Morgunblaðið - 24.10.1987, Síða 52

Morgunblaðið - 24.10.1987, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1987 Bjarni Pálsson frá Hlíð-Minning Fæddur 30. maí 1912 Dáinn 18. október 1987 Það var aðfaranótt sunnudags- ins 18. október sl. að Bjami Pálsson frá Hlíð í Gnúpverja- hreppi, fyrrum skólastjóri Iðnskól- ans á Selfossi og byggingarfulltrúi þar lést eftir að hafa átt við að stríða vanheilsu í nokkur ár. Bjami varð 75 ára 30. maí sl., og þó hann hefði þá verulega skerta heilsu vonuðum við að hann ætti framundan góða elli, þar sem hann hafði ennþá að mestu óskerta sál- arkrafta, þó að líkaminn væri ekki lengur til neinna átaka. En þetta mátti ekki verða. Ifyrir mánuði síðan veiktist hann skyndilega og var þá fluttur á sjúkrahús. En batinn lét standa á sér, og þegar ég kom að sjúkrabeði hans sl. laug- ardag var mér ljóst að nú var komið að kveðjustund. Hann kvartaði ekki og ég sá að hann var tilbúinn að mæta því æðrulaust sem að höndum bæri. Hann lauk sínu lífi eins og honum var svo eiginlegt alla ævi að krefjast einskis sér til handa og skeyta lítt um hvað í hans hlut kæmi. Þrátt fyrir þetta var Bjama úthlutað svo miklum auði mikilla hæfileika og skap- festu, og vakti aðdáun samferða- manna, og honum hlotnaðist að Ijúka giftusömu og árangursríku lífsstarfi og njóta hamingju í ein- kalífí með góðri konu og bömum og hann kunni einnig að gleðjast með stómm hópi góðra vina og vandamanna. Við Bjami vorum nágrannar allt frá bamæsku og höfum fetað nokkuð sömu slóðina og oft fylgst að, þó að hann væri nokkmm ámm eldri en ég og við ynnum að vem- legu leyti að ólíkum verkefnum í lífínu. Nú þegar Bjami er kallaður burt héðan og þessari löngu sam- fylgd er lokið að sinni leita margar minningar á hugann af kæmm samfundum fyrr og síðar allt frá æskuámm okkar. Bjami var fæddur í Hlíð í Gnúp- veijahreppi 30. maí 1912, sonur hjónanna Páls Lýðssonar hrepp- stjóra og bónda þar og konu hans Ragnhildar Einarsdóttur frá Hæli, föðursystur minnar. Það er stutt bæjarleið á milli Hæls og Hlíðar eða það fannst mér á æskuámnum, enda mikil tengsl vináttu og frænd- semi milli bæjanna. Ég var ekki gamall þegar mér varð ljóst að það var ekki neitt venjulegt heimili í Hlíð. Húsbóndinn, Páll, var gædd- ur mjög miklum sálargáfum. Hann var einstakur stærðfræðingur, fróðleiksfús og sjálfinenntaður og hafði góða frásagnarhæfíleika og ríka kímnigáfu og síðast en ekki síst óvenjulegt jafnaðargeð og leið öllum vel í návist hans. Ragnhildur var einnig ákaflega vel gefin kona, einstaklega umhyggjusöm, góð- gjöm og mild og skapaði á heimili þeirra þetta einstaklega hlýja og góðviljaða andrúmsloft, sem setti svip sinn á allt heimilið og þá sér- staklega á böm þeirra hjóna, flóra syni og tvær dætur. Þau eignuðust öll góð heimili, sem hafa borið sterkt svipmót af hinu merka bemskuheimiii þeirra í Hlíð, eins og það var á fyrstu fjórum áratug- um þessarar aldar, þegar þau systkinin voru að alast þar upp. Elstur þeirra var Einar Pálsson útibússtjóri Landsbankans á Sel- fossi, kvæntur Laufeyju Lilliendahl og áttu þau þijú böm, en em nú bæði látin fyrir fáum ámm. Næ- stelst var Aldís, húsfreyja í Litlu- Sandvík, gift Lýð Guðmundssyni bónda og hreppstjóra þar og eiga þau fjögur böm, þá er næstur Lýður bóndi og fyrrverandi hrepp- stjóri í Hlíð, kvæntur Guðbjörgu Steinsdóttur, en þau hættu búskap og fluttu til Reykjavíkur árið 1971. Þau eiga einn son. Fjórði í röðinni er svo Steinar Pálsson, bóndi og hreppstjóri í Hlíð, kvæntur Katrínu Amadóttur og eiga þau þijú böm. Bjami var svo næstyngstur, en Ragnheiður skrifstofustúlka og húsmóðir á Selfossi, gift Valdimar Pálssyni, fyrrverandi gjaldkera Kaupfélags Ámesinga, er yngst systkinanna og eiga þau hjónin einn son. Öll Hlíðarsystkinin höfðu mjög góðar námsgáfur, en ekki var á þeim ámm auðvelt fyrir sveitaböm að fara til langskólanáms. Bjami fékk þó lítt undirbúinn að taka próf upp í þriðja bekk Menntaskól- ans á Akureyri haustið 1930 ásamt Steinari bróður sínum og tóku þeir gagnfræðapróf þar vorið 1931 og var þetta hin mesta frægðarför, því að þeir vom báðir afburða námsmenn og sérstaklega miklir og ömggir reikningsmenn og Bjami reyndist auk þess hafa ein- staka hæfileika í teikningu og þá sérstaklega rúmteikningu. Lengra var þó ekki haldið á námsbrautinni í bili, en sfðar fékk Bjami að læra húsasmfði og fara í Iðnskólann í Reykjavík og þaðan útskrifaðist hann árið 1936 með mjög lofsam- legum vitnisburði. Síðar höguðu atvikin því svo að við Bjami leigð- um okkur saman stórt og gott herbergi í Gottergade 156 í Kaup- mannahöfn haustið 1938. Ég var þá að hefja nám við Landbúnaðar- háskólann í Kaupmannahöfn en Bjami við Byggmesterskólann í Kaupmannahöfn. Námsdvöld Bjama varð þama skemmri en áætlað var, en hann veiktist í apríl- mánuði og varð að hætta námi, en hann hafði þá þegar sýnt frá- bæra námshæfileika f skólanum svo enginn gat keppt þar við hann um efsta sætið. Bjami fór síðan heim til íslands snemma vors 1939, en batinn lét standa á sér og varð hann að liggja rúmfastur í meira en ár á Landa- kotsspftalanum áður en hann hafði sigrast á bijósthimnubólgu og berklavotti, sem hann hafði sýkst af veturinn góða í Kaupmanna- höfn. Bjami var þó svo lánsamur þegar endurbatinn leyfði það, að kynnast stúlku sem var sjúklingur þama og var Ifkt á komið með og Bjama, en fékk þaraa einnig fullan bata. Þetta var Margrét Helgadótt- ir frá Gautsdal í A-Barðastrandar- sýslu og gengu þau f hjónaband 15. október 1942 og settust að á Selfossi. Bjami bjó yfir miklum hæfileikum og þekkingu á mörgum sviðum, og þó einkum í húsasmíði og arkitektúr, og svo var hann svo einstakur kennari, að hann gat fengið alla nemendur sína til að skilja námsefnið og látið þá tileinka sér það sem hann kenndi. Hann var því fenginn til að stofna iðnskóla á Eyrarbakka árið 1941, en varð svo skólastjóri Iðn- skólans á Selfossi árið 1943 og gegndi hann því starfi óslitið til ársins 1976. Þetta varð hinn merk- asti skóli undir stjóm Bjama Pálssonar og luku þar iðnnámi fjöldi manna, sem síðar hafa rejmst afburðagóðir fagmenn hver á sínu sviði, og hafa í störfum sínum ávaxtað vel hina góðu fræðslu, sem Bjami veitti þeim með sfnum miklu gáfum og þekkingu. Það hefði mörgum reynst ærið verkefni að gegna skólastjóraemb- ætti Iðnskólans á Selfossi sem varð mjög fljótt fjölsóttur, og auk þess kenndi Bjami þama miklu meira en skyldan bauð honum. En þetta nægði honum ekki, því að vinnusemi hans leyfði honum ekki miklar frístundir. Hann vann því allmörg fyrstu árin sem bankarit- ari við Landsbankann á Selfossi, en þau ár var Iðnskólinn kvöld- skóli. Jafnframt þessu gegndi Bjami starfí byggingarfulltrúa Selfoss frá 1943 til 1982 og var það eins að Bjami stundaði það mikið starf og stórgagnlegt, því að hann var óþreytandi við að segja til og hjálpa mönnum sem voru þá að byggja yfir sig og margir af takmarkaðri kunnáttu og reynslu. Jafnhliða þessu teiknaði Bjami §ölda íbúðarhúsa, sennilega samanlagt á annað hundrað, og em flest þeirra hér á Selfossi, en þau eru einnig dreifð um nærliggj- andi sveitir og kauptún og einkenn- ast af því hve þau em notadijúg og hagkvæm að allri gerð. Af öðr- um byggingum sem Bjami teiknaði má nefna Selfosskirkju og Laugar- dælakirkju, og er þeim sameigin- legt hve stílhreinar þær em, enda var Bjami mjög listrænn og teikn- ari af guðs náð. Fyrir utan þessi veigamiklu embættisstörf og hönnun mann- virkja stundaði Bjami ýmis tímaf- rek félagsmálastörf svo sem skattanefndarstörf og störf við tónlistarfélag Ámessýslu o.m.fl., en þetta nægir til að benda á hve mikils virði störf Bjama vom þessu bæjarfélagi og héraði og hve marg- ir hér eiga honum mikið að þakka. Þegar ég kom heim til íslands að stríðinu loknu og hugðist setj- ast að á Selfossi haustið 1945 þá bauð Bjami mér að búa hjá sér gegn mjög vægu gjaldi í húsi sem hann átti þá (smíðum á Reynivöll- um 4 hér á Selfossi. Þetta kom sér mjög vel fyrir mig og mína konu, sem var dönsk og því öllum ókunn- ug og átti í upphafi við erfiðleika að stríða meðan hún var að læra íslenskuna. En allir erfiðleikar urðu léttbærir, þar sem þau bæði, Bjami og Margrét, sýndu henni og okkur þá vinsemd, hjálpsemi og hlýhug að þessi tfmi sem við bjugK11™ á Reynivöllum 4 er í end- urminningunni eins og sólskins- blettur í landslagi. Á þessum ámm skapaðist náin vinátta sem haldist hefur á milli okkar hjónanna og bama okkar, þó að nú sé langt um liðið, en lengst af höfum við búið svo nærri hvort öðm að við höfum átt daglegan samgang, og meðan bömin vom að alast upp vom þau leikfélagar og litu á það sem sjálf- sagðan hlut að ganga um á hinu heimilinu eins og þeirra eigin heim- ili. Ég man t.d. eftir því að mér brá einu sinni við, þegar ég upp- götvaði að yngsta bamið mitt var búið að slá eign sinni á eina skúff- una í eldhúsinnréttingu Margrétar Helgadóttur og gekk þangað beint inn þegar hann vantaði eitthvert leikdót eða rúsínur, sem stundum lentu í þessari skúffu eins og af tilviljun. Já, Margrét reyndist búa yfir ótrúlega mörgum svipuðum t HULDA TRYGQVADÓTTIR, Aragötu 16, Reykjavík, andaöist 22. október. Hörður Þorieifsson, Hjatti Haröarson, Egill Harðarson, Kjartan Harðarson, Hulda Kjartansdóttir, Hörður Ingi Kjartansson, Tryggvi Gunnarsson, Skúli G. Tryggvason, Karrtas Jensdóttir, Svanhvit Guðmundsdóttir, Axel V. Egilsson, Pótur Már Egilsson. t Eiginmaöur minn og faðir okkar, ÓLAFUR GUÐJÓNSSON bifvélavirki, Tunguvegi 6, Hafnarfirði,' andaðist á St. Jósefsspítala 22. þ.m. Stefanfa í. Guðmundsdóttir og börn. t Móðir okkar, GUÐBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR, Laufásvegi 60, iést á heimili sínu laugardaginn 10. október. Útför hefur farið fram. Birgltta Þórey Pétursdóttir, Róbert Kristinn Pétursson. + Elskulegur sonur minn og bróðir okkar, BARÐI GUÐMUNDSSON, lóst af slysförum aðfaranótt 23. október í Uddevalla-sjúkrahúsinu i Svíþjóð. Elfn Guðjónsdóttir og böm. + Þökkum auðsýnda samúð og vinóttu viö andlót og útför elskulegr- ar eiginkonu minnar, móður okkar og ömmu, HALLDÓRU GUÐMUNDSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunardeildar Droplaugarstaöa. Pétur G. Jónasson, Guðrfður J. Pétursdóttlr, Matthfas Guðmundur Pétursson, Halldóra Gyða Matthfasdóttlr, Jóhannes Friðrlk Matthfasson. eiginleikum og ég þekkti frá bemskuheimili Bjama í Hlíð og þau byggðu upp heimilið sitt á Reyni- völlum 4 sem einstakt rausnar- og menningarheimili, þar sem margir sóttust eftir að koma og njóta hins hlýja heimilisfriðar, sem þar rfkti og góðgimi í hvers manns garð, sem þangað kom. En eins og áður er getið þá áttu margir erindi við hann Bjama og hann gat engum neitað um aðstoð, og Margrét studdi hann á allan hátt og kom oft með hressandi kaffi, þegar ver- ið var að liðsinna námsmanni eða finna hvemig hægt væri að byggja íbúðarhús, sem bæði væri hentugt og ódýrt. Eins og áður er getið þá var Bjami hamingjumaður f sfnu einkalífí. Hann eignaðist þá konu sem hann unni frá því er þau hitt- ust fyrst á Landakotsspítalanum eftir erfið veikindi og þau launuðu endurbatann með fallegu hjóna- bandi, þar sem bæði vom ætíð tilbúin að gefa allt og afsala sér öllu í hvors annars garð. Þau eign- uðust fjögur mannvænleg og góð böm, sem öll hafa fengið gott upp- eldi og veganesi, sem sett hefur traustvekjandi svipmót á þau. Elst er Ragnhildur kennari gift Helga Hólm kennara í Reykjavík og á hún þijú böm. Næstur er Helgi, verkfræðingur hjá Lands- virkjun, og á hann tvö böm. Þá er næst Ingibjörg, bankastarfs- maður, gift Siguijóni Jakobssyni skrifstofumanni, og á hún þijú böm. Yngstur er svo Páll tækni- fræðingur. Hann býr ennþá á heimili foreldra sinna og hefur reynst mikil stoð móður sinnar síðustu vikur og mánuði. Bjami átti mörg hugðarefni sem honum tókst að rækja þrátt fyrir langan vinnudag og margháttuð ábyrgðarstörf. Þannig hafði hann mikið yndi af tónlist og hafði á yngri ámm gaman af að setjast við píanóið og spila eitt eða fleiri Mozart-lög, en hann mun hafa verið uppáhalds tónskáldið hans. Síðar á ævinni naut hann þess að hlýða á góðar hljómplötur og einn- ig fara á konserta ef tækifæri gafst. Þá var Bjami mjög bókelsk- ur og las alltaf mikið, enda óvenju- Iega fróðleiksfús og vandaði mjög málfar sitt í ræðu og riti. Ég veit að hér em margir sem hugsa nú til Bjama Pálssonar með þakklæti fyrir líf hans og störf. Ég og mín fiölskylda em meðal þeirra og ég vil með þakka honum og heimilinu á Reynivöllum 4 fyrir allt það góða sem þau hafa veitt mér og mínum í þau rúmlega 40 ár sem við höfum verið nágrannar hér á Selfossi. Jafnframt veit ég að allir sem hann þekktu munu sakna þess góða drengs sem aldrei krafðist neins fyrir sig og ekkert aumt mátti sjá. Mestur verður þó söknuðurinn hjá Margréti og böm- unum og öldmðum systkinum hans. En það er huggun harmi gegn, að Bjama auðnaðist að vinna óvenjulega farsælt ævistarf, og hefur alla ævi haft mannbætandi áhrif á það samfélag sem hann lifði og starfaði í. Blessuð veri minning hans. Hjalti Gestsson Bjami Pálsson, móðurbróðir minn, er látinn og verður í dag borinn til grafar frá kirkjunni sinni, Selfosskirkju. Við slík tfmamót streyma fram hlýjar minningar og verða þó fæstar færðar hér á blað þar sem aðrir skrifa ítarlegar og betur um Bjama frænda. Mín fyrsta minning er þó bundin sérstöku atviki. Hann kom í heim- sókn f lok nær tveggja ára spítaladvalar sinnar. Móðir mín tók á móti honum, studdi hann upp stigann og bað hann að leggja sig á dívan í svefnherberginu. En að- gerðarlaus gat hann ekki legið og nú bauð hann mér að spila við sig gömlu jómfrú. öðru eins fiöri í því spili var ég ekki vanur og hraðinn hans Bjama og hláturinn var smit- andi. Húsið ómaði brátt af hlátra- sköllum. Þjáningin virtist Bjama gleymd. Það var og svo að um þær

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.