Morgunblaðið - 24.10.1987, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1987
Tónlistarfélagið:
Sinfóníujazzkvintettmn leikur
jazz með síðdegiskaffinu
FYRSTU tónleikar Tónlistarfé-
lagains á Akureyri á þessu
starfsári fara fram í Alþýðuhús-
inu á morgun, sunnudag, kl.
16.00. Tónleikaniir verða í Svart-
fugli á fjórðu hæð og er það
Sinfóniigazzkvintettinn sem leik-
ur léttan iazz. Jafnframt verður
boðið upp á kaffiveitingar.
Félagamir f Sinfóníujazzkvintett
hófu leik saman fyrir tæpu ári.
Hljómsveitin var stofnuð fyrir hálf-
gerða tilviljun á jólaglöggi Sinfóníu-
hljómsveitarinnar að loknum
fimmtudagstónleikum, en þá léku
félagamir saman í fyrsta sinn, seg-
ir í fréttatilkynningu um tónleikana.
Hópurinn hefur haldið saman síðan
og komið víða fram, meðal annars
á alþjóðlegri ráðstefnu IBM, sem
haldin var á Hótel Sögu.
í Sinfóníujazzkvintettinum em
Martial Nardeau flautuleikari,
Szymon Kuran fiðluleikari, Reynir
Sigurðsson vibrafon- og marimba-
leikari, Þórður Högnason kontra-
bassaleikari og Ami Áskelsson
trommuleikari. Þeir félagar ætla
að leika íslensk og erlend lög, allt
frá Jóni Múla til Dave Bmbeck,
segir í frétt Tónlistarfélagsins. |
Sinfóníujazzkvintettinn
Morgunblaðið/GSV
Harður árekstur varð á mótum Gránufélagsgötu og Glerárgötu.
Stal bíl og velti
BÍLVELTA varð um klukkan 5
f gærmorgun norðarlega á
Hlíðarbraut á Akureyri. Öku-
maðurinn hafði stolið bilnum
af stæði við Geislagötu, en hann
er í eigu fyrirtækis þar. Grunur
leikur á að um ölvun hafi verið
að ræða og einnig leikur grun-
ur á að sami ökumaður hafi
keyrí; á kyrrstæðan bíl í
grenndinni.
Bíllinn er af gerðinni Subam
Station árgerð 1981 og er hún
talin ónýt. Um hádegi í gær var
búið að hafa upp á ökumanninum,
samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu. Farið var fyrst með hann
á Fjórðungssjúkrahúsið þar sem
hann kvartaði um meiðsl, en síðar
áttu yfirheyrslur að hefjast.
Á fímmtudaginn varð harður
árekstur á mótum Gránufélags-
götu og Glerárgötu. Bifreiðamar
em mikið skemmdar, en engin
meiðsl urðu á fólki.
Morgunblaðið/Rúnar Antonsson
Frá hægri: Magnús Sigurólason og Þráinn Bijánsson frá leikklúbbnum Sögu og þeir Joachim Clausen
og Henrik Veileborg frá danska áhugamannaleikhúsinu Ragnarock.
Áhugamannaleikhús á Norðurlöndum:
Undirbúa sameiginlega
leikför um Norðurlöndin
Morgunblaðið/GSV
Eliat B Halldórsson við eitt
verka sinna.
Gamlí Lundur:
ELÍAS B. Halldórsson myndlist-
armaður opnar sýningu í Gamla
Lundi á Akureyri f dag kl. 16.00.
Á sýningunni eru um 40 verk,
bæði abstrakt og hlutlæg.
„Ég mála alltaf svona sitt lítið
af hvom til að láta formin nærast
hvort af öðm. Hættulegast finnst
mér þegar málarar fara að stæla
sjálfa sig enda verða þá myndimar
allar eins,“ sagði Elías í samtali við
Morgunblaðið. Þetta er áttunda
FJÓRTÁN fulltrúar áhuga-
mannaleikhúsa á öllum Norður-
löndunum koma saman í
Dynheimum á Akureyri á morg-
un kl. 14.00 til að undirbúa
sýning hans á Akureyri. „Ég er
hvorki héðan né hef búið hér, en
mér líkar vel við Akureyringa og
fæ yfírleitt góðar móttökur hér.“
Elías fór á sínum yngn ámm í
Myndlista- og handíðaskólann og
síðan hélt hann til Stuttgart í fram-
haldsnám og þá í akademíuna í
Kaupmannahöfn.
Sýningin verður opin daglega
fram til 1. nóvember kl. 18.00 til
22.00 virka daga og kl. 14.00 til
20.00 laugardaga og sunnudaga.
sameiginlega leikferð um Norð-
urlöndin sumarið 1989. Samskon-
ar ferð var farin sumarið 1985
og eftir þá ferð var ákveðið að
stefna að endurtekningu slfks
samstarfs að fjórum árum liðn-
um.
Eitt áhugamannafélag frá hveiju
Norðurlandanna tekur þátt í sam-
starfinu og af hálfu íslands er það
akureyrski leikklúbburinn Saga, en
nú em liðin ellefu ár síðan sá klúbb-
ur var stofnaður af Æskulýðsráði
Akureyrar. Magnús Sigurólason,
umsjónarmaður Fenris á Islandi, en
svo kallast þetta norræna samstarf
og þýðir úlfur í norrænni goðsögn,
sagði í samtaii við Morgunblaðið
að tilhögun verkefnisins árið 1985
hefði gengið þannig til að hvert
land hefði fengið ákveðið þema til
að vinna með. Þau vom: lffið, nátt-
úran, draumar, raunvemleiki og
dauði og fengu íslendingamir
manneskjuna í sinn hlut. „Þetta
gekk mjög vel og tóku alls um 90
manns þátt í starfínu frá íslandi,
Svíþjóð, Færeyjum og Danmörku.
Nú bætast hinsvegar Noregur og
Finnland við og má þá búast við
að minnsta kosti 120 manns í það
heila."
Á fundinum á morgun verður
væntanlega ákveðið hvaða þema
verða tekin fyrir. „Þetta samstarf
eflir mjög samskipti ungs fólks á
Norðurlöndunum. Við reiknum með
um sex vikum í sýningarhaldið og
reynum að komast frá þessu á eins
ódýran hátt og mögulegt er. Við
fáum styrki frá ýmsum norrænum
sjóðum, auk þess sem KEA, SÍS,
ríkið og Akureyrarbær hafa styrkt
okkur. Ferðakostnaður fyrir hópinn
síðast kostaði okkur 500.000 krón-
ur danskar, en af því fór helmingur-
inn í farið til íslands. Hinsvegar
búum við í heimahúsum félaga okk-
ar í hverju landi og því er lítill sem
engin uppihaldskostnaður þessu
samfara," sagði Magnús.
í Sögu eru rúmlega 30 unglingar
á aldrinum 15 til 23 ára og fer starf-
semi klúbbsins fram í Dynheimum.
Leiklistamámskeið hefst þar 5. nóv-
ember og mun Pétur Einarsson
leikhússtjóri leiðbeina. Leikklúbbur-
inn Saga mun sýna tvö verk á þessu
leikári. Fyrir jól verður „Hinn eini
sanni seppi" eftir Tom Stoppard
tekið upp, en það er sakamálaleik-
rit í léttum dúr. Ekki er endanlega
ákveðið hvaða verk verður tekið til
æfinga eftir jól, en að öllum líkind-
um verður það stærsta verk klúbbs-
ins til þessa, að sögn Magnúsar.
Hann sagði að mikill kraftur væri
nú kominn í starfsemina eftir frek-
ar dauðan tíma undanfarið. Á
síðasta leikári sýndi klúbburinn tvö
verk, Smámyndir eftir Helga Má
Barðarson, einn af stofnendum leik-
klúbbsins, og Pældíðí eftir þýska
leiksmiðju, sem fannst tími til kom-
in að gera fræðsluleikrit um kynlíf
unglinga. Þá setti Saga upp götu-
leikhús í tilefni af 125 ára afmæli
Akureyrarbæjar í lok ágúst.
Leiðréttíng
Þau mistök urðu í vinnslu
blaðsins í gær að röng mynd var
sett inn á Akureyrarsíðu og er
beðist velvirðingar á því.
Rétt mynd átti að vara af Har-
aldi Sumarliðassyni forseta land-
sambands Iðnaðarmanna við
setningu Iðnþings íslendinga, en í
stað þess birtist mynd af Gunnari
Ragnars í ræðustól á Iðnþingi.
Elías B. Halldórs-
son opnar sýningu