Morgunblaðið - 01.11.1987, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 01.11.1987, Blaðsíða 51
51 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1987 Kveðjuorð: Rögnvaldur Rögn- valdsson frá Siglufirði Fæddur 27. september 1921 Dáinn 18. ágúst 1987 í byijun ágiistmánaðar sl. átti ég nokkurra daga dvöl í Reykjavík. Það hafði lagst að mér skömmu áður, að láta nú af því verða að heilsa uppá gamlan vin og félaga frá þeim dögum er við vorum sam- tíða á Siglufirði, Rögnvald Rögn- valdsson og eiginkonu hans, Guðlaugu, sem búsett voru í Reykjavík, en ég hafði hvorki heyrt né séð í allt of mörg ár. Nú skyldi það ske. En gamla sagan kom upp, eins og oft vill verða hjá of mörgum. „Láta það bíða, þar til ég verð á ferðinni næst.“ Mannlegur löstur, sem ekki verður bættur eftir á. Þegar norður kom til Akureyrar á heimleið varð á vegi mínum Ari, einn af bræðrum Rögnvaldar, sem þar var búsettur. Sagði hann mér þau tíðindi, sem ég síst átti von á, að Rögnvaldur bróðir hans lægi á sjúkrahúsi og biði þar dauða síns. Mér brá að vonum. Upprifjun minn- inganna frá ævintýralegri samveru okkar á Siglufirði var runnin út í sandinn. Tíminn var liðinn. Nokkr- um dögum síðar var helfregnin staðfest. Rögnvaldur andaðist á Borgarspítalanum 18. ágúst sl. 65 ára að aldri. Góður drengur, vinur og félagi var allur. Rögnvaldur átti uppruna sinn að rekja til Skagafjarðar. Hann fædd- ist 27. september 1921 á Litlu- Brekku á Höfðaströnd og var eitt af tólf börnum hjónanna Guðnýjar Guðnadóttur og Rögnvaldar Sig- urðssonar er þar bjuggu. Rögn- valdur, sonur þeirra hjóna, er fimmta systkinið, sem kveður þenn- an heim. Það sem einkenndi þennan systk- inahóp var traust og einlæg tryggð og samheldni, þótt leiðir þeirra lægju ekki alltaf saman. Öll voru þau glaðvær og sérlega söngelsk. Hafði Rögnvaldur fengið einkar fagra söngrödd í vöggugjöf ásamt fleirum listrænum hæfileikum. Þegar hann var á fermingaraldri andaðist faðir hans, fyrirvinna stórrar fjölskyldu. Það segir sig sjálft, að lífsbaráttan hefir krafíð ekkjuna mikils dugnaðar, að fá haldið hópnum sínum saman eins og hún gerði. Hún brá búi og flutti fyrst til Hjalteyrar og síðar Siglu- flarðar Rögnvaldur hafði barnung- ur farið að róa til fiskjar með föður sínum og tók nú að stunda sjóinn frá Hjalteyri og síðar frá Siglufirði og var eftirsóttur í skipsrúm, enda frábær verkmaður og fjölhæfur, sérstaklega á vélar. Rögnvaldur var einkar léttur og góðlyndur félagi. Hann tók ríkan þátt í félagslífi á Siglufirði, söng lengi með Karlakórnum Vísi og var dijúgur liðsmaður leikfélagsins þar á staðnum. Hann var leikari af guðs náð. Rögnvaldur kvæntist Álfhildi Friðriksdóttur og settu þau saman heimili á Siglufirði. Stundaði Rögn- valdur þá sjóinn bæði á togurum og smærri bátum, auk þess, sem hann var vélgæslumaður um árabil við frystihús þar á staðnum. Eign- uðust þau hjónin fjórar dætur, sem allar eru á lífi, en þær eru: Ragn- heiður, sem er gift Sverri Björns- syni, búsett á Siglufirði. Guðný, gift Herði Björnssyni; eru búsett í Reykjavík. Matta Rósa, gift Ragn- ari Ólafssyni, búsett á Siglufirði, og Sigríður, sem gift er Þorsteini Aðalsteinssyni, en þau eru búsett á Dalvík. Þegar Rögnvaldur var um fer- tugt slitu þau hjónin samvistum og flutti hann þá frá Siglufirði. Þó þannig skipaðist málum, var hann en um skeið á togurum Bæjarút- Minning: Lára Bergsdóttir Fædd 26. febrúar 1906 Dáin 21. október 1987 Amma fæddist í Reykjavík 26. febrúar 1906, og þar ólst hún upp. 19. október 1929 giftist hún eftirlif- andi afa mínum, Óskari Jóhanns- syni, og eignuðust þau 3 börn, Berg, Þorbjörgu Helgu og Grétu. Lengst af hafa þau búið að Meðalholti 7. Við fráfall slíkrar merkiskonu, sem amma var í mínum huga, renna ótal minningar sem myndir á tjaldi fram í hugann. Ég varð þeirrar gæfu aðnjót- andi, sem barn, að vera með ömmu og afa í sumarbústað þeirra. Garð- urinn þar bar þess vott hversu vel hún unni öllum gróðri. Það var sama hvað hún tók sér fýrir hend- ur, hvort heldur það var ræktun blóma eða grænmetis, hún lagði alúð og natni í öll sín verk. Jarðar- beijareiturinn og gulrótarbeðin hennar ömmu voru oft freistandi litlum munni. Amma var bókhneigð kona sem unni íslenskri tungu, oft leiðrétti hún vitleysur sem út úr mér ultu. Það var henni til mikils ama að heyra rangt farið með íslenskt mál. Undanfama mánuði og jafnvel lengur hefur hún verið mikið veik en lundarfar hennar leyfði ekki að mikið væri um það talað. Hlátur hennar mun ætíð hljóma í eyrum mínum. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég ömmu mína og þakka henni samfylgdina í 33 ár, megin trúin og minningin um góða konu styrkja afa minn sem sér nú á eftir ástkær- um lífsförunaut. Lára Sveinsdóttir „Láttu nú Ijósið þitt, loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti.“ Þetta vers var það fyrsta sem kom upp í huga mér þegar ég heyrði um andlát ömmu minnar. Þetta kenndi hún mér og bað með mér ásamt bænunum á kvöldin. Hjá ömmu og afa áttum' við systkinin alltaf skjól, umvafin ástúð, umhyggju og kærleik. Það er sárt að hugsa til þess nú hve sjaldan við sáum hana í seinni tíð. En þá sjaldan að það var tók hún alltaf brosandi á móti okkur og sagði oftast, ertu nú komin elskan, að heilsa upp á „frú ræfílsen". Ekki ræddi hún veikindi sín öðru- vísi. Það er margt sem kemur upp í hugann á kveðjustund, sem ekki verður rifjað upp hér. Vil ég því þakka allar samveru- stundir með henni og bið Guð að gefa afa mínum styrk í sínum sökn- uði. Linda Birna myrkrið, en fundust síðar látnir. Þetta sjóslys hafði djúp og mikil áhrif á lífsviðhorf Rögnvaldar, þó hann léti lítið á því bera. En dagar Rögnvaldar voru ekki allir. Kallið var ekki komið. Hann ha-fði af tilviljun einni sam- an kynnst konu, sem einnig stund- aði sjómennsku. Hugir þeirra féllu í sama farveg og 27. júlí 1968 gift- ist Rögnvaldur eftirlifandi konu sinni, Guðlaugu Magnúsdóttur, sem átti heimili í Reykjavík. Frú Guð- laug átti dijúgan þátt í því, að Rögnvaldur settist á skólabekk og aflaði sér fullra vélstjóraréttinda, sem hann hafði ekki haft aðstöðu til fyrr. Síðan eða samfleytt frá 1968 til 1981 var hann vélstjóri, síðast á bv Siglfírðingi. Eftir að hann lét af sjómennsku starfaði hann hjá Seglagerðinni Ægi. Heimili þeirra hjóna var alla tíð í Reykjavík, síðustu 14 árin á Urð- arbakka 12. Hjá þeim bjó lengi á vetrum móðir Guðlaugar, sem Rögnvaldur reyndist mjög vel eins og hans var von og vísa, svo hjálp- samur og greiðvikinn, sem hann var. í aprílmánuði sl. kom í ljós að hann var haldinn meinsemd, sem dró hann til dauða. Lengst af eða framundir hið síðasta dvaldi hann heima og naut þar frábærrar um- önnunar Guðlaugar konu sinnar. Útför Rögnvaldar fór fram frá Áskirkju 24. ágúst sl. Séra Ámi Berjrur Sigurbjörnsson jarðsöng. Eg sendi eiginkonu Rögnvaldar, bömum og aðstandendum hans mínar innilegustu samúðarkveðjur.. Guð blessi minninguna um góðan vin og félaga. Bjöm Dúason gerðar Siglufjarðar og réri einnig á trillu sinni til fískjar þaðan á sumrin. Þegar hið mikla sjóslys varð er b/v Elliði frá Siglufirði fórst þann 10. febrúar 1962 út af Öndverðar- nesi var 28 manna áhöfn á skipinu, flestir frá Siglufirði. Rögnvaldur var þar á meðal og vélstjóri. Skip- stjórinn var Kristján Rögnvaldsson, bróðir hans, nú hafnarvörður á Siglufirði og þriðji bróðirinn.Jón, sem var matsveinn. Þrír bræður á sama skipinu í dauðans greipum. Fyrir frábæra skipstjórn Krist- jáns, nákvæm viðbrögð og æðm- leysi skipshafnarmanna auk aðstoðar áhafnar bv Júpíters, sem náði að komast á slysstað í tæka tíð, tókst að bjarga allri skipshöfn- inni úr sökkvandi skipinu utan tveggja manna, er hurfu út í nátt- töflureiknir og Fjölbreytt námskeiö um notkun áætlanageröarforrita í viðskiptum og heima. Dagskrá: • Qrundvallaratriði Excel • Aætlanir og útreikníngar • Notkun töflureikna í viöskiptum • Myndræn framsetning talna • Söfnun upplýsinga meö Excel Dag og kvöldnámskeiö Næstu námskeió hefjast 2.nóvember Halldór Kristjánsson verkfræóingur Tolvu- og verkfræðiþi&nustan Grensásvegi 13, stmi 68 80 90, einnig um helgar VISA Vantar teppiá stigaganginn ? yy Þegar velja skal teppi á stigahús, er ekki nóg að teppið sé bara mjúkt og áferðarfallegt,það verðurað vera hljóðeinangrandi og auðvelt í þrifum, - teppi sem er brunaþolið og teppi sem mun þola hinn ótrúlegasta yfirgang um ókomin ár. yy Þessi teppi eru til og þú fœrð þau hjá okkur, sérhönnuð teppi á stigahús og skrifstofur.M l .hjá okkur nágœðin ígegrí Teppaland • Dúkaland Grensásvegi 13 - Símar 83577 - 83430 . t .v ^ -VV :,«E-r-'»nrv ■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.