Morgunblaðið - 24.10.1987, Side 13

Morgunblaðið - 24.10.1987, Side 13
GAUKSI. MORGUNBLAÐH), LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1987 13 VERUM MEÐ í ÞJÓÐARÁTAKI ! 23., 24. og 25. október 1987. Þrír merkisdagar í sögu íslenskra sjóslysavarna. íiSii; Slysavarnafélag íslands var stofnað í ársbyrjun 1928 og hefur starfsemi þess markast af tveim meginþátt- um. Annars vegar af útbreiðslu- og fræðslustarfi um slysavarnir en hins vegar hefur félagið skipulagt al- hliða leitar- og björgunarstörf. Landinu er nú skipt í 10 umdæmi sem telja 94 slysavama- sveitir. Slysavarnafélag fslands hefur ávallt kappkostað að sinna öryggis- málum sjómanna. Um árabil veitti félagið nemendum sjómannaskólanna fræðslu um öryggis- mál en árið 1985 urðu þáttaskil er Slysavarnaskóli sjómanna var stofnaður og er miðstöð hans um borð í Sæbjörgu, sem áður var varðskipið Þór. í slys- avarnaskólanum eru meðal annars kennd björgunar- tækni, eldvarnir, skyndihjálp og „björgun með þyrlu“. Tilkynningaskylda íslenskra skipa tók til starfa í maí árið 1968 og var Slysavarnafélaginu frá upphafi falin skipulagning hennar og framkvæmd. Slysavarnafélagið starfrækir nú 46 skipbrotsmanna- skýli við strendur landsins. S~»*«a*5ssá jS Hraðbálar af þessari gerð eru aflmiklir og gefa mikla möguleika við erfiðar aðslœður. Fjölmargar sveitir Slysavarnafélagsins hafa brýna þörf fyrir slíka báta. Vitaskuld þarf mikinn og traustan búnað til þess að slysavarna- sveitir geti sinnt sínum margvís- legu verkefnum. Pörfin fyrír nýjan og betri björgun- arbúnað er víða brýn, því réttur búnaður getur skipt sköpum á örlagastund. Slys og óhöpp gera ekki boð á undan sér en máttur okkar felst í því að treysta vamarvegginn. Slysavamafélag íslands treystirþvíá stuðning þinn þessa merkisdaga. ÞESSIAUGLÝSING ER STYRKT AF SPARISJÓÐIKEFLAVÍKUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.