Morgunblaðið - 29.11.1987, Blaðsíða 46
46 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1987
félk í
fréttum
Morgunblaðið/Sverrir
Séð yfir hópinn sem sótti listkynningn „Intemational Women of Reykjavík". Lengst til vinstri situr
formaðurinn Linda Stillmann Zube og aftast stendur Hrafnhildur Schram, sem hélt fyrirlesturinn.
„INTERNATIONAL WOMEN OF REYKJAVÍK“
Kynning
á íslenskri list
Intemational Women of
Reykjavík" er félagsskapur sem
er ekki ýkja þekktur hér, en hefur
þó starfað af fullum krafti í Qögur
ár. í félaginu eru mestmegnis er-
lendar konur, allt frá eiginkonum
sendiherra til ritara og einnig
nokkrar íslenskar konur. Er til-
gangurinn með félaginu að þær
kynnist og skilningur erlendu
kvennanna á íslensku fólki og
þjóðlífí aukist. A vegum félagsins
eru starfræktir tungumálahópar og
sæikeraklúbbur. Þá stendur félagið
einnig fyrir listkynningum og á
þriðjudag héldu konumar fund þar
sem íslensk list var kynnt.
Pundurinn var haldinn í Galleríi
List og kynnti Hrafnhildur Schram
íslenska málaralist. Hún talaði með-
al annars um fæðingu íslenskrar
málaralistar, sagði það ákaflega
mikilvægt að vita hvað á undan
væri gengið þegar íslensk nútíma-
list væri skoðuð, en í galleríinu var
sýning á nútímaverkum nokkura
íslensk'ra málara.
Andy, með hönd
undir kinn horfir
dapurá
aðdáendaskarann
sem óx honum yfir
höfuð.
BRESKIR POPPAÐDÁENDUR
Má bjóða ykkúr upp á tesopa?
Æstir aðdáendur þykja afar
þreytandi fyrirbrigði og það mun
ungur söngvari á uppleið, Andy
Bell, söngvari Erasure geta tekið
undir. Hljómsveitin á þó nokkrum
vinsældum að fagna og hafa
aðdáendur Andys tekið upp á þeim
leiða sið að hanga fyrir utan
heimili hans og gildir einu hvort
dagur er eða nótt og hvort veður
eru válynd eður ei. Andy er ungur
að árum og hafði ekki tileinkað
sér þá leiðindaframkomu sem
sumar stjömumar sýna
þolinmóðum aðdáendum. Dag
einn bauð hann því þeim er héngu
fyrir utan, inn til sín og bauð
þeim upp á te. Aðdáendumir sem
ekki voru margir, þáðu boðið með
þökkum og drukku teið í góðu
yfirlæti. Gerðist þetta nokkrum
sinnum og fjölgaði sífellt þeim er
fréttu af tesamsætinu. En þegar
fjöldinn var kominn upp í rúmlega
50 manns þótti Andy nóg komið
og sagði því tedrykkju lokið.
íhugar hann nú að flytja í rólegra
umhverfí, en aðdáendumir sitja
fyrir utan og bíða. Og bíða.
BREZKA KONUNGSFJÖLSKYLDAN
Nokkrar
skemmtisögiir
Fréttir af kóngafólki þykja víða
vinsælt efni hjá fjölmiðlum
og ekki á þetta sízt við um brezku
konungsfjölskylduna. Svo mikið
er víst að hér á f slandi vita fiestir
eitthvað um Elisabetu drottningu,
böm hennar, tengdaböm og
bamaböm. En á nýliðnu sumri
kom út bók í Bretlandi sem nefnist
á tungu þarlendra „The Royal
Family Quiz & Fact Book“, eða
bók með upplýsingum og
staðreyndum um
konungsijölskylduna. Bókin er
skrifuð í léttum dúr og er uppfull
af lítt þekktum sögum af þessari
þekktu fjölskyldu. Fara hér á eftir
örfáar þeirra.
1. Áður en Karl prins af Wales
kvæntist lafði Díönu Spencer
virtist hann meira en lítið hrifínn
af Davinu Sheffield, en því
ævintýri lauk skyndilega þegar
brezku blöðin birtu orðróm um að
efast mætti um skírlífí hennar.
Hvort sem þessi orðrómur átti við
rök að styðjast eða ekki, þá kom
hann í veg fyrir að hún gæti
nokkru sinni hlotið samþykki sem
væntanleg eiginkona verðandi
konungs Bretlands.
2. Eitt sinn íhugaði prinsinn af
Elísabet fl, 5 ára
með prakkarasvip.
Wales að kvænast lafði Diönu
Spencer, en hætti við og kvæntist
þess í stað Augustu prinsessu.
En sá prins og sú lafði Diana
voru ekki þau sem nú eru svo oft
í fréttunum. Prinsinn þessi var
Friðrik Louis, en faðir hans, Georg
II., var konungur árin 1727-60.
3. Elizabet drottning safnar
frímerkjum. Sonur hennar, Karl
prins, er í hópi þeirra fáu sem
safnagömlum klósettsetum.
4. Þegar Andrew prins fæddist
kom upp orðrómur um að hann
Anna og Mark Philips brosa
blítt.
Ekki ber hann mikinn svip af
móður sinni blessaður drengur-
inn hann Carolo sem þarna
heldur utan um elskuna sína,
hana Drew, en það hefur heldur
tognað úr henni síðan við sáum
hana i ET.
KÆRUSTUPÖR
Carolo og Drew
eru orðin stór
Hvað er það sem tengir þau
Sophiu Loren og ET saman?
Það eru blessuð bömin. Carolo
Ponti, sonur Sophiu Loren og Carlo
Ponti, er nú kominn á giftingarald-
urinn, orðinn fullra 18 ára. En hugsi
ungar stúlkur á svipuðu reki sér
gott til glóðarinnar skal þeim bent
á að drengurinn er nú þegar lofað-
ur, þó ungur sé. Það er Drew
Barrimore sem hefur fangið hjarta
hans, en hún hefur unnið sér það
helst til frægðar að hafa knúsað
sjálfan ET. Er Carolo hennar fyrsti
kærasti enda stúlkan einungis 15
ára.