Morgunblaðið - 19.09.1987, Side 64
Framtið
ER VIÐ SKEIFUNA
anaa
SUZUKI
II
HRESSAHDI,
FRÍSKA BRAGÐ
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987
VERÐ I LAUSASÖLU 55 KR.
HARÐUR árekstur varð í gærkvöldi á mótum
Mildubrautar og Lönguhlíðar og voru ökumenn
beggja bifreiðanna fluttir á slysadeild.
Áreksturinn varð um kl. hálfátta, er tvær bifreið-
ar, fólksbifreið og sendiferðabifreið skullu saman á
gatnamótunum. Bflamir skemmdust mikið og voru
báðir dregnir burt af slysstað. Ökumenn bifreiðanna
slösuðust nokkuð og voru fluttir á slysadeild. Kalla
þurfti út tækjabíl slökkviliðsins til að losa ökumann
annarrar bifreiðarinnar.
Seint í gærkvöldi var ekki fullljóst um tildrög
slyssins, en slysarannsóknadeild lögreglunnar í
Reykjavík vinnur að rannsókn málsins. Biður slysa-
rannsóknadeild vitni að slysinu um að gefa sig fram
við lögregluna.
Hótel Island:
Tveir fluttir á slysadeild
ARNARFLUG hefur sótt um leyfi til áætlunarflugs til Mílanó á ít-
alíu og reikna forráðamenn félagsins með að leyfið fáist innan tíðar.
Hörður Einarsson, stjómarformaður Amarflugs, upplýsti þetta á
aðalfundi félagsins sem haldinn var í gær.
Hörður tók fram að Mílanóflugið
yrði ekki umtalsverð viðbót við nú-
verandi flug félagsins, a.m.k. ekki
til að byija með. Á síðasta ári flutti
Amarflug 32.419 farþega í áætlun
milli landa eða 18% fleiri en 1985.
Vöruflutningar jukust um 66% á
milli ára. Kristinn Sigtryggsson,
framkvæmdastjóri, sagði á aðal-
Sláturhúsið
í Borgarnesi:
Yfir 10%
af kjötinu
í O-flokka
fundinum að líklega myndi far-
þegum í millilandafluginu fjölga um
25%.
Rekstur Amarflugs var erfiður á
síðasta ári og var 169,3 milljón
króna tap. Eigið fé í lok liðins árs
var neikvætt um 301 milljón króna.
Hlutafé var 99,6 milljónir. Hlutafé
var hins vegar aukið um 130 millj-
ónir króna fyrr á þessu ári og þar
af hafa þegar verið greiddar 113
milljónir króna. Hlutafé félagsins
er j)ví nú 212,8 milljónir króna.
I ársreikningi félagsins kemur
fram að ójafnað skattalegt tap fé-
lagsins í árslok 1986 hafi verið 538
milljónir króna. Á núvirði er það á
milli 600 og 700 milljónir króna.
Kristinn benti á að líklega væri
þetta ein stærsta eign fyrirtækisins
ef það tekst að reka það með hagn-
aði í framtíðinni. I sköttum jafngild-
ir þetta 250 til 300 milljónum króna.
YFIR 10% af nýslátruðu kjöti
hjá sláturhúsi Kaupfélags Borg-
firðinga i Borgarnesi hefur
farið i offituflokka. Þegar er
búið að slátra 10.000 fjár i
haust, en áætlað er að slátra
samtals 60.000 fjár.
Slátmn er enn ekki komin í
fullan gang en búist er við að svo
verði í næstu viku. Að undanförnu
hefur verið slátrað 1.200 til 1.400
fjár á dag en fer upp í 2.200 á
dag þegar fullum afköstum er
náð. Ólafur Sverrisson kaupfé-
lagsstjóri sagði í samtali við
Morgunblaðið að það væri heldur
minna en undanfarin ár. Ástæðan
fyrir því væri sú að í byrjun slát-
urtíðar hefði útlit með mannaráðn-
ingar verið slæmt og því talið að
ekki næðust meiri afköst. Enn er
séð fram á skort á starfsfólki.
Ólafur sagði að þótt slátmn
væri ekki komin lengra væri ljóst
að féð væri mun feitara nú en í
fyrra og talsvert meira af kjötinu
lenti í O-flokki og OO-flokki.
Bændur fá 11,5% af verði 1. flokks
kjöts fyrir kjöt í O-flokki og 25%
lægra verð fyrir OO-flokk.
Morgunblaðið/Þorkell
Stærsti
skemmtistaður
landsins opn-
ar í desember
STÆRSTI skemmtistaður
landsins mun væntanlega opna
í desember næstkomandi.
Skemmtistaðurinn verður í
nýju hóteli, Hótel ísland, sem
Ólafur Laufdal er að reisa í
Ármúla 9.
Frá slysstað á mótum Lönguhliðar og Miklubrautar.
Áætlað er að nýi skemmtistað-
urinn geti rúmað hátt í 1.200
matargesti í einu, en alls mun
staðurinn taka um 2.500 til 2.700
manns. Hótelbyggingin verður 9
hæðir, með kjallara, um 35 þús-
und rúmmetrar að stærð og 10
þúsund fermetrar að gólffleti, þar
af verður skemmtistaðurinn um
einn þriðji hluti gólfflatar.
Hótel ísland við Ármúla í byggingu.
Áætlað er að sjálft hótelið taki
til starfa næsta vor, en þar verða
120 herbergi, rnismunandi stór,
þar af 6 svítur. í hótelinu verða
auk þess tveir minni veitingastað-
Morgunblaðið/RAX
ir og ýmis þjónustustarfsemi, svo
sem hárgreiðslustofa, líkamsrækt
og ferðaskrifstofa.
Sjá viðtal við Ólaf Laufdal á
bls. 26 og 27.
Arnarflug vill
fljúga til Mílanó
Fjárlagafrumvarpið samþykkt í ríkisstjórninni:
Framlög til félags- og
menntamála hækka
Niðurstöðutölur 60 milljarðar og hallinn 1,2 milljarðar
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár
á fundi í gærmorgun. Eru niðurstöðutölur þess 60 milljarðar
króna og gert er ráð fyrir að fjárlagahallinn verði ‘/2% af lands-
framleiðslu eða um 1,2 milljarðar króna. Fjármálaráðherra segir
að samkvæmt frumvarpinu hækki framlög hlutfallslega til fé-
lags-, mennta- og heilbrigðismála en dregið verði úr millifærslum
úr ríkissjóði til atvinnuveganna og niðurgreiðslum til landbúnaðar.
Jón Baldvin Hannibalsson fjár-
málaráðherra sagði í gær að á
lokasprettinum hefði tekist að
lækka útgjöld frá því sem áður
hafði verið áformað, með því að
allir bæru skarðan hlut frá borði.
Sérstök tillaga var samþykkt um
600 milljarða niðurskurð útgjalda
sem dreifist á öll ráðuneytin jafnt.
Jón sagði að í þessari síðustu lotu
hefði mest lækkun orðið á framlög-
um til húsnæðismála, en samt
væri gert ráð fyrir í frumvarpinu
að þau yrðu aukin verulega. í
tekjuöflunarhliðinni vægi þyngst
breyting á söluskattskerfínu en þar
væri ætlunin að draga verulega
úr undanþágum frá söluskatti.
Eirinig er gert ráð fyrir að launa-
skattur leggist á atvinnugreinar
og fyrirtæki.
Jón Baldvin vildi ekki nefna töl-
ur úr frumvarpinu þar sem frá-
gangi þess væri ekki lokið og því
lægju samanburðartölur ekki fyrir.
í stórum dráttum mætti þó segja
að veruleg aukning væri á framlög-
um til félagsmála, menntamála og
heilbrigðismála en dregið verulega
úr miilifærslum af hálfu ríkissjóðs
til atvinnuveganna. Gert er ráð
fyrir að framlag til niðurgreiðslna
í landbúnaði verði það sama og á
síðustu flárlögum, eða 1.360 millj-
ónir króna sem þýðir talsverða
lækkun að raungildi.
Jón sagði ennfremur að til
grundvallar þessu frumvarpi væru
lagðar allar samningsbundnar
launahækkanir út árið 1988. Einn-
ig væri safnliður í frumvarpinu til
að mæta hugsanlegum hækkunum
á kjarasamningum. Jón sagðist
telja að með þessum fjárlögum
hefði hann verið að gera átak gegn
verðbólgu og nú þyrfti að fylgja
því eftir með því að herða tökin á
lánsíjármarkaðnum.
Launahækkanir hefðu síðan ver-
ið sá útgjaldaliður sem mest hefði
hækkað í fjárlögunum. Því taldi
hann ekki skynsamlegt frá sjónar-
hóli launþega að laun hækkuðu
1. október til jafns við það sem
vísitalan mældi. Jón sagði síðan
aðspurður að þjóðarbúið réði ekki
við 7,23% launahækkun um næstu
mánaðarmót og slíkt myndi kalla
á einhver viðbrögð til að koma í
veg fyrir þá stórauknu neyslu, við-
skiptahalla og álag á gengið sem
því yrði samfara.
Þorsteinn Pálsson forsætisráð-
herra sagði við Morgunblaðið að
keppikeflið hefði verið að ná stóru
skrefi í áttina að draga úr ríkis-
sjóðshallanum. Með þessari af-
greiðslu tækist að ná jöfnuði í
ríkisrekstrinum á þremur árum
eins og markmið ríkisstjómarinnar
er og þetta frumvarp væri verulega
stórt upphafsskref. Hins vegar
hefðu menn gjaman viljað sjá
meira aðhald á útgjöldum en heild-
amiðurstaðan væri mjög viðun-
andi.
Verðlagsráð kærir
auglýsingar Sólar
VERÐLAGSRÁÐ ákvað á fundi
sinum í gærdag að leggja fram
kæru á hendur fyrirtækinu Sól
hf. Telur ráðið að auglýsing um
fundarlaun fyrir gosdós bijóti í
bága við lög um óréttmæta við-
skiptahætti og neytendavernd.
Sól hefur að undanfömu auglýst
eftir dós af gosi með framleiðslunúm-
erinu 1.000.000. Finnanda er heitið
eitthundrað þúsund króna verðlaun-
um. Að mati verðlagsráðs er ekki
leyfílegt að auglýsa vöru með þessum
hætti.