Morgunblaðið - 29.11.1987, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1987
C 11
síðar héraðslækni á Hvammstanga (d. 1927): „Um vorið 1902
fóru þeir svo suður, Ólafur og Magnús, en ég varð eftir, var
þá lasinn og treysti mér ekki. Þeir urðu efstir allra, er próf
tóku upp úr fyrsta bekk, Magnús efstur (eins og jafnan úr
því, baeði í menntaskóla og háskóla) og Ólafur nær efstur."
Segist Þorsteinn engan mann hafa þekkt, er minna þurfti að
hafa fyrir að læra en Ólaf, nema Magnús bróður sinn. Eina
námsgreinin sem Magnús þurfti talsvert að hafa fyrir var
stærðfræðin. Kvaðst Þorsteinn skilja þá áreynslu, því að stærð-
fræði hin æðri og torveldari hafi verið langleiðinlegasta og
erfiðasta námsgrein, sem hann hafi gluggað í. Þá getur hann
þess, að Magnús hafi aðeins verið eitt ár í Latínuskólanum í
Reykjavík, þ.e. í 3. bekk. Ástæðan til þess var sú, að honum
geðjaðist ekki að ólátum þeim og óstjóm, sem þá var í skólan-
um, en tók jafnan próf þar á vorin.
Á sumrin unnu þeir bræður að búi foreldra sinna. Voru
þeir mjög frjálsir í vinnunni, ef þá langaði í veiðiskap, en
unnu þó mikið. Þeir voru góðir sláttumenn, einkum þó Magn-
ús, sem sló túndagsláttu á 8 tímum á túninu á Ríp. Kemst
Þorsteinn svo að orði um afköst þeirra: „Er ég viss um, að
við höfum oft slegið hátt upp í kýrfóður báðir saman á bestu
starengjum Rípureyjar. Er þetta ekkert skrum, en það vil ég
taka fram, að Magnús sló meira en ég, og að þetta var þar
sem grasið var mest. En Rípurengjar voru ákaflega gras-
gefnar, þegar góð flóð komu í Vötnin á vorin, og svo var öll
árin, sem við vorum á Ríp. Heyskapur gekk því fljótt hjá
okkur. Magnús var snemma þrekmenni mikið, sterkur vel og
úthaldsgóður."
Vorið 1908 lauk Magnús cand. phil.-prófi frá Hafnarhá-
skóla. Og eins og hann vék að, þá hafði trú hans þó staðist
innrás nýrra skoðana. Því hóf hann nám í Prestaskólanum
um haustið og þann 20. júní 1911 lauk hann guðfræðiprófi
þaðan með fyrstu ágætiseinkunn.
Faðir hans var þá hættur prestskap fyrir sjö árum en gerð-
ist bóndi á Snæfellsnesi. Hafði séra Jón þegar á fertugsaldri
kennt sjóndepru, sem hann fékk ekki bót á, svo hún ágerðist
nokkuð með hveiju ári, sem leið. Veturinn 1903—4 var þann-
ig komið sjón hans auk þess sem hann hafði þá mjög brostið
raddstyrk, að hann sagði lausu embætti sínu og fluttist vorið
1904 vestur á Snæfellsnes. Hann bjo fyrst á Fróðá í Fróðár-
hreppi, en síðar í 6 ár á stórbýlinu Bjamarhöfn í Helgafelissveit
á árunum 1905—1911.
IV
í fórum mínum á ég vatnslitamynd vestan frá Breiðafirði,
sem Magnús Jónsson gerði á næstsíðasta ári sínu í Prestaskól-
anum (1910). Hann hafði þá um nokkurt skeið fengist við
myndlist, en ekki ennþá með umtalsverðum árangri. A fyrsta
vetri í Latínuskólanum, er hann var á fimmtánda ári, hófst
myndlistarferill hans. Hann var til húsa hjá dr. Jóni dósent
Helgasyni, síðar biskupi íslands. Fékk hann þá vatnsliti í jóla-
gjöf og var fordæmis og fyrirmynda ekki langt að leita, því
Jón Helgason var mikilvirkur myndlistarmaður, svo sem kunn-
ugt er, og liggur eftir hann fjöldi verka, teikninga, vatnslita-
mynda og olíumálverka. Var dr. Jón með afbrigðum vandvirkur
og eru þessi verk hans mjög nákvæmar heimildamyndir um
byggingar í Reykjavík og víðar hér á landi við upphaf þessar-
ar aldar. Kvaðst Magnús hafa stælt eftir myndum Jón „með
dæmalausu kjarkleysi". Þegar hann kom svo heim í föður-
garð fór hann að reyna að mála landslagið þar úti á nesinu.
Sjálfur telur Magnús þau myndverk, sem hann málaði þá,
hafa verið „afar litlar myndir, blóðlausar, þurrar á hörundið
og veiklulegar. Ég á þær enn sumar, þessar hryggðarmyndir
sannleiksástarinnar og fómardýr samviskuseminnar. Ég gæti
best trúað, að á dómsdegi rísi þær upp og verði góðir tals-
menn mínir".
Er á ævina leið varð Magnús Jónsson næsta mikilvirkur
myndlistarmaður. Er með ólíkindum hversu mikið af myndum,
bæði smáum og stórum, liggja eftir hann, ekki síst þegar
haft er í huga, að þær vom gerðar á stopulum tómstundum.
En hann hafði fyrir venju, er hann var á ferðalögum, bæði
innan lands og utan, að taka með sér pappír og liti. Þegar
hann sá áhugaverð eða hrífandi mótíf settist hann gjaman
niður með fyrrgreind föng og var ekki lengi að festa á pappír-
inn það sem augun námu og reyndar meira til. Með auknum
þroska og kunnáttu byggði hann verk sín meir á impressi-
onísku viðhorfi, eins og mikilvægi birtunnar, snöggri andrá
blæbrigðanna og kvikum pensildráttum. En í 2. bindi Islenskr-
ar myndlistar gerir höfundurinn, Bjöm Th. Bjömsson, mjög
gagnorða og lifandi grein fyrir myndlistarmanninum Magnúsi
Jónssyni.
Þar segir hann, að um annað byggi málverk hans á ex-
pressionísku viðhorfi, „þar sem jarðarlitir skipa oft dijúgan
sess og myndefnið er skynjað sem huglifun ekki síður en sjón-
ar. Fæmi Magnúsar er oft undraverð eða „sniðugheit" hans
og „klókindi" eins og hann kallaði sjálfur. Hvort sem hann
málar skýjaslæður í hjamhlíðum Snæfellsjökuls eða græna
geira í skriðum Kistufells tekst honum furðu oft það, sem
hann ætlar“.
Bjöm Th. leggur strangt mat á myndlist Magnúsar og mun
ýmsum hafa þótt það nokkuð óvægin gagnrýni. Er mér kunn-
ugt um það, að Bjöm þekkti Magnús Jónsson mjög vel
persónulega, hreifst af fjölþættum gáfum hans, m.a. á sviði
myndlistar, og einmitt þess vegna gerir hann miklar og strang-
ar kröfur til hans sem listamanns. Að áliti listfræðingsins var
Magnús annað og meira en frístundamálari eða „alþýðumál-
ari“. Bjöm segir hann fullkomið dæmi um mann, sjálflærðan
í list sinni, en að öðm leyti hámenntaðan. Þótt stétt hans
væri látin lönd og leið væri nefningin „alþýðumálari" samt
markleysa þar sem hann á í hlut. Og því segir Bjöm hug sinn
á þessa leið: „Það sem á skortir er hins vegar fmmleikinn;
hann sér með augum venju, sem aðrir hafa skapað, stefnir
að túlkun, sem hann er ekki höfundur að. Og aldrei hvarflar
að honum þrátt fyrir þrek hans og kjark, að stíga skrefi út
fyrir þann hring. Ef til vill ræður hér ekki mestu um, að list-
in var honum ígripaverk, heldur miklu fremur hitt, að lífsvið-
horf hans er bundið kerfi, sem hann unir vel við. Hví þá að
slíta vébönd þess og gera uppreisn? Ríkasti þátturinn mun
þó hafa verið náttúmhrifning hans og lotning fyrir því sem
vel er gert. Því gat hann, svo sem hann sjálfur segir, „setið
mitt í hringiðu viðburðanna og verið að hugsa um, hvemig
megp láta jökulvatn renna í sínum farvegi, eða hvemig megi
• Metsölubladáhverjumdegi!
Oldsmobile Delta 88 Royal Coupe 1985
2ja dyra svartur glæsivagn, klæddur Ijósgráu
plussi. MótorV-8, ekinn um 17 þ.km., sjálfskiptur
með sjálfhraðast. og veltistýri o.fl. o.fl. Skoðum
skuldabréf og skipti.
^A&ad ^>í$.a*adaH
Miklatorgi, símar 15014-17171.
,yatnsu-loftvog
kristal
8
1 — ur
|| Loksins
^ komnar aftur
1
Loftvog er ómissandi á hvert heimili,
— þetta er „þrumu“ loftvog.
Þessi vatnsloftvog er einstök, — líklega elsta loftvogsteg-
und í heimi. Vitað er að samskonar loftvog var notuð árið
711 og nefnd „þrumuflaska“.
Loftvogin er úr kristal og er hún að öllu leyti handunnin.
Verð kr. 2.700,-
Póstsendum
TEKK*
KKISIALL
Laugavegi 15, sími 14320 Kringlunni, sfmi 689955 ^