Morgunblaðið - 19.09.1987, Side 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987
mrnrn
Ást er...
^ w ?''7
... að sitja staðföst á
sínu.
TM Rag. U.S. Pat Off.—afl rights rasarved
° 1987 Los Angeles Times Syndicate
v\8//
Það er vitlaust veður. Þú
þarft ekki að hafa áhyggj-
ur af því hér inni í hlýj-
unni...
HÖGNI HREKKVÍSI
Busavígslur
o g ofbeldi
- þarf þetta að
fara saman?
Til Velvakanda
Hvað er að gerast í menntaskólun-
um landsins? Inntaka nýrra nema
tilheyrir nýju námsári og skyldu þeir
vígðir í samfélagið með kurteislegri
samverustund. Því miður einkennist
þessi athöfn oftar af siðlausu of-
beldi. Við sáum sýnishom af einni
slíkri vígslu í fréttatíma Stöðvar 2
hinn 10. september, frá Menntaskól-
anum við Sund. Hvemig fór þessi
vígsla fram hjá Menntaskóla Kópa-
vogs eða Fjölbrautaskóla Suðumesja.
Myndir í Morgunblaðinu 17. septem-
ber sýna það. Maður hlýtur að spyija.
Em þeir menn sem ráða þessum
skólum, og öðmm þar sem vígslur
af þessu tagi fara fram, heilbrigðir?
Eða em nemamir sjúkir en skóla-
meistramir alls ófærir um að stjóma
skólunum?
Mjög ánægjuleg frétt var í Morg-
unblaðinu af nýbreytni hjá Fjöl-
brautaskólanum við Armúla þar sem
nýnemar em teknir með í fjallgöngu
og boðið í grillveislu á eftir. Heill
þeim. Vonandi taka fleiri upp eitt-
hvað svipað. En þið sem hafið vald
til að stöðva ofbeldið, gerið það áður
en meira illt hlýst af. Þingmenn setj-
ið lög strax á næsta þingi og bannið
busavlgsluofbeldið. Það væri þarft
verk. Góðu heilli bönnuðum við
hnefaleika, bönnum líka þetta of-
beldi.
Hulda
Um 200 nýnemar „busaðir“
hjk rfdri
NÝNEMAB
kdr kafa mii
MMOiárof
flórí
■ | fyrra.
Alhðfnin gekk Qjótt fýrir ng.
Tar ufnaó uœan og þeir
fram einn af öðnun til
^Wunnar. Þir urðu að beygja sig
fjrrir wímhnui, «1
unp i þi, þebn tíSm •
ZýuAer, yfir þi og
rinnepi, UmvUmn. mnol-
M ok M Þ*> báI"1 “lð,í
þusamir «S «kriða eflir rimlnbún
og von. um IdS nnúlaðir með
V*Nokkur mannfiðldi safnaðiat
„man *ið akólann til «ð fylg)a»t
mrihdgulubuMnnaogtff"^-
um nóg um aðfanrnar. Buaavígsl-
__ c 4r taldist þó baroaleflmr emn
Yíkverji skrifar
Víkveiji mátti svo sem vitað það
að hann var kominn á hálan ís,
þegar hann tók að sér að veija orðið
prósentustig, sem Helgi Hálfdanar-
son hefur hvað verstan bifur á af
öllum orðum íslenskrar tungu. Helgi
lætur engan eiga neitt inni hjá, hefur
svarað Víkveija fullum hálsi hér í
Morgunblaðinu og hvergi hvikað frá
andstöðu sinni við þetta „orðræskni",
eins og hann kallar það.
Víkveiji hefði eiginlega látið hér
við sitja, ef Helgi hefði ekki í síðasta
pistli beint til hans Qómm spuming-
um og það þykir sjálfsögð kurteisi
að svara. Því verður Víkveiji að
freista þess að halda uppi vömum
fyrir prósentustigið, þó að hann við-
urkenni um leið að málsstaðurinn sé
ef til vill ekki sá besti í heimi en
fyrir bragðið verður þessi pistill í
lengra lagi. Víkveija hefur frá upp-
hafi verið ljóst að prósentustig hefur
ýmsa vankanta, en hann hefur notað
það, eins og margir aðrir, vegna
þess að vantað hefur betra orð. Þetta
kann þó að vera að breytast eins og
vikið verður að hér síðar.
Þá em það spumingar Helga.
Hann spyr hveija Víkvetji telur vera
orðabókarskýringu orðsins prósentu-
stig og skilgreiningu hugtaksins á
bak við það.
Því er þá til að svara að Víkveiji
hefur tilhneigingu til að nota prósent
þegar hann reiknar út hlutfall af ein-
hverri ákveðinni stærð en prósentu-
stig þegar hann ber saman ákveðnar
prósentutölur.
Víkveija er þannig farið, líkt og
ótal mörgum öðmm, að hann skynjar
talanakerfið, sem við notum, á mynd-
rænan hátt. Hann sér fyrir sér
talnaröðina sem eins konar stiga —
talnastiga. Mismunurinn milli td.
tölunnar 1 og tölunnar 2 er eitt bil,
eitt skref eða eitt stig. Í orðabók
Menningarsjóðs hefur stig m.a.
merkinguna skref en einnig rim í
stiga. Ef við ímyndum okkur að hver
tala í talnakerfinu samsvari rim í
stiga, þá er bilið frá einni rim til
hinnar næstu eitt skref eða eitt stig.
Maður fer á milli rima í stiga í einu
skrefí eða einu stigi. Þetta ætti varla
að rekast á við orðabókarmerking-
una.
Um sumt í mannheimi gildir það
að fyrst og fremst er talað um það
í prósentum. Þetta á við um vexti
svo dæmi sé tekið og einnig um fyrir-
bæri á borð við verðbólgu. Verð-
bólgan fer úr böndunum og hækkár
úr 10% eða tíu af hundraði í 20%
eða tuttugu af hundraði. Hækkunin
er 100%. Stjómmálamenn hafa
áhyggjur af þróuninni og vilja ná
verðbólgunni niður fyrir 10%. Þeir
segja þó ekki kjósendum að þær
ætli sér að lækka verðbólguna um
meira en 50%. Nei, þeir ætla að ná
verðbólgunni niður um meira en 10
prósentustig, þ.e. mismunurinn á
20% og 10%.
f verðbólguviðmiðunum af þessu
tagi og eins í umræðum um vexti
er eins og prósent öðlist sjálfstætt
líf. Menn sjá þessi fyrirbæri fyrir sér
sem sjálfstæða talnaröð eða talna-
stiga, þ.e. prósentustiga. Mismunur-
inn á milli 10% og 20% eru tíu bil,
tíu skref eða tíu stig, þ.e. prósentu-
stig.
Helgi spyr því næst hvað Víkveiji
fínni orðasmíðum Helga — heildar-
prósenti, eiginprósenti, stofnprósenti
eða hlutaprósenti — helst til foráttu.
í sjálfu sér ekkert en varla eru þessi
orð nógu þjál í málinu og reyndar
telur Víkveiji betri lausn fundna, eins
og vikið verður að síðar.
Þriðja spumingin sem Helgi varp-
ar fram er á hvaða hátt Víkveiji telji
það verða ráðið af orðinu prósentu-
stig að það tákni fremur prósent af
höfuðstól heldur en prósent af vöxt-
um, ef því er að skipta. Víkveiji vísar
aftur til skilgreiningarinnar í upp-
hafí. Þegar rætt er eða skrifað um
prósent sem hlutfall er sagt eða skrif-
að prósent eða auðkennt með tákninu
%. Þegar rætt er eða ritað um
ákveðna prósentueiningu í saman-
burði við aðra, t.d. að verðbólgan
hafí hækkað úr 10% í 20%, hafa
menn notað prósentustig og sagt að
verðbólgan hafí aukist um 10 pró-
sentustig. Sú merking er að nokkm
leyti gagnsæ, fallist menn á skil-
greiningu Víkveija í uppafí.
Fjórða og síðasta spumingin var
svohljóðandi: Ef prósent af höfuð-
stóli skulu kölluð prósentustig til
aðgreiningar á prósentum af vöxtum,
hvað vill hann þá kalla prósent af
vöxtum til aðgreiningar frá hinum?
Víkveiji vísar til fyrra svars - um
að nota prósent þegar verið er að
reikna út hlutfall en prósentustig
þegar verið er bera saman prósentu-
einingar. Þá skiptir engu hvoit verið
er að tala um verðbólgu, vexti eða
fylgi stjómmálaflokks, ef Víkveiji
hefur skilið spuminguna rétt. Tökum
dæmi af því Helgi nefndi stjómmál:
Stjómmálaflokkur hlaut 10 þús-
und atkvæði í kosningum, þar sem
100 þúsund manns höfðu kosið, eða
10% af greiddum atkvæðum. í næstu
kosningum, þar sem jafnmargir
kusu, stóijók flokkurinn fylgi sitt og
hlaut 15 þúsund atkvæði eða 15%
af heildarfylgi stjómmálaflokkanna.
Formaður flokksins mætti í stjóm-
varpssal ásamt talsmönnum annarra
stjómmálaflokka og kvaðst vera sig-
urvegari kosninganna, þvi að flokkur
hans hefði aukið fylgi sitt um 50%.
Andstæðingunum þótti hins vegar
lítið til koma og sögðust vissir um
að þessi 5% fylgisaukning yrði ekki
lengi að reytast af flokknum. 50%
og 5%? Hvemig á almenningur að
átta sig á talnaleik stjómmálaleið-
toga í þessum dúr? Væri þetta ekki
ljósara og skömminni skárra ef talað
hefði verið um 5 prósentustig í síðara
tilfellinu?
XXX
Nú er að segja frá því að Víkveiji
hafði varla barið saman fram-
angreinda röksemdarfærslu í kurt-
eisisskyni við Helga Hálfdanarson,
þegar honum opinberaðist að til
væri önnur leið út úr ógöngunum.
Hún var sú að nota hvorukynsorðið
prósent þegar verið er að reikna út
hlutfall en kvenkynsorðið pósentu í
stað prósentustigsins, t.d. verðbólg-
an fór úr 10% í 20% og hækkaði um
100% eða um tíu prósentur (í stað
prósentustiga). Þetta hefur að vísu
þann ókost að prósent og prósenta
hefur sömu merkinguna í vitund ís-
lendinga og það getur orðið þrautum
þyngra að venja þá á að greina á
milli tvenns konar merkingar þeirra.
Að auki eru orðin eins í öllum follum
fleirtölu nema nefnifalli.
Það er svo skemmtilegt að segja
frá því að Víkvetji hafði varla borið
þessa hugljómun undir helsta banda-
mann sinn í þessu prósentustig-
astríði, þegar inn á borð hans barst
bréf frá manni, sem hefur greinilega
fengið sömu hugdettuna og það sem
meira er — hann er með tillögu um
það hvemig leysa má fleirtöluvand-
ann sem nefndur var. Bréfíð hljóðar
svo:
„Til Víkveija - prósentudeildar
Undanfarið hefur Víkveija orðið
tíðrætt um prósentur, prósentustig
o.þ.h. og þá einkum muninn sem
menn vilja gera á merkingu orðanna.
Viss andstaða virðist vera við orðið
prósentustig en ekki er boðið upp á
neitt betra eða aðgengilegra. Það
sem menn eru að ieita að er líklega
orð með gagnsæja merkingu.
Væri ekki hægt að leysa málið
með því að nota tvær ólíkar myndir
orðsins prósent? Annars vegar orðið
prósent, eins í öllum föllum, og tákn-
aði hlutfallið. Hins vegar svo orðið
prósenta, fallbeygt og er þá prósent-
ur í fleirtölu, og stæði þá fyrir
eininguna (nú oft nefnt prósentu-
stig).
Dæmi: ef stjómmálaflokkur fær
10% atkvæða í kosningum og eykur
síðan fylgi sitt upp í 15% atkvæða í
þeim næstu, þá hefur fylgi hans
aukist um 50 prósent eða um 5 pró-
sentur.
Undir bréfíð skrifar Snorri Sigur-
jónsson, Hringbraut 33, Hafnarfírði.
Það er merkilegt að Snorri notar
algjörlega hliðstætt dæmi og Víkveiji
tók til að veija prósentustigið og
varð síðan til þess að honum hug-
kvæmdist að nota kvenkynsorðið
prósenta í stað prósentustigs.
En nú væri gaman að heyra hvað
Helgi Hálfdanarson hefur til mál-
anna að leggja um þessa lausn.