Morgunblaðið - 24.10.1987, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 24.10.1987, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1987 fclk í fréttum Israel Sylvester Stallone í vandræðum Stallone og Ijós- hærði engillinn hans. Nýjustu fregnir frá ísrael herma að Sylvester Stallone eigi í vandræðum með gerð þriðju myndar sinnar um hinn drápsglaða Rambó. Þegar tvær vikur voru liðn- ar af tökum var myndin þegar á eftir áætlun og Stallone var síður en svo ánægður með bútana sem teknir höfðu verið. Sagði hann að þeir væru alls ekki eins og hann hefði hugsað sér og rak leikstjórann Russel „Hálending" Mulchany með það sama. Við leikstjóminni tók aðstoðarkvikmyndatökustjóri myndarinnar. Til að haida sér í formi á meðan Rambó skundar ( sturtu ásamt fylgdarliði, hvar er friðhelgi ein- kalifsins? COSPER — Mér er óskiljanlegt hversvegna svona margir fara til Noregfe á skíði. tökum stendur hleypur hetjan okkar 10 kílómetra daglega, lyftir lóðum og fer fimm sinnum í sturtu á dag. Honum fylgja 10 lífverðir og einn skotheldur sjúkrabíll með birgðum af blóði hans sjálfs ef svo illa vildi til að hann meiddi sig. Utan við þetta allt saman bíður svo nýja vinkonan hans, Kathy Lyn Davis, en hún á sér enn dekkri fortíð en sjálf Brigitte Stallone. Kathy þessi, sem er aðeins 21 árs, er dæmdur kókaínsmyglari. Hún var dæmd fyrir að dreifa ólöglegum eiturlyfjum með aðstoð síma á síðasta ári, en var látin laus gegn skilorði. Síðan þá hefur hún búið í París, þar sem hún starfaði sem fyrirsæta, þar tii Stallone elti hana uppi og fékk hana til að koma með sér til ísrael. Hann ku ekki haft grun um fortfð sinnar heittelskuðu lengi framan af, þar sem hún þorði ekki fyrir sitt litla líf að segja hon- um sem var. Hann tjáði vinum sínum að hún væri bæði blíð og góð, en hvort það stendur enn, nú þegar hann hefur fengið fréttimar, þorir Fólk ( fréttum ekki að ábyrgj- ast. Hrekkjalómafélagið,„myndarlegustu“ ungmenni norðan Alpafjalla. Vestmannaeyjar: ísútsala ársins í Eyjum Hrekkjalómafélagið með hrekkjar- bragð Vestmannaeyjuin. Hrekkjalómafélagið { Vest- mannaeyjum hóf hauststarf sitt nú fyrir skemmstu, að sjálf- sögðu með því að hrekkja. Halli í Turninum (Haraldur Þ. Þórar- insson) var hrekktur og fólst hrekkurinn í þvi að auglýsa ísút- sölu í sjoppu Halla. Hrekkjalóm- arnir sturtuðu siðan sex tonnum af flöguís fyrir framan dymar á sjoppunni og var salan að vonum góð enda kostaði ísinn ekkert. Voru flestir ánægðir með útsölu þessa, nema kannski Halli. íslenskur „húmor" byggist eins og margir vita á því að gera grín að náunganum og helst að hrekkja hann dálítið líka. í Vestmannaeyjum eru nokkrir peyjar á besta aldri sem eru ekkert feimnir við að stunda hrekki. Ekki bara það, heldur hafa þeir beinlínis sérhæft sig í slíkri iðju og stofnað Hrekkjalómafélag Vestmannaeyja. Hafa menn þurft að sýna að þeir séu meira en meðal-hrekkjusvín til þess að komast í félagið. Eins og nafn félagsins gefur til kynna er tilgangur félagsins að stuðla að og stunda hrekki. Hrekkja meðlimir hvem annan og svo bregður við að aðrir verði fyrir barðinu á þeim. Segir hér af þeirra nýjasta hrekk. U ndirbúningnr Viku áður en hrekkja átti, birtist tilbúin neytendakönnun í blaðinu Fréttum í Eyjum. Var þar gerður verðsamanburður á ís í Tótatumi annarsvegar og hjá ísstöðinni og einu frystihúsanna hinsvegar. Verð- könnunin kom að vonum illa út fyrir Tótatum, enda selur hann ís í eins kílóa pokum (selskapsís) en hinir ís í tugum tonna mælt, í báta. En þetta var nú að sjálfsögðu ekki tekið fram í könnuninni. Hrekkurinn Laugardaginn eftir verðkönnun- ina létu svo Hrekkjalómar auglýsa fsútsölu ársins í Eyjum. Og auðvitað auglýstu þeir að útsalan yrði í Tóta- tumi og þar yrði ákaflega ódýran ís að fá. Klukkan fimm síðdegis þegar útsalan átti að hefjast sam- kvæmt auglýsingunni kom einn af Hrekkjalómunum akandi vömbif- reið, hlaðinni sex þúsund kflóum af fýrsta flokks flöguís. Gerði hann sér lítið fyrir og sturtaði ísnum fyr- ir innganginn á Tótatumi. Aðrir hrekkjalómar fylgdu fast á eftir, grófu geil f ísinn þannig að fólk kæmist inn og settu upp auglýs- ingaspjöld um ísútsöluna. Margt manna fylgdist með undir- búningi og framkvæmd útsölunnar og höfðu gaman að. ísinn gekk vel út enda ókeypis. Töldu margir að Halli í Tuminum hefði nú gert svo vel við bæjarbúa að fyrirgefa mætti fyrri verðlagn- ingu á selskapsfs. Hrekkurinn sá verri Halli í Tuminum hringdi strax í lögregluna og krafðist þess að öku- maður ísbflsins yrði handtekinn og settur í tukthúsið. Kom lögreglan að vörmu spori og gerði sem Halli krafðist og var ökumanninum stungið inn, enda bannað að sturta niður ís á al- mannafæri. Þetta þótti Hrekkjalómum alveg frábært hjá Halla. Var hann með það sama innlimaður í Hrekkja- lómafélagið. Þótti sá hrekkur sýnu verri en hinn fyrri. Já, þeir láta svona sumir í Eyjum. - bjami. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Útsalan gekk vel enda verðið lágt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.