Morgunblaðið - 29.11.1987, Blaðsíða 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1987
BLAD
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS 60 ÁRA:
Islendinga á landi sinu
Rætt við
Höskuld
Jónsson
forseta
félagsins
í SEXTÍU ÁR hefur
Ferðafélag íslands
staðið fyrir starfsemi
sem miðar að því að
hvetja íslendinga til að
ferðast um eigið land
og fræðast um það.
Félagið hefur gert það
með því að standa fyrir
ferðum, útgáfu korta
og 59 árbækur
félagsins eru hafsjór af
fróðleik um landið og
náttúru þess. Þá má
nefna sæluhúsin sem
reist hafa verið á
vegum félagsins og
göngubrýr sem lagðar
hafa verið yfir torsóttar
ár - allt eru þetta liðir
í því markmiði félagsins
að kenna okkur sambýli
við landið. Félagsmenn
eru nú orðnir yfir 8
þúsund víðs vegar um
landið og þeir hafa
unnið mörg handtökin
í starfínu gegnum árin.
Forseti Ferðafélags
íslands er Höskuldur
Jónsson o g við förum í
smiðju til hans og
sækjum fróðleiksmola
um starfsemina.
Göngubrúin yfir Krossá vigð lS.júní 1986. (Ijósm. Tryggvi Halldórsson).
Félagið er stofnað
hinn 27. nóvember
árið 1927, segir
Höskuldur. -Bjöm
Ólafsson stór-
kaupmaður tók að
sér að annast
stofnun þess fyrir
hvatningarorð Sveins Bjömssonar
sem þá var sendiherra í Kaup-
mannahöfn. Björn var mikill ferða-
maður og áhugamaður um óbyggðir
Islands og safnaði hann nokkru liði
til að undirbúa stofnfundinn. í
ávarpi sem kynnt var fyrir fundinn
sögðu þeir að mönnum hefði „fyrir
löngu orðið ljóst að fáfræði erlendra
þjóða um hagi vora er oss til hinn-
ar mestu óþurftar á ýmsan hátt...“
Stofnfélagar töldust vera 63 og
hefur félagaíjöldinn aukist talsvert
því nú er hann kringum 8.400
manns.
Að vekja áhuga
-Markmið félagsins em í dag þau
sömu og sett vom í upphafi en
Ferðafélagið hefur fyrst og fremst
beint kröftum sinum að því að vekja
áhuga íslendinga á landi sínu, nátt-
úm þess og sögu, hvetja þá til
ferðalaga um landið og efla vitund
þeirra um nauðsyn varfærni í sam-
býli við þetta land. Félagið hefur
þó ekki starfað mikið að land-
kynningu þar sem aðrir aðilar tóku
fljótlega að sér þann þátt en þó
berst ótrúlega mikið af fyrirspum-
um sem svara þarf.
Hvernig starfar það einkum
að markmiðum sínum?
-Starfsemi Ferðafélagsins bygg-
ist einkum á fjórum atriðum:
Ferðum, rekstri sæluhúsanna, kor-
taútgáfu og bókaútgáfu. Þetta hafa
verið aðalþættimir í starfinu frá
upphafí og þeir hafa í raun breyst
ótrúlega lítið.
Fyrsta ferð félagsins var farin
árið 1929 með 31 þátttakanda. Nú
em farnar kringum 220 ferðir á
ári hveiju og alls munu um 6 þús-
und manns ferðast með félaginu á
þessu ári. Fyrsta sæluhúsið var reist
í Hvítámesi árið 1930 og var það
stórátak. Nú rekur félagið 27 skála
víðsvegar um-landið og standa þeir
opnir allt árið og er öllum ferðalöng-
um fijálst að nota þá.
Þá má nefna árbækur Ferðafé-
lagsins. Þær em nú orðnar alls 59
en í þeim er samankomin ein viða-
mesta Islandslýsing sem gefin hefur
verið út. Nú er verið að gefa út
efni um suma staðina í annað sinn
og þá' er tækifæri til að nálgast þá
frá öðm sjónarhomi en í fyrri bók-
um. Enn má nefna útgáfu korta,
ferðakorta og sérkorts um Þórs-
mörk, rit um gönguleiðir og bók
um fjörulíf. Verið er að undirbúa
bók um íslenska steina sem koma
á út árið 1989. Af þessari upptaln-
ingu má sjá að starfíð er viðamikið
og hefur stöðugt farið vaxandi.
Sjá bls. 26C og 27C.