Morgunblaðið - 19.09.1987, Qupperneq 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987
*■
IÞROTTIR / VALSDAGURINN
. Valsmenn heim
að Hlíðarenda
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
VALSMENN vígja í dag nýtt
glæsilegt íþróttahús á íþrótta-
svæði félagsins að Hlíðarenda
og í vetur munu handknatt-
leiks- og körfuknattleikslið
félagsins leika á „alvöru“
heimavelli og verða þar með
fyrst íslenskra félaga til að
gera slfkt í þessum tveimur
íþróttagreinum. Þeir leika sem
sagt í eigin íþróttahúsi, á eigin
íþróttasvæði. Valsmenn gera í
raun meira en að vígja íþrótta-
húsið því þeir vígja einnig
vallarhús sem tengt er íþrótta-
húsinu og knattspyrnusvæð-
inu.
ikið verður um dýrðir hjá
Völsurum í dag og hefjast
herlegheitin klukkan 15. Sigfús
Halldórsson mun taka á móti gest-
um með léttum
tónum, ræður verða
fluttar og Karlakór-
inn Fóstbræður mun
syngja nokkur lög.
Svo skemmtilega vill til að Karla-
kórinn Fóstbræður er sprottinn upp
úr KFUM eins og Valur og það fer
því vel á að þeir syngji fyrir Vals-
menn við vígsluna. Þeir munu m.a.
syngja Valssönginn eftir Sr. Friðrik
Friðriksson og baráttusöng til Vals
en hann er eftir Magnús Guð-
brandsson fyrrverandi formann
Vals og heiðursfélga Fóstbræðra.
- y Andreas Bergmann, Sigurður Ól-
afsson og Ulfar Þórðarson, sem
allir eru heiðursfélagar Vals, munu
síðan gefa fyrstu sendinguna í hús-
inu og því næst hefjast leikir í
handknattleik og körfuknattleik.
Sveinn Zöega er fjórði heiðursfélagi
Vals sem er á lífi. Kaffíveitingar
verða auðvitað á staðnum og eru
það Valskonur sem sjá um þær.
Glæsilegt íþróttahús
Hið nýja íþróttahús er sérlega
glæsilegt. Bygging þess hófst árið
1981 en bygging vallarhússins
hófst ekki fyrr en í desember í
fyrra. íþróttasalurinn sjálfur er
1200 fermetrar að grunnfleti og í
honum eru handboltavöllur, körfu-
boltavöllur, blakvöllur og átta
badmintonvellir. Reiknað er með
að um 600 áhorfendur komist í
húsið til að horfa á handboltaleik
en um 900 geta fylgst með körfu-
boltaleik. Þess má geta að litaval í
húsinu er skemmtilegt. Rautt og
hvítt!
Vallarhúsið er alls um 1650 fer-
metrar, kjallari og tvær hæðir. í
dag verður fyrsta hæðin tekin í
notkun en þar eru búningsklefar
og böð. í framtíðinni er ætlunin að
hafa þar heilsurækt með gufuböð-
um, ljósalömpum, heitum pottum
og líkamsræktartækjum. A efri
hæðinni verður samkomusalur
- w ásamt aðstöðu fyrir létta leikfimi.
Valsmenn hafa lagt mesta áherslu
á þijú atriði. Gólfíð, lýsinguna og
loftræstingu. Gólfíð er örugglega
með því besta sem gerist hér á
landi. Það er úr 22 mm parketi sem
er 14 sentimetra hátt. Það hvílir á
tvöfaldri grind sem er á gúmípúð-
um. Lýsingin er einnig mjög góð
og mun bjartara í þessu húsi en
gengur og gerist í örðum íþrótta-
húsum og loftræstingin er frábær.
Hvað skyldi svona mannvirki kosta
gæti nú einhver spurt. Kostnaðará-
, ætlunin fyrir íþróttahúsið og vallar-
húsið hljóðar upp á 59.186.000
krónur, eða rétt tæpar 60 milljónir.
Það er með ólíkindum hve lítið þetta
kostar þegar haft er í huga hversu
glæsilegt húsið er.
Framtíðin björt
reyna að fá. Ef það gengur í gegn
hjá þeim þá ætla Valsmenn að
skapa frábæra aðstöðu fyrir al-
menningsíþróttir og keppnisíþróttir
að Hlíðarenda.
Hlíðarendi
Hlíðarendi, félagssvæði Knatt-
spymufélagsins Vals, var áður
bóndabýli. Það var 31. desember
1914 sem bæjarstjóm Reykjavíkur
úthlutaði Jóni Kristjánssyni 5,55
hektara lands í norð- austurhomi
Vatnsmýrar. Síðar fékk Jón leyfi
til að byggja fjós, hlöðu og íbúðar-
hús, og var landið nefnd Hlíðarendi
eða Vatnsmýrarblettur 14 eftirþað.
3. janúar 1918 keypti Sveinn Páls-
son, Bergstaðarstræti 17, Hlíða-
renda og var kaupverðið 15.000
krónur. Guðjón Guðmundsson al-
þingismaður keypti svo Hlíðarenda
árið 1919 á 20.000 krónur og
Knattspymufélagið Valur keypti
jörðina af Jóney Guðmundsdóttur,
ekkju Guðjóns, 10. maí 1939. Kaup-
verðið var þá 30.000 krónur.
Hrakningarsaga
Fyrsti völlur Vals var gerður þegar
á fyrsta starfsári félagsins og tek-
inn í notkun 6. ágúst 1911. Sá
völlur var tekinn af Valsmönnum
vegna byggingar Loftskeytastöðv-
ar. Þá ruddu Valsmenn nýjan völl
nokkru norðar. En að því kom að
jámbraut var lögð úr Öskjuhlíð
vegna hafnarframkvæmda, var hún
lögð yfir völlinn og Valsmenn urðu
að sætta sig við missinn. í þriðja
sinn lögðu Valsmenn í ffamkvæmd-
ir við nýjan völl en hann var lagður
undir bæjar-íþróttavöll árið 1926.
Fjórða skiptið hófu Valsmenn vall-
argerð og 1935 var nýr völlur
tekinn í notkun sunnan við Hauka-
land (skammt frá Hlíðarenda).
Þessi hrakningarsaga réði því öðru
fremur að ráðist var í kaup á landi
til að tryggja Val framtíðar sama-
stað.
Kaupin á Hlíðarenda ollu deilum
innan sem utan Vals. Töldu margir
þetta stóra verkefni félaginu ofviða,
enda kröfðust kaupin gífurlegs fé-
lagslegs átaks. Skuldabréf voru
seld félagsmönnum og velunnurum.
Eftir var til margvíslegra fjáraflana
og býlið leigt í mörg. Tíu ár liðu
frá kaupunum þar til Valur tók
fyrsta völlinn í notkun.
Með kaupunum á Hlíðarenda var
brotið blað í sögu Vals. Fyrsta
Framkvæmd Valsmanna var að
breyta fjósi og hlöðu í félagsheim-
ili, böð og búningsklefa og var sú
aðstaða tekin í notkun 1. júlí 1948.
3. september 1949 var fyrsti völlur-
inn vígður og það gerði sr. Friðrik
Friðriksson. Fyrsti grasvöllurinn
var tekinn í notkun 1952, ári síðar
var ákveðin bygging íþróttahúss að
Hlíðarenda og 9. nóvember 1958
hlupu fyrstu Valsmennirnir inn á
gólf nýja íþróttahússins. Á tíu árum
hafði verið byggt félagsheimili,
malarvöllur, grasvöllur og íþrótta-
hús.
1972 var hafín bygging nýs gra-
svallar með áhorfendastæðum og
fyrsti leikurinn fór þar fram 1977.
í fyrra var lokið endursmíði íbúðar-
húss og það tekið í notkun sem
skrifstofa félagsins og árið í ár
hefur svo verið mikið framkvæmda-
ár hjá Val. Malarvöllur félagsins
var endurbyggður, lokið var við
gerð grasvalla yfír 22.000 fermetra
að stærð, hafín viðbygging við fé-
lagsheimili, nýja íþróttahúsið tekið
í notkun og hluta vallarbyggingar
og nýs félagsheimilis.
Nokkrir af formönnum Vals í gegnum tlðina saman komnir síðastliðinn vetur.
Þeir eru, í aftari röð frá vinstri: Pétur Sveinbjamarson, núverandi formaður,
Bergur Guðnason, Ægir Ferdinandsson, Þórður Þorkelsson og Páll Guðnason.
Fremri röð frá vinstri: Jón Eiríksson, Þorkell Ingvason, Magnús Guðbrandsson,
Jóhann Eyjólfsson, Sigurður Ólafsson.
Þeir sýndu blaðamönnum nýju húsakynnin í vikunni, frá vinstri: Óðinn Helgi
Jónsson, Pétur Sveinbjamason, formaður Vals, Haraldur Sverrisson fram-
kvæmdastjóri Vals, Hrólfur Jónsson formaður byggingamefndar og Jón Róbert
Karlsson arkitekt sem einnig á sæti í byggingamefnd.
Formenn
Framtíðin hjá Valsmönnum virðist
björt. Fyrir liggur teikning af
framtíðarsvæðinu sem þeir ætla að
Nýja húsið
Hér má sjá hinn nýja og glæsilega íþróttasal sem Valsmenn vígja í dag.
LA.il
Morgunblaðiö/Bjarni Eiríksson
. 1 ilJl
trpj .j