Morgunblaðið - 24.10.1987, Síða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1987
FIMLEIKAR / HEIMSMEISTARAMÓTIÐ í HOLLANDI
Miklir yfirburðir Sovétmanna
Reuter
Valery Ljúkln (Sovétrfkjunum) er hér borinn af velli af þjálfara sovéska karlaliðsins Leonid Arkaev eftir
meiðsli sem hann hlaut i afstökki af svifrá.
Flokkakeppni karla á
heimsmeistaramótinu í
fimleikum lauk Beint á fímmtu-
dagskvöldið með yfirburðasigri
^■■1 Sovétmanna. Hins
Jónas vegar var hörð
Tryggvasan keppni um annað
sknfar og þrj^a sætið en
meiðsli margra
bestu manna setti svip á mótið.
Lokastaða f flokkakeppni karla
var sem hér segir:
1. Sovétríkin...........589.75
2. Kína.................583.35
3. A-Þýskaland..........582.80
4. Búlgaría.............579.06
5. Japan................578.16
6. Ungveijaland.........577.65
Bllozerchev með forystu
Dimitri Bilozerchev (Sovétríkjun-
um) hefur foiystu í einstaklings-
keppninni og á góða möguleika á
gullverðlaunum í úrslitunum sem
fara fram í dag. Hann stóð sig
frábæriega í fijálsum æfingum
(59.45) hiaut fjórum sinnum 9.90,
eins má geta þess tii gamans að
svifráræfingin hans innihélt átta
risasveiflur á annarri hendi. Stað-
an í einstaklingskeppni karla eftir
keppni f skylduæfingum og ftjáls-
um er eftirfarandi:
1. Dimitri Bilozerchev..118.45
2. V. Ljúkin (Sovét)....118.05
3. V. Artemov (Sovét)...117.95
4. Júri Korolev (Sovét) ....117.90
5. Xu Zhiquiang(Kína).... 117.60
6. Z. Borkai (Ungv.).....117.10
6. S. KroU (A-Þýsk.)......... 117.10
Þess má geta hér að einungis
þrír einstaklingar frá hveiju landi
hafa þátttökurétt í úrslitakeppn-
inni. Svfinn Jóhann Jónasson er í
25. sæti fyrir úrslitakeppnina.
Austur-þjóðveijinn Silvio Kroll
hlautu fýrstu 10.00 einkunnina í
karlakeppninni fyrir stökk en
hann náði hins vegar ekki að grípa
í flugæfingu á svifrá (9.15).
MMAsll
Mikið hefur borið á meiðslum á
mótinu og sum aivarleg. Sagt var
frá fótbroti Tim Daggetts í blað-
inu í gær, og tveir þekktir fim-
leikamenn hafa meiðst. Meiðsli á
hægri ökla sem Valeri Ljúiin hlaut
á æfíngu í síðustu viku tóku sig
upp er hann lenti úr þreföldu helj-
arstökki af svifrá. Kínverski
ólympíumeistarinn Li Ning meiddi
sig f lendingu á stökki, sem var
hans önnur keppnisgrein. Li hélt
samt áfram og iauk æfíngum á
tvíslá og bogahesti en gat samt
ekki lokið keppni.
Liðakeppni í kvennaflokki lauk í
gærkvöldi en úrslit höfðu ekki
borist þegar blaðið fór í prentun.
Þó höfðu borist fréttir af frammi-
stöðu bandarísku stúlknanna sem
mikiar vonir voru bundnar við
fyrir mótið. Kristie Phillips var í
85. sæti eftir skylduæfingamar,
henni tókst illa upp á jafnvægissl-
ánni hlaut aðeins 8.975.
Kanadísku stúlkunni Janine
Rankin tókst vel upp í nýju æfíng-
unni sinni sem við minntumst á í
blaðinu í gær, en félaga hennar
Strong gekk ekki eins vel og
hætti við sína æfingu. Nánari
umfjöllun verður um HM í þriðju-
dagsblaðinu.
'%■
>
Fimm kínverskir þjálfarar starfa hérá landi
BLAKVERTÍÐIN er nú að hefj-
ast. Keppni í 1. doildkarla og
kvenna hofst í dag. Átta lið
leika í 1. deild karla og sjö í
1. deild kvenna. Eitt lið hefur
bæst við í 1. deild kvenna frá
því í fyrra, það er Þróttur f rá
Neskaupstað sem nú er með í
fyrsta sinn.
Þrír leikir verða í 1. deild karla
og kvenna í dag. Stúdentar
ríða á vaðið er þeir mæta Fram í
fyrsta leik í Hagaskóla kl. 14.00.
KA og Þróttur Nes. leika á Akur-
eyri kl. 15.45 og HK og HSK leika
f Digranesi kl. 17.00. f 1. deild
kvenna leika Víkingur og Þróttur í
Hagaskóla, KA og Þróttur Nes. á
Akureyri og HK og Breiðablik í
Digranesi.
Tvöföld umferð f 1. deild
Mótafyrirkomulagið er nokkuð
breytt frá því í fyrra. Nú verður
leikin tvöföld umferð í 1. deild karla
og kvenna og það lið sem stendur
uppi sem sigurvegari eftir það verð-
ur deildarmeistari. Síðan verður
liðunum skipt í úrvalsdeild og 1.
deild og leikin aftur tvöföld umferð
heima og heiman. Það lið sem sigr-
ar í úrvalsdeild verður íslandsmeist-
ari en það lið sem sigrar í 1. deild
verður „sigurvegari í 1. deild."
Flmm kfnversklr þjálfarar
f vetur verða fímm kínverskir blak-
þjálfarar starfandi í 1. deild karla
hér á landi. Þeir þjálfa ÍS, Víking,
HK, Þrótti Nes., ogþrótt Reykjavík.
Þjálfari Víkings mun einnig þjálfa
kvennalið Breiðabliks. Aðrirþjálfar-
ar í 1. deild karla eru Haukur
Valtýsson sem er með KA, Torfí
Rúnar Kristjánsson sem þjálfar
HSK og Ólafur Ámi Traustason
sem þjálfar Fram.
Framkvæmdastjóri Blaksamands
íslands er Ólafur Ámi Traustason
og er hann í hálfu starfi hjá sam-
bandinu. BSÍ hefur nýlega fest
kaup á tölvu og sjálfvirkum
símsvara.
Landsllðsmál
Ákveðið hefur verið að kvenna-
landsliðið í blaki taki þátt í móti
sem fram fer í Lúxemborg 18. til
20. desember. Liðið hefur nú þegar
hafið æfingar og er Leifur Harðar-
son þjálfari þess.
Verkefni hjá karlalandsliðinu eru
tvö á komandi keppnistímabili. Það
er Norðurlandamótið í maf og svo
balakmót smáþjóða sem fram á að
fara í Lúxemborg á svipuðum tíma.
íslandsmótið í blaki hefst um helgina. Myndin sýnir hávöm Þróttara en þeir
hafa verið nær ósigrandi mörg undanfarin ár.
A-stigs þjálfaranámskeið
í knattspyrnu verður haldið dagana 30. okt. til
1. nóv. í Iþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Þátttökutilkynningar ásamt gjaldi kr. 4000,- skulu
berast skrifstofu KSÍ, pósthólf 8511, 128
Reykjavík, fyrir 29. október nk.
Tækninefnd KSÍ
Fundur um
íþrótta-
lækningar
Fundur verður haldinn í dag
með læknum og sjúkraþjálfur-
um, sem áhuga hafa á íþrótta-
lækningum, í kennslustofu G1
slysadeild Borgarspítalans kl.
13.00 í dag, laugardag. Gestur
fundarins verður dr. Lothar
Kipke, íþróttalæknir frá Aust-
ur-Þýskalandi. Hann ræðir um
íþróttameiðsl og uppbyggingu
íþróttalækninga í heimalandi
sfnu.
BLAK / ÍSLANDSMÓTIÐ
KNATTSPYRNA
Blakvertíðin
hefst á morgun
Þróttur
eignast
grasvöll
Vallaraðstæður knattspymu-
félagsins Þróttar í Reykjavík
hafa ekki verið sem bestar, en í dag
verður breyting á. Byijað verður á
framkvæmdum við grasvöll og
verður fyrsta skóflustungan tekin
klukkan 14.30. Velúnnarar félags-
ins eru hvattir til að mæta á svæðið
við Sæviðarsund og fá sér kaffi og
veitingar í félagsheimilinu.
HLAUP
Fyrsta víða-
vangshlaup
haustsins
Fyrsta víðavangshlaup
haustsins, sem liður er í
stigakeppni víðavangshjaupara,
fer fram í dag. Það er Öskjuhlí-
ðarhlaup ÍR og hefst það kl.
14.00 við hótel Loftleiðir. Skrán-
ingerkl. 13.00 til 13.30. Stelpur
og strákar 12 ára og yngri, telp-
ur og pilar 13 og 14 ára, meyjar
og sveinar 15 og 16 ára og kon-
ur 17-34 ára og 35 ára og eldri
hlaupa 4 kílómetra, en karlar
17-34 ára og 35 ára og eldri
hlaupa 8 kílómetra.
Hér er svo listi yfir víðavangs-
hlaup vetrarins hlaupurum til
glöggvunar:
Stjörnuhlaup FH, Reykjanes-
hringur, verður laugardaginn
31. október, Laugarvatnshlaup
verður laugardaginn 7. nóvem-
ber, laugardaginn 21. nóvember
verður aftur Stjömuhlaup FH,
sundlaugarhringur, og
Keflavíkurhlaup verður laugar-
daginn 5. desember. Laugar-
daginn 19. desember, eða
miðvikuudaginn 23. desem-
ber, er stefnt að Miðbæjar-
hlaupi og siðan verður
Gamlárshlaup ÍR að vanda á
gamlársdag, fímmtudaginn 31.
desember.
KEILA
Keppni við
varnarliðið
ÆT
Amorgtin klukkan 16 hefst
í keilusalnum Keilulandi,
Smiðsbúð 4 í Garðabæ, keilu-
keppni úrvalsliða Keilufélags
Reylq'avíkur og vamarliðsins.
Aðgangur er ókeys.