Morgunblaðið - 29.11.1987, Blaðsíða 6
6 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1987
Dulhyggja
fyrir
fjöldann
Shirley MacLaine er
dugmikill sölumaður
fyrirnýja hreyfingu
Shirley MacLaine er fjölhæfur
listamaður, — leikari, dansari og
rithöfundur. Nú hefur hún lokið við
síðustu þáttaröð sína að sinni, sem
hún hélt fyrir áhorfendur í mörgum
bandarískum borgum. En þar var
ekki um venjulegar sýningar að
ræða. Undanfama mánuði hefur
hún ferðast vítt og breitt um Banda-
ríkin og kennt um 14.000 manns
hvemig þeir eiga að komast í snert-
ingu við andleg viðfangsefni. í
helgamámskeiði hjá Shirley
MacLaine felst kynning á guðs-
kraftinum, endurfæðingum, fljúg-
andi furðuhlutum, hugleiðslu og
sjálfsskoðun.
„Yfírvitund okkar býr yfir þekk-
ingu á fortíð og framtíð," segir hún
við áhorfendur sína. „Maður leiðir
hugann bara ekki að því. Hærra
sjálfið í manni er yfírvitund hans
og tengsl við allt sem er.“
Shirley MacLaine skýrði fyrst
opinberlega_ frá sinni andlegu leit í
bók sinni „A yztu nöf“ og í kjölfar-
ið kom önnur metsölubók „Dansað
í ljósinu". Fyrr á árinu voru fluttir
sjónvarpsþættir sem byggðust á
fyrri bókinni. En með námskeiðun-
um, 17 að tölu, sem hún hefur
nýlokið við tók hún að sér hlutverk,
þ.e. hún gerðist sjálfmenntaður
andlegur leiðbeinandi. Viðtökur
þátttakenda vom hlýlegar. Þeir leit-
uðu ráða hjá henni og skýrðu frá
reynslu sinni af því að fara úr líkam-
anum og þeir klöppuðu henni lof í
lófa, eins og hún er vön. En nú er
hún komin út á hálan ís með aðdá-
endur sína. Það eru óglögg skil á
milli kennara og andlegs leiðbein-
anda og það veit hún.
„Ég er ekkert annað en glampi
í vitund hinnar nýju aldar," segir
hún. „Ég glæði bara ljósið í mönn-
um og þeir sjá sjálfír um fram-
haldið. Ég hvet ekki til bréfaskipta.
Það er mikill vandi að svara bréfum
(frá aðdáendum) því að ég gæti
flækt þá tilfínningalega inn í net,
sem ekki er til. Ég segi þeim að
sjálfír séu þeir sínir andlegu leið-
beinendur. Það eru þeir sem eru
ábyrgir fyrir eigin örlögum."
Á arinhillunni í íbúð hennar á
Manhattan eru margir útskomir
fílar, sem tengjast minningum
hennar um fyrri jarðvist. Þar eru
líka kristallar og líkneski, allt gjaf-
ir frá aðdáendum hennar og fylgis-
mönnum. „Til skamms tíma vildi
ég ekki veita gjöfum þeirra viðtöku.1
En þeir vildu leggja eitthvað að
mörkum og ég fór smám saman
að líta þetta öðrum augum. Ég
ákvað að láta gjafimar í andlega
miðstöð, sem ég hef í undirbúningi."
Á eínum veggnum í íbúðinni er
mynd af henni ásamt Jimmy Carter
fyrrum forseta, en hann hvatti hana
til að fjalla um fljugandi furðu-
hluti, eftir að bókin Á yztu nöf kom
út. Á öðrum vegg er mynd af henni
ásamt George McGovem en hún
segir að hann sé einn af örfáum
bandarískum stjómmálamönnum
„sem hafí náð þroska í andlegum
efnum“.
Shirley MacLaine er 53ja ára
gömul og hefur hætt öllum stjóm-
málaafskiptum, í bili að minnsta
kosti. Listamaður getur aðeins bor-
ið eitt stórmál fyrir brjósti hveiju
sinni og núna er það andleg við-
fangsefni, sem á henni brenna. Hún
ætlar að halda áfram kvikmynda-
leik en mun þó beina meginkröftun-
um að því að stjóma og móta
hreyfíngu „Nýju aldarinnar“ sem
hún hefur verið að kynna. Hún
hefur nýlega gefið út bókina „Það
er allt sett á svið“ og hefur gert
útgáfusamning um þijár aðrar
bækur við Bantam útgáfufyrirtæk-
ið. Snemma á næsta ári ætlar hún
að hefjast handa um framkvæmdir
við andlega miðstöð í Colorado „svo
að allir sem þangað fara geti geng-
ið út frá því sem gefnu að hitta
trúverðugan transmiðil". Hún ætlar
að efna til námskeiða um andleg
viðfangsefni að nýju á næsta ári.
Þetta eru góð tíðindi fyrir þá sem
hafa áhuga á andlegum viðfangs-
efnum, en einnig þá sem hagnast
á slíkum áhuga. Frá því að Shirley
MacLaine gekk fram á andlega
sviðið árið 1983 með bók sinni Á
yztu nöf hefur áhugi almennings á
hreyfíngu hinnar nýju aldar eflzt
stórlega. Transmiðlar, sem fara
fram á 100—300 dollara greiðslu
fyrir að hafa samband við verur á
öðrum tilverustigum, skýra frá því
að gríðarlegu fjörkippur, hafi hlaup-
ið í viðskiptin. Tónlist sem tengist
hreyfíngu nýju aldarinnar og leið-
beiningar um hvað sem er milli
himins og jarðar, allt frá hugleiðslu
til hagnýtingar á orku jarðarinnar,
renna út eins og heitar lummur.
Og útgefendur verða að hafa sig
alla við að svara eftirspum eftir
bókum um kristalla með lækninga-
mætti, miðilsstarfsemi, fljúgandi
furðuhluti, endurfæðingu og annað
sem tengist nýju öldinni. Nýja öldin
er orðin að stórgróðafyrirtæki.
I hreyfíngu nýju aldarinnar er
fátt um nýmæli en hún á rætur í
Búddisma, hindúisma og vestrænni
dulspeki. Það sem er sérstætt við
þessa hreyfíngu, og einkanlega hlut
Shirley MacLaine í henni, er að inn-
tak hennar er fært í nútímalegan
búning. Shirley hefur rutt í burtu
óþægilegum hugtökum eins og dul-
fræði og launspeki og vill heldur
nota orð eins og andleg tækni og
eðlisfræði sálarinnar. MacLaine er
listamaður og þekkir sitt heimafólk.
Hún veit hvað því hentar bezt.
Nýja öldin hefur hlotið einkar
hlýjar viðtökur hjá fólki sem fædd-
ist eftir síðustu heimsstyijöld og
er að komast á miðjan aldur. „Þessi
kynslóð var alin upp í trúrækni,"
segir William Roy aðstoðarprófess-
or við Kalifomíuháskóla og sjálfur
kveðst hann vera af þeirri kynslóð.
„Þegar við uxum úr grasi olli kirkj-
an okkur vonbrigðum og ýmislegt
fleira að auki. Við urðum efnis-
hyggjumenn áður en við hneigð-
umst til andlegra iðkana." En þessi
kynslóð er engan veginn undir það
búin að segja skilið við efnishyggj-
una og leiðtogar nýju aldarinnar
eru nægilega glöggir til að gera sér
Shirley MacLaine. Myndin er tekin við útgáfu nýjustu bókar hennar.
grein fyrir því. Fyrir vikið leggur
hreyfíngin áherzlu á aðferðir, sem
gera fólki auðveldara að fást við
álag og streitu sem efnishyggjunni
fylgja. „Þetta er eins konar ódýr
útgáfa af sálarfræði," segir Robert
Wuthnow þjóðfélagsfræðingur í
Princeton. Harvey Cox, guðfræð-
ingur við Harvard kallar hugsun
nýju aldarinnar „eins konar trúar-
tjáningu fyrir meðtorðagjamt fólk;
Maður getur fengið hvað sem er
án fyrirhafnar, óþæginda og þján-
ingar," segir hann.
Shirley MacLaine setur yfirvit-
undina í öndvegi og lýsir henni sem
eilífri, takmarkalausri sál „sálin er
maður sjálfur í raun og veru,“ og
hún endurfæðist stöðugt. Við erum
umfram allt andlegar verur en ekki
efnislegar," segir hún. Á námskeið-
unum stjómaði hún hóphugleiðslu:
„Þið skuluð ímynda ykkur að þið
séu stödd í garði og á rennur þar
í gegn. Tónlist berst frá hljómtækj-
um. Þið skulið sjá fyrir ykkur hvítt
ljós í garðinum. Gangið nú að þessu
ljósi. Veran sem birtist þar er hið
hærra sjálf." Og hún fær áhorfend-
ur til að ganga til móts við það.
Hún segir að það sé þessi sál sem
tengist guðskraftinum og sé hluti
af honum. „Við erum þessi guðs-
kraftur. Við erum fullkomin. Lykill-
inn að andlegum skilningi og
hamingju er að samtengjast guðs-
kraftinum," segir hún.
MacLaine trúir á endurfæðingar
og vegna tengsla sinna við andlegar
verur hefur hún fengið að vita um
fyrri jarðvistir sínar. Til að mynda
var hún eitt sinn munaðarlaus
stúlka í fílahjörð. „Ég var þekkt sem
fílaprinsessan og gat haft samband
við tiltekinn fíl í hundrað mílna fjar-
lægð," eins og hún skýrir frá í bók
sinni Dansað í ljósinu.
MacLaine hefur einnig haft kynni
af starfsemi miðla, sem falla í dá-
svefn og ná sambandi við andlegar
verur, einkanlega verur sem dánar
eru fyrir löngu, og þær tala í gegn-
um miðlana. A meðal fyrstu
miðlanna, sem hún hafði kynni af,
var Kevin Ryerson, sem nær sam-
bandi við þijár eða íjórar andlegar
verur. Það á meðal er ein, sem eitt
sinn var írskur vasaþjófur. Annar
var læknir í Pakistan og sá þriðji
bjó eitt sinn á Jamaica og stærir
sig af því að hafa skilning á kyn-
þáttavandamálum nútímans.
Shirley MacLaine tekur 300 doll-
ara fyrir tveggja daga námskeið,
en hún leggur á það áherzlu, að
allur ágóði renni til framkvæmda
við andlega miðstöð hennar á 300
ekra landi í Colorado. í miðstöð
þessari mun fara fram margs konar
andleg starfsemi, þar á meðal heil-
unarlækningar og gestir munu geta
haft samband við transmiðla. Hún
hefur verið gagnrýnd fyrir að reyna
að hagnast á hreyfingu hinnar nýju
aldar með því að selja bækur og
halda námskeið, en Mort Viner full-
trúi hennar segir að hún hafí hafnað
tækifænim til kvikmyndaleiks, sem
hefðu fært henni meira en milljón
dollara hagnað, til þess að geta
unnið að þessu hugðarefni sínu.
Þegar hún er að því spurð hvort
hún geti haft vald á öllu í lífí sínu,
svarar hún: „Ég er ekki enn komin
svo langt en ég veit að það er
hægt.“
„Að hafa stjóm á öllu?“
„Ef ég væri fullkomlega þroskuð
og í fullkomnu jafnvægi myndi hug-
arástand mitt einkennast af algerri
hamingjukennd."
„Heldurðu að þú náir því marki
_'í þessu lífi?“
- •, *Ég veit það ekki. Ég vil gjaman
draga lærdóm af andstæðum.
Stundum vil ég draga lærdóm af
skorti. Ég er ennþá ýmsu háð.
Stundum er gaman að vera leiður,
gráta og reiðast." Hún segist oft
„fá heilmikið út úr því að reiðastr
svo að ég er greinilega ekki tilbúin
til að fóma öllu slíku“.
Shirley MacLaine segir að andleg
viðfangsefni nýju aldarinnar séu
hagnýtasta lífstækni sem hún hafí
nokkm sinni komizt í kynni við.
Hugurinn ríkir yfír efninu eða í.
þessu tilviki ríkir andinn yfír efn-
inu. Jákvætt hugarfar leiðir ekki
einungis til meiri velgengni í lífínu
heldur dregur það einnig úr and-
legri streitu." Það er margt, sem
hefur ekki eins truflandi áhrif á
mann, þegar maður hefur betri yfir-
sýn yfir heildina," segir Shirley
MacLaine við áheyrendur sína.
Hún ber ekki á móti því að met-
orðagjamt fólk hafi hneigst að
hreyfingu nýju aldarinnar. „Eg held
að flestir hafí hallazt að þessum
málum af því að þeim hefur vegnað
vel og það hefur ekki fært því ham-
ingju. I hreyfingunní er mestmegnis
fólk, sem hefur vegnað vel. Kirkjan
segir að í fátæktinni fínni maður
guð, en sjálf vill hún eiga veraldleg-
an auð. Trúarbrögðin krefjast
hollustu og valds. En þeir sem vegn-
að hefur vel vilja ekki afsala sér
valdi sínu. Þeir vilja nota vald sitt
til að auka velgengni sína. Þar af
leiðir að sá sem leitar eftir andleg-