Morgunblaðið - 29.11.1987, Qupperneq 8
8 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1987
GOODYEAR
WRANGLER JEPPADEKK
Þér eru allar leiðir færar á Wrangler jeppadekkjum.
Dekk sem eru byggð til að endast.
Morgunblaðið/Bjami
Irene Arell, forstöðumaður Möbelinstitutet í Svíþjóð við eitt prófunar-
tækja trétæknideildar Iðntæknistofnunar. Á bak við hana eru Eiríkur
Þorsteinsson, deildarstjóri trétæknideildar, Guðni Jónsson frá Stál-
húsgagnagerðinni Steinar hf., Tómas Sigurbjörnsson og Erlendur
Hjaltason frá Kristjáni Siggeirssyni hf.
Iðntæknistofnun íslands:
Kynning á hús-
gagnaprófunum
TRÉTÆKNIDEILD Iðntæknistofnunar stendur um þessar
mundir fyrir könnun á vilja framleiðenda og neytenda á því
hvort halda eigi áfram að byggja upp hér á Iandi starfhæft
gæðaeftirlit með húsgögnum, samskonar og á hinum Norður-
löndunum. í þvi skyni hefur deildin meðal annars boðið Irene
Arell, forstöðumanni þeirrar stofnunar í Svíþjóð sem fæst við
prófun og gæðaeftirlit húsgagna, Möbelinstitutet, hingað til
lands til að kynna húsgagnaprófanir í Svíþjóð. Jafnframt vill
trétæknideildin kynna þá prófunaraðstöðu sem hún hefur
komið sér upp í húsakynnum sínum að Keldnaholti.
Tveir starfsmenn Iðntæknistofn-
unar fóru til Svíþjóðar haustið 1984
til að kynna sér framkvæmd hús-
gagnaprófana þar í landi. Síðan
hefur verið unnið að uppbyggingu
á prófunaraðstöðu í húsakynnum
Iðntæknistofnunar að Keldnaholti
þar sem stofnunin hefur komið sér
AfiCfNS (9jj40
691141
Með einu símtali er hæqt að
breyta innheimtuaðferðinni.
Eftir það verða áskriftargjöld
in skuldfærð á viðkomandi
____ VERIÐ VELKOMINI .--
”5* I GREIÐSLUKORTA- I
VIÐSKIPTI.
upp nauðsynlegum tækjabúnaði
fyrir húsgagnaprófanir. Trétækni-
deild stendur nú að kynningu á
húsgagnaprófunum meðal fram-
leiðenda, opinberra stofnana og
hagsmunasamtaka. I því skyni var
Irene Arell, forstöðumanni Möbel-
institutet, sem fæst við húsgagna-
prófanir í Svíþjóð, boðið hingað til
lands til að kynna hvemig hús-
gagnaprófanir fari fram í Svíþjóð.
Hún kynnir meðal annars gæða-
merkið „möbelfakta", sem sett er
á þær vörur sem standast kröfur
stofnunarinnar og gefur neytand-
anum upplýsingar um notagildi
þeirra, stærð, styrkleika, öryggi og
handbragð.
í kynningu trétæknideildarinnar
kemur fram að húsgagnaprófun sé
viðurkennd aðferð til að leiðbeina
kaupanda, seljanda og framleið-
anda við að meta vömna. Tilgangur
prófunaraðstöðunnar í Keldnaholti
sé að gera framleiðendum auðveld-
ara fyrir að framleiða húsgögn og
innréttingar í ákveðnum gæða-
flokki, aðstoða þá við vömþróun og
veita neytendum og þeim sem sjá
um innkaup stofnana og fyrirtækja
upplýsingar um þol og styrk vara.
Neytandinn fái þannig upplýsingar
um gæði vömnnar, sölumaðurinn
geti verið ömggur með að varan
standist þær kröfur sem hann bjóði,
og framleiðandinn fái hlutlausar
upplýsingar um vömna sem hann
er að framleiða og aðstoð við að
laga það sem miður fer.
Iðntæknistofnun gerir ráð fyrir
að framleiðendur greiði að minnsta
kosti helming af kostnaði hús-
gagnaprófana, sem er áætlaður um
2 milljónir króna á ári. Ennfremur
er gert ráð fyrir að tíu fynrtæki
taki þátt í þessum kostnaði. í máli
Guðna Jónssonar hjá Stálhús-
gagnagerð Steinars á blaðamanna-
fundi kom meðal annars fram að
húsgagnaprófanir hér á landi væm
spor í rétta átt. Þær hjálpi framleið-
andanum að hanna vömr og það
væri dýrt spaug að senda vömr á
markaðinn sem ekki standist kröf-
ur. Þá ættu þessar prófanir að efla
gæðavitund íslendinga og færa
þeim sanninn um að verð sé aðeins
einn þáttur í húsgagnaviðskiptum.