Morgunblaðið - 24.10.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.10.1987, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1987 ítrekað að dagskrá sjón- varps verði ekki of löng Útvarpsstjóri segir ljóst að þrengt verði að rekstrinum „ÉG hef itrekað þau markmið að stefna beri að þvi að dagskrá sjón- varps ljúki ekki síðar en kl. 22.30 virka daga, enda höfum við nú fjárlagafrumvarp og af þvi er ljóst að þrengt verður að rekstri Rikisútvarpsins, nái það fram að ganga óbreytt,“ sagði Markús Örn „ÞAÐ er nú verið að vinna að því að sameina íþróttadeildir sjón- varps og útvarps og munu stíirfs- menn vinna jöfnum höndum að fréttum fyrir báða fjölmiðlana," sagði Markús Örn Antonsson, út- varpsstjóri. Markús sagði, að sameining deild- anna hefði verið til umræðu lengi. „Nú eru hugmyndir um sameining- una fullmótaðar og mun Rúnar Gunnarsson hafa umsjón með Antonsson, útvarpsstjóri. Hann hefur sent starfmönnum sjón- varpsins bréf, þar sem þessi stefna er ítrekuð. Markús sagði, að á föstudögum ætti að stefna að því að dagskrá sjón- varps lyki um miðnættið og á henni," sagði hann. „Rúnar hefur áður stjómað útsendingum á íþrótta- þáttum sjónvarps. Starfsmenn verða áfram hinir sömu, en munu nú ganga á milli miðlanna. Þannig getur fólk átt von á að heyra í Bjarna Felixsyni í útvarpi og sjá Samúel Öm Erlings- son á skjánum. Ég er þess fullviss að með þessu nýja fýrirkomulagi verður til dæmis umfjöllun miðlanna tveggja um stórleiki og mót sam- ræmdari en áður hefur verið." laugardögum ekki síðar en kl. hálf eitt um nóttina. „Við höfum fylgt þessari stefnu og ég taldi ástæðu til að árétta hana,“ sagði hann. „Það hefur komið iðulega fyrir síðustu vik- ur að dagskrá sjónvarps virka daga standi fram yfír miðnætti, en það kom fram í fjölmiðlakönnun Félaesví- sindastofnunar að fáir horfa á sjónvarp svo síðla kvölds. Nú emm við að búa okkur undir að gera dag- skráráætlun fyrir fyrstu mánuði næsta árs og af fjárlagafrumvarpi er ljóst, að við verðum að draga sam- an frá síðustu vikum." Markús var inntur eftir því hvort tímamörk þessi væru ekki í andstöðu við samkeppni sjónvarpsins við Stöð 2. „Nei, alls ekki, við höfum enga ástæðu til að hlaupa upp til handa og fóta og hafa dagskrá fram á nótt, því áhorfendur eru þá mjög fáir,“ svaraði hann. „Það er alls ekki höfuð- atriði að teygja útsendingartímann, heldur rejma fremur að bjóða upp á gott efni.“ Ríkisútvarp og sjónvarp: íþróttafréttir undir einn hatt VEÐUR I DAG kl. 12.00: Heimild: Veðurslofa Islands y j/ (Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær) VEÐURHORFUR I DAG, 24.10.87 YFIRLIT á hádegi í gær Um 30 kíiómetra norður af Melrakka- sléttu er minnkandi 1002 millibara lægð sem þokast norður en haeðarhryggur skammt vestur af landinu hreyfist austur. Skammt suður af Hvarfi er vaxandi 963 millibara lægð á leið norðaustur. Á morgun hlýnar ( veðri, einkum Noröanlands. SPÁ: í dag verður hvöss sunnan- og suðaustanátt með rigningu víða um land einkum á Suöur- og Vesturlandi. Síödegis snýst vind- ur til suðvesturs með skúrum suðvestanlands. Hiti 6—10 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA SUNNUDAGUR OG MÁNUDAGUR: Suðlæg átt. Skúrir eða slyddu- él um sunnan- og vestanvert landið en þurrt að mestu norðaustan- lands. Hiti 2—4 stig vestantil á landinu en 6—7 stig austantil. •á -á _ , x Norðan, 4 vindstig: 10 1 Hitastig: rv; ' Vindörin sýnir vind- 0 gráður á Celsíus Heiðskirt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður • V Skúrir er 2 vindstig. ' y Él Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka / / / — Þokumóða Hálfskýjað * / * 5 Súld Skýjað / * / * Slydda / * / oo Mistm * * * 4 Skafrenningur Alskýjað * * * * Snjókoma * * * R Þrumuveður xn. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl vsftur Akureyrl 4 rlgnlng Reykjavik 4 léttakýjað Bergen 7 rignlng Helslnki 4 hálfskýjað Jan Mayen 4 þokumóða Kaupmannah. 11 þokumóða Narasaraauaq 7 skúr Nuuk 0 snjókoma Osló 7 alskýjað Stokkhólmur 8 rignlng Þórshöfn 8 lóttskýjað Algarvo 18 léttskýjað Amsterdam 12 mlatur Aþena 12 Barcelona 20 akýjað Beriín 11 skýjað Chlcago +1 helðsklrt Feneyjar vantar Frankfurt 11 alskýjað Glasgow 8 reykur Hamborg 8 þokaás.klst. Las Palmas vantar London 10 mlstur Los Angeles 18 Mttskýjað Lúxemborg 8 rignlng Madrid 13 •kýjeð Malaga 21 alskýjaö Mallorca 24 léttskýjað Montreal 2 rignlng NewYork 11 skýjað Paris vantar Róm vantar Vín 12 mlstur Washlngton 8 léttskýjað Wlnnipeg +1 snjókoma Ohugnanlegar mynd- ir í tyggjópökkum VERSLANIR í Reykjavík sejja nú sumar hverjar tyggjópakka, sem innihalda, auk tuggnnnar, myndir sem börn safna. Myndir þessar þykja heldur ógeðslegar og hafa sumir verslunareigend- ur neitað að sejja pakkana. Á öllum myndunum eru teikn- ingar af bömum, sem kallast „mslafötubömin" (garbage pail kids). Sem dæmi um myndir þess- ar má nefna að á einni sést drengur, sem er útbúinn eins og kvikmyndahetjan Rambó, eða með alvæpni. Á annarri hefur telpa lagt höfuðið á höggstokk og þriðja myndin sýnir „klikkaða Lenny“, sem er froðufellandi og í spennitreyju í bólstmðu her- bergi. Ekki minnkar óhugnaður- inn þegar mynd, sem er númemð 5b, er skoðuð. Þar er fremur óynd- isleg vera að krafla sig upp úr gröf í kirkjugarði. Miðað við upp- lýsingar, sem koma fram á einu spjaldanna, em til 82 mismunandi útgáfur af þeim. Þau em upp- mnnin í Bandaríkjunum og em allar áletranir á þeim á ensku. Aftan á spjöldum þessum era eins konar eyðublöð, sem bömin geta ritað nafn sitt á. Þar með hafa þau öðlast rétt til að „aka bifreið eins og bfyálæðingur", svo dæmi sé tekið. Á því eyðublaði segir meðal annars: „Þetta skírteini veitir þér rétt til að aka á gangstéttum til að forðast um- ferð, til að aka viðstöðulaust framhjá stöðvunarskyldumerki, svo framarlega sem þú þeytir flautuna, til að aka á bifreið með léiegum hjólbörðum að því til- skyldu að þú sért viss um að hemlamir séu lélegir, og til að aka yfir vindubrú þegar hún er uppi.“ Ólíklegt er að lögreglan, sem nú gerir sérstakt átak til að reyna að bæta umferðina, telji slíkt akst- urslag til fyrirmyndar. Smábögglar með hassi STARFSMENN ffkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavik hand- tóku á fimmtudag fólk, sem varð uppvíst að því að smygla hassi til landsins. í póstmiðstöðinni við Ármúla í Reykjavík vöktu tveir bögglar at- hygli starfsmanna. í öðmm þeirra reyndust vera 40 grömm af hassi og handtók lögreglan eigandann, konu, á heimili hennar. í hinum pakkanum vom tæp 10 grömm af hassi og var eigandi þess handtekinn þegar hann vitjaði pakkans. Bæði konan og mað- urinn hafa áður komið við sögu hjá fíkniefnalögreglunni. Mál þeirra em upplýst að fullu. Að sögn lögreglu er algengt að fíkniefni séu falin í smábögglum og send til landsins. Oft er þá magn efnisins í minna lagi. Ný skáldsaga eftir Svövu Jakobsdóttur BÓKAÚTGÁFAN Forlagið hefur sent frá sér nýja skáldsögu efdr Svövu Jakobsdóttur sem nefnist Gunnlaðar saga. Þetta er önnur skáldsaga Svövu en „Leigjandinn" kom út árið 1969 og auk þess hafa á liðnum árum komið frá henni smásagnasöfn og leikrit. Um efni Gunnlaðar sögu segir m.a. á kápubaki: „Ung íslensk stúlka er tekin höndum í Þjóðminjasafni Dana þar sem hún stendur við brot- inn sýningarglugga með forsögulegt gullker í höndunum — þjóðardýrgrip sem á engan sinn líka í veröldinni. Móðir stúlkunnar fer til Kaupmanna- hafiiar. Skýringar dótturinnar á verknaðinum hrinda af stað óyæntri atburðarás svo að dvöl móðurinnar verður önnur en hún hugði. Ekki einasta kynnist hún óvenjulegu fólki og framandi umhverfí heldur verður ferð hennar jafnframt leiðangur í forsögulegan tíma þar sem hún er leidd inn í goðsöguna um Gunnlöðu sem gætti skáldskaparmjaðar- ins . . . Þetta er í senn saga um ást, svik, trúnað, sekt og sakleysi — Svava Jabsdóttir saga um mátt skáldskaparins til að snúa heimi af helbraut og hefla nýj- an óð til Iffsins . . .“ Gunnlaðar saga er 196 bls. og unnin í Prentsmiðjunni Odda hf. Ragnheiður Kristjánsdóttir hjá AUK hf. hannaði kápu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.