Morgunblaðið - 29.11.1987, Side 16
WIKA
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1987
Þrýstimælar
Ailar stæröir og gerðir
JmlLL
j)fe(rD»»®in) <£t
Vasturgötu .16, sími 13280
Iðnaðarhúsinu, Hallveigarstíg 1,
sími 11845.
Glœsilegur henfatnaÖur
viÖ öll tœkifœri.
Nýsending.
ELDHÚ SKRÓKURINN
Fróðleiksmolar - og
ein girnileg uppskrift
• ói nrænmetiskvom,
hrænvél, 9r0T Fjölhætm
hakkavél og takmörk
Philips Maxim eru lrtH
sett.
seu- ^
spaði.
HeinfiniöiöciDÍ
Það er alltaf nauðsynlegt að sjá
líkamanum fyrir nægum
vítamínum, en sérstaklega á
þetta við í skammdeginu. Þótt
stutt sé S það að sól fari að hækka
á lofti á ný er enn nóg framboð
af vítamínríku grænmeti og
garðávöxtum, sem sjálfsagt er
að notfæra sér við matreiðsluna.
Hér verða aðeins nefnd þrjú
dæmi.
Gulrætur
í gulrótum er mjög mikið af litar-
efni er nefnist karótín, en úr því
vinnur líkaminn A-vítamín sem
meðal annars er mjög bætandi fyr-
ir sjónina og fyrir slímhimnur
likamans. Sagt er að í síðari heims-
styijöldinni hafi brezki flugherinn
fyrirskipað flugmönnum sínum að
neyta gulrótarsafa í miklum mæli
til að bæta sjón þeirra, ekki sízt
að næturlagi. Bar þetta tilætlaðan
árangur, að sögn, í orustunni um
Bretland þegar fámennum flugher
Breta tókst að stöðva loftárásir
mun fjölmennari flughers Þjóð-
verja.
Mest af A-vítamíni fæst úr
hráum gulrótum og gulrótarsafa.
Vel þroskaðar og vel rauðar gul-
rætur eru vítamínríkari en þær
ljósari. í hverjum 100 grömmum
af gulrótum eru um 43 hitaeining-
ar (kaloríur) og um 9,2 grömm af
kolvetni.
Tómatar
Tómatar eiga uppruna' sinn að
rekja til vesturstrandar Suður
Ameríku þar sem þeir í upphafi
uxu villtir í Perú, Ekvador og
Bólivíu. Áður en Kólumbus kom til
Ameríku var farið að rækta tómata
víðar, meðal annars í Mexíkó og
Mið-Ámeríku, og þaðan er talið að
Kólumbus hafi flutt fyrstu tómat-
ana til Evrópu. Fyrstu heimildir
um tómata í Evrópu eru ítalskar
frá árinu 1554, og þar eru þeir
nefndir pomi d’oro, eða gullepli.
Hefur þar trúlega verið um gulleit
afbrigði að ræða.
Þótt Bandaríkjamenn séu frægir
fyrir notkun tómatsósu í flest mál
var það ekki fyrr en löngu seinna
sem tómatar bárust þangað. Talið
er að Thomas Jefferson, þriðji for-
seti Bandaríkjanna, hafi fyrstur
ræktað tómata þar í landi árið
1781, en fram að lokum 19. aldar
var víða í Bandaríkjunum álitið að
tómatar væru eitraðir.
Þótt tómatar séu ávextir eru
þeir venjulega flokkaðir undir
grænmeti. Þeir eru ríkir af stein-
efnum og A- og C- vítamínum. í
hveijum 100 grömmum eru 21
kaloría og um 3,7 grömm af kol-
vetni.
Hvitkál
Hvítkál er mest snædda kálteg-
undin. Kálið er tiltölulega ódýrt,
en ríkt af steinefnum og vítamin-
um, sérstaklega C-vítípnini. Það
er góður siður að bera fram hrásal-
at með hvítkáli með aðalmáltíð
dagsins eins oft og því verður við
komið í skammdeginu.
Fom-rómveijar notuðu hvítkáls-
blöð útvortis til að veijast sótt-
kveikjum, og enn nota sumir kálið
til lækninga, til dæmis til að græða
legusár. í lOOgrömmum af hvítkáli
eru 28 hitaeiningar og um 5,2
grömm af kolvetni.
Og þá er það uppskriftin:
Ostafylltir tómatar
í þennan rétt fara: 4 stórir eða
8 litlir tómatar, 50 gr. ijómaostur,
11/2 matsk. mjólk, 125 gr. smátt-
saxaðir sveppir, 3-4 fíntskomir
seljustönglar, 1 búnt fíntskorinn
graslaukur, salt,.pipar og salatblöð.
Skerið „lok“ af tómötunum og
takið innan úr þeim með skeið.
Pressið innvolsið gegnum síu og
hrærið því saman við ijómaostinn
og mjólkina. Blandið sveppum,
selju og graslauk út í. Kryddið með
salti og pipar eftir smekk, og fyllið
svo tómatana með hræmnni. Tóm-
atamir eru síðan bomir fram á
salatblaði og gjaman með brauði.
í næstu Dyngju verður svo
síðasta gæludýrið að sinni, br-
skemmtileg mús.