma, sem reyndist honum vel á lífsleiðinni. Eftir nokkurra ára skólagöngu tók við brauðstrit þess tíma bæði til sjós og lands en Friðþjófur byijaði tíu ára að sækja sjóinn með föður sínum. Hinn 3. desember 1932 kvæntist hann eftirlifandi konu sinni, Hall- dóm Kristleifsdóttur, ættaðri frá Efri-Húsum í Fróðárhreppi. Þau hafa því lifað í farsælu hjónabandi í tæp 55 ár. Fyrstu þijú árin bjuggu þau á Hellissandi en hafa síðan alla tíð búið í Rifi, fyrstu árin í sam- býli með foreldrum Friðþjófs. Þau Halldóra og Friðþjófur áttu §ögur böm, sem em talin í aldurs- röð: Ester, sem gift var Kristni Haraldssyni, en hann andaðist í byrjun þessa árs; Sævar, kvæntur Helgu Hermannsdóttur; Svanheið- ur, gift undirrituðum; og Kristinn Jón, kvæntur Þorbjörgu Alexand- ersdóttur. Þá ólu þau hjón upp tvo drengi frá bamsaldri, þá Sæmund Kristjánsson, kvæntan Auði Grímsdóttur og Hafstein Bjömsson, kvæntan Steinunni Júlíusdóttur. Bamabömin urðu tuttugu og tvö, en af þeim lifa tuttugu. Um tvítugsaldurinn hóf Frið- þjófur sjósókn á eigin báti úr Krossavík á Hellissandi og reri hann úr Krossavíkinni allt til ársins 1950, þótt heimili hans væri í Rifi. Vond hafnaraðstaða í Krossavík gerði sjó- mönnum þessa tíma oft ansi erfitt fyrir en engin óhöpp hentu þó Frið- þjóf, enda trúi ég að hann hafí verið bæði laginn og duglegur sjómaður. Því var það merkileg tilviljun að veturinn 1956 reri Friðþjófur einn róður á mb. Hafdísi og lenti þá í sjávarháska; báturinn sökk og skipshöfninni var bjargað á síðustu stundu. Sagt hafa mér kunnugir, að oft hafi Friðþjófur rétt lítilsmeg- andi sveitungum sínum soðningu á meðan róið var úr Krossavíkinni. Ekki verður lífsferill Friðþjófs rakinn án þess að minnst sé á lands- höfnina í Rifi. Það var árið 1950 sem Friðþjófur, systkini hans og móðir seldu ríkinu jörðina Rif á Snæfellsnesi í þeim tilgangi að þar yrði byggð landshöfn. Lög um landshöfn í Rifi voru samþykkt á Alþingi árið 1951 og hafist var handa við byggingu hafnarinnar, sem gjörbreytt hefur lífsafkomu íbúanna eins og allir vita, sem til þekkja. Margt hef ég heyrt um áhuga Friðþjófs á höfninni og grun hef ég um að enginn einn maður eigi meiri þátt í tilvist hennar en hann. Friðþjófur var mikill trúmaður. Hann söng í kirkjukómum frá sext- án ára aldri og meðan kraftar leyfðu. Hann var ( sóknamefnd í fimmtíu ár, þar af formaður hennar + Útför eiginmanns mins og bróður, RAGNARS EINARS EINARSSONAR, Furugerði 1, sem andaðist þann 6. september í Landspítalanum, hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks á deild 11B á Landspítalanum. Gunnhildur Pálsdóttir. og systkini hins látna. t Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, ÓLAFS JÓNSSONAR Iseknis, Hamrahlið 33. Drifa Garðarsdóttir, Garðar Ólafsson, Edda Ólafsdóttir, Kjartan Árnason, Kristín Hildur Ólafsdóttir, Sigurður Sverrisson, Ólafur Sverrir Kjartansson. + Innilegar þakkir fyrir vináttu og hlýhug við andlát og útför litlu dóttur minnar, DÍÖNU MJALLAR. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfóiks á Barnaspítala Hringsins og þeirra mörgu sem studdu okkur i veikindum hennar. Siggerður Bjarnadóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.