Morgunblaðið - 24.10.1987, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1987
47
Afmæliskveðja:
Ólafur Bjartdal
Þórðarson áttræður
Friðarhreyfing
islenskra kvenna
heldur landsfund
Sjötugur er í dag Ólafur Bjartdal
Þórðarson, Gyðufelli 2, Reykjavík.
Dætur, tengdasynir og bamaböm
færa honum hugheiiar ámaðaróskir
í tilefni dagsins.
„Oft er gott, það er gamlir
kveða." Þetta máltæki á vel við um
hann Ólaf okkar. Enginn kann bet-
ur að miðla unga fólkinu af þekk-
ingu sinni og reynslu. Um það geta
undirrituð borið vitni og einnig þau
ungmenni, sem þann leiðbeindi á
vinnustaðnum um áraraðir.
Ólafur er fæddur í Keflavík í
Ytri-Neshreppi, utan Ennis. Þaðan
fluttist hann bam að aldri til
Reykjavíkur, þar sem hann hefur
síðan búið. Framan af vann hann
verkamannastörf, en gerðist síðar
kjötiðnaðarmaður hjá Búrfelli hf.
Þar vann hann síðan þar til hann
lét af störfum, síðari árin verk-
stjóri. Ólafur hefur ætíð verið
einlægur baráttumaður fyrir starfs-
félaga sína og er heiðursfélagi í
Félagi kjötiðnaðarmanna og eflaust
hafa fáir verið betur að slíkum
heiðri komnir, svo mjög ber hann
hag félaga sinna fyrir bijósti.
Olafur er giftur Evu B. Bjama-
dóttur frá Reykjafirði við ísafjarð-
ardjúp. Hjónaband þeirra hefur nú
staðið í tæp 40 ár og hefur verið
einstaklega farsælt. Fátt er nota-
legra en að koma í heimsókn til
þeirra, njóta veitinga Evu, hinnar
ágætu húsmóður, og rabba við þau
hjónin um landsins gagn og nauð-
synjar. Þá fer Ólafur á kostum.
Hann er hafsjór af fróðleik um lið-
inn tíma og fundvís á samhengi
liðins tíma og atburða líðandi stund-
ar. Við, sem eigum að teljast
fullorðin, hlökkum alltaf til að heim-
sækja þau og um bömin er
nákvæmlega sama að segja. Ólafur
og Eva em nákvæmlega eins og
afí og amma eiga að vera.
í marga áratugi hafa ferðalög
um landið okkar verið þeirra helsta
áhugamál. Þau _eru ekki mörg
byggðu bólin á íslandi, sem þau
Ólafur og Eva hafa ekki heimsótt
einu sinni eða oftar og fáir kunna
betur að koma sér fyrir í tjaldi úti
á víðavangi en þau. Þau eignuðust
fyrsta bílinn meðan flestir vegir
landsins vom troðningar einir. Mjög
reynir á fararskjóta og ferðamann
Landsráð-
stefna her-
stöðvaand-
stæðinga
LANDSRÁÐSTEFNA Samtaka
herstöðvaandstæðinga verður
haldinn laugardaginn 24. októ-
ber að Hverfisgötu 105 i
Reykjavík.
Ráðstefnan hefst með aðalfund-
arstörfum kl. 10 fyrir hádegi. Að
loknu matarhléi um kl. 13.30 verða
stuttar framsögur um eftú starfs-
hópa. Gert er ráð fyrir að ráðstefn-
unni ljúki um kl. 17.
Um kvöldið verður opið hús í
Risinu Hverfísgötu 105 frá kl. 20
til 24.
við slíkar aðstæður, en þótt bfllinn
bilaði á lélegum vegum á heiðum v
uppi, spilltist í engu góða ferða-
skapið. Ólafur kunni til verka og
lagfæring fór fram, smá eða stór,
enda var þess ætíð gætt að hafa
meðferðis nauðsynlega varahluti og
verkfæri. Nú em vegimir betri og
bflamir einnig, enda em þau, enn
þann dag í dag, ódeig við að aka
um landið þvert og endilangt ef
þeim bíður svo við að horfa.
Vinargjöf skal virða og vel hirða.
Það að þekkja þau Ólaf og Evu er
vinargjöf og það er erfítt að lýsa
þeirri þakklætiskennd, sem við ber-
um í bijósti til þeirra. Kynnin af
þeim em okkur öllum ómetanleg.
Ólafur tekur á móti gestum í dag
á heimili dóttur sinnar á Búagmnd
1, Kjalamesi.
Lifðu heill.
Dætur, tengdasynir
og barnabörn.
FRIÐ ARHRE YFIN G íslenskra
kvenna heldur landsfund sinn í
Sóknarsalnum í Reykjavik, Skip-
holti 50a, í dag, laugardag 24.
október, kl. 14.00. Sá dagur er i
ár alþjóðlegur friðardagur, verð-
ur af þvi tilefni hringt öllum
kirkjuklukkum landsins á hádegi
ogþagnarstund kl. fimm siðdegis.
Sú hefð hefur skapast, að fá á
landsfund hreyfingarinnar gest til
að ávarpa fundinn. Hafa þeir ýmist
verið innlendir eða erlendir. Gestur
að þessu sinni verður Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti alþjóðlegra þing-
mannasamtaka, sem mikið hafa látið
afvopnunarmál til sín taka, m.a. með
sn. Friðarfrumkvæði sex þjóðarleið-
toga. Mun Ólafur flytja erindi um
efnið Afvopnunarsamningur stór-
veldanna, hvað svo? Hefst erindi
Ólafs kl. 17.19.
Áður munu sex konur úr friðar-
hreyfingunni segja frá ráðstefnum
og kynnisferðum erlendis um friðar-
og vamarmál. Ennfremur verður
rætt um starf hreyfingarinnar. Þann-
ig munu t.d. íslenskar konur taka
þátt f norrænni ráðstefnu kvenna í
Osló á næsta sumri sem haldin er
undir kjörorðunum jafnrétti, fram-
þróun, friður.
Landsfundurinn allur eða hluti
hans er öllum opinn, en konur sem
starfað hafa að ftnðarmálum eru sér-
staklega hvattar til að mæta.
DAIHATSUjjCHARADE
3JA KYNSLÓÐIN SLÆR ÖLL SÖLUMET
Eftirspurnin eftir þessum glæsilegu og skemmtilegu bílum frá DAIHATSU hefur nú slegið öll met og
síðasta sendingin, um 80 bílar, seldist upp nær samdægurs.
Við eigum von á næstu sendingu um mánaðamótin,
og bendum á að hækkunin á CHARADE er sáralítil.
DAIHATSU CHARADE
hefur síðastliðinn áratug verið fyrirmynd annarra bifreiðaframleiðenda í hönnun
sparneytinna, öflugra og hagnýtra fjölskyldubifreiða.
DAIHATSU CHARADE
er í fremstu röð hátæknibifreiða af minni gerð
og á einstaklega hagstæðu verði:
DAIHATSU CHARADE:
ÚRVALS VARAHLUTA- OG VERKSTÆÐISÞJÓNUSTA
GULLTRYGGIR HAGSTÆÐA FJÁRFESTINGU.
Aldrei glæsilegra úrval af notuðum DAIHATSU til sölu.
Vegna mikillar sölu á nýjum bílum fáum við daglega inn sér-
lega góða, notaða bfla í skiptum.
DAIHATSUUMBOÐIÐ, Ármúla 23, s. 685870 - 681733.