Morgunblaðið - 24.10.1987, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1987
7
Samskiptamál
innan ríkis-
stíórnar rædd
FORMENN r ikisstj ómarflok-
kanna ræddu um samskiptamál
innan stjórnarinnar á stuttum
fundi fyrir ríkisstjómarfund á
fimmtudag. Einnig var málið
tekið upp á ríkisstjómarfundin-
um og verður í framhaldi af því
rætt í þingflokkunum. Ástæðan
er yfirlýsingar sem einstakir
stjómarþingmenn hafa gefíð í
fjölmiðlum um ýmis mál undan-
fama daga.
Þorsteinn Pálsson forsætisráð-
herra sagði við Morgunblaðið að
síðustu daga hefðu ýmis mál borið
þannig upp að ekki gæti samrýmst
góðri skipan á stjómarheimilinu.
Þannig hefðu stjómarþingmenn
gefið út yfirlýsingar í fjölmiðlum
sem væru ekki hollar fyrir stjómar-
samstarfið.
Þorsteinn sagði flokksformenn-
ina ekki hafa séð nein efiiisleg rök
fyrir að brestur væri í stjómarsam-
starfínu og þvf ástæðulaust að láta
einhver slys draga upp slíka mynd.
Forseti íslands og ríkisstjóra Þorsteins Pálssonar
Nánara sam-
starf björg-
unaraðila
í sjónmáli
JÓN Sigurðsson dómsmálaráð-
herra segist telja að skilningur
sé að aukast á nauðsyn nánara
samstarfs þeirra aðila sem sjá
um björgunarstöf hér á landi og
einnig sé mikilvægt að koma á
skipulegu björgunarsamstarfí
við nágrannalöndin við Norður-
Atlantshaf. Dómsmálaráðherra
mun í þessu sambandi kailað eft-
ir áliti nefndar sem unnið hefur
talsvert lengi að úttekt á björg-
unarmálum Landhelgisgæslunn-
ar.
Jón Sigurðsson sagðist í samtali
við Morgunblaðið vona að nánara
samstarf takist á næstunni milli
Landhelgisgæslunnar, Slysavama-
félagsins og björgunarsveita þess,
Flugmálastjómar, Almannavama
og björgunarmanna vamarliðsins
um skipulag björgunarstarfa hér.
Raunar þyrfti einnig að koma á
skipulegu björgunarsamstarfi við
nágrannalöndin við N-Atlantshafið
og koma fastara formi á tilkynn-
ingaskyldu og miðlun upplýsinga.
Þegar Jón var spurður álits á
kröfum sjómanna um að Land-
helgisgæslunni verði gert kleift að
eignast mun stærri og afkastameiri
björgunarþyrlu en nú er til, sagði
hann að slíkt væri ekki á döfinni
þó alltaf mætti bæta þann búnað
sem fyrir er. Hinsvegar væri björg-
unarhlutverk Gæslunnar verulega
stórt í heíISarmynd björgunarmála
hér á landi og sagðist Jón hafa
rætt þessi mál við forstjóra og flug-
menn Gæslunnar svo og sjómenn.
Einnig sagðist hann ætla að kalla
eftir áliti nefndar sem starfað hefði
í nokkur ár og á að §alla um skipu-
lag og hlutverk Landhelgisgæsl-
unnar.
Smygl finnst
í Hofsjökli
KOMIST hefur upp um smygl á
364 lítrum af áfengi úr Hofs-
jökli á ísafirði og í Bolungarvík.
Síðastliðinn þriðjudag komst upp
um verulegt smygl úr skipinu og á
fimmtudag fimndust að auki 112
lítrar af áfengi á ísafirði. Samtals
hafa því fundist 364 lítrar og hafa
þrír aðilar viðurkennt að hafa átt
áfengið. Þá hefur einn aðili viður-
kennt að hafa annast dreifíngu
smyglsins, meðal annars til
Reykjavíkur frá Bolungarvík.
Úrvals skíðaferðir í bestu skíðalönd Evrópu!
BADGASTEIN
í Austurríki
Badgastein er í Gastein dalnum, sem er
eitt kunnasta vetraríþróttasuœði Alpanna.
Badgastein er ekki aðeins þekktur fyrir
stórkostíegar skíðabrekkur heldur líka fyrir
heitar vatnsuppsprettur.
Petta tvennt, öðru fremur, gerir
Badgastein að draumastað þeirra sem vilja
endurnýja kraflana um leið ogþeirslaka á.
Skíðalöndin í Badgastein henta öllum,
jafnt byrjendum sem reyndum skíðagörp-
um.
Badgastein býður upp á fjölbreytta
dœgradvöl og fjölskrúðugt nœturlíf.
Við bjóðum Urvals gististaði við hæfi
hvers og eins.
Brottfarardagar: 23.jan. '88 - 2 vikur.
6. feb. ’88 - 2 vikur.
20. feb. ’88-2vikur.
Verð frá kr.
32.900
Innifalið í verði: Flugfar, akstur til og frá
flugvelli erlendis og gisting í tveggja manna
herbergi með morgunverði.
Bókaðu þig sem fyrst í skíðabrekkurnar
í Badgaslein.
í Frakklandi
Meribel er staðsett miðsvœðis í „Dölun■
um þremur,“ einu stœrsta skíðasvœði
heims, þar sem eru um 500 km afskíða-
brekkum og 200 lyftur.
Þar finnurþú allar tegundir afskíða-
brekkum m.a. sérstakar brekkur með
púðursnjó.
Snjórinn á þessu svœði helst alveg
einstaklega góður langt fram á vor.
íbúðahótelið sem við bjóðum heitir
Residences Orion og er i miðjum bænum
Meribel.
Þar hefurðu skíðalyfturnar nánast við
hóteldyrnar. í Meribel er fjölskrúðugt
nœturlíf, fjöldi veitingahúsa og diskóteka.
Brottför: 5. mars í 2 vikur.
2 í studio íbúð, verð kr.
45.414
39.360
3 í studio íbúð, verð kr.
Innifalið í verði: Flugfar, gisting og
flutningur til og frá flugvelli erlendis.
Renndu uið eða hringdu og fáðu nánari
upplýsingar.
Að sjálfsögðu bjóðum við líka ferðir til
þeirra skíðasvæða sem eru á vetraráœtlun
Flugleiða.
FERDASKRIFSTOFAN URVAL
- fólk sem kann sitt fag!
Pósthússtrœti 13 - Sími 26900