Morgunblaðið - 29.11.1987, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1987
C 13
myndi fórna starfskröftum sínum þar við fræðistörf og
kennslu. En þá var hann gerður að formanni Fjárhagsráðs
og gegndi því valdamikla, erilsama og vanþakkláta starfi
næstu sex árin, 1947—53.
IX
Eftir þessa miklu upptalningu er ekki fráleitt að bera fram
spumingu: Hvenær gafst þessum eljumanni tími til þess að
sinna myndlist? Eins og fram hefur komið í upphafi þessarar
greinar, þá hafði hann jafnan með sér liti og pappír á ferðum
sínum. Síðar hefur hann sennilega unnið stærri verk eftir
sumum þeirra frumdraga er þannig urðu til, en Qöldi skemmti-
legra smámynda munu geymdar. Þá málaði hann nokkrar
altaristöflur, sem bera þess órækt vitni, að málarinn þekkti
til staðhátta og litbrigða og birtu í Landinu helga. Meðal
annarra málaði hann mikla Fjallræðumynd á kórgafl Mæli-
fellskirkju og í Svalbarðskirkju í Laufássprestakalli er stór
altaristafla, olíumálverk, sem sýnir Krist á tali við konuna
við Jakobsbrunn. Er ljóst af frásögn Ásmundar Guðmundsson-
ar í bókinni Jórsalaför, að stuttur stans þeirra Magnúsar við
Jakobsbrunn hefur haft sterk áhrif á þá. Að brunninum fylgdi
þeim kona mikil vexti og sköruleg og ekki óáþekk því, sem
þeir hugsuðu sér kanversku konuna, er tók lifandi vatnið i
Jakobsbrunninum svo langt fram yfír vatnsbólin í Síkar. Og
konan sökkti fötu af vindu ofan í brunninn og gaf þessum
íslensku pílagrímum að drekka — lifandi vatn. Til þessa verð-
ur mér oft hugsað, þegar ég stend frammi fyrir altarismynd
Magnúsar í Svalbarðskirkju af Kristi við Jakobsbrunn. Hún
er svo náttúruleg og sannfærandi í helgri kyrrð og tignu til-
gerðarleysi.
I viðtali á sjötugsafmæli sínu segir Magnús m.a.: „Ég átti
nefnileg svolítinn sumarkofa auk hinna húsanna. Ég var þar
sjaldan, en hann gaf mér mikla nautn. Ég á við föndrið,
málaraföndrið. Ég hætti því aldrei alveg. Og nú er það að
verða að breiðari og breiðari straumi. En við skulum ekki
tala meira um það.“
Ásmundur Guðmundsson kvaðst stöku sinnum hafa fundið
sig kenna nokkurs sársauka hjá Magnúsi Jónssyni yfír því,
að listgáfa hans skyldi ekki hafa náð meiri þroska, svo í hug
hans komu orð Esajasar Tegnérs:
„Och tidens hittebam, her sett i skolen, fár kanske se sin
fader bort i solen.“
En ljóst er, að trú Magnúsar og list stóðu í nánum tengsl-
um hvor við aðra. í morgunsálmi, sem hann orti, líkir hann
Guði við málara:
„Ó Drottinn, hvað þín dýrð er stór og fógur,
er dregur þú um loft og jörð og ögur
með ljóssins vendi morguns töframyndir
þá megindýrð, sem skuggavöldum hringir."
X
„Mesta skömmin er að vera mikið gefið, en svíkjast
um.“ Þessi orð úr lokahugleiðingu Magnúsar Jónssonar um
trúarskáldið í Saurbæ virðast hafa verið honum sjálfum leiðar-
ljós til æviloka. Hann sló aldrei slöku við eins og fram kemur
í þessari lifandi lýsingu Bjöms Th. Bjömssonar þar sem hann
leiðir lesandann frá daglegum starfsvettvangi Magnúsar á
staðinn þar sem hann gefur sig listinni á vald:
„Prófessor í guðfræði og formaður Landsbankaráðs, at-
vinnumálaráðherra og formaður útvaipsráðs, rithöfundur um
sagnfræðileg og kirkjuleg efni og formaður Fjárhagsráðs,
stjómmálaritstjóri, útgefandi, formaður Listvinafélagsins,
formaður skólaráðs Tónlistarskólans ... Sá, sem ekki þekkti
manninn mætti ætla að hann hafi ekki verið einhamur. En
það var einmitt það sem hann var. Hvað eina var hluti af
öðm, og listin var einn þátturinn í þessum lífsþorsta og af
þessu lífsþreki. Eftir viðtalsönn á skrifstofu og eftir funda-
höld, eftir ritun stjómmálaleiðara eða dágóða rispu um
Hallgrím Pétursson eða Pál einkavin sinn frá Tarsus, átti
hann það til að fleygja málaradóti sínu út í bíl og þeysast upp
á Kjalames. Þar reisti hann trönur sínar, vísast syngjandi,
og gaf sig nú einnig þessum leik á vald. — Gaman er að
heyra hann sjálfan segja frá því sem síðan gerist:
„Þegar ég hef valið mér verkefni og á mér einskis ills von
fer ég að magnast — að mér finnst frá jörðinni sem ég stend
á. Ég fer að sjá öðmvísi en áður. Alit annað lokast, en mynd-
in fer að verða til. Það fer í mig einhver demón eða ári, —
Ég þrælast áfram, mála og mála, smyr og smyr, þangað til
af mér rennur — aldrei seinna en eftir 2—3 tíma. Og þá er
ég með frummynd hrottalega kámaða. Ég fer í gott skotfæri
við hana og stari á hana hugfanginn, þreyttur og sæll — eins
og ég get hugsað mér móður með nýfætt bam — fallegasta
bam veraldarinnar. Með þennan dýrgrip fer ég svo heim og
læt ljómann dvína. — Þá þykir mér best að fara með myndina
á sama stað, helst hvað eftir annað, og „byggja hana upp“,
hlaða hana upp. Hún verður klunnaleg skorin í tré, oft býsna
litkius, en — að mér finnst — sterk og ákveðin. Bamið fagra
deyr í höndunum á mér, en að vísu í sælli upprisuvon. Því
að svo, eftir góða bið, vil ég taka myndinni ærlegt tak. Á
hana eru nú komnir sæmilega þykkir litir, notalegir og mjúk-
ir fyrir pensilinn. Og nú vil ég koma með alveg nýja og hreina
litiu á spjaldinu og allt í besta lagi, rólegur og fullur af ástúð
og blíðu, en jafnframt sniðugur og klókur. Því nú á myndin
að rísa upp í öllu sínu skarti, tútna út, blómstra verða að
málverki."
Magnús Jónsson andaðist 2. apríl 1958, sjötugur að aldri.
Bennie kona hans hafði látist rúmum þrem mánuðum fyrr /
eða þann 14. desember 1857. Þau höfðu verið mjög samrýmd
hjón og hennar var minnst sem hógværrar, hlédrægrar konu,
sem var manni sínum blessaður lífsförunautur í fómfysi sinni,
órofatryggð og heimilisrækt. Þau hjón eignuðust fjögur böm,
þijár dætur og einn son.
Magnús Jónsson vissi að hveiju stefndi, þegar hann hafði
fylgt konu sinni til grafar. Hann var þrotinn að heilsu og
honum var ekkert að vanbúnaði að kveðja jarðlífið. Hann
mætti þeim umskiptum með eftirvæntingu eins og hann væri
að fara í langa ferð inn í æðri og bjartari veröld. Honum
hafði verið hugleiknast að mála sigur ljóssins yfir myrkrinu,
lífsins yfir dauðanum — forgarða Guðsríkis. Nú opnuðust
honum nýjar dyr og háar.
BUXUR
ÚLPUR
SKYRTUR
FRAKKAR
í flestum bestu herra-
fatabúðum landsins.
Þarftuaðkomavörumtillandsms
frá Bandaríkjunum fyrir jol?
Ef svo er þá lestar M.S. HOFSJÖKULL vörur í Boston 1.-3. desember nk
og losar í Hafnarfirði 10. desember nk.
Með þessum hætti faerðu vöruna t'manlega fyrir jólin.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu okkar í síma (91) 2-14-20.
■ ■
JOKLAR HF.tAða!stræti 6, sáni (91) 2-14-20.