Morgunblaðið - 01.11.1987, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1987
63
W
Sýnd í Bíóhöllinni:
Skothylkið,
Modine
og Kubrick
I Bíóhöllinni er nú verið að
sýna hina margrómuðu
stríðsmynd Stanleys Kubrick,
Skothylkið (Full Metal Jacket).
Mynd frá Kubrick er sannar-
lega stórviðburður. Hver mynd
hans á fætur annarri hefur ver-
ið meistaraverk, en sjö ár eru
liðin frá því sú síðasta, Shining,
var frumsýnd. Hann hefur að-
eins gert fimm myndir á
undanförnum 23 árum, svo það
er ekki nema von að menn
segi að mynd frá Kubrick sé
eitthvað stórmerkilegt og líki
þvi við mannaða geimferð.
Þess má geta að á 23 árum
er hægt að ferðast til Júpiter,
eins og Terrence Rafferty
bendir réttilega á í grein um
Kubrick í nýjasta hefti kvik-
myndaritsins Sightand Sound.
Með eitt af aðalhlutverkun-
um í Skothylkinu fer tiltölulega
óþekktur leikari, Matthew
Modine að nafni, og hann
prýddi forsíðu American Film
fyrir skömmu og inni í blaöinu
var viðtal sem hér birtast kaflar
úr. Modine varð fyrst þekktur
af einhverju viti þegar hann lók
i Alan Parker-myndinni Birdy.
Hann afþakkaði boð um að
leika í Top Gun á sínum tíma
af því honum líkaði ekki við
pólitíkina í henni og vildi frekar
ræða um Carl Jung en Holly-
wood við „American Film.
Nýjasta myndin hans, Munað-
arleysingjar, er með Albert
Finney í aðalhlutverki, en leik-
stjóri er Alan J. Pakula.
Spurning: Hvernig er að
•eika í umdeildustu mynd árs-
ins?
Modine: Er hún það?
Spurning: Já, meira eða
minna.
Modine: Ég vissi það ekki.
Ég hef ekkii lesið neitt um
myndina. Ég þekki ekki umræð-
urnar um hana.
Spurning: Nú, sumir segja
hana snilldarlegan áróður gegn
stríði. Aðrir segja hana nílhíska
og kiisjukennda.
Modine: Allt sem gerist í
Skothylkinu er til. Atriðin í he-
ræfingabúðunum er sennilega
raunsannasta lýsing á æfinga-
búðum landgönguliða sem sett
hefur verið á filmu . . . Það
er ekki ánægjuleg lýsing. Það
er engin undankomuleið.
Ástæðan fyrir því að sögur
Stanleys eru svona sláandi er
sú, að þær eru svo trúverðug-
ar. Hann reynir ekki að skapa
meðaumkun með einhverjum
af því þetta er bíómynd og
hann vill gera áhorfendur án-
ægða. Það er ekki ánægjulegt
að sjá mann drepinn. Og það
er ekki ánægjulegt að deyja.
Hvers vegna að reyna að gera
eitthvað rómantískt úr því þeg-
ar það er það ekki? Kannski
það hafi verið réttlætanlegt,
vegna þess sem var að gerast
í Evrópu, að gera allar þessar
rómantísku stríðsmyndir í
seinni heimsstyrjöldinni. En að
halda því áfram eru mistök.
Veistu, það var frábært sem
gerðist á sjöunda áratugnum
þegar fólk fór að spyrja hvers
vegna.
Spurning: Margir bera Skot-
hylkið saman við Herdeildina
(Platoon).
Modine: Mér finnst þær lýsa
tveimur algerlega ólíkum skoð-
unum.
Spurning: Góðu og iilu er
lýst miklu skýrar í Herdeildinni.
Modine: En það er erfitt að
skilgreina gott og illt í lífinu,
er það ekki? Það er miklu auð-
veldara að gera í myndum gott
og illt en þekkja það í raun.
Spurning: Fórstu að hata
Kubrick?
Modine: Nei. Stanley er vin-
ur minn. Stundum af hreinni
taugaveiklun varð maður reiður
við Lee Emey (þjálfarann í æf-
ingabúðunum). En það mynd-
ast bönd milli manna og það
er í rauninni ekki hægt að vera
reiður við neinn. Þú reiðist ekki
leikstjóranum vegna þess að
hann er að búa til listaverk, en
ekki bara bíómynd. Þetta er
ekki eins popptónlistin sem þú
hlustar á á sumrin og glottir
að. Þetta er eins og klassísk
tónlist sem þú getur hlustað á
aftur og aftur og í hvert skipti
sem þú hlustar finnur þú eitt-
hvað nýtt. Þannig hugsa ég um
Stanley.
Spurning: Settist Kubrick
niður með ykkur og skýrði fyrir
ykkur um hvað myndin væri?
Modine: Nei, nei. Ég býst
við að hann hafi stundum
freistast til þess. En ég hef það
á tilfinningunni, að með því að
segja manni ekki hvað hann
vildi fundum við það einhvern
veginn saman. Hann gaf þó
vissulega skipanir. Við töluðum
heilmikið saman um allt frá
hnefaleikum til grískrar goða-
fræði, frá A til Z. Það var
frábært.
Tónleikar og danssýning
Þjóðdansaflokkurinn Kryshatsjok frá Minsk í Hvítanísslandi,
óperusöngkonan Nina Kozlova, söngvarinn Jaroslav Évdomikov
og hljóðfæraleikarar halda lokatónleika og danssýningu í Þjóð-
leikhúsinu annað kvöld, mánudaginn 2. nóv. kl. 20.00. Fjöl-
breytt skemmtiskrá.
Aðgöngumiðar seldir í húsakynnum MÍR kl. 10.00-12.00 í
dag, sunnudag, og á morgun í Þjóðleikhúsinu frá kl. 16.00.
MÍR.
Electrolux
BW 200 uppþvottavélin
náði ekki bara prófinu... hún
„DÚXAÐI” !
Á kröfuharðasta neytendamarkaðinum, fékk hún
eftirfarandi ummæli frá Svenska Konsumentverket:
* Hæsta einkunn (5) fyrir uppþvott og þurrkun
* Hæsta einkunn (5) fyrir að vera hljóðlát
* Hæsta einkunn (5) fyrir sparneytni
* Við bætum svo við ótrúlegu verðtilboði
aðeins
34.557,
stgr.
Láttu ekki uppþvottinn angra þig lengur-
„KÝLDU” Á ELECTROLUX !
Electrolux
Leiöandifyrirtöki
©
Vörumarkaðurinii
I KRINGLUNNI SÍMI 685440