Morgunblaðið - 29.11.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.11.1987, Blaðsíða 4
4 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1987 BASEL ZÚRICH pSONNENBERG- SgS GÖNGIN VIÐ LUZERN nákvæmlega að rörunum og ræsun- um, sem liggja um fjallið. Síðan voru trégámar, sem skipt er í 64 hluta, settir saman og þeim komið fyrir í göngunum endilöngum. Kon- ur, börn og eldri menn eiga að fá Hraðbrautin liggur eftir tveimur göngum inni í fjallinu. Þeim er lok- að með §órum 350 tonna hliðum, sem leynast inni í fjallshlíðinni nokkra tugi metra fyrir innan opið á göngunum. Á veginum við hlið V-ÞÝSKALAND ITALIA Sonnenberg-göngin eru í Luzern á leiðinni frá Vestur-Þýskálandi til Ítalíu. eitt hólf hvert til umráða. Þau eru 190x70x65 sm á stærð og þar á fólkið að dvelja þar til hætta er lið- in hjá. Starfsemi neyðarsjúkrahússins í fjallinu miðju hófst síðust. Útbúnað- Unnið við að loka Sonnenberg-göngunum. Sviss: Umferðargöngum breytt í loftvarnarbyrgi og spítala ZUrich. Þeir sem hafa ekið í gegnum Sviss á leið frá Norður-Evrópu suður á bóginn eftir hraðbraut- inni E9 eða N2 hafa farið í gegnum Sonnenberg-göngin við Luzern. Göngin eru rúmlega 1,5 kílómetra löng og virðast í fljótu bragði í engu frábrugðin öðrum fjallsgöngum. En þetta eru stórmerkileg göng við nán- ari athugun. Þau eru þannig úr garði gerð að það er hægt að Joka þeim og útbúa loftvarnar- byrgi fyrir 20.000 manns á hinum fjórum akreinum gang- anna og inni í þeim miðjum eru dyr að sjö hæða jarðhýsi þar sem neyðarsjúkrahús fyrir 300 sjúldinga yrði sett á laggirnar ef stríð brytist út. Göngin voru opnuð fyrír bílaum- ferð fyrir rúmum 10 árum. Þau eru á einni helstu umferðaræð Vestur- Evrópu og fara dagiega um 32.000 bflar um þau að meðaltali. Það er þvf ekki hlaupið að því að loka þeim til að æfa uppsetningu loftvamar- byrgisins. Svissneska ríkisstjórnin veitti borgaryfirvöldum í Luzem þó loks leyfi í maí sl. til að loka göngunum fyrir allri umferð í sex daga til þess að starfrækja byrgið og sjúkra- húsið í æfingaskyni. Það tók sinn tíma að skipuleggja æfínguna, en á mánudagsmorgun 16. nóvember var allri umferð beint fram hjá göngunum og hafíst handa við að útbúa þau í fyrsta skipti eins og stríð væri í vændum. Starfsmenn almannavarna hvílast og fá sér bjór. Erlendum blaðamönnum var boð- ið að litast um í fjallinu í upphafi æfíngar. Herflutningabíll flutti okk- ur frá lestarstöðinni í Luzem að strætisvagnastöð í úthverfí borgar- innar. Þaðan gengum við eftir gangstétt að rammlegri hurð og dyrum inn í fy'allið. Löng, mjó göng, með stórum og litlum rörum til hvorrar handar lágu inn í mann- virkið í Sonnenberg. Þar voru bláklæddir karlmenn, flestir á miðj- um aldri, önnum kafnir við að leggja fleiri rör og pípur, stilla stór tæki oer flvtia hluti fram og aftur. þeirra em þykkar stálplötur, sem hægt er að fjarlægja, og undir þeim em spor fyrir hliðin. Það á að taka Qömtíu manns með fullkominn tækjabúnað átta klukkustundir að loka öllum hliðunum. Það tók Iengri tíma en ætlað var að loka fyrsta hliðinu á æfíngunni en tókst þó áður en yfir lauk. 150 sm breitt stálsteypuhliðið mjakaðist yfír göt- una og stór hópur manna fylgdist andaktugur með. Inni í göngunum var byijað á að setja upp þvotta- og salemisað- stöðu. Pípumar þurftu að falla urinn fyrir sjálf byrgin er geymdur í húsakynnum þess og því þarf að færa hann út og setja upp byrgin áður en hægt er að fara sinna sjúk- um og slösuðum í sjúkrahúsinu. Komi til styijaldar verða stóm hliðin ekki opnuð fyrr en öll hætta er liðin hjá. Hliðardyr á fjallinu verða notaðar til að komast inn og út úr því. Loftvamarbyrgið hefur sína eigin rafstöð, loftræstikerfi og vatnsveitu, sem notar jarðvatn. Fólk { því á að vera óhult gegn efna- og kjamorkustríði, svo ekki sé minnst á venjulegt stríð. Það á -að koma með nesti fyrir þijá daga með sér, en annars em neyðarmat- arbirgðir á staðnum fyrir nokkra daga. „Það deyr enginn úr hungri þótt hann fái lítið að borða í nokkr- ar vikur,“ sagði talsmaður varnar- málaráðuneytisins. Hann gaf í skyn að fólk gæti búið í fj^llinu allt upp í mánuð án þess að komast út ef nauðsyn krefði. Samkvæmt landslögum eiga sveitarfélögin í Sviss að sjá til þess að allir íbúar þeirra hafi loftvarnar- byrgi að leita í á hættutímum. Byrgi fyrir 83% af íbúum landsins em þegar tilbúin. Hér í kjallaranum hjá mér í Zurich er til dæmis pláss fyr- ir 14 manns á bak við sterklega hurð. Við emm 10 í húsinu og not- um byrgið sem geymslu á friðar- tímum. Tæplega 70% íbúa Luzem hafa loftvamarbyrgi heima hjá sér eða í nágrenninu. En um þriðjungur íbúanna, flestir úr elsta hluta borg- arinnar, eiga að leita sér skjóls í Sonnenberg. Þar verða einnig bæki- stöðvar yfirstjórnar hersins og . almannavama í Luzern. Svissneskir karlmenn gegna her- skyldu frá 18 ára aldri fram til fímmtugs. Eftir það verða þeir að taka þátt í almannavamakerfi landsihs í 10 ár. Yngri menn, sem geta ekki gegnt herskyldu af ein- hveijum ástæðum, em einnig í almannavamasveit þjóðarinnar. Vamarmálaráðuneytinu reiknast til að 650.000 manns séu í svissneska hemum og 520.000 í almannavöm- um. Eldri mennimir em kallaðir út í tvo til þrjá daga á ári til að rifja upp það sem þeir eiga að gera á ófriðartímum. Bláklæddu garpamir í Sonnenberg-göngunum vom slíkir menn. Alls tóku 1.200 þátt í æfifig- unni þar. Hlutverk ganganna er einstakt fyrirbæri á Vesturlöndum. Hug- myndin að nýta þau sem loftvamar- byrgi varð til þegar þau vom á teikniborðinu fyrir um 20 ámm. Luzern átti þá í vandræðum með byrgi fyrir stóran hluta íbúanna, en nú eiga þeir allir í ömggt skjól að venda og ferðamenn í borginni líka. Það kostaði 80 milljónir að leggja göngin fyrir hraðbrautina og 40 milljónir til viðbótar að útbúa þau sem hugsanlegt byrgi. Menn deila um ágæti þeirra, en allir hljóta að vona að reynslan leiði aldrei í ljós hvort þau séu gagnleg fyrir ■annað og meira en umferð. Texti: Anna Bjarnadóttir. Eldhús er á þriðju hæð í 20.000 manns verður komið fyrir í risatrékössum, í hverjum Loftvamarbyrgið útbúið á hraðbrautinni. „húsi“ í miðju fjallinu. kassa em 64 hólf hver.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.