Morgunblaðið - 01.11.1987, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1987
53
Minning:
Kristín S. Finns-
dóttir, Blönduósi
Fædd 17.janúar 1924
Dáin 26. október 1987
Langri og erfiðri baráttu er lokið
og Síta okkar hefur fengið hvíldina
eftir nær áratugs baráttu við þann
sjúkdóm sem að lokum lagði hana
að velli.
Aftur og aftur hafði henni tekist
með einstökum dugnaði að komast
á fætur og til vinnu eftir að gerðar
voru á henni miklar aðgerðir, en á
liðnu sumri var sýnt að hverju
stefndi, og síðustu mánuðina varð
hún meira og minna að liggja á
sjúkrahúsi, þar til hún lést aðfara-
nótt 26. október sl.
Kristín Sæbjörg Finnsdóttir, eða
Síta, eins og hún var ávallt kölluð,
var fædd í Skrapatungu í Vind-
hælishreppi þann 17. janúar 1924.
Var hún þriðja í röðinni af fjórum
systkinum, en þau eru, Ottó Valur,
trésmiður á Blönduósi, Guðný, hús-
móðir á Skagaströnd og Elísabet,
húsmóðir á Blönduósi. Foreldrar
þeirra vonj Finnur Guðmundsson,
bóndi í Skrapatungu, og síðar versl-
unarmaður á Blönduósi, og Ingi-
björg Jónsdóttir kona hans. Síta
ólst upp í einstaklega samhentri og
góðri fjölskyldu þar sem allir lögð-
ust á eitt með að búa að sínu og
aðstoða vini og nágranna. Hef ég
heyrt marga fyrri nágranna þeirra
lýsa því hvernig íjölskyldan í
Skrapatungu var ávallt hjálpleg og
tilbúin að liðsinna þeim sem á
þurftu að halda.
Síta fékk sína barnaskólamennt-
un eins og aðrir á þeim tíma, en
síðar fór hún í Kvennaskólann á
Blönduósi, og er mér minnisstætt
þegar hún rifjaði upp sögur frá
veru sinni þar og samheldni, sem
ríkt hefur hjá skólasystrum hennar,
en á milli þeirra hefur ávallt verið
gott samband. Vorið 1945 flutti
fjölskyldan í Skrapatungu til
Blönduóss, og eftir þann tíma starf-
aði Síta hjá Kaupfélagi Húnvetn-
inga, að undanskildum þremur
árum er hún vann við verslunar-
störf í Reykjavík. Hjá kaupfélaginu
vann hún fyrst við verslunarstörf,
en lengst af við bókhald félagsins.
Var hún þar eins og annars staðar
vinsæl og vel virf af öllum sem
henni kynntust.
Eins og fyrr segir flutti Síta
ásamt fjölskyldu sinni til Blönduóss
1945. Bjuggu þau fyrst í gömlu
húsi sem nefnt var Litla-Enni.
Nokkrum árum síðar flutti fjöl-
skyldan í nýbyggt hús á Húnabraut
36, sem síðan varð heimili hennar
til æviloka.
Um margra ára skeið annaðist
hún ásamt Ottó bróðir sínum for-
eldra þeirra, sem dvöldust heima
til æviloka, og var umhyggja þeirra
til mikillar fyrirmyndar, og eflaust
var vinnuálagið mikið, því gesta-
gangur var alla tíð mikill á heimil-
inu.
Síta eignaðist einn son, Leif
Kristin, fæddan 27. mars 1958,
starfsmann hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur. Hann reyndist móður
sinni alla tíð einstaklega vel, enda
var hann augasteinn og yndi henn-
ar.
Segja má að vinátta og kunnings-
skapur hafi ríkt á milli fjölskyldna
okkar frá því að ég man eftir mér.
Við bræðurnir vorum daglega gest-
ir á Húnabraut 36, enda stutt á
milli. Seinna var undirritaður dag-
legur gestur í „sexkaffi" ásamt
Ottó, og voru þá oft teknar hressi-
legar rimmur um landsins gagn og
nauðsynjar. Var Síta þá miðpunkt-
urinn og fengum við félagarnir að
finna fyrir því hversu skelegg hún
Minning:
Björg Aradóttir
Fædd 29. janúar 1933
Dáin 26. október 1987
Frænka mín og vinkona Björg
Aradóttir er látin, 54 ára að aldri,
eftir langa og stranga baráttu, þar
sem margar orustur voru háðar, en
aðeins sú síðasta tapaðist.
Björg var fædd og uppalin í
Máskoti í Reykjadal í Suður-Þing-
eyjarsýslu. Foreldrar hennar, sem
bæði eru látin, voru Ari Sigur-
björnsson, bóndi í Máskoti, og kona
hans, Kristín Ásmundsdóttir frá
Víðum í sömu sveit.
í Máskoti var borin mikil um-
hyggja fyrir mönnum og málleys-
ingjum. Ari þótti sérlega natinn
bóndi. Var haft á orði að búpening-
ur hans lifði sældarlífi, enda voru
dilkamir í Máskoti alltaf með þeim
þyngstu í sveitinni. Kristín var mik-
il gæðakona. Á unga aldri vann hún
við hjúkrunarstörf á Akureyri og
þótti farast þau sérstaklega vel úr
hendi. Það fór líka svo, að mest
alla búskapartíð hennar leitaði at-
hvarfs hjá henni ellimótt fólk og
einstæðingar, sem hún annaðist af
mikilli mildi og fómfýsi.
f þessu andrúmslofti vom Björg
og Sigríður systir hennar, sem nú
býr í Máskoti, aldar upp. Oft minnt-
ist Björg með þakklæti á æskuheim-
ili sitt, sem hún var bundin sterkum
tilfinningaböndum.
Á sínum yngri ámm var Björg
mikil íþróttakona. Sagt var að hún
væri léttfætt sem kind, enda átti
hún í fómm sínum verðlaunapen-
inga fyrir spretthlaup.
Björg var í tvo vetur við nám í
Héraðsskólanum á Laugum og
síðan í einn vetur í Húsmæðraskól-
anum á sama stað. í báðum þessum
skólum stóð hún sig vel, enda var
hún góð námskona ásamt því að
vera handlagin og vandvirk. Hún
hafði alla tíð mikinn áhuga á
íslenskri tungu og talaði sérstak-
lega vandað og fallegt mál.
Björg var ekki fljóttekin, en þeir
sem náðu vináttu hennar eignuðust
þar traustan félaga með skemmti-
lega kímnigáfu. Hún var glæsileg
á velli, teinrétt með fallegan lima-
burð og fríð yfirlitum. Hún hafði
yndi af því að dansa. Ekki hef ég
séð aðra bera sig betur á dansgólfi.
Framan af ámm var Björg for-
eldrum sínum mikil hjálparhella við
búskapinn. Hún stundaði einnig
ýmis önnur störf. Lengst vann hún
á saumastofum, þar sem verklag
hennar kom að góðum notum.
24. október 1969 giftist Björg
eftirlifandi manni sínum, Magnúsi
A. Ólafssyni, múrarameistara í
Reykjavík. Sl. 16 ár hafa þau búið
í Goðheimum 16, en þar komu þau
sér upp fallegu heimili, sem bar
* smekkvísi og snyrtimennsku Bjarg-
ar fagurt vitni.
27. júlí 1976 kom stærsti sólar-
geislinn inn í líf Bjargar, en þá
fæddist einkadóttirin Kristín Halla.
Litla stúlkan var tekin með keisara-
skurði og Björg sagði mér eitt sinn
í gamni, að þegar hún sá hana í
fyrsta sinn hefði henni þótt sem
þetta væri aðskotahlutur, sem
kæmi sér lítið við. Það viðhorf
breyttist skjótt og ekki veit ég neitt
barn, sem notið hefur meiri móður-
umhyggju en Kristín Halla.
Fyrir 5 árum kenndi Björg fyrst
þess sjúkdóms, sem hún nú hefur
lotið í lægra haldi fyrir. Síðan hafa
skipst á skin og skúrir í heilsufari
hennar. Eftir hverja legu stóð Björg
á fætur staðráðin í að gefast ekki
upp. Tilhugsunin um að fara frá
litlu fallegu stúlkunni sinni var
henni nánast óbærileg, enda var
gat verið ef hún vildi það við hafa.
A árunum frá 1970—’80 fórum við
ásamt fjölskyldum okkar nokkrum
sinnum í sumarferðir, sem eru okk-
ur og börnum okkar minnisstæðar.
Síta tók mikinn þátt í félags-
starfi, m.a. með Ungmennafélaginu
Hvöt og Leikfélagi Blönduóss, þar
sem hún lék í fjölda af leikritum
og vann einnig ýmis störf sem
tengdust starfsemi félagsins. Hún
sat mörg ár í stjórn leikfélagsins
og var gerð að heiðursfélaga fyrir
frábært starf í þágu þess fyrir
nokkrum árum.
Lokið er margra ára baráttu, þar
sem Síta vissi að hún mundi bíða
ósigur. Hún tók örlögum sínum
möglunarlaust og hetjulund hennar-
var aðdáunarverð.
í þeim raunum og erfiðleikum
sem hún og fjölskylda hennar hafa
reynt er það huggun harmi gegn,
að handan móðunnar miklu bíður
hennar æðra líf, sem þeim hlotnast
sem reynt hafa mikið og ævinlega
miðlað því besta til samferðar-
manna.
Megi minningin um fagurt líf
hinnar látnu milda þá sorg sem
hvílir yfir syni hennar, fjölskyldu
og vinum.
Hilmar Kristjánsson
með ólíkindum hvað hún þraukaði
lengi.
I þessu veikindastríði stóð Magn-
ús, eiginmaður hennar, alla tíð þétt
við hlið hennar með uppörvunarorð
á vörum. Svandís, dóttir hans af
fyrra hjónabandi, reyndist Björgu
líka mikill styrkur.
Tveim dögum fyrir andlátið
kvaddi Björg mig með þessum orð-
um: „Ég vona að þetta hendi aldrei
þig og þitt fólk.“ Mér fannst þessi
setning lýsa Björgu vel. Hún lá
þarna sárþjáð án þess að kvarta,
en gat ekki hugsað til þess, að aðr-
ir þyrftu að heyja aðra eins baráttu
og hún var að ljúka.
Ég bið Guð að gefa litlu dóttur-
inni, eiginmanninum og einkasyst-
urinni styrk á þessum erfiðu
tímamótum. Ég bið þau líka að
minnast þess, að þau eru lánsöm
að hafa átt slíka konu að sem
Björgu Aradóttur.
Sigríður Teitsdóttir
Útför Bjargar fer fram frá Lang-
holtskirkju mánudaginn 2. nóvem-
ber kl. 15.00.
t
Eiginkona mín,
ALBERTÍNA ELÍASDÓTTIR,
Grœnagarði,
(safirði,
lést í sjúkrahúsi ísafjarðar aðfaranótt 28. október. Jarðarförin fer
fram frá kapellunni í Hnífsdal miðvikudaginn 4. nóvember ki. 14.00.
Fyrir mína hönd, barna, tengdabarna og annarra vandamanna,
Pétur Tryggvi Pétursson, Grænagarði, Ísafirði.
t
Móðurbróðir minn,
JAKOB ÞORSTEINSSON
frá Borg í Skötufiröi,
er andaðist 21. þ.m. á Hrafnistu, verður jarðsunginn miðvikudag-
inn 4. nóvember kl. 13.30 frá nýju kapellunni í Fossvogi.
Fyrir hönd aðstandenda,
Friðrik S. Friöriksson.
t
Útför eiginmanns míns og föður okkar,
HRÓLFS HALLDÓRSSONAR
framkvæmdastjóra,
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 3. nóvember kl. 13.30.
Halldóra Sveinbjörnsdóttir,
Þóra Hrólfsdóttir, Sigrfður Hrólfsdóttir
og Halldóra Hrólfsdóttir.
t
Þökkum innilega veitta samúð vegna andláts og jarðarfarar eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
B0RGE HILLERS,
Heiðmörk 3,
Selfossi.
Ingibjörg Þorvaldsdóttir,
Þorvaldur Ómar Hillers, Anna Friðbjörnsdóttir,
Úlla Hillers,
Úlfar Pálmi Hillers, Ingibjörg Hjaltadóttir,
Karl Henrik Hillers, Edda Guðmundsdóttir,
Gyöa Huld Björnsdóttir, Jón Ágústsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum samúð og vináttu vegna andláts og útfarar,
ÞÓRÐAR HELGASONAR
frá Þursstöðum,
Borgarhreppi.
Guðrún Tryggvadóttir
og fjölskyldur.
Lregsteinar
HARGAR GERÐIR
Mmorex/Gmít: ■
Steinefnaverksmiðjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 Hafnarfjörður
WORD
ritvinnsla með stæl
Námskeið fyrir þá sem gera kröfur
til ritvinnslu og textagerðar.
Dagskrá:
• Grundvallaratriði Word
• Uppsetning skjala og leturval
• Orðasöfn og style sheets
• Efnisyfirlit og atriðisorðaskrár
• Fléttun skjala og aðrir eiginleikar
Dag og kvöldnámskeiö
Næstu námskeið hefjast 9.nóvember Halldór Kristj'ánsson
verkfræðingur
Talvu-og
verkfræfiiþjónustan
Grensásvegi 13, sími 68 80 90 einnig um helgar