Morgunblaðið - 24.10.1987, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR OG LESBÓK
Fjárlagahallinn í Baiidaríkjunum:
Reagan ræðst gegn
bruðli þingmanna
New York, Washington, London, Reuter.
RONALD Reagan Bandaríkjaforseti gagnrýndi í gœr þingmenn fyr-
ir að vilja koma á skattahækkunum og sakaði þá um að vilja rétta
fjárlagahalla Bandaríkjanna af með þeim hætti í stað þess að skera
niður útgjöld. Kom þessi yfirlýsing á óvart því tæpum sólarhring
áður hafði Reagan lýst sig reiðubúinn til viðræðna við þingmenn
um leiðir til að draga úr fjárlagahallanum. Hlutabréf á verðbréfa-
markaðinum i New York hækkuðu í verði í gær og telja sérfræðingar
að það megi að hluta til rekja til yfirlýsingar Reagans á blaðamanna-
fundi á fimmtudag.
Howard Baker, starfsmanna-
stjóri Hvíta hússins, sagði í gær að
hann væri vongóður um að forset-
inn og þingmenn myndu ná
samkomulagi um leiðir til að draga
úr fjárlagahalla ríkissjóðs í næstu
viku. Er almennt talið að Reagan
neyðist til að samþykkja einhveijar
skattahækkanir sökum þessa.
Sérfræðingar á verðbréfamark-
aðinum í Wall Street í New York
voru sammála um að stöðugleiki
••
Oldungadeild-
in hafnar Bork
væri aftur að komast á í hlutabréfa-
viðskiptum. Dow-Jones-verðbréfa-
vísitalan hækkaði um 20 stig. Hins
vegar féll Bandaríkjadollar gagn-
vart mörgum helstu Evrópumynt-
um á gjaldeyrismörkuðum í Evrópu
og Japan og voru sérfræðingar al-
mennt þeirrar skoðunar að staða
dollars yrði veik þar til fjárlagahall-
inn hefði verið réttur af og töldu
þeir yfirlýsingar Reagans ekki
sannfærandi. Hlutabréf lækkuðu
einnig I verði á verðbréfamörkuðum
í Evrópu og Asíu.
Sjá einnig „Engin merki
um. . . “ á bls. 30.
Reuter
Táknræn kjarabarátta
Slökkviliðsmenn í Brttssel, höfuðborg Belgiu,
lögðu eld í sorphaug á götu einni í miðborginni
í gær til að leggja áherslu á kröfur sínar um
kauphækkanir. Ennfremur telja þeir brýnt að
slökkviliðsmönnum verði fjölgað og tækjabúnað-
ur bættur. Slökkviliðsmennirnir slökktu að
sjálfsögðu eldinn áður en þeir sneru á ný til
skyldustarfa sinna.
Washington, Reuter.
LÍKT og búist hafði verið við
hafnaði öldungadeild Bandarikja-
þings { gær tilnefningu Roberts
Bork til embættis dómara hæsta-
réttar. 42 þingmenn studdu Bork
en 58 greiddu atkvæði gegn hon-
um.
Fjórir mánuðir eru nú liðnir frá
því Ronald Reagan Bandaríkjaforseti
útnefndi Bork til embættisins. Hafði
forsetinn lýst Bork manna hæfastan
til að gegna starfi þessu og er þetta
talið nokkuð áfall fyrir forsetann þó
svo að lengi hafi verið ljóst að þing-
menn myndu ekki fallast á skipun
hans.
Afvopnunarviðræður risaveldanna:
Sovétmenn selja ný skil-
yrði fyrir leiðtogafundi
Sovétríkin:
íhuga að
birta ljóð
Brodskýs
Moskvu, Reuter.
TALSMAÐUR sovéska utanríkis-
ráðuneytisins skýrði frá því í gær
að ritstjórar bókmenntatímarits-
ins Novy Mir hefðu i hyggju að
birta úrval ljóða eftir rússneska
ljóðskáldið Josef Brodský, sem á
fimmtudag var sæmdur bók-
menntaverðlaunum Nóbels.
Fram að þessu hafa ritstjórar
sovéskra bókmenntatímarita
hundsað skáldskap Brodskýs en
honum var vísað úr landi árið 1972
eftir að hafa verið vistaður í vinnu-
búðum vegna baráttu sinnar fyrir
andlegu frelsi 5 Sovétríkjunum.
Tvö sovésk tímarit birtu í gær
greinar þar sem menningarlegri
stöðu Stalín-tímabilsins er lýst. í
grein í mánaðarritinu Znamya var
Andrei Zhdanov, einn nánasti að-
stoðarmaður Jósefs Stalín, for-
dæmdur fyrir að hafa komið í veg
fyrir að hæfileikamenn fengju að
njóta sín sem hefði leitt til „andlegr-
ar stöðnunar" og orsakað þjóðfél-
agslega hrömun.
Sjá ennfremur forystugrein
og grein á miðopnu blaðsins.
Moskvu, Reuter.
Utanríkisráðherrum risaveld-
anna tókst ekki að ganga frá
lokadrögum samkomulags um
upprætingu meðal- og skamm-
drægra kjarnorkuflauga á fundi
þeirra í Moskvu sem lauk í gær.
Stefnt hafði verið að því greiða
úr ágreiningsefnum varðandi
samning þennan svo og að
ákveða dagsetningu næsta leið-
togafundar. Það tókst ekki
heldur og sagði George Shultz,
utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, að svo virtist sem
Mikhail Gorbachev væri enn ekki
tilbúinn til að eiga fund með
Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seta. Eduard Shevardnadze,
utanrikisráðherra Sovétrikj-
anna, sagði að fyrir yrðu að
liggja drög að samkomulagi um
geimvarnir og langdrægar eld-
flaugar áður en leiðtogarnir
kæmu saman til fundar að nýju.
Shultz boðaði til blaðamanna-
fundar í Moskvu áður en hann hélt
til Briissel til að skýra embættis-
mönnum aðildarríkja Atlantshafs-
bandalagsins frá gangi viðræðn-
anna. Shultz gaf til kynna að
Sovétstjómin vildi að fyrir lægju
drög að samkomulagi um fækkun
langdrægra kjaraorkuflauga á landi
og geimvamir áður en boðað yrði
til næsta leiðtogafundar. Shultz
þótti fremur brúnaþungur á fundin-
um og gat hann þess sérstaklega
að stefnt hefði verið að því að
ákveða dagsetningu næsta leið-
Frumvarp lagt fyrir Bandaríkjaþing:
Skyldubundið eftirlit með
sjávarafurðum tekið upp
PATRICK Leahy, formaður landbúnaðamefndar öldungadeildar
Bandarikjaþings, lagði í gær fram frumvarp um skyldubundið eftir-
lit með matvælum. Leahy kynnti frumvarpið á blaðamannafundi i
Washington i gær og sagði að í frumvarpinu væri kveðið á um að
allur fiskur og skelfiskur, sem seldur er f Bandaríkjunum, verði
skoðaður og athugað hvort i honum finnist ormar eða sníklar.
Framvarpið nær einnig til inn-
flutts fisks, enda era aðeins 40
prósent fisks, sem neytt er i Banda-
ríkjunum, veidd heima fyrir.
Samtök 20 neytendasamtaka hafa
um nokkurt skeið þrýst mjög á
Bandarikjaþing um að innleiða
skyldubundið eftirlit með sjávaraf-
urðum til manneldis. Barátta
samtakanna hófst vegna fullyrð-
inga um að aukin mengun í hafi
og skaðlegir sýklar í físki gætu
valdið alvarlegum sjúkdómum.
í frumvarpinu, sem búast má við
að Bandaríkjaþing samþykki eftir
þijá til sex mánuði, segir að banda-
ríska viðskiptaráðuneytið skuli hafa
yfiramsjón með áætlun um að
greina skaðvænlega sýkla með þvi
að taka sýni úr físki eftir tölfræði-
legum aðferðum.
Til þessa hafa engar reglur gilt
um eftirlit með sjávarafurðum, sem
seldar era til manneldis í Banda-
ríkjunum en árlega neyta Banda-
ríkjamenn 1,5 milljóna tonna af
fiski.
Framvarpið fer fyrir nefndir
bæði öldunga- og fulltrúadeildar og
verður að lokum afgreitt af báðum
deildum sameiginlega.
togafundar en það ekki tekist. Hann
hitti Gorbachev að máli og sagði
Shultz að Sovétleiðtoginn hefði full-
vissað sig að hann vildi eiga fund
með Reagan í Bandaríkjunum á
þessu ári, reyndist það mögulegt.
Shultz lagði áherslu á að nokkuð
hefði miðað í samkomulagsátt varð-
andi útrýmingu meðal- og skamm-
drægra kjamorkuflauga á landi en
utanríkisráðherramir náðu bráða-
birgðasamkomulagi um flaugar
þessar á fundi í Washington í
síðasta mánuði. Sagði hann að þau
ágreiningsefni sem enn væra óleyst
vörðuðu einkum eftirlitsþáttinn.
Staðfesti hann einnig orðróm þess
efnis að lagðar hefðu verið fram
nýjar tillögur um fækkun lang-
drægra kjamorkuflauga
Shevardnadze tók einnig til máls
á blaðamannafundinum og sagði
hann að ágreiningurinn hefði eink-
um varðað geimvopn og takmark-
anir við gagneldflaugakerfum en
stórveldin gerðu með sér samkomu-
lag í þá vera árið 1972. „Mér þykir
leitt að þurfa að skýra frá því að
bandaríska sendinefndin var ekki
tilbúin til að eiga uppbyggilegar
viðræður um þetta atriði," sagði
hann. Bætti hann því við að Sovét-
menn væra eftir sem áður reiðubún-
ir til að fallast á útrýmingu meðal-
og skammdrægra flauga þrátt fyrir
þetta en það samkomulag yrði þá
ekki undirritað á fundi leiðtoga risa-
veldanna heldur á öðrum vettvangi.