Morgunblaðið - 01.11.1987, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 01.11.1987, Blaðsíða 33
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1987 Útgefandi flnÞlaMfe Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri HaraldurSveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Askriftargjald 600 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 55 kr. eintakiö. Sveiflur hjá Sovétmönnum Fyrir rúmri viku hittust ut- anríkisráðherrar aðildar- landa Atlantshafsbandalagsins í Briissel til að hlusta á skýrslu George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um fundi hans með Eduard Shevardnadze, ut- anríkisráðherra Sovétríkjanna, og Mikhail Gorbachev, leiðtoga sovéska kommúnistaflokksins, í Moskvu. Voru NATO-ráðherr- amir einhuga um, að viðbrögð ráðamanna í Moskvu við hug- myndum Shultz og viðhorf þeirra gagnvart frekari viðræðum um takmörkun vígbúnaðar væru á þann veg, að Sovétmönnum væri greinilega ekki mikið kappsmál að ganga frá samningi um upp- rætingu meðaldrægra eldflauga og fækkun kjamaodda í lang- drægum flaugum. Gorbachev setti á ný fram kröfur um, að Bandaríkjastjóm félli frá áform- um um geimvamir. Var það sameiginleg niðurstaða NATO- ráðherranna, að afstaða Sovét- manna gæfí til kynna, að þegar á reyndi væri lítt að byggja á viljayfírlýsingum þeirra um af- vopnun. Þá vom NATO-ráðherr- amir þeirrar skoðunar, að vildu Sovétmenn ekki leiðtogafund, væri ekkert því til fyrirstöðu, að samningur um útrýmingu meðal- drægu flauganna væri undirrit- aður af öðmm. Þessi vika var rétt hafín, þeg- ar nýr tónn fór að heyrast frá Moskvu. í samtölum við frétta- menn gáfu háttsettir sovéskir embættismenn í skyn, að alls ekki væri útilokað, að þeir myndu hittast fyrir áramót Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti, og Gorbachev. Andstaðan við geim- vamaáætlunina væri ekki svo afdráttarlaus, að ekki væri unnt að semja um annað. Síðan var skyndilega skýrt frá því á þriðju- dag, að Shevardnadze, utanríkis- ráðherra, mjmdi fara til Washington. Þangað kom hann á föstudag og ræddi við þá Shultz og Reagan. Var tilkynnt eftir þá fundi, að næsti leið- togafundur yrði haldinn í Washington 7. desember næst- komandi. Virðist nú fastmælum bundið milli stórveldanna, að gengið skuli frá samningi um meðaldrægar flaugar og leitað leiða til að fækka kjamaoddum í hinum langdrægu. Þessar sveiflur í afstöðu Sov- étríkjanna til afvopnunarmála velq'a ýmsar spumingar, sem erfítt er að fá einhlít svör við í lokuðu stjómkerfí þeirra. Var það ætlun Gorbachevs hér í Reýkjavík í október 1986, þegar hann notaði geimvamimar sem fleyg, að láta á það reyna, hvort Reagan myndi falla frá áformum sínum um þessar vamir? í febrú- ar sl. tók Gorbachev þennan fleyg í burtu að því er varðar meðaldrægu flaugamar. Ætlaði hann að leika sama leikinn núna? Hvers vegna lét hann fleyginn aðeins standa í fáeina sólar- hringa? Eða verður hann við sama heygarðshomið næst þegar hann ræðir við Reagan? Hvers vegna bíður hann þá ekki eftir því að kjörtímabil Reagans renni út? Sumir láta að því liggja, að með því að höggva hvað eftir annað í þennan knémnn sé Gorbachev að reyna að koma illu af stað innan Atlantshafsbanda- lagsins. Hann vilji nota geim- vamimar til að spilla samstöðu NATO-ríkjanna. Fundurinn í Brussel fyrir viku gerði þá von að engu. Hin skjótu umskipti í afstöðu Sovétmanna síðustu daga, án þess að Vesturlönd hafí gert nokkuð til að auðvelda þeim þau, renna stoðum undir þá skoðun, að sveiflumar í af- stöðu Gorbachevs eigi rætur að rekja til vandræða heima fyrir. Hann hafí ef til vill ekki þau tök á stjómmálaráði kommúnista- flokksins, sem gefíð er til kynna; að auglýsingastarfsemin út á við gefí ekki rétta mynd af ástandinu innan Kremlar. I nýrri bók eftir Gorbachev, sem nú er að koma út á Vesturlöndum með brauki og bramli, tekur hann jafnvel upp hanskann fyrir hina grimmúð- legu og alræmdu landbúnaðar- stefnu Stalíns er gat af sér samyrkjubúin og varð milljónum manna að aldurtila. Er sagt, að með þessu sé hann að þóknast öðmm valdamesta manni stjóm- málaráðsins Yegor Ligachev, sem er hugmyndafræðingur flokksins og í nánustum tengsl- um við valdakjamann, nómen- klátúmna. Ef Gorbachev þarf að þóknast Ligachev í bókum, sem við hann sjáifan em kenndar, hvað þá um mótun stefnunnar í samningaviðræðum um kjam- orkuvopn við Bandaríkin? Viðræður sovéska utanríkis- ráðherrans í Washington em enn eitt skrefíð í átt að mikilvægu samkomulagi um fækkun kjam- orkuvopna. Hins vegar segir sagan okkur frá fundinum í Reykjavík fyrir ári og síðan það, að allur er varinn góður þegar kemur að lokaskrefínu og Kreml- veijar em annars vegar. Þess má að lokum geta, að vegna tæknilegra mistaka birtist sama forystugrein hér tvo daga í röð og em lesendur beðnir af- sökunar á því. Iþingkosningum, sem fram fóm í Bretlandi við lok heimsstyijald- arinnar síðari, beið íhaldsflokk- urinn einhvem mesta og jafnframt óvæntasta ósigur sögu sinnar. Churchill, hinn mikli stríðsleiðtogi Breta, efndi til þingkosninga snemma sumars 1945, eftir að stríðinu lauk í Evrópu en áður e_n Japanir höfðu gefizt upp. Leið- togar íhaldsflokksins vom sigurvissir, en í umræðum þeirra í milli, áður en ákvörð- un var tekin um að efna til kosninga, hafði einn í þeirra hópi varað við því. Þessi maður var Richard Butler, sem átti eftir að verða einn af merkustu forystumönnum flokksins, en aldrei leiðtogi hans eða for- sætisráðherra. Astæðan fyrir því, að Butler taldi á þessum tíma óhyggilegt að efna til kosninga var sú, að hann taldi flokkinn ekki tilbúinn til að leggja fyrir kjósendur hugmyndir um það, hvemig standa ætti að uppbyggingu Bretlands að styijöldinni lokinni, m.ö.o. að vinsældir Churchills sem stóðsleiðtoga mundu ekki duga til. Úrslit kosninganna urðu á þann veg, að íhaldsflokkurinn beið afhroð og Bretar höfnuðu forystu þess mannsr sem hafði leitt þá til sigurs á dimmum dögum heims- styrjaldarinnar síðari. Viðbrögð íhalds- flokksins eftir þennan mikla ósigur vom þau, að hefja víðtækt endurreisnarstarf með endurskoðun á stefnuskrá flokksins. Stjómmálastefna flokksins var tekin til gagngerrar endurskoðunar. A næstu 6 ámm var unnið merkilegt starf undir for- ystu Butlers við að endurskoða stefnu fíokksins frá gmnni og aðlaga hana breytt- um aðstæðum og nýjum tímum. Á grundvelli þessa starfs endurheimti Ihalds- flokkurinn þingmeirihluta sinn 1951 og Churchill sneri aftur til bústaðar forsætis- ráðherra Breta í Downing-stræti 10. Þótt ólíku sé saman að jafna vom það fyrstu viðbrögð Sjálfstæðisflokksins, eftir að flokkurinn beið ósigur í þingkosningun- um 1971 og Viðreisnarstjómin hvarf frá völdum eftir 13 ára setu, að heíja endur- skoðun á stefnu flokksins frá gmnni. Menn sögðu sem svo, að 13 ára samfelld aðild að ríkisstjóm hefði líklega gert það að verkum, að flokkurinn hefði ekki fylgzt nægilega vel með nýjum og breyttum straumum í samfélaginu og þess vegna væri tímabært að hefja öflugra málefna- starf á vettvangi hans. Það var Jóhann heitinn Hafstein, sem tók við forystu Sjálf- stæðisflokksins eftir lát Bjama Benedikts- sonar, sem komst að þessari niðurstöðu og beitti sér fyrir því, að ijölmargar svo- nefndar málefnanefndir vom settar á stofn, sem skyldu endurskoða stefnu flokksins frá gmnni og leggja drög að endumýjun hennar. Þótt starf málefna- nefnda Sjálfstæðisflokksins á þeim tíma verði alls ekki borið saman við það merki- lega umbótastarf, sem unnið var á vett- vangi brezka íhaldsflokksins eftir kosningamar 1945, höfðu þær þó mikil áhrif og hafa reynst býsna lífseigar. í þingkosningunum, sem fram fóm í aprílmánuði sl., beið Sjálfstæðisflokkurinn afhroð. í fyrsta skipti í sögu flokksins var hann ekki lengur stór stjómmálaflokkur heldur flokkur af miðlungsstærð. Margir töldu skýringuna fyrst og fremst þá, að Borgaraflokkurinn var stofnaður skömmu fyrir kosningar. í kjölfar þeirra tókst Sjálf- stæðisflokknum þrátt fyrir hinn mikla ósigur að mynda ríkisstjóm og formaður flokksins tók við embætti forsætisráð- herra. Þrátt fyrir það, að tekizt hafði að snúa vöm í sókn með þessum hætti, hafa tvær skoðanakannanir með nokkurra vikna millibili sýnt, að Sjálfstæðisflokkur- inn er ekki að ná sér á strik. Raunar er Framsóknarflokkurinn kominn svo nálægt Sjálfstæðisflokknum í fylgi í síðustu skoð- anakönnun Hagvangs, að það er ekki óhugsandi, að hann geti orðið stærri flokk- ur en Sjálfstæðisflokkurinn í skoðanakönn- unum. Á innri vettvangi Sjálfstæðisflokksins hefur ekki verið gripið til sérstakra ráð- stafana í kjölfar kosningaósigursins sl. vor. Að vísu var nefnd sett á Iaggimar nokkra eftir kosningamar til þess að gera úttekt á orsökum úrslitanna, en skipun hennar var umdeild og niðurstaða hennar hefur ekki orðið tilefni til sérstakra að- gerða. Nokkur mannaskipti hafa orðið í nefndum flokksins en um annað sýnist ekki vera að ræða. Skoðanakönnun Hag- vangs bendir ótvírætt til að meira þurfi til að koma. Ný baráttumál Viðreisnarstjómin var einhver mesta umbótastjóm, sem hér hefur setið. Á valdatíma hennar vom markmið ríkis- stjómarinnar og um leið Sjálfstæðisflokks- ins mjög skýr. í þingkosningunum 1971 má segja, að Sjálfstæðisflokkurinn hafí ætlað að lifa á fomri frægð, þ.e. verkum Viðreisnarstjómarinnar í stað þess að leggja fram ný stefnumál. Stefna flokksins í landhelgismálinu, sem þá var að komast á dagskrá, var í augum kjósenda a.m.k. óljós og það sem máli skipti var að sjálf- sögðu hvemig hún kom kjósendum fyrir sjónir. í þingkosningunum 1974 var stefna Sjálfstæðisflokksins hins vegar ákveðin og markviss. Flokkurinn barðist fyrir út- færslu landhelginnar í 200 mílur og fyrir því, að vamarsamningurinn við Bandaríkin skyldi áfram vera í gildi en vinstri stjómin 1971-1974 hafði stefnt að uppsögn hans. í þeim kosningum vann Sjálfstæðisflokk- urinn stórsigur. Segja má, að afrek Sjálfstæðisflokksins á áttunda áratugnum hafí verið að leiða landhelgisbaráttuna til farsælla lykta. í desember 1976 sigldi síðasti brezki togar- inn af íslandsmiðum. Afrek Sjálfstæðis- flokksins á fyrri hluta níunda áratugar var að kveða niður óðaverðbólguna. Það getur flokkurinn að vísu ekki eignað sér einn, þar átti Framsóknarflokkurinn einnig hlut að máli en þó fyrst og fremst ytri aðstæð- ur þjóðarbúsins. Það er hins vegar ljóst, að í þingkosningunum sl. vor bryddaði Sjálfstæðisflokkurinn ekki upp á þeim málefnalegu nýjungum, sem höfðað gætu til kjósenda. í stjómarsáttmála ríkisstjóm- arinnar hefur það ekki heldur gerzt og engin merki sjást um það á vettvangi flokksins, að unnið sé að slíkri málefna- legri endumýjun. Spumingin nú er sú, hvort það er ekki orðið tímabært fyrir Sjálfstæðisflokkinn að he§a það endurreisnarstarf, sem óhjá- kvæmilegt er til þess að flokkurinn geti endurheimt sinn fyrri sess í íslenzku þjóðlífí, með því að endurskoða málefna- stöðu flokksins í þeim meginmálum sem blasa við og þjóðin þarf að takast á við á næstu ámm. Spumingar hljóta líka að vakna um það, hvort ekki sé æskilegt að fínna því endurskoðunarstarfí annan far- veg en málefnanefndimar, sem reyndust vel þegar þær vom settar á stofn fyrir 16 áram, en þurfa ekki endilega að vera bezti kosturinn nú. Til þess að Sjálfstæðis- flokkurinn hafí möguleika á að rífa sig upp úr þeirri stöðu miðlungsflokks, sem hann gæti verið að festast í, þarf flokkur- inn að leggja fyrir þjóðina skýrari og áhugaverðari markmið en þau ein að halda verðbólgúnni í skefjum. Flokkurinn þarf ný baráttumál. Verðfallið og einkavæðingin Verðfallið í Wall Street og í kauphöllum í öðram löndum hefur vakið upp miklar umræður um heim allan um ástand og horfur í efnahagsmálum. Það virðist nokk- uð samdóma álit sérfróðra manna, að verðfallið endurspegli fyrst og fremst veik- ari stöðu Bandaríkjanna í efnahagsmálum en nokkra sinni fyrr. Sú var tíðin, að Bandaríkin vom bankinn sem lánaði nán- ast öllum þjóðum heims peninga til uppbyggingarstarfs. Nú er svo komið, að Bandaríkjamenn em ekki lengur lánar- drottnar, heldur skuldunautar. í allmörg ár hafa þeir haldið efnahags- og fjármála- kerfí sínu gangandi með stórfelldum lántökum. Þeir hafa lifað um efni fram og notað til þess lánsfé frá öðmm þjóðum alveg með sama hætti og við íslendingar höfum gert. Munurinn er bara sá, að Bandaríkjamenn þurfa á svo miklum pen- ingafúlgum að halda til þess að halda MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1987 33 REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 31. október Morgunblaðiö/ Arni Gullfoss uppteknum hætti, að aðrar þjóðir em ekki lengur tilbúnar til að lána þeim svo mikið fé. Þegar þetta peningainnstreymi hætti varð verðfall í Wall Street. Ein afleiðing þess er sú, að menn velta því fyrir sér hvort dagar einkavæðingar- innar svonefndu séu taldir. Þetta skýrist bezt með því að vísa til reynslu Breta. Ríkisstjóm Thatchers er fmmkvöðull í einkavæðingu. Þar í landi hafa nokkur stór og öflug ríkisfyrirtæki verið seld einkaaðilum á undanfömum ámm. Sala þessara fyrirtækja hefur verið vandlega undirbúin. Þegar hlutabréf þeirra vom sett í sölu var barizt um þau. Maðurinn á götunni, ef svo má að orði komast, tók mikinn þátt í þessari einkavæðingu með kaupum á hlutabréfum. Hann hagnaðist líka fljótlega á þeim kaupum. Verð hluta- bréfa í kauphöllum heftir farið stöðugt hækkandi á undanfömum ámm. Á meðan svo var hafði almenningur mikinn áhuga á því að kaupa hlutabréf vegna þess, að það var hægt að selja þau tiltölulega fljótt aftur með vemlegum hagnaði. Einkavæð- ingin byggðist m.a. á þessum hagstæðu skilyrðum á verðbréfamörkuðum. Um leið og aðstæður breytast og verð- fall verður á hlutabréfum horfír málið öðmvísi við. Þá hefur almenningur ekki lengur áhuga á að kaupa þessi hlutabréf vegna þess, að vonin um hagnað er minni. Brezka ríkisstjómin hafði undirbúið vand- lega sölu á enn einu fyrirtæki eða hluta- bréfum ríkisins í því áður en verðfallið varð. Bankar og fjármálafyrirtæki höfðu tekið að sér að selja bréfín fyrir ákveðið lágmarksverð og .ábyrgzt söluna, sem þýddi í raun, að þessir aðilar yrðu að kaupa bréfín sjálfír, ef engir aðrir kaupendur fengjust. Eftir að þessar ákvarðanir vom teknar, en áður en sala bréfanna hófst, skall kreppan í kauphöllunum á. Hlutabréf- in S þessu fyrirtæki em nú seld á mun lægra verði en búið var að ákveða á bréf- um brezka ríkisins. Þetta þýðir, að það er ekki lengur nokkur áhugi hjá almenn- ingi á því að kaupa þessi bréf. Einkavæð- ingin virðist vera að renna út í sandinn. Síðustu fréttir herma, að brezka ríkis- stjómin hafí gert sérstakar ráðstafanir til að þetta útboð færi ekki gersamlega út um þúfur. Nú er auðvitað ósanngjamt að staðhæfa slikt vegna þessa eina dæmis. Sannleikur- inn er auðvitað sá i þessu tilviki, að þessi eign brezka ríkisins féli í verði eins og eignir geta gert, t.d. fasteignir hér á landi. Auðvitað væri hægt að selja þessi bréf en á mun lægra verði. Hagnaður ríkisins yrði þá margfalt minni, en hagnaðarvon kaup- enda meiri ef verð færi hækkandi á ný. Þess vegna er rangt að líta svo á að einka- væðingin sé að falla um sjálfa sig vegna verðfallsins í kauphöllunum. Hins vegar hafa þessar aðstæður sýnt, að ríkisstjómir sem hyggjast selja eignir ríkisins geta lent í því að þurfa annað hvort að selja þær á lægra verði en að var stefnt eða einfald- lega bíða þar til eignimar hækka á ný. Sala ríkisfyrirtækja Það er ein af syndum Sjálfstæðisflokks- ins, að hafa ekki unnið ötullegar að sölu ríkisfyrirtækja en raun ber vitni. Það er í rauninni ákaflega erfítt að skilja það tóm- læti, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur sýnt þessu máli. Umræður um sölu ríkisfyrir- tækja hófust að marki sumarið 1983. Þá þegar kom í ljós, að það var hljómgmnnur fyrir því meðal kjósenda að selja fyrirtæki í eigu ríkisins. Hins vegar varð minna um framkvæmdir en efni stóðu til. Albert Guðmundsson, þáverandi fjármálaráð- herra, hóf umræður um málið en það var Sverrir Hermannsson, iðnaðarráðherra, sem fylgdi því eftir í fyrstu. Á síðari hluta síðasta kjörtímabils dofnaði hins vegar mjög yfir sölu ríkisfyrirtækja. Nú er þetta mál að komast í sviðsljósið á ný, einmitt vegna umræðna á Vestur- löndum um það hvort verðfallið á kauphöll- unum muni binda enda á einkavæðinguna. Hægt er að færa sterk rök fyrir því, að hér á landi hafi alls ekki verið staðið rétt að sölu þeirra hlutabréfa í eigu ríkisins, sem þó hafa verið seld. Það er verðugt verkefni fyrir nýja og óþreytta ríkisstjóm, sem á þegar í erfiðleikum með sölu á ein- um ríkisbanka, að safna saman upplýsing- um um, hvemig staðið hefur verið að sölu þessara fyrirtækja t.d. í Bretlandi og Frakklandi. Það er ljóst að aðdragandinn að sölu er langur og undirbúningur er mikill. Upp- lýsingamiðlun til almennings um fyrirtæk- in, sem til sölu em, eignir þeirra, rekstur og framtíðarhorfur er gífurlega mikil. Þá fyrst þegar slíkur gmndvöllur hefur verið lagður era bréfín til sölu. Þegar hlutabréf ríkisins í Útvegsbanka fslands hf. vom fyrst boðin til sölu var það gert með lítilli embættismannalegri auglýsingu hér í Morgunblaðinu og öðmm blöðum. Árang- urinn var auðvitað í samræmi við það. Engin tilraun var gerð til þess að upplýsa almennjng um það, hvaða verðmæti væm í boði. í raun og vem hefur það ekki ver- ið gert enn sem komið er. í stað þess hefur ríkið lokast inn í viðræðum við tvo aðila um sölu bankans. Hægt er að færa rök að því, að það hafí alls ekki reynt á það, hvort almenning- ur í landinu vill fjárfesta í þessum banka. Er ekki tilefni til að staldra við og skoða Útvegsbankamálið frá nýjum sjónarhóli? Læra af reynslu annarra og gera tilraun til þess á gmndvelli hennar að bijótast út úr þeirri sjálfheldu, að það sé ekki við aðra að tala um sölu þessa banka en full- trúa þeirra tveggja þjóðfélagsafla, sem í áratugi hafa tekizt á í íslenzku atvinnulífí. Nýjustu hugmyndir Jóns Sigurðssonar, viðskiptaráðherra, um framtíð ríkisbank- anna, sem sagt var frá í Morgunblaðinu, í dag, laugardag, gera ráð fyrir því að selja 25% af hlut ríkisins i Útvegsbanka og Búnbaðarbanka erlendum aðilum, ríkið haldi 35% í hvomm banka en annað selt öðmm. Er þetta ekki orðið dálítið flókið? Það geta verið rök fyrir því, að leyfa er- lendum aðilum að eignast hlut í banka á íslandi en eigum við að leita eftir því við erlenda banka, að þeir kaupi hlut í bönkum hér til þess að leysa vandamál hér heima fyrir? Er við ekki komnir út á hálan ís, íslendingar, ef lausnin á heimatilbúnum vandamálum er sú að sækjast eftir því að útlendingar kaupi hlut? „Spurningin nú er sú hvort það er ekki orðið tíma- bært fyrir Sjálf- stæðisf lokkinn að hefja það endur- reisnarstarf, sem óhjákvæmilegt er til þess að flokk- urinn geti endur- heimt sinn fyrri sess í íslenzku þjóðlífi, með þvi að endurskoða málefnastöðu flokksins í þeim meginmálum sem blasa við og þjóð- in þarf að takast á við á næstu árum. Spurningar hljóta iíka að vaknaumþað, hvort ekki sé æskilegt að finna því endurskoðun- arstarfi annan farveg en mál- efnanefndirnar, sem reyndust vel þegar þær voru settar á stofn fyr- ir 16 árum, en þurfa ekki endi- lega að vera bezti kosturinn nú.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.